Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Qupperneq 15
Vikublað 21.–23. júlí 2015 Fréttir Erlent 15 Dvaldi með KKK-liðum K u Klux Klan-samtökin eru vel þekkt fyrir hatursá- róður sinn og ofbeldi. Þau eru ein þekktustu öfgasamtök sögunnar, og nær saga þeirra aftur til 1865. Myndirnar voru teknar síðast- liðið haust, en fréttaveita Reuters birti þær nýlega. Á þeim sjást meðlimir Ku Klux Klan, sem fer ört fækkandi. Myndirnar, sem teknar voru af ljósmyndaranum Johnny Mila- no, sýna vel krossbrennur, undir- búning þeirra, venjur og athafn- ir Ku Klux Klan-meðlima. Vert er að vara við sumum myndunum, enda geta þær valdið óhug. Árið 1920 töldu meðlimir hópsins 6 milljónir, en nú segja samtökin Southern Poverty Law Center, sem fylgast náið með öfgahópum í Bandaríkjunum, að um 2.000–3.000 meðlimir séu í 72 hópum í Bandaríkjunum. SPLC segja að í Bandaríkjun- um séu starfandi 784 þekktir öfga- og haturshópar sem þau fylgist grannt með, þar á meðal nýnas- istar, þjóðernissinnar og Ku Klux Klan. Hópunum hefur fjölgað um 30 prósent frá árinu 2000 og hefur, að sögn SPLC, þjóðernissinnuð- um hópum fjölgað um rúm átta hundruð prósent frá kjöri Baracks Obama Bandaríkjaforseta, sem er mikið áhyggjuefni. n Ljósmyndarinn Johnny Milano fékk að fylgjast náið með öfgasamtökunum Logandi kross Þessi mynd er tekin í Henry County í Virginíu í Bandaríkjunum. Hér sjást KKK- liðar á jörð í einkaeigu við mikla athöfn. Um er að ræða tvo hópa, Rebel Brigade Knights og the Nordic Order Knights, en sá síðarnefndi kennir sig við aría og var stofnaður af hvítum þjóðernissinnum sem höfðu verið í róttæku og ofbeldisfullu fangelsisgengi. Hengingaról Saga KKK er blóði drifin en nú- verandi meðlimir virðast ekki hafa áhyggjur af því. Hér sýnir einn meðlimur- inn, Eric, hengingaról sem komið hefur verið fyrir í hlöðu í Tennessee. Einkennisklædd Kona (t.v) og karl (t.h.) í Virgil Griffin White Knights KKK-hópnum stilla sér upp fyrir myndatöku í einkennisklæðnaði öfgahópsins. Nýliðun Þó að samtökin séu ekki að sækja í sig veðrið hvað varðar fjölda meðlima þá er alltaf einhver nýliðun, þótt ótrúlegt megi virðast. Öflug sprenging í Tyrklandi 27 féllu í sprengingu sem talin er hafa verið sjálfsmorðsárás Ö flug sprengja sprakk í bænum Suruc í Tyrklandi á mánudags- morgun. Talið er að 27 séu látnir og fjölmargir alvarlega slasaðir. Líklega var um sjálfsmorðs- sprengju að ræða og rannsakar lög- reglan málið sem slíkt. Borgin er nálægt landamær- um Tyrklands við Sýrland og varð sprengingin í garði við félagsheim- ili þar sem hundruð ungra verka- manna hafa aðsetur. Þeir voru að snæða hádegisverð stuttu áður fyrir utan félagsheimilið. Fjöldi flóttamanna frá Kobane er nú í Suruc. n johannskuli@dv.is Mynd úr safni Mannskæð sprenging varð í tyrknesku borginni Suruc í gærmorgun, mánudag. MyNd REutERs slasaður Þessi maður særð- ist í sprengingunni á mánudag. Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.isEF LI R a lm an na te ng s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í sk h ön nu n Staðurinn - Ræktin Hringdu í síma 581 3730 Nánari upplýsingar á jsb.is Sumarkort 9.900 kr! Æfðu með okkur í sumar, frábærir tímar í opna kerfinu Smart föt fyrir smart konur Sjáðu úrvalið á tiskuhus.is Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464 Stærðir 38-54

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.