Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Síða 19
Vikublað 21.–23. júlí 2015 Kynningarblað - Hestar 3
L
engri og styttri hestaferðir
er meðal þess sem stend-
ur gestum til boða á Leiru-
bakka í Landsveit, við ræt-
ur Heklu og við jaðar
hálendisins. Reiðleiðir eru róm-
aðar í nágrenni staðarins fyr-
ir fjölbreytileika og fallega nátt-
úru, enda er riðið um skóglendi,
svarta vikursanda, um hraun og
grasivaxna bakka Ytri-Rangár og
við marga læki sem renna um
landið. Útsýni til Heklu er stór-
fenglegt og auk þess setja fjöll á
borð við Bjólfell, Selsundsfjall og
Skarðsfjall mikinn svip á umhverf-
ið. Frá Leirubakka býðst fólki að
fara í hestaferðir undir leiðsögn frá
einni klukkustund og upp í marg-
breytilegar dagsferðir. Sumir kjósa
einnig að koma með sína eigin
hesta, dvelja á Hótel Leirubakka
eða á tjaldstæðinu og ríða út mis-
munandi dagleiðir í nokkra daga
út frá bænum.
Leirubakki er fornfrægur bær
og var kirkjustaður fyrrum, sem
meðal annars kemur við sögu í
Sturlungu enda átti Snorri Sturlu-
son staðinn á sinni tíð og rak þar
stórbú. Mikil saga er tengd staðn-
um, og gömul örnefni og þjóðsög-
ur segja sögu mannlífs á Leiru-
bakka í aldanna rás.
Eitt þekktasta
hrossaræktarbú landsins
En hestamennskan á Leirubakka
snýst ekki aðeins um hestaleigu
og ferðamenn, því Leirubakki
er einnig eitt þekktasta hrossa-
ræktarbú landsins og þaðan hafa
komið mörg af hæst dæmdu kyn-
bóta- og kennishrossum landsins
undanfarin ár úr ræktun eigenda
jarðarinnar; Anders Hansen og
Valgerðar Kr. Brynjólfsdóttur og
barna þeirra. Flestir þeir sem fylgj-
ast með í hestamennskunni þekkja
til dæmis vel til hrossa á borð við
Kviku og Heklu frá Leirubakka,
stóðhestsins Vökuls frá Leiru-
bakka og margra annarra. Gestir
sem heimsækja staðinn biðja oft
um að fá að skoða í hesthúsið eða
hagann þar sem stóðhestar eru
með hryssuhópa á beit, og er það
öllum velkomið.
Heilsárs hótel –
vandað veitingahús
Leirubakki er sem fyrr seg-
ir stór jörð og mikil saga er tengd
staðnum. Þar er enn stundaður
búskapur, en ferðamennska er ört
vaxandi eins og víðar á landinu.
Á bænum er rekið heilsárs hótel;
Hótel Leirubakki, með vönduðu
veitingahúsi sem er staðsett í
Heklusetrinu, en þar er glæsileg
bygging sem hýsir auk veitingaað-
stöðunnar minjagripaverslun,
ráðstefnusali og margmiðlunar-
sýningu um eldfjallið Heklu, sögu
fjallsins og sambúð þjóðarinnar
með fjallinu í ellefu aldir.
Þá er á Leirubakka hitaveita
og gestir sem dvelja á staðnum
hafa aðgang að heitum pottum
og útilaug. Einnig eru merkt-
ar gönguleiðir innan jarðarinnar,
þar sem gengið er á bökkum Ytri-
Rangár og um hið víðáttumikla
og kjarri vaxna Þjórsárhraun, sem
þekur stóran hluta Leirubakka-
jarðarinnar. Frá bænum er einnig
merkt og stikuð gönguleið alla leið
inn í Landmannalaugar. Leiru-
bakki er í aðeins rösklega 100 kíló-
metra fjarlægð frá Reykjavík og
þangað er því greiðfært öllum bíl-
um á malbikuðum vegi, auk þess
sem rútur stoppa mörgum sinnum
á dag við bæinn á leið frá Reykja-
vík, Selfossi og Hellu til Land-
mannalauga og sömu leið til baka.
Nánari upplýsingar um Leiru-
bakka má finna á heimasíðu
staðarins www.leirubakki.is net-
fang: leirubakki@leirubakki.is n
Landsþekkt hrossaræktarbú
og fjölþætt ferðaþjónusta
Leirubakki á Landi - Heilsárshótel með vönduðum veitingastað
Skemmtilegar
reiðleiðir Fjölbreyttar
dagsferðir eru í boði
frá Leirubakka. Farið er
um fallega og ósnortna
náttúru.
Stóðuesturinn
Vökull Stóð-
hesturinn Vökull frá
Leirubakka er hæst
dæmdi fjögurra
vetra stóðhesturinn
í heimi á árinu 2015.
Knapi er Jóhann Kr.
Ragnarsson.
Kvika frá Leiru-
bakka Kvika er lands-
þekkt kynbóta- og
keppnishross. Knapi er
Jóhann Kr. Ragnarsson.
Hekla frá Leirubakka Hekla frá
Leirubakka í úrslitum á Íslandsmóti
2015. Knapi er Fríða Hansen.