Morgunblaðið - 12.07.2016, Page 9

Morgunblaðið - 12.07.2016, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 2016 www.veislulist.is Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar sem kaupand i sér sjálfur um að raða þeim á föt eða tilbúnir á á b orð á einnota veislufötum. Sé veislan 150manna eðameira eru a llar veitingar afhentar á einnota veislufötum. Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan PINNAMATUR FYRIRÖLLTÆKIFÆRI Þú getur lesið allt um pinnamat og aðra rétti á heimasíðu okkar PINNAMATUR Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvaða tím a dagsmóttakan er og hversu lengi hún á að standa. Í “standandi” veislum er vinsælt að bjóða upp á t.d fimm til sjö rétta pinnaborð. Skoðið verðin á heimasíðu okkar Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Má ekki nota á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir, augu, sár, exem, vessandi húðbólgu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á altækum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Getur dregið úr frjósemi en þau áhrif ganga til baka. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Viltu meðhöndla liðverkinn án þess að taka töflur? Prófaðu að meðhöndla liðverkina með Voltaren geli. Lyfjaauglýsing www.apotekarinn.is - lægra verð 15% G ildir fyrir 100g o g 1 50 gafsláttur Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Einkahlutafélagið Laxar fiskeldi áformar aukningu á framleiðslu- heimildum félagsins á laxi í sjókví- um, og er fyrirhuguð framleiðsla félagsins á Austfjörðum um 25.000 tonn. Í tillögum fyrirtækisins til Skipulagsstofnunar segir að fyrsta skrefið í áframeldi Laxa fiskeldis sé að koma fyrir sex þúsund tonna sjókvíaeldisstöð í Reyðarfirði og að félagið hafi þegar fengið tilskilin leyfi til þeirrar framkvæmdar. Í Berufirði áformar fyrirtækið að auka framleiðsluheimildir um allt að fimm þúsund tonn á ári og fjögur þúsund tonn á ári í Fá- skrúðsfirði. Þá segir að unnið hafi verið að undirbúningi framkvæmda um margra ára skeið, enda sé verk- efnið umfangsmikið. Í Noregi er framleiðsla hjá meðalstóru laxeldisfyrirtæki um 20.000 tonn á ári. Í fiskeldi er stærðarhagkvæmni lykilatriði og eigi félag staðsett á Íslandi að vera samkeppnishæft sé forsenda að það geti framleitt að minnsta kosti 20 þúsund tonn, segir í tillögunni. Þeir aðilar sem Laxar Fiskeldi séu í samstarfi við horfa til þeirrar framtíðaruppbyggingar sem félag- ið stefnir að og er hún lykilatriði. Félagið hafi þegar fest kaup á tveimur seiðaeldisstöðvum í Ölfusi, annars vegar Fiskalóni og hins vegar Bakka. Þar mun hrognum verða klakið út og seiði félagsins ræktuð upp í 30-80 grömm en þá er ætlunin að flytja þau í eldisstöð í Þorlákshöfn sem byggð verður á þessu ári. Fyrstu sjógönguseiði verða flutt frá Þorlákshöfn austur á Reyðar- fjörð í júnímánuði 2017 með brunn- báti. Með auknu eldismagni skap- ast meira hagræði í rekstri, betri samkeppnisstaða og traustari grundvöllur fyrir starfsemina. Veruleg sérþekking er hjá félaginu á sviði seiðaeldis, áframeldis, slátr- unar og vinnslu afurða og hafa að- standendur áratuga reynslu af lax- eldi í Noregi sem og á Austfjarða- svæðinu. Í tillögunni segir að grundvallarhugsunin á bak við Laxa fiskeldi sé að setja á fót eld- isfyrirtæki þar sem þekking sé í fyrirrúmi en jafnframt fjárhagsleg- ur styrkur til að takast á við erf- iðleika sem ævinlega eiga sér stað í rekstri sem þessum, s.s. vegna nið- ursveiflna á afurðaverði. Þá sér- fræðiþekkingu og reynslu sem horft er til er aðeins að finna í lönd- um þar sem laxeldi er orðið blóm- leg atvinnugrein, eins og í Noregi, Kanada og Færeyjum. Því hafi að- standendur Laxa fiskeldis litið til þeirra landa með samvinnu í huga Ekki bárust athugasemdir í kjöl- far auglýsingar en Skipulagsstofn- un sendi fyrirtækinu bréf þar sem vakin var athygli á ýmsum þáttum sem stofnunin taldi að betur mættu fara, bæði í Beru- og Fáskrúðsfirði. Í matsáætluninni var tekið fullt til- lit til þeirra athugasemda. Stefnt á risalaxeldi á Austfjörðum  Laxar fiskeldi stórhuga með uppbyggingu á Austfjörðum  Þúsunda tonna fiskeldi í Reyðar-, Fáskrúðs- og Berufirði  20 þúsund tonna fiskeldi talið forsenda til að geta verið samkeppnishæfir Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Berufjörður Í matstillögu til Skipulagsstofnunnar kemur fram að liggi um- hverfismat fyrir þá verði meiri friður um fyrirhugaðar framkvæmdir. Freyr Bjarnason freyr@mbl.is Fyrirtækið Bergrisi ehf. hefur verið í viðræðum við Reykjavíkurborg síðustu mánuði um að fá að opna nokkur almenningssalerni sem hafa staðið auð í þónokkurn tíma í mið- borginni. Það fyrsta hefur þegar verið opn- að á Vesturgötu 7. Einn starfs- maður verður við störf á hverju sal- erni fyrir sig. „Reykjavíkurborg tekur jákvætt í þetta en stjórnsýsl- an er þannig að það tekur tíma að fá þetta samþykkt,“ segir Guð- laugur Magnússon, framkvæmda- stjóri Bergrisa, við mbl.is. „Það er gríðarleg vöntun á þessu eins og komið hefur margoft fram í fjölmiðlum. Þeir sem búa í Vestur- bænum hafa óskað okkur til ham- ingju með salernið á Vesturgötu. Einn sagði: „Frábært, þá hætti ég kannski að sjá fólk úti í garði hjá mér að gera þarfir sínar.“ Guðlaugur segir að staðirnir sem um ræðir séu sex til sjö og klósett- skálarnar um 40 talsins. Eitt sal- ernið er á Núllinu í Bankastræti, annað í bílastæðahúsinu á reit gamla Stjörnubíós að Laugavegi 68 og það þriðja í strætisvagnamið- stöðinni í Mjóddinni en salernið þar hefur verið lokað nokkur ár, að sögn Guðlaugs. „Reykjavíkurborg vildi loka þessum stöðum fyrir nokkrum árum því það var svo mik- ill kostnaður við að halda þeim gangandi en núna er þetta nauð- synjavara.“ Sjávarklasinn hefur áð- ur ákveðið að opna salernin á Hlemmi á nýjan leik og þar verður búnaður frá Bergrisa en fyrirtækið framleiðir ýmiss konar sjálfsala fyr- ir gjaldtöku. Guðlaugur segist geta opnað sal- ernin með hraði, um leið og leyfi fæst hjá Reykjavíkurborg. „Stærsti mánuður ferðamannsins er í júlí. Ég get opnað Núllið í Bankastræti eftir viku ef ég fæ það afhent á morgun, því það er allt til alls þarna,“ greinir hann frá. Vill opna salerni í miðborginni  Beðið eftir leyfum um fleiri salerni Vesturgata 7 Fyrsta almenningssal- ernið í miðborginni nýlega opnað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.