Fréttablaðið - 03.01.2017, Síða 11
Öfgahreyfingar innblásnar af lýðskrumi ná eyrum fólks á Vesturlöndum. Stofnana-
kerfið er að glata valdinu yfir fólkinu
og veit ekki sitt rjúkandi. Traustið er í
uppnámi. Í umræðum hér á landi eru
öfgarnar afgreiddar sem þjóðremba og
útlendingahatur. En það er barnaleg
afneitun, því fleira liggur að baki.
Málshefjendur öfganna tala við
einstaklinginn í fjöldanum um lífs-
kjörin og raunaðstæður. Fólki finnst
það einhvers metið. Stofnanakerfið
með stjórnmálaflokkum sínum, sem
komið er í órafjarlægð frá þörfum
fólks og líðan, bregst við með gömlum
klisjum og framleiðir fleiri skýrslur
og tölur. En fólkið þráir virðingu, að
tekið sé mark á því og brugðist við
berskjaldaðri spillingu af festu. Öfga-
hreyfingarnar sýnast ljóma af hugsjón,
en hefðbundnir stjórnmálaflokkar
hafa breyst í bandalög frambjóðenda
til að tryggja sér atvinnu á þingi og
gæta þröngra sérhagsmuna. Skoskur
álitsgjafi sagði um Brexit: „Ef við, sem
tilheyrum elítunni, hefðum varið meiri
tíma á kránum úti á landsbyggðinni á
Englandi og Wales, þá hefðum við
fengið að kynnast hvað meirihluti
kjósenda, sem ekki tilheyrir elítunni,
er að hugsa.“
Á Íslandi hefur stofnanakerfi valds-
ins safnast saman á höfuðborgar-
svæðinu og bólgnað út. Það hefur
verið inngróið lögmál um langa tíð.
Hugmyndafræði kerfisins byggist á
því að allan vanda skuli leysa með
meiri fjármunum. Takmarkað rými
er fyrir skilning og auðmýkt til að
setja sig í annarra spor og enn síður
að rækta samstarf til að einfalda og
styrkja þjónustuna. Stofnanir einangra
sig, verja sína stöðu og framleiða hvert
regluverkið ofan á annað sem oft er
ómögulegt að skilja. Starfsfólkið fær
litlu ráðið af því að það er fjötrað í
kerfisskóginum.
Tekjubilið á milli lægstu og hæstu
launa breikkar óðfluga í góðærinu.
Almenningur er múlbundinn af lánum
á okurvöxtum og borgar stóran hluta
af heimilistekjum til lánadrottna. Það
er kaldhæðnislegt og fólki er misboðið
þegar spámenn á ofurlaunum vara
Festa öfgar hér rætur?
Þann 21. október næstkomandi verða 500 ár liðin frá því að sið-bót Marteins Lúthers hófst. Þann
dag árið 1517 lagði hann fram 95 guð-
fræðikenningar, sem helgisögn segir
að voru negldar á dómkirkjudyrnar
í Wittenberg. Fáir hugsuðir hafa haft
víðtækari áhrif á trú, menningu og
samfélagsgerð Evrópu en Lúther.
Óhætt er að fullyrða að hugsun hans
hafi með beinum hætti lagt grundvöll-
inn að samfélagi Norður-Þýskalands
og Skandinavíu og með óbeinum hætti
haft áhrif á trú og menningu álfunnar
allrar.
Nokkrir þættir vega þar þyngst
að áliti fræðimanna: Þar ber fyrst
að nefna samfélagssýn hans um
almennan prestdóm, sem afhelgaði
preststarfið og helgaði störf allra
stétta, er hafði afgerandi áhrif á vinnu-
siðgæði mótmælenda. Þá kall hans
til samábyrgðar á þeim sem standa
höllum fæti í samfélaginu, sem lagði
grunn að hugmyndum um velferðar-
ríkið. Loks leiddi áhersla hans á læsi
og aðgengi almennings að Biblíunni á
þjóðtungum til helgihalds á íslensku,
útgáfu biblíuþýðinga og lestrarkennslu
almennings.
Mikil gróska er í rannsóknum í
háskólum beggja vegna Atlantshafsins
í tilefni siðbótarafmælisins og víða eru
hátíðarhöld í kirkjum sem rekja upp-
haf sitt til siðbótarinnar. Hápunktar
siðbótarafmælisins eru annars vegar
söguleg guðsþjónusta páfa og lúterska
heimsambandsins í Lundardómkirkju
á liðnu ári og hins vegar siðbótar-
dagurinn í Þýskalandi á komandi ári,
þar sem haldin verður hátíð með fjöl-
breyttum viðburðum um allt sam-
bandslýðveldið.
Undanfarið misseri hef ég lesið
við Emory-háskóla í Bandaríkjunum
og guðfræðibókasafn skólans, Pitts
Theological Library, hefur í tilefni sið-
bótarafmælisins verið með sýningar á
merkilegum safnkosti þess. Bókasafnið
hefur lagt áherslu á að safna siðbótar-
ritum frá tímabilinu 1517-1570 og býr
yfir 3.500 bókum og fágætum handrit-
um aðallega frá Þýskalandi. Núverandi
sýning blandar saman frumhandritum
Lúthers og tréristum Lucas Cranach en
hann miðlaði hugmyndum Lúthers
um lögmál og fagnaðarerindi í mynd-
máli í bókum siðbótarinnar. Sambæri-
legar sýningar er að finna í stærri guð-
fræðibókasöfnum um allan heim um
þessar mundir.
Mótmælin mörkuðu vatnaskil
Þó tími og framfarir aðskilji okkur
frá upphafi siðbótarinnar er arfleifð
hennar hvorki úreld né óspennandi.
Lúther var gagnrýninn á hugmynda-
fræði og auðskiptingu síns tíma og
mótmæli hans mörkuðu vatnaskil í
vestrænni hugsun. Hann var mennta-
maður sem nálgaðist samtíma sinn
og trúararf með gagnrýnum augum
og boðaði mannsmynd sem er í senn
bjartsýn og raunsæ. Manneskjan er
samkvæmt Lúther samtímis réttlát og
syndug, megnug þess að velja hið góða
með Guðs hjálp eða að lifa á eigin for-
sendum án tillits til annarra. Við erum
í senn þrælbundin af afleiðingum
gjörða okkar og alfrjáls til að velja og
hafna þeirri ábyrgð. Mikilvægust er þó
sú hugsun að verðgildi manneskjunnar
byggir ekki á verkum hennar eða
aðstæðum, heldur er hver manneskja
elskuð og elskuverð á þeirri forsendu
einni að vera sköpun Guðs. Sú hugsun
er forsenda mannréttindahugmynda
samtímans.
Á afmælisári siðbótarinnar gefst
einstakt tækifæri til að skoða og meta
arfleifð Marteins Lúthers í sögu okkar
og menningu. Íslenskir guðfræðingar
hafa þegar sett af stað málþingaröð
um siðbótarrannsóknir og kirkjur
landsins munu með fjölbreyttum
hætti minnast afmælisins á árinu. Það
er full ástæða til að hvetja stofnanir og
skóla landsins til að nota tækifærið og
kynna siðbótina á komandi ári. Ekkert
svið íslenskrar menningar er ósnortið
af anda siðbótarinnar, þó þau áhrif séu
svo sjálfgefin og samofin menningunni
að þau eru oft hulin sjónum okkar.
Gleðilegt siðbótarár
við hækkun lægstu launa og hóta að
kollvarpa stöðugleikanum. Þá svífast
ósnertanlegir auðhringar einskis með
taumlausri græðgi sinni og soga til sín
ómældan gróða af fólki og auðlindum
á vildarkjörum kerfisins. En einstakl-
ingurinn og smærri atvinnurekstur er
fjötrum bundinn af kerfinu og getur sig
lítið hreyft nema spyrja leyfis og borga
fyrir.
Hér býr fámenn þjóð en vel mennt-
uð og tæknivædd sem kæmist fyrir
í hverfi í einni höfuðborg nágranna-
landanna. Við höfum því einstakt
tækifæri til að þróa kerfin til að vera
manneskjuleg og treysta lífskjör með
jöfnuði sem vitnar um virðingu við
fólk. Landið er stórt með mögnuðum
lindum auðs og fegurðar sem krefjast
þess að vandað sé til nýtingar og hlúð
að búsetu fólks og lífsgæðum. Í áföllum
þegar allar bjargir virðast bannaðar, þá
tökum við höndum saman og leyfum
hjartanu að ráða för. Væri ekki ráð að
virkja þennan kærleikans mátt inn í
stjórnarfarið líka?
Ef stjórnmálafólk bregst ekki hraust-
lega við með aðgerðum munu póli-
tískar öfgar festa rætur í þjóðlífinu og
þolinmæðin snúast í bullandi reiði. Þá
duga fjármunir ekki til að skapa frið.
Gunnlaugur
Stefánsson
prestur í
Heydölum
Almenningur er múlbund-
inn af lánum á okurvöxtum
og borgar stóran hluta af
heimilistekjum til lána-
drottna.
Sigurvin Lárus
Jónsson
guðfræðingur
Lúther var gagnrýninn á hug-
myndafræði og auðskiptingu
síns tíma og mótmæli hans
mörkuðu vatnaskil í vest-
rænni hugsun. Hann var
menntamaður sem nálgaðist
samtíma sinn og trúararf
með gagnrýnum augum og
boðaði mannsmynd sem er í
senn bjartsýn og raunsæ.
www.heilsuborg.is Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010
Þarfnast þú meiri
orku?
Ása Dagný Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari
8 vikna námskeið
hefst 10. janúar
Þri. og fim.
kl. 11.00 og 15.00
Framhaldsnámskeið
þri. og fim. kl. 14.00
Upplýsingar í
síma 560 1010 eða á
mottaka@heilsuborg.is
Kara Elvarsdóttir sjúkraþjálfari
Orkulausnir
Námskeiðið hentar þeim sem glíma við
orkuleysi og einnig þeim sem hafa glímt
við vefjagigt eða vilja byggja upp orku eftir
veikindi.
Námskeiðið er góð lausn fyrir þá sem vilja
koma á reglulegri hreyfingu og vinna með
sitt innra og ytra jafnvægi. Kennd er rétt
líkamsstaða og líkamsbeiting, þjálfun er
ævinlega miðuð við getu hvers og eins.
Vikulega er leidd slökun í lok tíma.
Áhersla er lögð á að þátttakendur þekki eigin
mörk og læri að fara ekki fram úr sjálfum sér.
Í upphafi námskeiðs fara þátttakendur í
einstaklingsviðtal við sjúkraþjálfara.
Hjá Heilsuborg eru allir
þjálfarar og sérfræðingar með
háskólamenntun í sínu fagi.
Árangur sem endist
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 3 . J A n ú A R 2 0 1 7
0
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
7
-1
C
C
C
1
B
D
7
-1
B
9
0
1
B
D
7
-1
A
5
4
1
B
D
7
-1
9
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K