Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Side 20
Vikublað 21.–23. júlí 20154 Hestar - Kynningarblað
Afþreying í bland
við ráðstefnuhald
Hótel Eldhestar í Ölfusi – 27 tveggja manna herbergi og veitingastaður fyrir allt 130 manns
– Vinsælasta hestaferðin er dagsferð og liggur um Reykjadal
H
estaleigan Eldhestar er eitt
af þekktustu nöfnunum
þegar kemur að hestaferð-
um á Íslandi. Eldhestar
fagna 30 ára afmæli á
næsta ári, en félagið hóf göngu
sína árið 1986. Starfsemin hefur
þróast mikið þennan tíma og í dag
býður leigan upp á allar tegundir
af hefðbundnum hestaferðum.
Allt frá klukkustunda langri ferð
upp í langferðir um land allt.
Hestaleigan Eldhestar er með
aðstöðu á Völlum við Hveragerði
og rekur þar hlýlegt hótel með ráð-
stefnusal og veitingaaðstöðu. Hótel
Eldhestar var nýlega stækkað og
bætt verulega við þá aðstöðu sem
nýtist við ráðstefnuhald. Þannig er
nú vel tækjum búin fundaraðstaða
fyrir 50–60 manns á hótelinu.
Hótel Eldhestar –
tileinkað íslenska hestinum
Hróðmar Bjarnason, einn af
eigendum Eldhesta, segir félagið
leggja mikið upp úr því að blanda
saman afþreyingu og fundahaldi,
þegar við á. „Við erum einstaklega
vel í sveit sett. Hér er hægt að upp-
lifa sveitakyrrðina og sæluna, en
samt erum við örstutt frá Reykja-
vík.“ Alls eru 27 tveggja manna
herbergi í boði og eru þau öll með
baði. Fram undan er enn frekari
stækkun hótelsins með nokkurri
fjölgun herbergja. Herbergin eru
rúmgóð eða á bilinu 22,5 til 23,5
fermetrar. Það fer ekkert á milli
mála að Hótel Eldhestar er hótel
hestamannsins. Og Hróðmar er
stoltur af því. „Við höfum tileinkað
hótelið íslenska hestinum – okkar
þarfasta þjóni síðustu alda.“ Á
veggjum hótelsins má finna gaml-
ar myndir af hestum og texta sem
minnir okkur á mikilvægi þeirra
í gegnum tíðina. Hótel Eldhestar
var fyrsta gistiþjónustan á Íslandi
sem öðlaðist norræna umhverfis-
merkið Norræna svaninn. Hvort
tveggja hótelbyggingin og allur
daglegur rekstur fyrirtækisins
fylgir reglum og stöðlum svansins.
Að loknum fundi og eða hestaferð
er í boði bar og notaleg setustofa
með arni. Heitur pottur er við
hótelið og veitingastaðurinn tekur
120–130 manns.
Reykjadalur –
vinsælasta dagsferðin
Í dag er dagsferð Eldhesta í Reykja-
dal ein af vinsælustu hestaferðum
landsins. Eldhestar bjóða upp á
hestaferðir frá einni klukkustund
og upp í sjö daga ferðir. Allar dags-
ferðir fyrirtækisins og styttri eru
farnar frá Völlum í Ölfusi, sem og
lengri. Hins vegar teygja lengri
ferðirnar anga sína nánast um
land allt. Allar styttri ferðirnar eru
ætlaðar jafnt vönum sem óvönum.
Reykjadalsferðin er eins og fyrr
segir ein af vinsælustu ferðum sem
boðið er upp á hér á landi. Ferðin
hefst að Völlum og tekur um 5 til 6
klukkustundir á hestbaki í hrífandi
og fjölbreyttu landslagi í námunda
Hengilsins og Hveragerði. Allir
þátttakendur eru með nestisbox
með sér þegar lagt er af stað. Riðið
er inn hinn fagra Reykjadal þar
sem skoðaðar eru heitar laugar
og gestir skella sér í bað í volgri á
sem rennur um dalinn, ef vilji er
fyrir hendi. Ferðinni lýkur á Völl-
um. Nauðsynlegt er að muna eftir
sundfötum fyrir þessa ferð. Ef
gestir eru sóttir til Reykjavíkur rétt
rúmlega átta um morguninn eru
þeir komnir aftur til borgarinnar
laust eftir klukkan 17. Í tengslum
við flestar hálfsdagsferðir og allar
kombóferðir er boðið upp á léttan
hádegisverð á hótelinu. Auðvelt er
að panta ferðir á heimasíðu Eld-
hesta, www.eldhestar.is n
Riðið um Reykjadal
Vinsælasta dagsferðin hjá
Eldhestum liggur um þessar
mögnuðu slóðir í nágrenni
Hengilsins.
Af baki í volga á Það eru
fá ævintýri sem hægt er að
upplifa á dagparti sem standast
samanburð við þetta. Slakað
á mátulega heitu vatni eftir
útreiðartúr um Reykjadal.
Hótel Eldhestar að Völlum Hótelið er opið allan ársins hring og býr í dag að 27 her-
bergjum sem öll eru rúmgóð. Herbergjum verður fjölgað í vetur.