Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Blaðsíða 27
Lífsstíll 19Vikublað 21.–23. júlí 2015
Betri kostir í pítsugerð
N
ú hef ég oft rekist í orðið
„hollustupítsa“ í yfirferð
minni á matardagbókum í
þjálfuninni. Einnig hef ég
séð uppskriftir sem bera
slíkt heiti á netinu eða í blöðum.
Ýmsir veitingastaðir tala einnig um
hollustupítsur á matseðli.
Að mínu mati er ekki til neitt sem
er hollt þegar kemur að pítsum, þar
sem að pítsan inniheldur yfirleitt ein-
hverja gerð af hveiti eða annað sem
er ekki mjög hollt í miklu magni, eins
og t.d. fituríkur ost og álegg.
Hægt að velja betri kosti
Það er hins vegar hægt að velja betri
kosti þegar kemur að pítsugerð og
sniðugt að hafa það í huga ef við-
komandi vill hollustuvæða pítsuna á
nammidegi. Reyndar hef ég tekið eftir
að það er hefð hjá mörgum fjölskyld-
um að fá sér pítsu saman á föstu-
dagskvöldum og því um að gera að
nýta betri kostina þá líka og þannig
huga að bættri heilsu fjölskyldunnar.
Yfirleitt eru laugardagar valdir sem
nammidagar í beinu framhaldi og því
gott að tóna föstudaginn ögn niður.
Pítsa er án efa með vinsælustu
skyndibitum nútímans og ég viður-
kenni að mér finnst hún alveg
einstaklega góð. Ég kýs þó yfirleitt
að gera hana sjálf, frekar en að panta
hana. Með því að gera pítsuna sjálf
hef ég tök á að gera hana eins mat-
armikla og mig langar til og get holl-
ustuvætt hana að vild.
Þegar ég er með svokallaðan
nammidag eða hugsa um að leyfa
mér umfram þetta venjulega, langar
mig mest í eitthvað gott en jafnframt
matarmikið.
Tortillavefja sem botn
Það eru til ýmsar heilsusamlegri
uppskriftir að pítsu á netinu, til að
mynda blómkálspítsa, heilhveitipítsa,
hveitikímspítsa og svo framvegis.
Það sem heillar mig mest af þessu
öllu, er pítsa gerð úr tortillavefju.
Hún er mjög fljótleg í framkvæmd og
mun betri kostur. Það er bæði hægt
að kaupa þessa venjulegu þunnu
tortillavefju, eða þá sér vefju sem
er gerð fyrir pítsu gerð. Ég hef fund-
ið slíka vefju í Bónus og hún hefur
reynst mér einstaklega vel. Í pakkan-
um eru fjórir slíkir botnar og því hægt
að geyma þá botna sem ekki eru not-
aðir inn í frysti.
Sósur og ostur
Ég nota sjálf pítsusósuna frá Hunt's
sem grunn, þar sem hún er að mestu
leyti úr tómatþykkni og vatni.
Eitt sinn var hér á markaðnum
fjörostur sem var einungis 9% fita.
Mér fannst hann svo góður af því að
hann bráðnaði ekki alveg, heldur var
stökkur ofan á. Hann var tekinn af
markaðnum ásamt 11% ostinum og
því geng ég bara á næsta kost á eftir,
sem er 17% osturinn. Ef maður vill
svo vera alveg OFUR hollur er hægt
að nota kotasælu eða sýrðan rjóma
5% í staðinn fyrir brauðostinn. Fyrir
lengra komna, sem eru mikið fyrir
piparost ofan á pítsuna, er hægt að
skipta honum út með því að setja litl-
ar kúlur af sýrðum rjóma 5% og setja
svartan pipar yfir pítsuna.
Betri kostir í áleggi
Þegar kemur að kjötálegginu er ýmis-
legt í boði, en kannski aðeins minna
ef maður ætlar að huga að betri kosti.
Ég nota kjúklingabringur sem ég hef
skorið niður í bita, kjúklingaskinku,
létt pepperóni eða fituminna hakk.
Þegar ég rekst á fituminna hakk í
verslunum kippi ég því gjarnan með
og á til í frystinum, af því að það er
sjaldan til. Grænmetið er mjög hita-
einingsnautt og ég tala nú ekki um
hversu hollt og næringarríkt það er
og því um að gera að nýta það vel. n
Þangað til næst,
Ale Ræktardurgur
Uppáhaldspítsa Ræktardurgsins
Mér finnst nauðsynlegt að deila með ykkur hér að lokum, minni uppáhalds tortillavefju-
pítsu. Því leyfi ég uppskriftinni að fylgja ásamt myndum og mæli að sjálfsögðu með
henni næstkomandi laugardag sem nammidagsgóðgæti.
Hráefni:
n Pítsutorillavefjubotn
n 17% ostur
n Hunt's pítsusósa
n Létt pepperóni frá SS
n Fituminna nautahakk
n Sveppir
n Rauð paprika
n Sólþurrkaðir tómatar frá Sollu (án olíu)
n Rauðlaukur
n Salt, pipar og fajitas-krydd frá Santa Maria
n Salat - Lambhagasalat og smá avókadó
Aðferð:
Þegar ég byrja er ég búin að steikja hakkið á pönnu með fajitas-kryddinu, þannig að það
er tilbúið ofan á pítsuna. Pítsubotninn er gott að setja á ofnplötu með bökunarpappír
undir, áður en hafist er handa.
Ég byrja á að smyrja pítsusósunni yfir botninn, því næst dreifi ég létt pepperóni yfir
sósuna og set svo talsvert magn af hakkinu. Mér finnst hakkið svo ótrúlega gott og
einnig gera þetta að meiri máltíð. Eftir það set ég svo grænmetið eftir smekk og ostinn
ofan á að lokum.
Af því að ég er alltaf að hugsa um að gera allt að frábæru góðgæti, finnst mér einstak-
lega gott að salta og pipra pítsuna þegar ég tek hana úr ofninum. Þannig bráðnar
kryddið inn í ostinn.
Pítsuna ber ég oft fram með salati ofan á og mér finnst ótrúlega gott að hafa avókadó
eða sýrðan rjóma 5% með líka. Einnig set ég stundum dressingu eða furuhnetur ofan á
Svo er bara að njóta í botn!
Alexandra Sif
Nikulásdóttir
ale_sif@hotmail.com
Pítsan á leið í ofninn Hér er allt áleggið komið ofan á pítsuna, að frátöldum
ostinum. Eins og sjá má er pítsan matarmikil og nóg af hakkinu góða.
Pítsan tilbúin Pítsan tilbúin og salatinu komið fyrir ofan á, ásamt avókadó til
hliðar.
n Ekki til neitt sem heitir hollustupítsa n Hægt að velja betri kosti n Uppskrift af pítsutortillu