Víkurfréttir - 13.04.2000, Qupperneq 1
&. Þaö hefur fiskast vel hja smábátasjómönnum síðustu daga
M og sá guli er fallegur. Hann fær senn sitt árlega páskafrí frá
veiðarfærum uppi á landgrunninu og þá þurfa sjómenn að
, snúa sér að eitthverju öðru. Hár er unnið að löndun úr
Ásrúnu í Grindavík í síðustu viku. VF-mynd: Hilmar Bragi.
Tvöfalthjá
Keflavík!
Keflvíkingar urðu Islands-
meistarar í körfuknattleik
kvenna eftir frækinn sigur á
KR. Sjá nánar á íþróttasíðu.
á þriðjudaginn!
Þriðja tölublað Tímarits Víkurfrétta,
TVF, kemur á alla blaðsölustaði nk.
þriðjudag. Efni er að vanda mjög fj'öl-
breytt. M.a. er ítarlegt viðtal við
Sandgerðinginn Siguigeir Bergsson sem
varð fósturfoður sínum að bana á nýárs-
dag 1997.1 blaðinu er að finna fleiri fjöl-
breytt og skemmtileg viðtöl ásamt litríku
mannlífi á Suðumesjum. Blaðið verður
komið á sölustaði eftir hádegi á
þriðjudag. Nú verður loks hægt að bjóða
upp á áskrift að blaðinu. Tekið er á móti
áskriftum í síma 421 4717.
Fíkniefni flnnast í sjoppu
-mikið annríki hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í Keflavík
Fíkniefnadeild lögregl-
unnar í Keflavík hefur
haft í nógu að snúast að
undanförnu því fjögur
fikniefnamál hafa komið
upp með skömmu milli-
bilL
Fimm grömm af hassi
fundust í sjoppu í Reykja-
nesbæ í síðusm viku. Mál-
ið er nú í rannsókn.
Fjórir aðilar voru hand-
teknir t Reykjanesbæ fyrir
skömmu og á einum jreirra
fundust 2 grömm af hassi.
Fjórmenningarnir voru
handteknir og færðir á Iög-
reglustöðina í Keflavík til
yfirheyrslu. Að henni lok-
inni vom þeir frjálsir ferða
sinna.
Tvær konur á þrítugsaldri
vom handteknar á Reykja-
nesbraut. í bifreið þeirra
fundust 3 grömm af mari-
júana. Konumar em jtekkt-
ir fíkniefnaneytendur og
hafa oft áður komið við
sögu lögreglunnar. Þær
vom yfirheyrðar en em nú
frjálsar ferða sinna.
Lögreglan í Reykjavík
handtók konu frá Reykja-
nesbæ í sl. viku, en hún er
talin stunda víðtæka fíkni-
efhasölu. A henni fundust
60 grömm af hassi, 9
grömm af amfetamíni, 80
steratöflur og eitthvert
magn af stemm í fljótandi
formi. Hún var yfirheyrð
og bíður nú dóms.
___pKef
Sparisjóðurinn í Keflavík
www.spkef.is
Alhliða fjármálaþjónusta
fyrir þig og þína
Tjarnargata 12
230 Kcflavík
Sími 421 6600
Grundarvcgur 23 Sunnubraut 4 Víkurbraut 62
260 Njarðvík 250 Garði 240 Grindavík
Sími 421 6f>80 Sími 422 7100 Sími 426 9000
Fax 421 5833 Fax 422 7931 Fax 426 8811