Víkurfréttir - 14.08.1980, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 14.08.1980, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 14. ágúst 1980 VÍKUR-fréttir Útgefandi: Vasaútgáfan Ritstjóri og ábm.: Sigurjón Vikarsson, sími 2968 Blaöamenn: Steingrímur Lilliendahl, sími 3216 Elías Jóhannsson, sími 2931 Ritstj. og augl. Hringbraut 96, Keflavík, sími 1760 Setning og prentun: GRÁGÁS HF.. Keflavik Fylgt úr hlaði Þaö hefur ávallt veriö taliö viö hæfi þegar nýtt blaö hefur göngu sina, aö láta nokkur ávarpsorö fylgja. Ekki er meining okkar sem aö þessari útgáfu standa aö vera meö nein stóryröi eða draumóra viö þessi timamót, heldur mun kjörorö okkar veröa aö táta hvern dag nægja sina þjáningu. Tilgangurinn meö útgáfu þessa blaös er ekki margbrotinn, heldur er þetta aöeins tilraun til aö gefa út frótta- og þjónustu- blaö. Þaö er von okkar aö almenningur taki þessari viöleitni okkar vel og liggi ekki á liöi sinu, heldur láti óspart tilsin heyra. Blaöið stendur opiö öllum þeim sem eitthvaö liggur á hjarta. Til aö byrja meö mun blaöiö koma út hálfs mánaðarlega, en þó er stefnt aö útgáfu vikublaös, ef vel tekst til. Efni blaösins mun til aö byrja meö mest veröa einskoröaö viö Keflavik og Njarövik en þó munu sameiginleg hagsmunamál Suöurnesjamanna fá sitt rými. Blaöinu veröur til að byrja meö dreift ókeypis og mun þaö liggja frammi i hinum ýmsu sölu- búöum. Ekki er hér meö sagt aö fróttir frá öörum byggöarlögum fái ekki inni i blaöinu ef þær berast, en sniöa veröur stakk eftir vexti og sækja þá frekar i sig veöriö ef byrlega blæs. Upplag blaösins mun veröa 2000 eintök til að byrja meö og afgreiösla þess veröur aö Hringbraut96, siminn er1760. Útgef- andi er Vasaútgáfan. Ritsjóri er Sigurjón R. Vikarsson og blaðamenn Steingrimur Lilliendahl og Elias Jóhannsson. Þeir sem til þekkja sjá þaö strax, aö þetta blaö er nokkuö tengt Suöurnesjatiöindum og geta þess vegna spurt hvers vegna ekki var haldiö áíram útgáfu Suöurnesjatiöinda. Svariö er einfalt, - þaö þarf fleiri en tvo til þess aö halda úti slikri útgáfu, og þess vegna er þetta okkar viöleitni til aö halda úti óháöu blaöi hór á svæöinu, þó minna sé i sniöum. S. R. Vik. Dráttarvextir Með hliðsjón af 7. gr. laga nr. 55/1980, um starfs- kjör launafólks og skyldutrygginga lífeyrisrétt- inda hafa Verkalýðsfélög á Suðurnesjum ákveðið að reikna dráttarvexti af vangreiddum félags-, sjúkra- og orlofssjóðsgjöldum. Samkvæmt ofanrituðu verða því framvegis reikn- aðir hæstu lögleyfðu dráttarvextir (nú 4.75% pr. mán.) af öllum gjaldföllnum gjöldum til neðan- greindra verkalýðsfélaga. Keflavík, 1. ágúst 1980, f.h. Verkalýðsfélaga á Suðurnesjum. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavfkur og nigrennls Verkakvennafélag Keflavfkur og Njarðvíkur Verkalýðs- og sjómannafélag Miðneshrepps Verkalýðs- og sjómannafélag Gerðahrepps Kirkjulundur brann Föstudaginn 28. júní varð mikið tjón í eldsvoða í Keflavík, þegar kviknaöi í Safnaöarheimili Keflavíkurkirkju, Kirkjulundi. Er slökkviliðið kom á vettvang var húsiö alelda og mannlaust. Kirkjulundur er múrhúðað timburhús og var byggtárið 1912 en var nýlega endurbyggt að hluta. Slökkvistarfiö tók tæpa klukkustund og er húsið stór- skemmt. Mikill áhugi er fyrir að endur- reisa það vegna sögulegs gildis, en húsið hefur mjög athyglis- verðan byggingarmáta, var byggt í einingum í Hafnarfirði og siöan flutt með báti til Keflavíkur, reist þar og notað sem læknisbú- staður, síðan íbúðarhús og loks safnaðarheimili. Af 14 brunaútköllum sem Brunavarnir Suðurnesja hafa fengið frá áramótum eru 10 þeirra af völdum íkveikju og 2 göbb. (kveikjurnar stafa ýmist af gáleysi eða óvitaskap og var eldsvoðinn í Kirkjulundi ein af þessum íkveikjum. Tryggir sjúkraliðum .... Framh. af 11. síðu því, að hinar bóklegu greinar sjúkraliðanámsins far fram í fjöl- brautaskólum, en sjúkraliða- skólinn skipuleggi verklegt nám þeirra sem koma úr fjölbrauta- skólunum. Að vísu er ekki full- komlega frá þessu gengið enn- þá, en heilbrigðisráðherra hefur heitið því að framvegis verði full- gilt sjúkraliöanám við Fjölbrauta- skóla Suðurnesja, og staöfest- ingarbréf þess efnis er væntanlegt. AUGLÝSIÐ f VÍKUR-fréttum! Að marg gefnu tilefni eru meistarar og húsbyggjendur alvarlega áminntir um eftirfarandi: Samkvæmt lögum nr. 54/1978 er óheimilt að grafa grunn, reisa hús, rifa hús eða breyta því eða notkun þess eða gera önnur þau mannvirki sem áhrif hafa á útlit umhverfisins, nema að fengnu leyfi bygginganefndar. Vert er að taka sérstaklega fram, að óheimilt er að breyta íbúðarhúsnæði í atvinnuhúsnæði nema að fengnu leyfi bygginganefndar. Með brot á lögum þessum skal farið að hætti oþinberra mála. Byggingafulltrúinn í Keflavik

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.