Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 27.07.2000, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 27.07.2000, Qupperneq 10
Htjgt ii nekta i Suðupnesjum uður I. Ottesen, garð- yrkjufræðingur, er mörgum Suðurnesja- mönnum að góðu kunn, fyrir rannsóknir sínar á garðrækt við sjávarsíðuna. Hún starfar nú á Mógilsá, rannsóknarstöð skógræktar en komst fyrst í kynni við garðrækt á Suður- nesjum þegar hún vann hjá Hallgrími Egilssyni á Gróðr- arstöðinni Grímsstöðum í Hveragerði, en hann var með útibú í Keflavík. Kom á óvart Auður segir að garðaeigendur við sjávarsíðuna hafi borið sig misvel, þegar þeir komu til Hallgríms. „Hjá sumum lifði ekkert en hjá öðrum sem rækt- uðu við sömu skilyrði, þreifst allt þokkalega. Árið 1988 kann- aði ég ástæðuna fyrir misgóðu gengi garðaeigenda við sjávar- síðuna og þar sem lítið var til af heimildum varð ég að búa þær til og gerði úttekt á garðrækt og sögu bæjanna Stokkseyri, Þor- lákshöfn, Grindavík og Kefla- vík. Ég skilaði af mér ritgerð sem bar m.a. lista yfir þær plöntur sem þá þrifust á þessunt stöðum. Listinn var stuttur á Stokkseyri en töluvert langur í Keflavík. Þessir listar vöktu eft- irtekt því sambærilegt hafði ekki verið gert áður. Ég hélt í kjölfarið nokkra fyrirlestra með Kristni Þorsteinssyni, garð- yrkjumanni, og skrifaði um efn- ið í garðyrkjurit.“ Garöar á Suðurnesjum Þrautreyndir garðaeigendur búa yfir dýrmætum upplýsingum sem mikilvægt er að safría sam- an og miðla til annarra. Vorið 1998 var Auði falið að gera úttekt á reynslu garðaeig- enda og sögu garðrækt- ar á Suð- umesjum, fyrir sam- tökin „Gróður fyrir fólk“ og Mógilsá - rannsóknarstöð skóg- ræktar. „Rannsóknin var kostuð af umhverfisdeild bandaríska hersins og var hluti af viðamik- illi rannsókn jjessara aðila. Þama gafst mér tækifæri til að bera saman þróunina frá því 1989 og ég kynnti mér garð- ræktarsögu Suðumesja enn bet- ur en áður og skoðaði garða í öllum bæjum á Suðumesjum." Klónatilraunir á víði og birki Auður hefur rannsakað fleira en jurtategundir í görðum á Suður- nesjum en í sumarbyrjun 1998 hófst klónatilraun af víði og birki á vegum rannsóknarstöðv- arinnar á Mógilsá. „I víðistil- rauninni eru víðitegundir sem nú em í notkun á íslandi, auk fjölmargra nýrra tegunda frá Álaska, alls 118 klónar. Einn til- raunareiturinn er fyrir utan Sandgerði og hinir innan girð- ingar hjá hemum. Birkiklónam- ir em 52 og em þeir frá ýmsum stöðum af landinu. Einnig var gróðursett í samanburðartilraun greni, fura og birki. Þar er verið að athuga hvemig plöntur spjara sig úr mismunandi ræktunar- bökkum, með mismunandi áburðarskammta og einnig er athuguð beinsáning með mis- munandi aðferðum", segir Auð- ur en gaman verður að fylgjast með hver niðurstaða þessara til- rauna verður. Handbók um ræktun trjágróðurs Auður og eiginmaður hennar, Páll Pétursson, gáfu út rit um trjárækt á Suðumesjum í fyrra sem var dreift í öll hús á Suður- nesjunt. I ritinu em viðtöl við reynda garðaeigendur og sér- fræðigreinar urn ræktun. „Ég var búin að viða að mér miklu efni og vildi allt gera til jress að það kæmi ræktendum á Suðumesjum að gagni. Ég vildi taka þessa áhættu á útgáfu frek- ar en að skila af mér skýrslu sem myndi kannski enda upp í hillu. Ég fékk til liðs við mig greinahöfunda, allt sérfræðinga, á sínu sviði í skógrækt og umhverfismál- um. Ég skrifaði sjálf urn rækt- un á Suður- nesjum og tók viðtöl við reynda garða- eigendur og setti saman lista með trjám og mnnum eft- ir þolni jreirra", segir Auður. Að sögn Auðar var blaðinu vel tekið og þau hjónin ákváðu þá að gefa út gagnlegt og aðlað- andi garðyrkjurit og í júní kom annað blaðið út. „Við fömm okkur hægt í byrjun en ráðger- urn að gefa út vor-, sumar- og jólablað á næsta ári“, segir Auð- ur. Eplatré þrífast á nesinu Er eitthvað sem hefur komið þér á óvart í skoðunarferðum þínum? „I Garði vex eplatré upp við húsvegg fyrir algera tilviljun. Það er fatítt að ávaxtatré vaxi í görðum á Islandi en þau em víða ræktuð í köldum garðskál- um eða plastgróðurhúsum. Ég hef þó fregnað af eplatrjám í skýldum görðum á Akureyri, Hvolsvelti, Múlakoti og í Reykjavík. Því varð ég undr- andi að sjá torkennilegt tré upp við hús í Garði, og jtegar ég gætti betur að þá var þama epla- tré. Ég var þó vantrúuð og bankaði til jress að forvitnast um tréð. Húsfteyjan sagði mér að jretta tré hefði vaxið þama síðustu árin og aldrei kalið, né blómstrað og henni þætti ekki ólíklegt að það væri eplatré því það var fyrir utan herbergi sonar hennar og hann hafi átt það til að spýta út um gluggan epla- steinum og líklega hafi jretta tré vaxið upp af einum steininum. Þama óx eplatré upp fyrir algera tilviljun og það er nokkuð víst þama hefði enginn ráðlagt að gróðursetja eplatré. En ntaður getur lært margt af tilviljunum og til að mynda þá vom kirkju- garðar oft tilraunastaðir fyrir gróður því aðstandendur vom oft ekkert að velta fyrir sér hvort tréð eða mnninn sem gróðursettur var á leiði þrifist eða ekki og þannig hefur bæst í tegundarflómna. I dag er úrval- ið mun fjölskrúðugra en á ámm áður, og á Suðumesjum em tveir sölustaðir garðplantna og eigendur jreirra fást við þær að- stæður sem garðeigendur glíma við“, segir Auður og bætir við að lerki þrífist einnig víða með ágætum á Suðumesjum. „Það var einróma álit fræðimanna árið 1989 er ég leitaði mér upp- lýsinga í ritgerðina, að lerki þrifist ekki við sjávarsíðuna. Af jtessu tvennu er ég hætt að dæma plöntur óræktanlegar fyrr en það er reynt." Ræstingar í Miðhusum Sandgerðisbær auglýsir laust til umsóknar starf við ræstingar í Miðhúsum, þjónustumiðstöð eldri borgara í Sandsgerði. Nánari upplýsingar veitir íþrótta- og tómstundafulltrúi í síma 423 7966. Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjarskrifstofum Sandgerðisbæjar og þangað skal skila umsóknum. Umsóknarfrestur er til 3. ágúst n.k. íþrótta- og tómstundafulltrúi Sandgerðisbæjar 5 SANDGERÐISBÆR 10

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.