Víkurfréttir - 14.08.1980, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 14.08.1980, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 14. ágúst 1980 VÍKUR-fréttir Fjölbraut kaupir verkstæðis hús Einars Gunnarssonar Mikilvœgum ðfanga nðð í þróun skólans 31. júlísl. varundirritaðurkaup samningur og gengið frá afsali til Fjölbrautaskóla Suðurnesja á verkstæðishúsi Einars Gunnars- sonar að Iðavöllum 1 i Keflavík. Kaupverðið er 150 milljónir sem þannig greiðist: 1. ágúst 1980: 35.000.000. 1. nóv. 1980: 25.000.000. 1. febrúar 1981: 25.000.000. 1. maí 1981: 27.500.000. 37.500.000 greiðist með skuldabréfi til fjögurra ára með 18% vöxtum. Gjalddagar verði fjórir: 1. ágúst 1981, 1982, 1983 og 1984 - 9.375.000 greiðist í hvert sinn að viðbættum vöxtum af skuldinni. Afhentir voru 150 fermetrar af eigninni 1. ágúst sl., en megin- hluti eignarinnar á að afhendast eigi siðar en 1. marz 1981. Einar greiðir 500.000 kr. leigu frá kaup- degi til 1. marz 1981. Með kaupum á þessu húsi er leystur húsnæðisvandi verk- námsbrautar bæöi málm- og tré- iðna. Hins vegar er húsið, sem er alls 700 ferm., ekki stærra en svo að engum nýjum brautum má bæta við án þess aö stækka húsið eöa byggja á lóöinni ný hús. Lóðin er töluvert á 5. þús. ferm., þannig að möguleiki á r A Reikningar Keflavíkur- bæjar samþykktir Á fundi bæjarstjórnar Keflvíkur 29. júlí sl. voru ársreikn- ingar bæjarins samþykktir við síöari umræðu. Heildarniöur- stööutölur rekstrarreiknings voru kr. 1.694.345.049. Helstu gjaldallðlr: Menntamál 302 millj. Félagsmál, lýðtr. og lýöhjálp 235 millj. Vextir 144 millj. Stjórn kaupstaðarins 121 millj. Rekstrarafgangur til verklegra framkvæmda millj., eða 25.5% af tekjum. var kr. 432 Helstu framkvæmdir á vegum bæjarins voru: Bygging íþróttahúss (109 millj.) Bygging leiguíbúða fyrir aldraða (107 millj.) Nýbygging gatna (90 millj.) Helstu tekjuliðir: Útsvör 1039 millj. Jöfnunarsjóösgjald 196 millj. Fasteignaskattur 139 millj. Aöstööugjöld 124 millj. Hækkun rekstrarreiknings frá reikningi 1978 var kr. 533 millj., eða 46%. Heildarupphæö upphaflegrar fjárhagsáætlunar 1979 var kr. 1.468 milljónir. ». Hið árlega KFK-hlaup var haldlö miðvlkudaginn 16. júlí sl. Helstu úrsllt uröu þessi: 10 ára og yngrl: Helgi A. Steinss. UMFK 3:05.5 Ingvar Þ. Jóhannss. KFK 3:06.5 Kjartan Ingvason UMFK 3:13.0 5. flokkur: Þorkell H. Þorkelss. UMFK 4:02.5 Helgi Kárason UMFK 4:03.6 Kjartan Einarsson UMFK 4:05.5 Stúlkur 14 ára og yngrl: Halldóra Magnúsd. KFK 2:47.6 Kristrún Asgeirsd. KFK 2:51.0 (na ögmundsdóttir KFK 2:56.0 4. flokkur: Jóhann B. Magnúss. KFK 5:50.0 Jóhann Björnsson UMFK 5:53.8 Jón Ól. Jóhannss. KFK 6:03.5 Hlaup stúlkna: Ólafía Bragadóttir KFK 4:19.8 Ásdís Hlöðversdóttir KFK 4:27.2 Kolbrún Gunnarsd. KFK 4:38.0 Hlaup pllta eldrl: Ólafur Þ. Magnúss. KFK 8:02.6 Herm. Hermannss. KFK 8:04.1 Ingvar Guðmundss. KFK 8:04.2 Úrslit urðu þau að KFK hlaut 78 stig, UMFK 49 stig og Víöir 3 stig. Keppt var um bikarsem gefinn er af Einari Gunnarssyni, og vann KFK hann í ár. Keppendur voru 60 frá 4 félögum. Trésmiðaverkstæði Einars Gunnarssonar stækkun er góöur. Skólinn fær ekki afhent allt húsiö í einu eins og áður segir, og er því aöeins hægt aö flytja málmiðnaöar- brautina í nýja húsnæöiö í haust, en tréiðnaðarbrautin verður áfram um sinn í Trésmíðaverk- stæði Héðins í Njarðvikum. Jón Böðvarsson, skólameist- ari, baö blaðið fyrir þakklæti til Bjarna Einarssonar, forstjóra Skipasmíðastöövar Njarðvikur, sem haft hefur málmiðnaðar- brautina í sínum húsum sl. 4 ár, fyrir frábæra lipurð sem hann hefur sýnt skólanum i einu og öllu, þráttfyriraðþaðhafi þrengt að starfsemi Skipasmíðastöðv- arinnar að undanförnu og valdiö henni verulegum erfiðleikum. Er skólanefndin áeinu máli um að kaupin hafi verið hagfelld, miöað við það sem annarsstaðar er að gerast, þar sem leysa þarf hliðstæð mál, og mjög mikilvæg um áfanga náð i þróun skólans. Rafveita Keflavíkur: Orkusala 53 millj. á mánuði - fyrstu 5 mánuði ársins Orkusala á fyrstu 5 mánuðum ársins reyndist vera 264.270.217 kr., sem er um 53 milljónirá mán- uöi aö meöaltali. Samkvæmt yfirliti á orkukaup- um fyrstu 5 mánuði ársins virð- ast þau vera komin yfir 60% af heildarveltu. Versnar því greiðslugeta rafveitunnartil ann- arra nauðsynlegra framkvæmda og reksturs. Rafveitunefnd telur nauðsynlegt að hækka raforku um 5% til þessað mæta áorðnum hækkunum mannakaups, efnis og vélaleigu. Auk þess þarf aö hækka smásöluverð á rafmagni um sömu krónutölu og orkukaupin hækka. Gjaldskrá Rafveitunnar hækk- aði 10. ágúst sl. um 12%. Sólbaðstofan SÓLEY I sumar hafa sprottið upp margar sólbaðsstofur, sem augiýst hafa brúnan llt á kropplnn á nokkrum dögum. Þrjár slikar hafa verlð opnaö- ar I Keflavik og eln þelrra er Sólbaðstofan Sóley. Eigandi hennar er Lovisa Gunnarsdóttir, og sagöl hún okkur að marglr hefðu notfært sór þessa þjónustu, þrátt fyrir góða veðrið I allt sumar, enda værl þetta ekkl elngöngu tll þess aö fá llt á kroppinn. Þetta værl heilsullnd fyrlr alla, t.d. fólk meö vöövabólgu, psorlasls-sjúkllnga, og einnlg gætu þreyttir komlð og slappaö af I lömpunum. Sólbaðstofan Sóley er að Helðarbraut 2 og siminn er 2764.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.