Morgunblaðið - 29.10.2016, Side 1

Morgunblaðið - 29.10.2016, Side 1
LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 ÍÞRÓTTIR Landsliðsmenn Morgunblaðið stillir upp fimm íslenskum karlalandsliðum í knattspyrnu sem eru skipuð leikmönnum erlendra atvinnuliða. Breyttir tímar. Ekki lengur nóg að spila í norsku úrvalsdeildinni 2-3 Íþróttir mbl.is Körfuknattleiks- maðurinn Dagur Kár Jónsson hef- ur skrifað undir samning við lið Grindavíkur og snýr því heim úr háskólaboltanum þar sem hann hefur verið á mála hjá St. Francis í rúmt ár. Dagur er uppalinn í Stjörnunni en fór í fyrra til Bandaríkjanna. Hann sagði í samtali við karfan.is að hlutverk sitt í liðinu ytra hefði ekki þróast í rétta átt. Þar af leið- andi væri hann á heimleið. Dagur Kár til Grindavíkur Dagur Kár Jónsson Kristján Jónsson kris@mbl.is Hinn umtalaði sjúkralisti er býsna langur hjá toppliði Aftureldingar í Olís-deild karla í hand- bolta. Engu að síður hélt liðið sigurgöngu sinni áfram á fimmtudagskvöldið og lagði þá Val að velli. Var það áttundi sigur liðsins í röð í deildinni. Fjórir leikmenn léku ekki með Aftureldingu í leiknum og sá fimmti, Birkir Benediktsson, spilaði þrátt fyrir tognun í kálfa. Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, gerir ráð fyrir því að skytturnar Birkir og Mikk Pinnonen geti tekið þátt í næsta leik, sem verður eftir landsleikjahlé. Meiðsli Pinnonens þykja smá- vægileg. Böðvar Páll Ásgeirsson hefur verið óheppinn með meiðsli undanfarin ár og hefur að- eins tekið þátt í einum leik til þessa. Hann ætti einnig að vera orðinn leikfær í næsta leik. Þá gæti Kristófer Fannar Guðmundsson orðið leikfær um miðjan nóvember en hann byrjar að æfa með liðinu í næstu viku. Öllu lengri tími kemur til með að líða þar til línumaðurinn Pétur Júníusson verður leikfær. Pétur tjáði Morgunblaðinu að hann þyrfti að vera þolinmóður í endurhæfingu sinni en ef vel gengur þá gæti hann leikið með liðinu fyrir jól. Pétur glímir einnig við axlarmeiðsli eins og Böðvar. Einar Andri segir tognun Birkis Benedikts- sonar ekki vera alvarlega enda tók hann tals- verðan þátt í leiknum á móti Val þótt hann hafi nánast ekkert skotið á markið. Handboltaunnendur velta því sjálfsagt fyrir sér hversu sterkt lið Aftureldingar verður ef það get- ur teflt fram öllum sínum mönnum. Ekki var búist við því að Afturelding mynda byrja tímabilið með látum þar sem töluverðar breytingar urðu á lið- inu. Tveir lykilmenn, Jóhann Gunnar Einarsson og Jóhann Jóhannsson, eru til að mynda hættir. 5 meiddir hjá toppliðinu  Meiðsli Birkis og Pinnonens ekki alvarleg  Lengra þar til Pétur verður með BELGÍA Kristján Jónsson kris@mbl.is Knattspyrnuþjálfarinn Rúnar Kristinsson þurfti ekki að mæla göturnar lengi eftir að hafa látið af störfum sem þjálfari Lilleström í Noregi hinn 18. september. Rúnar skrifaði í gær undir samning við Lokeren eftir snarpar samningaviðræður sem hófust á fimmtudagsmorguninn. „Ég er mjög ánægður með að fá þennan mögu- leika og fá starf aftur svona fljótt,“ sagði Rúnar Kristinsson þegar Morgunblaðið ræddi við hann símleiðis í gær. Rúnar þekkir vel til hjá Lokeren enda lék hann með liðinu um sjö ára skeið. Er hann í hávegum hafður hjá stuðningsmönnum félagsins og hefur það komið glöggt fram í netkosningum þar sem valdir eru bestu leikmenn félagsins frá upphafi. „Ég þekki félagið nokkuð vel. Þetta er því skemmtilegt tækifæri og fínn möguleiki fyrir mig til að halda áfram að þjálfa í útlöndum eins og ég vildi helst. Ég hafði ekki mikinn áhuga á því að flytja heim strax og stundum þarf maður að vera heppinn með að möguleikar opnist á réttum tíma.“ Áhugi Lokeren lengi verið til staðar Rúnar hefur í gegnum tíðina verið orðaður við þjálfarastarfið hjá Lokeren. „Ég hef lengi vitað að einhvern tíma gæti orðið möguleiki að manni yrði boðið starf hjá Lokeren. Hér þekki ég fólk en for- seti félagsins og framkvæmdastjórinn hafa verið hér í mörg ár og ég þekki þá vel. Báðir hafa alltaf haft mikinn áhuga á því að fá mig til starfa en auð- vitað hefur það ekki passað fyrr en núna,“ sagði Rúnar og hann hefur fylgst ágætlega með belg- ískri knattspyrnu frá því hann flutti þaðan til Ís- lands sumarið 2007. „Ég fylgdist alltaf með stöðu liðsins í deildinni og úrslitum leikja. Inni á milli horfði maður á leiki í gegnum netið auk þess að fylgjast með hvaða leikmenn væru í deildinni og þjálfarar. Síðustu tvö til þrjú árin hafa verið miklar breytingar og þá þekkti ég færri og færri. Þar sem þeir hafa áður verið í sambandi við mig um að fá mig hingað þá hef ég fylgst vel með.“ Hjá Lokeren hittir Rúnar fyrir samlanda sína Ara Frey Skúlason og Sverri Inga Ingason sem eru í leikmannahópi liðsins. Þá mun Arnar Þór Viðarsson aðstoða Rúnar en hann lék einnig lengi með Lokeren. Talar við tvo leikmenn á móðurmálinu „Gott er að hafa Íslendinga í kringum sig og gott að hafa leikmenn sem maður getur talað við á móðurmálinu. Þá er hægt að koma skilaboðum inn á völlinn á einfaldan hátt. Ekki skemmir heldur fyrir að hafa Arnar Viðarsson en hann verður mín hægri hönd. Arnar þekkir félagið mjög vel og þekkir fótboltann í Belgíu mjög vel eftir að hafa starfað hérna lengi. Ég er virkilega ánægður með að hafa hann með mér og mun njóta góðs af. Hann mun hjálpa mér gríðarlega mikið,“ útskýrði Rún- ar og hann segir væntingarnar til liðsins á þessu tímabili vera að hífa sig upp töfluna eftir erfiða byrjun. „Núna er fyrst og fremst horft á þetta tímabil. Fyrst liðið byrjaði svona illa þá er mikilvægt að halda sætinu í deildinni. Markið er þó sett á að komast inn á topp tíu og forsetinn yrði ánægður ef það tækist. Gott yrði að komast á stað þar sem ekki er eilíft stress í kringum leiki,“ sagði Rúnar Kristinsson við Morgunblaðið. Vildi þjálfa erlendis  Forseti og framkvæmdastjóri Lokeren sóttust strax eftir kröftum Rúnars Kristinssonar  Eftir slæma byrjun er aðalatriðið að halda sætinu í deildinni Ljósmynd/Kristján Bernburg Byrjað Rúnar Kristinsson og Arnar Þór Viðarsson á æfingu Lokeren eftir undirskriftina í gær, ásamt tveimur aðstoðarmönnum. Lokeren mætir Eupen í kvöld og Arnar stýrir liðinu en Rúnar fylgist með. Arnar Davíð Jónsson lék í gær seinni 8 leikina í forkeppni EM í keilu sem fram fer í Olomouc í Tékklandi. Hann spilaði mjög vel og tryggði sig inn í 16 manna úrslitin. Hann var með 230,2 í meðaltal. Árdegis í dag hefst keppni í 16 manna úrslitum og eru leiknir 8 leikir. Eftir það verður skorið niður í 8 keppendur sem halda áfram í undanúrslit. Heimamaðurinn Jaroslav Lorenc er efstur með 242,9 í meðaltal. Arnar í 16 manna úrslit Arnar Davíð Jónsson Sænska meist- araliðið í hand- knattleik, Kristi- anstad, endur- heimti í gær- kvöldi efsta sæti sænsku úrvals- deildarinnar með 15 marka sigri á nýliðum Karls- krona, 33:18, á heimavelli. Eins og úrslitin gefa til kynna var mun- urinn talsverður á liðunum. Kristi- anstad var með sex marka forskot að loknum fyrri hálfleik, 14:8. Arn- ar Freyr Arnarson var markahæst- ur af Íslendingunum þremur hjá Kristianstad með fjögur mörk. Ólafur Andrés Guðmundsson, fyrir- liði, skoraði í tvígang og Gunnar Steinn Jónsson skoraði einu sinni. Atli Ævar Ingólfsson skoraði fjögur mörk þegar Sävehof vann Ystad, 32:27, á heimavelli. Sävehof er í fjórða sæti deildarinnar, tveim- ur stigum á eftir Kristianstad. Stórsigur hjá sænsku meisturunum Ólafur Andrés Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.