Fréttablaðið - 03.01.2017, Síða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
89%
af lesendum dagblaða*
á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 18–49 ára
lesa Fréttablaðið daglega.
Lesa bara FBL
68%
Lesa bæði
FBL OG MBL
21%
Lesa bara MBL
11%
Allt sem þú þarft ...
*Fréttablaðið og Morgunblaðið.
Heimild : Prentmiðlamæling Gallup júl.-sep. 2016
„Þetta gerðist eiginlega bara óvart.
Þetta var hugmynd sem kom upp
fyrir um tveimur mánuðum,“ segir
Erna Hreinsdóttir um nýju partí
búðina sem hún var að opna ásamt
Vigdísi Häsler.
„Þetta var í raun hugmynd Vigdís
ar. Hún var nefnilega að halda upp á
barnaafmæli og þá tók hún eftir því
að það mætti alveg bæta við úrvalið
af svona smart samkvæmisvörum.
Og þá ákváðum við bara að smella í
eina búð,“ útskýrir Erna.
Áhersla verður lögð á að vörurnar
sem fást í Pippu séu öðruvísi en þær
sem fást annars staðar. „Þær eru
svolítið sérstakari, þannig að það
er kannski augljóst að þær eru frá
okkur. Og svo er von á að við gerum
okkar eigin vörur, þannig að við
munum hanna okkar eigin vörur
samhliða. Og þá verður hægt að fá
partívörur með íslenskum texta, t.d.
servíettur og blöðrur,“ segir Erna sem
er menntaður grafískur hönnuður en
Vigdís er lögfræðingur.
Vöruúrvalið í Pippu fer ört vax
andi. „Já, búðin er að stækka og við
erum endalaust að bæta í úrvalið en
vinsælar vörur seljast líka hratt upp.
Við opnuðum fyrir um viku eða
rétt fyrir áramót og þá seldist upp
allt áramótadótið okkar, þannig að
upphafið fer fram úr okkar björtustu
vonum,“ segir Erna um búðina sem
er vefverslun enn sem komið er.
Kominn tími á að taka sér pásu
Erna, sem áður starfaði sem ritstjóri
tímaritsins Nýtt líf, er spennt fyrir
framhaldinu en hún var tilbúin fyrir
breytingu. „Já, ég sagði upp í sumar
en ég var búin að vera í átta ár hjá
Birtingi, það er svolítið langur tími. Ég
vildi bara gera eitthvað nýtt en ég vissi
ekkert hvað ég var að fara að gera. Og
þar sem ég var laus þá ákvað
ég bara að stökkva á þetta
tækifæri með Vigdísi.“
„Já, allavega í bili. Ég
þurfti að breyta til,“
segir Erna spurð út í
hvort henni hafi þótt
vera kominn tími til
að taka sér pásu frá
blaðamennskunni.
„En mín upplifun á
fólki sem hefur verið í
fjölmiðlun er sú að það
losnar eiginlega aldrei,
þannig að mér finnst lík
legt að maður verði eitthvað
að skrifa öðru hvoru eða taka
þátt í einhverju fjölmiðlastarfi. En
ég þurfti bara að taka smá pásu frá
þessari blaðaútgáfu,“ segir Erna sem
hætti eftir að desembertölublað Nýs
lífs kom út.
Erna viðurkennir að það sé svolítið
skrýtið að hætta í blaðamennsku eftir
svo langan tíma. „Já, mjög skrýtið. En
þetta er líka mjög skemmtilegt og
ákveðin endurfæðing, svolítið eins
og að útskrifast úr skóla því ég veit
eiginlega ekkert hvað tekur við. Bara
nýtt upphaf.“
Að lokum, hver er galdurinn við
að halda gott partí? „Galdurinn er
að vera góður gestgjafi, hann
skiptir öllu máli. Og ef
þú ert góður gestgjafi,
öllum líður vel og
partíaðstaðan lítur
vel út þá er ekkert
sem getur klikkað.“
gudnyhronn@365.is
Úr blaðamennsku
yfir í búðarrekstur
Fyrrverandi ritstjórinn Erna Hreinsdóttir hefur sagt skilið við blaða-
mennsku og ritstjórn í bili og snúið sér að búðarrekstri en hún tók ný-
verið hvatvísa ákvörðun um að opna partíbúð sem ber heitið Pippa.
Þetta er líka mjög skemmtilegt og ákveðin endurfæðing, svolítið eins og að útskrifast úr skóla segir Erna.
MyND/KJARTAN HREINSSON
Þeir sem eru að fara að
halda partí geta svo líka
fengið innblástur og leitað
ráða á blogginu sem er á
vefnum www.pippa.is.
3 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r30 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð
0
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
7
-2
6
A
C
1
B
D
7
-2
5
7
0
1
B
D
7
-2
4
3
4
1
B
D
7
-2
2
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K