Víkurfréttir - 14.08.1980, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 14.08.1980, Blaðsíða 1
o WUR 1. tbl. 1. árg. Fimmtudagur 14. ágúst 1980 rCÉTTIC Fær aldurslagasjóður lögheimili I Keflavík? Á undanförnum árum hefur skipastóll okkar Keflvíkinga og Njarövíkinga minnkað verulega, og meðalaldur skipa hér hefur óneitanlega verið nokkuð hár Sl. föstudag voru 100 manns á atvinnuleysisskrá í Keflavík og Njarðvík, en samkvæmt könnun sem Verkalýösfélagiö geröi nú fyrir skömmu þá kom það í Ijós að um 550 manns misstu at- vinnuna er frystihúsin hér lok- uðu. Af þessum hóp voru 370 manns í frystihúsunum sjálfum og við miðað við annars staðar. Mikið hefur verið um það rætt að snúa þyrfti þessari óheillaþróun við, en ekki er hægt að greina að það hafi tekist. humarvinnslu, og samfara lokun frystihúsanna misstu um 180sjó- menn vinnuna. Ástæöurnar fyrir því að aðeins 100 manns af þeim 550 sem atvinnulausir eru hafa látið skrá sig atvinnulausa eru margvís- legar, þó aðallega þær aö ef tekj- ur maka sl. 12 mánuði hafa verið meiri en 5.7 millj. þá fást engar Nú á undanförnum mánuðum hefur fjölgað skipum í Keflavík, en þrátt fyrir þessi skipakaup virðist ætla aö ganga illa aö yngja upp meöalaldurinn. Alls hafa verið keypt hingaö 5 skip að undanförnu og er meðalaldur þeirra u.þ.b. 32 ár. Getur það varla verið kallað ýkjur þó að þessi skip séu sögð komin til ára sinna. Skip þau sem hér um ræðir eru: Helgi S. KE 7. 228 tonna stál- bátur, byggður í A-Þýskalandi 1959 og var einn af svokölluðum „tappatogurum". Eigandi er Heimir hf. Þetta skip vartil í Kefla vík fyrir nokkrum árum undir nafninu Danni Péturs KE 175. Möskvi KE 60. 16 tonna eikar- bátur, byggður á ísafiröi 1942. Eigandi Gunnar Jóhannsson o.fl. bætur, svo og að ef viökomandi hefur verið í skóla á árinu og hefur ekki lokið námi, þá hefur hann ekki rétt á bótum. Þetta ástand sem nú ríkir hér mun eflaust koma illa niður á skóla- nemendum sem höfðu fengið sér sumarvinnu í frystihúsunum til að afla sér tekna fyrir veturinn. Ekki er laust viö aðmannifinn- ist eitthvað bogiö við þá atvinnu- leysisskráningu þar sem aöeins 100 nöfn eru á lista þegar rúm- lega 500mannsmissa atvinnuna, og það hlýtur að vera oröiö tíma- bært að breyta þessu skráning- arfyrirkomuiagi þannig, að þegar verið er að tala um fjölda atvinnulausra þá sé átt viö þá sem eru atvinnulausir en ekki aðeins þann minnihluta sem á rétt á bótum, þvi það er alger fölsun. Ekki liggur enn Ijóst fyrir hvort frystihúsin fara aftur í gang eftir miðjan mánuðinn, en þau lokuðu öll nema Sjöstjarnan hf. i Njarð- vík, sem starfar af fullum krafti viö vinnslu afla þriggja snur- voöabáta og við það starfa um 80 manns fyrir utan sjómennina. Suðurnesja- tíðindi stopp Útgáfa Sufiurnesjatffiinda hefur legifi nifiri sifian í byrjun júnf sl. Ástæfiurnar eru margvfs- legar og er ekki ætlunin afi ræfia þær frekar hér. A6 undanförnu hafa verifi gerfiar nokkrar til- raunir til afi hefja útgáfuna afi nýju, sem allar hafa mlstekist. Hvort Sufiurnesjatffiindl eiga aftur eftir afi sjá dagslns Ijós mun timinn einn leifia i Ijós. Ráðinn að- stoðarkaup- félagsstjóri Guðjón Stefánsson hefur verið ráðinn aðstoöarkaupfélagsstjóri við Kaupfélag Suðurnesja frá 1. júlí sl. Guðjón er fæddur í Sandgerði, 26. ágúst 1943. Hann hóf störf hjá Kaupfélagi Suðurnesja sum- arið 1958. Stundaði síðan nám í Samvinnuskólanum árin 1961- 1963, og var ráðinn skrifstofu- stjóri Kaupfélagsins árið 1963. Guðjón hefur átt sæti í bæjar- stjórn Keflavíkur síðan 1974 og hefur unnið margháttuð störf fyrir bæjarfélagið. Eiginkona Guðjóns er Ásta R. Margeirsdóttir og eiga þau 3 börn. Svartbak- urinn heimtar sitt Að undanförnu hafa margir veitt því athygli, hve svartbakur- inn hefur verið óvenju aðgangs- harður í fæðuöflun sinni. Stafar þetta eflaust af þvi að frekar lítið hefur verið um að vera í fisk- vinnsluhúsunum og Fiskiöjunni að undanförnu og því hefur hann ekki getað róið á sín heföbundnu mið eftir fæðu. Ekki er þaö oröin óalgeng sjón að sjá svartbakinn í húsagörö- um önnum kafinn við aö gæöa sér á öllu því sem af boröum borg aranna hefur falliö, og má segja aö missi maður eitthvað þá sé betra að vera snóggur að ná því áður en svartbakurinn kemur og rænir þvi. Nokkrir fulltrúar eldri kynslóöarinnar i Keflavikurhöfn Keflavlk og Njarðvlk: 550 manns misstu atvinnuna þegar frystihúsin lokuðu - en aðeins 10O eru nú á atvinnuleysisskrá

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.