Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Blaðsíða 4
Vikublað 21.–23. júlí 20154 Fréttir Líkið reyndist sofandi Aðfaranótt mánudagsins var til- kynnt um látinn mann í sumar- bústað í Árnessýslu. Lögregla og sjúkralið fór þegar á vettvang en sá sem tilkynnti um „líkið“ virt- ist ölvaður og neitaði að kanna frekar ástand mannsins sem væri „útlendur og dökkur á hör- und“ og honum ókunnugur. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang reyndist sá sem til- kynnt var um vera í fölara lagi, íslenskur og öldauður drykkju- félagi tilkynnanda. Hvorugur þeirra reyndist illa haldinn af öðru en áfengisneyslu. Mannin- um, það er meintum útlendingi, var komið í bústað sinn og ekki aðhafst frekar. Mennirnir eru á sjötugs- og áttræðisaldri. Er skipulagið í lagi...? Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Brettarekkar Gey mslu - og dekk jahi llur Mikil burðargeta Einfalt í uppsetningu KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00 Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609 Gamli GluGGinn úr nýi GluGGinn í svo einfalt er það! súðarvoGur 3-5, reykjavík GluGGaGerdin@GluGGaGerdin.is s: 5666630 / GluGGaGerdin.is » Ljósmyndaði öll 369 lömb ársins Stal fatnaði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur útköllum á sunnu- dag þar sem um var að ræða þjófnað eða tilraun til þjófnaðar í verslun. Laust eftir klukkan eitt aðfaranótt mánudags fékk lög- reglan tilkynningu um að menn væru að brjótast inn í verslun við Síðumúla. Þeir voru handteknir þegar lögreglan stöðvaði bifreið sem þeir voru í skömmu síðar. Fjórir voru í bílnum og eru þeir allir taldir hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Þeir voru vistaðir í fangageymslu en ætl- uð fíkniefni fundust á einum aðila. Fram kemur í dagbók lög- reglunnar að ekki sé vitað hvort þair hafi komist inn í verslunina. Fyrr um daginn var lög- reglunni tilkynnt um mann sem stal fatnaði í Smáralind. Sá komst undan með fatnað að verðmæti um 200 þúsund króna. Þ rjú hundruð sextíu og níu myndir af lömbum hanga uppi á vegg í eldhúsinu á Möðruvöllum 3 í Hörgárdal „Tímafrekt og krefst mikill- ar þolinmæði,“ segir bóndinn sem tók allar myndirnar og kom þeim haganlega fyrir á spjöldum sem ekki aðeins prýða eldhúsið heldur hanga einnig uppi á vegg í fjárhús- inu. Tekið myndir í mörg ár „Þetta tekur talsverðan tíma og þolin mæði en þetta er bara áhuga- mál,“ segir Birgitta. Áhugi hennar á kindum hefur verið mikill frá barns- aldri en hún er uppalin í Fljótum í Skagafirði en heldur núna bú á Möðruvöllum 3 í Hörgárdal . „Ég hef tekið myndir af skepnunum í fjöl- mörg ár en venjulega hafa þær bara verið í tölvunni minni. Í ár ákvað ég að prenta myndirnar út á spjöld og hengja þær upp á vegg hér heima og í fjárhúsunum,“ segir Birgitta. Þekkir allar kindurnar og flest lömbin í sjón „Ég byrja á því að taka fjölmargar myndir af öllum lömbunum af handahófi og síðan flokka ég myndirnar. Þetta var meira vesen hérna áður fyrr en núna eru kom- in svo stór og þægileg merki á eyru lambanna að ég sé númerin á myndunum,“ segir Birgitta. Merkin notar hún hins vegar aðeins til þess að tryggja að hún taki myndir af öll- um lömbunum, hún þekkir nefni- lega allar kindurnar og flest lömb- in í sjón. „Undir lokin er ég kannski að leita að einu lambi sem ég á eftir að mynda. Hins vegar þekki ég alltaf mömmuna, leita að henni og þá er verkið auðvelt,“ segir Birgitta. „Þetta er ekki fegurðarsamkeppni“ Alls eru 243 kindur á búinu en 369 lömb voru borin í vor. Birgitta segir það að vera ágætt en þó hefðu lömb- in alveg mátt vera fleiri. Í haust verða svo flest öll lömbin send í sláturhús en 30–40 lömbum verður haldið eft- ir til að endurnýja fjárstofninn. „Nei, þetta er ekki fegurðarsamkeppni,“ segir Birgitta og skellihlær þegar blaðamaður spyr hana hvort mynda- tökurnar ráði úrslitum um hvaða lömb eigi að setja á vetur. „Kemur alltaf að kveðjustund að hausti“ Á Möðruvöllum 3 dvelja krakkar úr höfuðborginni í svokallaðri sumar dvöl, 2–4 vikur í senn. „Þau fá nú ekki að sjá mikið af kindun- um þar sem þær eru á fjöllum en við keyrum stundum upp eftir og gefum þeim brauð. Þá koma þær askvaðandi,“ segir Birgitta. Krökk- unum sem dvelja á Möðruvöllum finnst skrítið að þau ætli ekki að halda lömbunum og finnst tilhugs- unin um sláturhúsið sár. „Maður lærir það fljótt að það kemur alltaf að kveðjustund að hausti. Ég hef átt margar góðar skepnur í gegn- um tíðina sem mér hefur þótt vænt um.“ n „Tíma- frekt og krefst mikillar þolinmæði Birgitta Lúðvíksdóttir hefur haft mikinn áhuga á kindum frá barnsaldri Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Birgitta við myndavegginn Alls voru borin 369 lömb á Möðruvöllum 3 í ár. Fyrirsæta Þetta fallega mógolsótta lamb var eitt af þeim 369 sem Birgitta myndaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.