Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Qupperneq 22
Vikublað 21.–23. júlí 20156 Hestar - Kynningarblað „Viljum að fólk finni sig í hnakknum“ Einstakar fjörur og fallegt hraun umlykur Lýsuhól á Snæfellsnesi – Láttu líða úr þér í heitri náttúrulaug S amkeppnin er mikil svo við leggjum mikið upp úr því að vera með betri þjónustu,“ segir Jóhanna Ásgeirsdóttir, eigandi hestaleigunnar Snæhesta að Lýsuhóli á Snæfells- nesi. Rík áhersla er lögð á afslappað andrúmsloft og að hver einasti við- skiptavinur fari á hraða sem honum hæfir um hið stórbrotna landslag sem svæðið býr að. Algengast er að riðið sé um hinar vinsælu Löngufjörur, þar sem gæta þarf sjávarfalla, þaðan sem útsýnið yfir sunnanvert Snæfellsnesið og Snæfellsjökul er óviðjafnanlegt. Viðskiptavinir geta gist að Lýsuhóli og fengið þar ekta íslenskan heim- ilismat hjá staðarhöldurum, hjón- unum Jóhönnu og Agnari Gests- syni. Þá gefst fólki kostur á að slaka á og láta þreytuna líða úr sér í heitri náttúrulaug sem er steinsnar frá bænum. „Leyfum því að njóta“ Jóhanna er uppalin að Lýsuhóli og tók við hestaleigunni, sem er ríf- lega 30 ára gömul, árið 1993, ásamt Agnari. Hestaleigan er opin allt árið um kring en Snæhestar bjóða upp á styttri og lengri ferðir – allt frá klukkutíma skottúr upp í átta daga útreiðartúra. Mikil áhersla er lögð á persónu- lega og góða þjónustu þar sem hver og einn knapi fær að njóta sín. Ekki sé haldið aftur af þeim sem séu lengra komnir heldur raðað þannig í hópa að allir fái notið ferðarinnar. Helst séu aldrei fleiri en sex, svip- aðir að getu, í hóp. „Við reynum að setja gæðin ofar öllu,“ segir Jóhanna og tekur fram að öllum sem til þeirra komi sé boðið upp á kaffi og kleinur. Þau leggi sig fram um að láta fólki líða vel. „Við viljum að fólk finni sig í hnakknum – leyfum því að njóta.“ Að Lýsuhóli bjóða þau hjónin einnig upp á gistingu. Herbergin er 12 en auk þess starfrækja þau lítinn veitingastað þar sem hægt er að fá ekta íslenskan heimilismat. Einstakar fjörur Aðeins er um eins og hálfs til tveggja tíma reið að Búðum, fornfrægum verslunar- og útgerðarstað. Jóhanna tekur fram að ferðirnar séu ekki skipulagðar heldur geti hver hópur ákveðið hvað hann vill sjá, hvort sem riðið er með fram Lýsuvötn- um, niður í fallegar fjörurnar eða farið um einstakt hraunið, en beggja vegna Lýsuhyrnu er fallegt hraun; Hraunsmúlahraun og Bláfeldar- hraun. Þar má meðal annars skoða fallega hella. Þá velji margir að fara með fram vötnunum þar sem fugla- lífið blómstrar. „Þriggja tíma ferð- irnar eru til dæmis alveg æðis- legar,“ segir hún. „Löngufjörurnar og Búðafjaran eru alveg einstak- lega fallegar. Það eru margar leiðir í boði.“ n Heimilislegar hestaferðir í kyrrð og ró Kerhestar í Grímsnesi leggja áherslu á persónulega þjónustu og notalegt andrúmsloftt H ingað er kjörið að bjóða makanum í rómantíska ferð – fjarri ysi hversdagslífsins,“ segir Sverrir Sigurjónsson, einn eigenda hestaleigunnar Kerhesta í Miðengi í Grímsnesi. Ker- hestar eru lítið fjölskyldufyrirtæki sem hefur boðið upp á hestaferðir frá árinu 2009. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á persónulega þjónustu og notalegt andrúmsloft. Kerhestar bjóða upp á fjölbreyttar hestaferðir í fallegri náttúru Gríms- ness og Þingvalla. Hestaleigan er með aðstöðu að Miðengi í Grímsnesi og segir Sverrir að hestaleigan njóti þeirrar sérstöðu að geta boðið upp á ferðir fjarri allri umferð. „Ef þú ert óheppinn þá sérðu eða heyrir í bíl en yfirleitt er kyrrðin algjör.“ Sverrir á Kerhesta ásamt föður sínum, Sigurjóni Reynissyni, og afa sínum, Reyni Jósepssyni. Þorbjörn Jósep Reynisson, föðurbróðir hans, og Benedikt Gústafsson, mágur hans, eru líka á meðal eigenda. Hestaleigan Kerhestar stendur þannig undir nafni þegar talað er um fjölskyldufyrirtæki. Heimilislegt viðmót Sverrir segir að mest sé að gera í júlí og ágúst en oftast sé þó hægt að bóka ferðir með stuttum fyrirvara, hvort sem um ræðir lengri eða styttri ferðir. Kerhestar henti vel fyrir vinnustaði eða vinahópa, barnaafmæli, sumar- bústaðargesti eða fjölskyldur. Ferð- irnar henti bæði vönum og óvönum knöpum þar sem áhersla sé lögð á persónulega þjónustu. „Þetta er voðalega heimilislegt og fínt. Yfirleitt erum við að fara í eins til tveggja tíma ferðir en við getum líka skipulagt lengri ferðir,“ segir Sverrir sem tekur fram að andrúmsloftið sé afslappað. „Þetta er ekki verksmiðjuframleiðsla þar sem þú sérð 20 manns klædda upp í appelsínugula pollagalla,“ segir hann kíminn. Aðallega er riðið um landareign Miðengis, oft um rauða malarstíga með fram túnum og iðandi lækjum. 30 manna skáli á Lyngdalsheiði Fyrirtækið hefur einnig umsjón með fallegum skála í Kringlumýri á Lyngdalsheiði. Skálinn var tekinn í gegn árið 2010 og endurnýjaður frá grunni. „Þar er mjög flott gisti- aðstaða fyrir um 30 manns,“ segir Sverrir. Hægt er að bóka ferðir þang- að ef fólk vill fara í lengri reiðtúra en þess á milli er skálinn leigður út. Eins og áður segir er enginn lág- marksfjöldi þegar kemur að bókun- um en sá sem fer með flesta hópana, Guðni Reynir Þorbjörnsson, sé öllu vanur. Sverrir segir aðspurður að útlendingar séu í meirihluta gesta en að einnig sé nokkuð um að vina- hópar eða vinnustaðir bóki hjá þeim ferðir. „Þetta er einstaklega skemmti- legt hópefli,“ segir hann. Sverrir segir að stóðið sé þannig samsett að allir ættu að geta fengið hest sem hæfir getu þeirra. Enda hafi Kerhestar tekið á móti fólki af öllum stærðum og gerðum. n Riðið yfir vað Til Kerhesta geta bæði vanir og óvanir leitað. Persónuleg þjónusta Allir geta fengið hest við sitt hæfi. Á sjötta starfsári Hestsaleigan var sett á laggirnar 2009. Opið er mestallt árið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.