Víkurfréttir - 14.08.1980, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 14.08.1980, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 14. ágúst 1980 VÍKUR-fréttir 4. flokkur ÍBK: Hefur staðið I ströngu Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur: Nýr vagn tekinn í notkun Dagana 29. júni til 7. júlí sl. fór 4. flokkur ÍBK í knattspyrnu í keppnisferö til Hjörring I Dan- mörku. Var ferð þessi vel heppnuð í alla staði og móttaka Hjörringbúa til mikillar fyrir- myndar. Var tilgangurinn með ferðinni að taka þátt i 5. alþjóð- legu knattspyrnumóti því sem knattsþyrnufélagið FREM í Hjörririg hefur haldið reglulega undanfarin ár. Lenti liö (BK í riðli meö þýsku liði, Wehrheim, sænsku liði, Skeplanda, og finnsku liði, Kerava. Er skemmst frá því að segja aö (BK vann alla sína leiki í riðlinum. Lentu þeir því í úrslitaieik keppninnar og kepptu þar viö FREM frá Hjörring. Unnu leikmenn (BK úrslitaleikinn 3:0. Þegar heim var komið úr þess- ari keppnisferövartekiötilviðfs- Indsmótið að nýju og hefur 4. flokkur (BK nú tryggt sér sæti i úrslitakeppni um Tslandsmeist- aratitilinn. Hefst úrslitakeppnin í Kópavogi og er leikiö 14., 15., 16. og 17. ágúst. Fyrsti leikur (BK er því í kvöld við (K kl. 19.10 áaöal- leikvanginum í Kópavogi. Annar leikurinn veröur við Breiðablik 15. ágúst kl. 18 áSmárahvamms- velli í Kópavogi, þriðji leikurinn verður við Þór frá Akureyri 16. ágúst kl. 12.10 á aðalleikvangin- um í Kópavogi. Sunnudaginn 17. ágúst eru síðan úrslitaleikirnir. Hefjast þeir leikir kl. 11.30. Viö óskum strákunum í 4. fl. og þjálfara þeirra, Ástráði Gunnars- syni, ails hins besta í þessari úr- slitakeppni og hvetjum allastuön ingsmenn (BK og foreldra strák- anna aö fjölmenna nú í Kópavog um helgina og hvetja strákana okkar til sigurs! Sérleyfisbifreiöir Keflavíkur hafa tekið í notkun nýjan vagn, 58 farþega, af gerðinni Scania Vabis, og er hann yfirbyggður í Finnlandi. Áætlaö kaupverð er 85 millj. kr. SBK hafa annast farþegaflutn- ings á sérleyfisleiðinni Suður- nes-Reykjavík í rúmlega 37 ár en farþegafjöldi á sérleyfisleiöinni er ca. 200 þús. á ári. Þá flytja vagnar fyrirtækisins ca. 100 þús. farþega milli Keflavíkurog Kefla- víkurflugvallar fyrir Varnarliðið á ári, og þá eru ótaldir farþegar í hópferðum, en þeir skipta þús- undum árlega. Áætlunarferðir á sérleyfisleið- inni eru 12 á degi hverjum allan ársins hring og akavagnarnirum það bil 400 þús. km á ári. Fyrirtækið er eign Keflavíkur- bæjar, en rekstur þess hefur alltaf staöiö á eigin fótum og hefur aldrei notið fjárhagsað- stoð frá bæjarsjóði. Veltan áriö 1979 var 310.7 millj. kr. og hefur hækkaö um 61% frá 1978. Hagn- aður af rekstrinum 1979 nam 5.9 millj. kr. Bæjarstjórn kýs árlega 3ja manna nefnd sem fer með stjórn fyrirtækisins og starfsfólk á einn fulltrúa í stjórninni. Nefndina skipa nú: Guðjón Stefánsson form., Ásgeir Einars- son, Jón Pétur Guðmundsson og Valgeir Sighvatsson, sem er fulltrúi starfsfólks. Keflavlkur- prestakall NÝIR BORGARAR SKÍROIR: Magnús Þór (f. 28.01.'80) For.: Andrea Vikarsdóttir og Ómar Árnason, Sólvallagötu 46, Keflavik. Halldór Ibsen (f. 14.01.'80) For.: Eygló Halldórsdóttir og Elís Guðmundsson, Lyngholti 8, Keflavik. Sara (f. 01.01.'80) For.: Vigdís Pétursdóttirog Frið- rik Ragnarsson, Háteigi 21 Kefla- vík. ej. Iðnaöarhúsnæði Lagerhúsnæði Til sölu er húseignin að Bolafæti 11, Y-Njarðvík. Húsið er tvær hæðir, 250 ferm að flatarmáli hvor hæð. Á því eru tvær stórar innkeyrsluhurðir og vörulyfta á milli hæða. Nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu okkar. Kíslenzkur markadur hf. Sími 2790 Auglýsingasiminn er 1760 NJARÐVfK Útsvör Aðstöðugjöld Fyrsti gjalddagi útsvara og aðstöðugjalda eftir álagningu var 1. ágúst sl. Greiðið fyrir 15. sept. n.k. og forðist frekari óþægindi. Athygli er einnig vakin á því, að lögtök vegna vanskila eru hafin Bæjarsjóður - Innheimta Linda Maria (f. 05.02.'80) For.: Guðbjörg Ragnarsdóttir og Sturla örlygsson, Faxabraut 51, Keflavík. Arngrimur (f. 25.12.’79) For.: Guðríður Halldórsdóttir og Vilhjálmur Svanberg Arngríms- son, Heiðarhorni 13, Keflavík. Sveinn Þóróur (f. 09.02.'80) For.: Karen A. Kjartansdóttir og Þórður Sveinsson, Hafnargötu 42, Keflavík. Björn (f. 10.01.’80) For.: Guörún Þorbjörnsdóttir og Guðmundur Ingimundarson, Krummahólum 10, Reykjavík. Arna (f. 05.03.'80) For.: Fanney Sæmundsdóttir og Oddgeir Björnsson, Faxabraut 35C, Keflavík. Frióa Rul (f. 26.02.’80) For.: Kristjana Högnadóttir og Stefán Guðlaugsson, Græna- garði 5, Keflavík. Sara Rut (f. 11.03.'80) For.: Ásta P. Stefánsdóttir og Gunnar Már Yngvason, Hring- braut 63, Keflavík.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.