Morgunblaðið - 15.08.2016, Síða 7

Morgunblaðið - 15.08.2016, Síða 7
ÍÞRÓTTIR 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2016 Þýskaland C-deild: Holstein Kiel – Sportfreunde Lotte .......3:1  Eiður Aron Sigurbjörnsson lék allan leikinn fyrir Holstein Kiel. Frakkland Dijon – Nantes ..........................................0:1  Kolbeinn Sigþórsson var ekki í leik- mannahópi Nantes. Belgía Club Brugge – Lokeren ......................... 1:0  Sverrir Ingi Ingason og Ari Freyr Skúlason léku allan leikinn fyrir Lokeren. Sviss Bikarkeppnin: Rappersswil – Basel ................................0:1  Birkir Bjarnason kom inn á sem vara- maður fyrir Basel á 71. mínútu. Old Boys – Grasshopper ......................... 0:2  Rúnar Már Sigurjónsson leikur með Grasshopper. Austurríki Rapid Vín – Admira .................................4:0  Arnór Ingvi Traustason var ekki í leik- mannahópi Rapid Vín. Rússland Krilia Sovetov – Krasnodar ................... 1:1  Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Krasnodar. Danmörk Bröndby – SønderjyskE ......................... 4:0  Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn fyrir Bröndby og skoraði annað mark liðs- ins á 33. mínútu. Horsens – Silkeborg.................................3:3  Kjartan Henry Finnbogason kom inn á sem varamaður hjá Horsens á 78. mín. OB – Nordsjælland ................................. 3:1  Rúnar Alex Rúnarsson lék allan leikinn fyrir Nordsjælland. Staðan: Köbenhavn 5 4 1 0 15:2 13 Bröndby 5 3 2 0 15:5 11 Randers 5 3 1 1 6:4 10 Midtjylland 5 2 2 1 13:8 8 Lyngby 5 2 2 1 7:5 8 AaB 4 2 2 0 6:4 8 AGF 5 2 2 1 7:6 8 OB 5 1 4 0 7:5 7 Horsens 5 0 4 1 7:8 4 Viborg 5 1 1 3 3:8 4 Nordsjælland 5 1 0 4 6:13 3 SönderjyskE 5 0 2 3 3:9 2 Silkeborg 5 0 2 3 3:12 2 Esbjerg 4 0 1 3 3:12 1 B-deild: Roskilde – Næstved ................................ 0:2  Frederick Schram lék allan leikinn fyrir Roskilde og varði vítaspyrnu í leiknum. Noregur Aalesund – Molde .................................... 0:2  Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn með Aalesund, Daníel Leó Grétarsson og Adam Örn Arnarson sátu á varamanna- bekk Aalesund allan leikinn, Björn Berg- mann Sigurðarson kom inn á sem varamað- ur á 50. mínútu fyrir Molde. Bodö/Glimt – Lilleström ........................1:1  Rúnar Kristinsson þjálfar Lilleström og Sigurður Ragnar Eyjólfsson er aðstoðar- þjálfari. Rosenborg – Sogndal ............................. 3:1  Hólmar Örn Eyjólfsson, Matthías Vil- hjálmsson og Guðmundur Þórarinsson voru allir í byrjunarliði Rosenborg og léku allan leikinn. Odd – Sarpsborg...................................... 0:0  Kristinn Jónsson sat á varamannabekk Sarpsborg allan leikinn. Strømsgodset – Start ............................. 1:1  Guðmundur Kristjánsson var ekki í leik- mannahópi Start. Haugasund – Tromsö ............................. 2:1  Aron Sigurðarson sat á varamannabekk Tromsö allan leikinn. Vålerenga – Brann...................................3:2  Samúel Kári Friðjónsson hjá Vålerenga er frá keppni vegna meiðsla. Viking – Stabæk ..................................... 2:2  Björn Daníel Sverrisson lék allan leikinn með Viking. Staðan: Rosenborg 20 15 4 1 46:14 49 Odd 20 11 5 4 28:18 38 Brann 20 11 3 6 28:17 36 Strømsgodset 20 10 4 6 33:25 34 Haugesund 20 10 4 6 34:30 34 Sarpsborg 20 9 5 6 22:22 32 Molde 20 9 4 7 35:33 31 Viking 20 9 4 7 22:24 31 Sogndal 20 6 8 6 23:24 26 Vålerenga 20 7 3 10 28:29 24 Lilleström 20 5 6 9 31:35 21 Tromsö 20 5 6 9 23:30 21 Bodö/Glimt 20 5 5 10 24:30 20 Aalesund 20 5 4 11 23:36 19 Stabæk 20 4 5 11 23:31 17 Start 20 0 8 12 16:41 8 B-deild: Sandefjord – KFUM ............................... 3:0  Ingvar Jónsson lék allan leikinn fyrir Sandefjord. Kína B-deild: Xinjiang Tianshan – Wuhan Zall .......... 3:1  Sölvi Geir Ottesen leikur með Wuhuan Zall. KNATTSPYRNA Enski kylfingurinn Justin Rose tryggði sér í gær sigur á Ólympíuleikunum í golfi. Rose hafði betur eftir baráttu við Svíann Henrik Stenson. Rose lék samtals á 16 höggum undir pari en Stenson á 14 höggum undir pari. Þetta var í fyrsta skipti í 112 ár sem keppt var í golfi á Ólympíuleikunum. Rose var með eins höggs forystu á Stenson fyrir lokahringinn sem var leikinn í gær. Spennan var mikil og voru þeir félagar jafnir þegar komið var fram á 18. holuna. Stenson gerði þar mistök, þurfti að þrípútta og fékk skolla. Á sama tíma urðu Rose engin mistök á og tryggði hann sér sigur með pútti fyrir fugli. „Sigurtilfinningin er betri en nokkru sinni fyrr,“ sagði Rose sig- urreifur eftir að hann tryggði sér gullverðlaunin. „Þetta er besta mót sem ég hef verið þátttakandi í,“ sagði Rose ennfremur en hann var ánægður með þá miklu spennu sem var á vellinum. „Vonandi sýndum við Brasilíu hvað golf snýst um. Ég er ánægður með að þetta var jafnt og spennandi. Ekki fyrir taugarnar mínar reyndar, heldur fyrir golf- ið,“ sagði sigurvegarinn sem komst einnig í sögubækurnar á fyrsta hring þegar hann fór holu í höggi. johann@mbl.is Rose vann golfið „Ég veit að það er komið tilboð í mig frá liði á Englandi en Krasnodar hafnaði því,“ sagði landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson í samtali við Morgunblaðið um helgina. Ragnar er samningsbundinn rússneska úrvalsdeildar- liðinu Krasnodar og á tæp tvö ár eftir af samningi sínum við félagið. Í kjölfar Evrópumótsins í Frakklandi í sumar, þar sem Ragnar fór á kostum í hjarta íslensku varnar- innar, hefur hann verið undir smásjánni hjá mörgum fé- lögum og ekki síst hjá liðum á Englandi. „Það hefur verið draumur hjá mér eins og flestum fót- boltamönnum að spila á Englandi og ég er bara bjart- sýnn á að lausn finnist á þessum málum mínum,“ sagði Ragnar við Morg- unblaðið, en búast má því að fleiri tilboð berist í miðvörðinn sterka á næstu dögum. Meðal þeirra liða sem Ragnar hefur verið orðaður við á síðustu dögum eru ensku úrvalsdeildarliðin Crystal Palace og Swansea. Auk þeirra hafa Ful- ham og Aston Villa, sem spila í ensku B-deildinni, verið nefnd til sögunnar. Ragnar, sem er 30 ára gamall og hefur spilað 61 leik með íslenska A- landsliðinu, er kominn á fullt með Krasnodar og hefur tekið þátt í báðum sigurleikjum liðsins í rússnesku deildinni á tímabilinu. johann@mbl.is Krasnodar hafnaði tilboði Ragnar Sigurðsson Justin Rose Bretinn Mo Farah sigraði í 10.000 metra hlaupi á Ólympíu- leikunum í Ríó. Farah féll á brautinni þegar 16 hringir voru eftir en náði að vinna sig aftur inn í hlaupið og landa þriðja ól- ympíugullinu á ferlinum. Sigurinn þýðir að hann varð fyrsti Bretinn til að vinna til þrennra gullverðlauna á Ól- ympíuleikum. Lokatími Farah var 27.05 mínútur. Mo Farah keppir í 5.000 metra hlaupi á miðvikudaginn en hann á einnig ólympíutitil að verja í þeirri vega- lengd. Fari svo að Farah sigri í 5.000 metra hlaup- inu verður hann fyrsti maðurinn til að verja tvo ól- ympíutitla í langhlaupum, síðan Finninn Lasse Viren gerði það árið 1976. sport@mbl.is Farah með sögu- legt met á ÓL Mohamed Farah Langstökkskeppi karla á Ól- ympíuleikunum bauð upp á mikla dramatík og umdeild at- vik. Bandaríkjamaðurinn Jeff Henderson sigraði með stökki upp á 8,38 metra en Luvo Ma- nyonga frá Suður-Afríku stökk 8,37 metra. Bretinn Greg Rutherford var fyrir keppnina ríkjandi heims-, Evrópu- og ólympíumeistari en þurfti að sætta sig við brons. Bandaríkjamaðurinn Jarrion Lawson átti risastökk sem var líklegt til að skila honum verð- launum en sjónvarpsupptökur leiddu í ljós að Lawson hafði sett fingur í sandinn rétt áður en hann lenti og stökkið mældist því miklu styttra en vonir stóðu til. sport@mbl.is Gríðarleg spenna í langstökki karla Jeff Henderson Elaine Thompson frá Jamaíku varð á laugardaginn Ólympíu- meistari í 100 metra hlaupi í fyrsta sinn. Landa hennar, Shelly-Ann Fraser-Pryce varð þriðja en hún freistaði þess að verða fyrsta konan í sögunni til að vinna gull á þrennum Ól- ympíuleikum í röð. Sigurtími Thompson var 10,71 sekúndur. Tori Bowie frá Bandaríkj- unum varð önnur á 10,83 sek- úndum en Fraser-Pryce hljóp á 10,86 sek. Marie Ta Lou frá Fílabeinsströndinni hljóp á sama tíma og Fraser-Pryce en myndbandsupptökur voru látnar ráða lokaniðurstöðunni. Shelly-Ann Fra- ser-Pryce vann gull í Peking 2008 og í London 2012 en átti aldrei möguleika gegn Thompson. Thompson stakk Fraser-Pryce af Elaine Thompson HANDBOLTI Benedikt Grétarsson bgretarsson@mbl.is Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, leikur í 8-liða úrslitum á Evr- ópumótinu sem fram fer í Króatíu. Þetta varð ljóst eftir sigur á Tékkum í gær, 32:25, í lokaumferð riðla- keppninnar og jafntefli í viðureign Króata og Svía. Íslenska liðið hlaut fjögur stig í þremur leikjum og varð í öðru sæti í riðlinum. Króatar urðu efstir með fimm stig og Svíar höfnuðu í þriðja sæti með þrjú stig. Tékkar ráku lest- ina án stiga. Tékkar og Svíar leika um 9.-16. sæti mótsins. Íslenska liðið mætir Serbíu í átta liða úrslitum á þriðjudaginn. Miklir yfirburðir gegn Tékkum Leikurinn við Tékka í gær var jafn fyrstu mínúturnar en þá tóku ís- lensku strákarnir öll völd í leiknum, léku við hvern sinn fingur og voru með átta marka forskot í hálfleik, 20:12. Í síðari hálfleik jafnaðist leik- urinn aftur og liðin skiptust á að skora. Sigurinn var þó aldrei í hættu, lokatölur 32-25. „Við eiginlega kláruðum þennan leik í fyrri hálfleik. Það var smá stress fyrstu fimm mínúturnar en eftir að við komumst yfir, þá bara kláruðum við þá,“ sagði Kristján Arason, sem þjálfar landsliðið ásamt Einari Guðmundssyni. „Við vorum átta mörkum yfir í hálfleik og vorum að keyra vel í hraðaupphlaupin. Það var svo mjög gott að geta rúllað vel á mann- skapnum og leyft öllum að spila. Við náðum að hvíla þá leikmenn sem hafa verið að spila mest í mótinu. Hinir strákarnir fengu þá sénsinn og nýttu það vel. Þetta var samt svona leikur sem var í raun búinn frekar snemma, þannig að það reyndist erf- iðast að halda einbeitingu. Það var a.m.k. aldrei neitt stress í seinni hálfleik.“ Kristján er ánægður með frammistöðuna í mótinu til þessa. „Við byrjuðum illa á móti Króatíu en þeir eru mjög sterkir. Síðan átt- um við mjög góðan leik gegn Svíum. Leikurinn gegn Tékkum getur kannski ekki flokkast undir skyldu- sigur en strákarnir gerðu vel í að klára það verkefni,“ sagði Kristján. Sigurinn og svo úrslitin í leik Sví- þjóðar og Króatíu þýðir sjálfkrafa keppnisrétt liðsins á næsta heims- meistaramóti og sömuleiðis á næsta Evrópumóti. Ljósmynd/JóiG Yfirburðir Sveinn Andri Sveinsson skorar hér eitt af fjórum mörkum sínum í sigrinum gegn Tékkum í gær. Gott dagsverk í Króatíu  U18-landsliðið ekki í neinum vandræðum með Tékka  Mæta Serbíu í átta liða úrslitum  Þjálfarinn ánægður að geta gefið öllum leikmönnum tækifæri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.