Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 2
LANDSLIÐ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hvað þurfa íslenskir knattspyrnu-
menn að gera til að komast í lands-
liðshóp karla í dag eða jafnvel vinna
sér sæti í byrjunarliðinu? Óhætt er að
segja að viðmiðin hafi breyst á und-
anförnum árum enda hefur íslenska
karlalandsliðið tekið stór stökk að
undanförnu og náð lengra en nokkru
sinni fyrr í sögunni.
Sú var tíðin að það var nóg að vera
atvinnumaður til að komast í landslið
Íslands. Þannig var þetta lengi vel,
enda voru þeir íslensku fótboltamenn
sem höfðu lifibrauð af íþrótt sinni fáir
fram undir lok síðustu aldar. Auk þess
voru fram á miðjan tíunda áratuginn
strangir kvótar á erlenda leikmenn í
öllum löndum og aðeins þeir bestu
gátu komist að.
Afrek á níunda áratugnum
Það þóttu mikil tíðindi þegar níu til
tíu atvinnumenn voru í byrjunarliði
Íslands um miðjan níunda áratuginn,
og í raun stórt afrek hjá fámennri
þjóð að eiga svo marga slíka leik-
menn.
Síðan þróuðust málin þannig að sá
sem var í þokkalegu liði í norsku úr-
valsdeildinni gat verið nokkuð viss um
landsliðssæti. Hvað þá ef hann komst
að í einhverri af sterkari deildunum í
Evrópu.
Þetta hefur heldur betur breyst.
Mjög fáir af mönnum okkar sem spila
á Norðurlöndunum geta gengið að
landsliðssæti vísu. Hannes Þór Hall-
dórsson, Kári Árnason og Birkir Már
Sævarsson hafa verið fastamenn í
landsliðinu síðustu misserin, og
reyndar Ari Freyr Skúlason á meðan
hann var í Óðinsvéum, en aðrir ís-
lenskir leikmenn í Danmörku, Svíþjóð
og Noregi hafa átt í hörðum slag um
að komast í 23 manna hóp, hvað þá
lengra.
Eins og sjá má hér á síðunni þarf að
fara niður í landslið C til að finna leik-
menn úr norsku úrvalsdeildinni, sem
nú er frekar vettvangur fyrir íslenska
21-árs landsliðsmenn en fyrir A-
landsliðsmenn.
Atvinnumennirnir eru 56
Núna leika 56 íslenskir karlkyns
knattspyrnumenn sem atvinnumenn
hjá erlendum félagsliðum, þegar tald-
ir eru þeir sem eru í atvinnudeildum
og komnir í aðallið sinna félaga.
Hér í opnunni er þessum leik-
mönnum stillt upp í fimm landslið sem
Ísland gæti teflt fram og væru ein-
göngu skipuð atvinnumönnum frá er-
lendum liðum. Rétt er að taka fram að
landsleikjafjöldinn er notaður sem
viðmið um hvort þeim er stillt upp í
landsliði A, B, C, D eða E, en ekki
huglægt mat á getu þeirra. Lands-
leikjafjöldinn segir hins vegar sitt um
stöðu þeirra og hvað þeir hafa gert á
sínum ferli.
Í þessum fimm liðum eru 55 leik-
menn en sá sem verður því miður út
undan er Frederik Schram, sjötti
markvörðurinn, sem leikur með Ros-
kilde í Danmörku. Fyrir utan þessa
leikmenn eru síðan margir á aldrinum
16-19 ára sem eru á mála hjá félögum
víðs vegar í Evrópu og spila með ung-
linga- og varaliðum.
Með því að skoða þessi fimm lið
sjáum við betur hversu gríðarlega
hörð samkeppni er um að komast í ís-
lenska landsliðshópinn, og við hvað
þeir sem eru utan hans þurfa að berj-
ast. Þetta eru svo sannarlega breyttir
tímar.
Fimm íslensk landslið
Viðmiðin hafa breyst mikið á undan-
förnum árum Ekki lengur nóg að spila
í Noregi til að komast í landsliðið
Hannes Þór Halldórsson
Randers
Birkir Már Sævarsson
Hammarby
Ari Freyr Skúlason
Lokeren
Kári Árnason
Malmö
Ragnar Sigurðsson
Fulham
Birkir Bjarnason
Basel
Jóhann Berg
Guðmundsson
Burnley
Eiður Smári Guðjohnsen
Pune City
Aron Einar Gunnarsson
Cardiff
Gylfi Þór Sigurðsson
Swansea
Emil Hallfreðsson
Udinese
4-3-3
LANDSLIÐ A
40
55
56
Fjöldi
landsleikja10
65
55
46
66 47
64
55
88
Ögmundur Kristinsson
Hammarby
Theódór Elmar
Bjarnason
AGF
Hjálmar Jónsson
Gautaborg
Hallgrímur Jónasson
Lyngby
Sölvi Geir Ottesen
Wuhan Zall
Kolbeinn Sigþórsson
Galatasaray
Jón Daði
Böðvarsson
Wolves
Alfreð Finnbogason
Augsburg
Rúrik Gíslason
Nürnberg
Arnór Smárason
Hammarby
Ólafur Ingi
Skúlason
Karabükspor
4-4-2
LANDSLIÐ B
Fjöldi
landsleikja10
17
12
28
21
28
40
26
15
44
37
32
Ingvar Jónsson
Sandefjord
Haukur Heiðar
Hauksson
AIK
Hjörtur Logi
Valgarðsson
ÖrebroSverrir Ingi Ingason
Lokeren
Jón Guðni Fjóluson
Norrköping
Viðar Örn Kjartansson
Maccabi Tel Aviv
Steinþór F.
Þorsteinsson
Sandnes Ulf
Matthías Vilhjálmsson
Rosenborg
Arnór Ingvi
Traustason
Rapid Vín Eggert G. Jónsson
Fleetwood
Rúnar Már
Sigurjónsson
Grasshoppers
4-4-2
LANDSLIÐ C
Fjöldi
landsleikja10
7
8
5
8
19
15
10
10 8
11
11
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
EM U17 ára stúlkna
Undanriðill á Írlandi:
Færeyjar – Ísland .................................... 0:4
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen 34., Hlín
Eiríksdóttir 42., 80., Alexandra Jóhanns-
dóttir 47.
Írland – Hvíta-Rússland...........................2:0
Ísland og Írland hafa bæði tryggt sér
sæti í milliriðli keppninnar og mætast í úr-
slitaleik riðilsins í lokaumferðinni á mánu-
daginn.
Holland
B-deild:
Telstar – Jong PSV .................................0:0
Albert Guðmundsson lék með Jong PSV
fyrstu 67 mínútur leiksins.
Danmörk
Nordsjælland – Viborg ............................3:3
Rúnar Alex Rúnarsson var varamark-
vörður Nordsjælland í leiknum.
England
B-deild:
QPR – Brentford ...................................... 0:2
Spánn
Leganes – Real Sociedad..........................0:2
Þýskaland
M’gladbach – Eintracht Frankfurt .........0:0
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olís-deildin:
Hertz-höllin: Grótta – Valur ............. L13.30
TM-höllin: Stjarnan – Fylkir............ L13.30
Schenker-höllin: Haukar – Selfoss ....... L14
Framhús: Fram – ÍBV........................... L15
Úrvalsdeild karla, Olís-deildin:
Schenker-höllin: Haukar – Grótta ........ L16
1. deild karla:
Höllin Ak.: Akureyri U – ÍR.................. L15
Valshöllin: Valur U – Hamrarnir .......... L16
1. deild kvenna:
KA-heimilið: KA/Þór – Afturelding...... L14
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Ísafjörður: Vestri – Höttur.................... L16
Ísafjörður: Vestri – Höttur .................... S13
LYFTINGAR
Norðurlandamót unglinga fer fram í
íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði
en keppt er í dag og á morgun, frá kl. 9 til
18 báða dagana.
LISTHLAUP Á SKAUTUM
Bikarmót Skautasambands Íslands fer
fram í Skautahöllinni á Akureyri um
helgina. Keppt er frá kl. 7.30 til 16.20 í dag
og 7.30 til 12.35 á morgun.
BADMINTON
Setmót KR fer fram í KR-húsinu í dag og á
morgun en það er hluti af Dominos-móta-
röð BSÍ. Keppni hefst kl. 9.30 í dag.
UM HELGINA!
FRÉTTASKÝRING
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Undankeppni Evrópumótsins í hand-
knattleik karla 2018 hefst á miðviku-
daginn þegar keppni hefst í sjö riðlum
þar sem 28 lið keppast um að sætin 15
sem í boði eru. Lokakeppnin fer fram
í Króatíu 12.-28. janúar 2018. Það
verður í annað sinn sem Króatar
verða gestgjafar lokakeppni EM í
karlaflokki. Þeir héldu keppnina árið
2000. Þá var íslenska landsliðið með í
fyrsta skipti í lokakeppni EM.
Að þessu sinni verður íslenska
landsliðið í fjórða riðli undankeppn-
innar ásamt landsliðinu Makedóníu,
Tékklands og Úkraínu. Allir mæta öll-
um og leikið verður heima og að heim-
an. Fyrsti leikur íslenska landsliðsins
verður við tékkneska landsliðið í
Laugardalshöllinni á miðvikudags-
kvöldið. Eftir leikinn verður haldið til
Úkraínu leikið verður við heimamenn
á laugardaginn eftir viku.
Í næsta áfanga riðlakeppninnar
sem fram fer dagana 3. til 7. maí á
næsta ári leikur íslenska landsliðið
heima og að heiman við landslið
Makedóníu. Lokahnykkur riðla-
keppninnar verður 14.-18. júní á
næsta ári þegar íslenska landsliðið
sækir það tékkneska heim og tekur á
móti landsliði Úkraínu í Laugardals-
höll 17. eða 18. júní.
Tvö efstu lið hvers riðils und-
ankeppninnar tryggja sér keppnisrétt
í lokakeppni EM. Undanriðlarnir eru
sjö. Einnig kemst eitt lið áfram sem
nær bestum árangri af þeim liðum
sem hafnar í þriðja sæti í einum riðl-
anna. Þar með fást 15 landslið sem
keppa um Evrópumeistaratitilinn í
Króatíu í ársbyrjun 2018 ásamt lands-
liði heimamanna.
Afar snúinn riðilll
Íslenska landsliðið hefur ekki um
langt skeið verið í jafn snúnum riðli í
undankeppni EM og að þessu sinni.
Segja má að öll liðin fjögur í riðlinum
eigi sína möguleika á að hafna í öðru
af sætunum tveimur. Fyrirfram er ís-
lenska liðið talið sterkast, miðað við
styrkleikalista áður en dregið var, og
landslið Úkraínu það veikasta. Hins-
vegar er málið ekki alveg svo einfalt.
Úkraína var e.t.v. sterkasta liðið úr
neðsta styrkleikaflokknum sem ís-
lenska liðið gat mætt. Þá hafa bæði
Makedóníumenn og Tékkar á að skipa
sterkum liðum um þessar mundir þótt
eitthvað hafi flísast úr hópi þeirra
fyrrnefndu eftir að þeim tókst ekki að
öðlast keppnisrétt á Ólympíu-
leikunum sem fram fóru í sumar. Í
framhaldinu hættu örfáir reyndir leik-
menn með landsliðinu.
Enginn auðveldur andstæðingur er
í riðlinum að þessu sinni eins og
Erfitt próf bíður Geirs og lærisveina
Undankeppni EM 2018 hefst í næstu viku Íslenska landsliðið er í riðli þar sem
allir geta unnið alla Byrjað á heimaleik gegn Tékkum og útileik á móti Úkraínu
1. deild kvenna
Víkingur – Fjölnir .................................26:29
Staðan:
HK 7 5 1 1 174:160 11
Fjölnir 7 5 0 2 196:165 10
FH 7 4 2 1 167:150 10
ÍR 7 4 0 3 177:175 8
KA/Þór 5 2 1 2 138:131 5
Víkingur 7 2 0 5 176:187 4
Afturelding 6 2 0 4 118:142 4
Valur U 6 0 0 6 125:161 0
1. deild karla
ÍBV U – Stjarnan U úrslit leiksins lágu
ekki fyrir skömmu fyrir klukkan 21 þrátt
fyrir að flautað hafi verið til leiks kl. 18.30.
Öðrum leikjum var ekki lokið þegar blað-
ið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/handbolti.
Svíþjóð
Kristianstad – Karlskrona ................. 33:18
Arnar Freyr Arnarsson skoraði 4 mörk
fyrir Kristianstad, Ólafur A. Guðmundsson
2 og Gunnar Steinn Jónsson 1.
Sävehof –Ystad IF ............................... 32:27
Atli Ævar Ingólfsson skoraði 4 mörk fyr-
ir Sävehof.
Danmörk
GOG – Randers ....................................36:24
Viggó Kristjánsson skoraði 3 mörk fyrir
Randers. Arnór Freyr Stefánsson ver
mark liðsins.
Þýskaland
B-deild:
Konstanz – Aue.....................................21:21
Árni Þór Sigtryggsson skoraði 3 mörk
fyrir Aue og Bjarki Már Gunnarsson 1. Sig-
tryggur Daði Rúnarsson lék ekki með.
Austurríki
Leoben – West Wien ............................29:23
Hannes Jón Jónsson þjálfar West Wien.
HANDBOLTI