Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Qupperneq 24
Vikublað 21.–23. júlí 20158 Hestar - Kynningarblað
„Maður getur gengið
að þeim vísum“
Þ
etta eru afskaplega
vandaðar skeifur
sem hafa verið í
þróun í meira
en hundrað
ár. Þær sem við not-
um eru sérhann-
aðar fyrir íslenska
hestinn.“ Þetta segir
Erlendur Árnason,
járningamaður og
hrossabóndi. Ásbjörn
Ólafsson ehf. hefur frá ár-
inu 2010 flutt inn Kerckhaert-skeif-
ur en um er að ræða hollenska
gæðavöru frá fyrirtæki sem stofn-
að var árið 1906 og framleiðir yfir
1.500 mismunandi skeifur. Þar af eru
nokkrar tegundir sérstaklega gerðar
fyrir hófa íslenska hestsins.
Allir íslenskirnar í íslenska lands-
liðinu, sem taka þátt á Heimsmeist-
aramóti íslenska hestsins í Herning
í Danmörku í ágústbyrjun, verða á
skeifum frá Kerckhaert. Erlendur
járnar sjálfur þá flesta. „Ég er búinn
að nota þessar skeifur síðan ég kom
heim til Íslands 2004, í einhver tíu
eða tólf ár,“ segir Erlendur en hann
bjó áður í áratug í Þýskalandi. „Það
sem mér finnst betra við þess-
ar skeifur en aðrar er hvað þær eru
vel hannaðar og hversu góður frá-
gangurinn er,“ segir hann. Skeifur frá
öðrum framleiðendum séu oft að-
eins ólíkar í laginu og illa frá þeim
gengið. „Kerckhaert-skeifurnar eru
svo jafnar og vel smíðaðar. Maður
getur gengið að þeim vísum.“
Viðurkenndar af FEIF
Kerckhaert er hollenskt fyrirtæki
með langa sögu. Skeifurnar eru
framleiddar úr gæðastáli og eru
viðurkenndar af FEIF, alþjóðasam-
tökum íslenska hestsins. Björgvin
Þórisson dýralæknir mælir með
notkun Kerckhaert-skeifna og tel-
ur þær vera mjög hestvænar.
Kerckhaert sérhannar skeifur
fyrir hvern fót.
Slitna jafnt
Erlendur hefur unnið
með skeifurnar lengi og
á í góðu samstarfi við Ás-
björn Ólafsson ehf. Að-
spurður segir hann að góð-
ar skeifur skipti hestinn miklu
máli. „Kerckhaert-skeifurnar
slitna mjög jafnt og styðja vel und-
ir hófana,“ segir hann og tekur fram
að í starfi sínu sjái hann oft hesta á
skeifum sem eru misslitnar, þar sem
önnur hlið skeifunnar er verr farin
en hin. Hann segir að hestur á léleg-
um skeifum sé eins og íþróttamaður
sem ætli að keppa í gatslitnum eða of
litlum skóm. Það fari aldrei vel. „Það
skiptir höfuðmáli að gera þetta vel,
gæta þess að hesturinn standi jafnt
í fæturna.“ Nokkurs konar göngu-
greining sé mikilvæg. „Það er ekki að
ástæðulausu sem ég hef notað þess-
ar skeifur í meira en áratug,“ segir
hann við DV. „Allir mínir kúnnar
nota þessar skeifur.“
Þarf ekki mikið að breyta þeim
Erlendur segir að góðar skeifur skipti
miklu máli fyrir virknina í hestinum
og heilsu hans. Mikilvægt sé að efnið
í skeifunum sé ekki of hart. Hann
noti mest 22 millimetra breiðar
Kerckhaert-skeifur en með breiðari
skeifum dreifist álagið betur. „Góðar
skeifur fyrirbyggja að menn eyðileggi
á hestunum fæturna með of miklu
álagi.“
Mýktin í Kerckhaert gerir járn-
ingamanninum auðvelt fyrir þegar
kemur að því að móta skeifurnar. Er-
lendur segir að þess vegna sé fljót-
legra að járna með Kerckhaert-skeif-
um en öðrum. „Þær eru líka þannig
í laginu að maður þarf ekki mikið
að breyta þeim. Þær eru auðveldar í
notkun.“ Hann segir það ekki sjálfgef-
ið að aðrar skeifur séu með rétta lag-
ið fyrir hófa íslenska hestsins. „Þess-
ar eru með gott lag og svo eru götin
fyrir hóffjaðrirnar einstaklega vel
staðsett. Það að hóffjaðrirnar komi á
réttum stöðum í hófinn kemur í veg
fyrir að skeifurnar losni eða hófurinn
brotni.“
Erlendur segir að sem betur fer
standi hestamenn almennt vel að
járningum en að hann sjái þó stund-
um í starfi sínu hluti sem betur
mættu fara. Þá skipti höfuðmáli að
vera með góðar skeifur. n
Fagmennska - Gæði - Árangur
Íslenska landsliðið í hestaíþróttum velur
KERCKHAERT skeifur!
KERCKHAERT og Ásbjörn Ólafsson ehf.
óska keppendum góðs gengis á
heimsmeistaramótinu í Herning 2015.
Áfram Ísland!
KERCKHAERT kemur þér alla leið...
Járningamaður íslenska hestalandsliðsins notar bara
Kerckhaert-skeifur sem eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn
Framskeifa
Skeifurnar eru
sérhannaðar fyrir
íslenska hestinn.
Mynd ÁSbjörn ÓlaFSSon
Gæðavara
Hér gefur að
líta skeifu fyrir
afturhóf.
Mynd ÁSbjörn ÓlaFSSon