Víkurfréttir - 27.07.2000, Side 9
I
/
Birkir Már Jónsson er
þrettán ára sundkappi
frá Keflavík. Hann
vann það afrek á dögunum
að verða Islandsmeistari í
1500 m skriðsundi karla, á
meistaramóti Islands í sundi.
Birkir hefur æft sund með
sunddeild Keflavíkur síðan
hann var sjö ára og hefur alltaf
verið með sama þjálfarann,
Eðvarð Þór Eðvarðsson.
Sterkustu greinar Birkis Más
eru 1500 m skriðsund og 200
m flugsund og hefur hann mest
gaman af að keppa í þeim
greinum. Takmarkið er síðan
að komast á Olympíuleikana
árið 2004, en þá verður hann
17 ára.
Birkir keppti ekki eingöngu í
skriðsundi á íslandsmótinu,
heldur einnig í 100 og 200
metra flugsundi og bætti hann
árangur sinn í öllum þremur
greinunum. A síðasta ári setti
hann Islandsmet í 200 m
skriðsundi eldri sveina á
aldursflokkaskiptu
Islandsmeistaramóti, og
stendur það met enn.
Birkir segir foreldra sína styðja
sig rnjög mikið í íþróttinni og
til að mynda hafi þau ekki
misst af nema einu móti sem
hann hefur tekið þátt í. „Það er
rosalega gott að vita af þeim á
mótum. Þau hafa veitt mér
mikla hvatningu og stuðning
þegar ég er að keppa", segir
Birkir.
Hvemig fer svo ungur drengur
að því að ná svo góðum
árangri? „Eg æfi sex sinnum í
viku, tvo tíma í senn og hef
gert það lengi“, segir Birkir
Már og bætir því við að það sé
Eðvarði Þór að þakka að hann
hafi náð svona langt og er
greinilega ánægður með
þjálfarann sinn, sem hefur nú
kvatt sunddeild Keflavíkur.
Sundið tekur mikinn tíma hjá
Birki, en á vetuma segir hann
það geta verið erfitt að standa
sig bæði í náminu og sundinu.
„Það er svolítið erfitt þegar ég
fer á æfingar klukkan þrjú á
veturna, því þá á ég allt
heimanámið eftir þegar ég kem
heim. Það þarf ég svo að klára
á kvöldin þegar ég er orðinn
svo þreyttur", segir Birkir, en
þrátt fyrir að vera mjög
upptekinn unglingur eru
einkunnirnar hans yfirleitt
mjög háar. Að loknum
grunnskóla stefnir hann síðan á
að fara í Menntaskólann á
Akureyri, en þar finnst honum
mjög fallegt.
Það þarf þó að gera fleira en að
synda þegar maður er þrettán
ára, en Birkir er að fara í 8.
bekk í haust og fermist síðan
næsta vor. Birkir á líka fleiri
áhugamál en sundið: „Þegar ég
hef tíma finnst mér gaman að
fara í golf með félögum
mínum, en ég æfði það í eitt
sumar. Það er þó bara áhuga-
mál núna“, segir Birkir, en
viðurkennir að það sé ekki
mjög mikill tími sem hann
hefur fyrir áhugamál sín.
Birkir hefur einnig gaman af
knattspyrnu og æfði hana
jafnhliða sundinu þar til fyrir
einu og hálfu ári síðan. „Þá
fóru æfingar og keppnir í
greinunum að rekast á og ég
varð að velja á milli. Mér
fannst ekkert erfitt að velja því
sundið er miklu skemmtilegra",
segir Birkir, án þess að hugsa
sig tvisvar um.
Þessa dagana er sunddeildin í
eins og hálfs mánaðar fríi frá
æfingum og segir Birkir það
vera langþráð, enda verða
sundmenn einhvern tíma að
hvílast. Næsta mót er síðan í
ágúst og aldrei að vita nema
kappinn haldi áfram að bæta
sig þar.
'Buon gíorno Keflavík!
'QanóLeíkur með
l)inní geijéivínóœlu
l}Ljómáveii
Geinnunclar
rDaLtýóóonar
á /öóiuclagékvöLd,
/yróia ókiptí á Jlánní 3
V'__________
Rúi vn
BAR * RESTAURANT- CAFFÉ
Hafnargötu 19a - Simi 421 4601
Ég heiti Luca Fasoli. Næstu helgi verð ég gesta-
kokkur á Ránni og mun bjóða uppá ítalskt
hlaðborð á fimmtudag og föstudag í hádeginu.
Liflegur sérréttamatseðill öll kvöld.
Velkomin, Luca Fasoli.
Vínkynning fyrir matargesti
föstudag og laugardag frá Pasqua
Jtalókir clagar
á 'Ráinní,
20- júli til
7- ágúót
U('M)
BAR - RESTAUR ANT- CAFFÉ
Hafnargötu 19a - Simi 421 4601
Daglega á Netinu • www.vf.is
9