Víkurfréttir - 06.04.2000, Qupperneq 9
Alrifaríh
markaðssetning
-Spennandi námskeið á vegum MSS
Dagana 11.-13 apríl verður
haldið námskeið í Kjarna,
Hafnargötu 57, sem ber heit-
ið Ahrifarík markaðssetning.
Námskeiðið er þrjár klukku-
stundir í senn, frá klukkan
18 til 21 og leiðbeinandi verð-
ur Magnea Guðmundsdóttir
kynningarstjóri Bláa Lónsins
hf. Hún er með B.A. í mark-
aðsfræðum og almanna-
tengslum og mastersgráðu í
almannatengslum og auglýs-
ingafræðum.
Að sögn Magneu er námskeið-
ið ætlað þeim sem hafa al-
mennan áhuga á markaðsfræð-
um og hentar sérstaklega vel
aðilum sem starfa við rekstur.
„Námskeiðið kemur til með að
veita góða yfirsýn yftr mark-
aðsfræði og er því góður kostur
fyrir þá sem hyggja á fram-
haldsnám og vilja kynnast
greininni betur áður en endan-
leg ákvörðun er tekin“, segir
Magnea.
A námskeiðinu verður fjallað
um innra og ytra umhverfi fyr-
irtækja og hvemig aukin þekk-
ing á markaðsumhverfinu
styrkir samkeppnisstöðu.
Einnig verður rætt um tilgang
og mikilvægi markaðsáætlana
og helstu þætti þeirra allt frá
markmiðasetningu til fjátrhags-
áætlana. Þátttakendur munu
einnig vinna verkefni er tengj-
ast gerð markaðsáætlana.
„Eg mun einnig taka fyrir mik-
ilvægi vel skilgreindra mark-
hópa og gefa dæmi um hvemig
innlend og erlend fyrirtæki
hafa styrkt markaðsstöð sína
með því að höfða á markvissan
hátt til ákveðinna markhópa“,
segir Magnea og bætir við að
áhersla verði lögð á samhæfð
markaðssamskipti, beina mark-
aðssetningu og markpóst, aug-
lýsingar og almannatengsl.
Birtingaráætlanir em einn þátt-
ur námskeiðsins og þá verður
fjallað um mikilvægi þess að
samhæfa auglýsingabirtingar
og aðra markaðstengda við-
burði. ,,Eg mun einnig benda á
nokkur atriði sem geta haft
áhrif á ákvarðanir er varða
markaðssetningu í alþjóðlegu
umhverfi", segir Magnea og
hvetur áhugasama til að hafa
samband við Miðstöð símennt-
unar á Suðumesjum, sem veitir
upplýsingar og tekur við skrán-
ingum á námskeiðið.
„SULTRY MOMENTS”
Vor- og sumarlitimir eru komnir ásamt nýjum litum í sólarpúóri
Glæsileg VERSACE snyrtitaska fylgir kaupum á
tveimur hlutum í línunni.
Kynnum einnig nýjan Versace Herrailm „v/s Versus”
Kynning í dag fimmtudag og á morgun föstudag
Snyrtifræóingur veitir faglega ráógjöf
Hafnargata 25 • Keflavík • Sími 4211442
9
VERSACE
MAKE UP