Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Blaðsíða 29
Vikublað 21.–23. júlí 2015 Lífsstíll 21 Hótel Saga, Hagatorgi • 107 Reykjavík • Sími: 511 2111 og 862 0822 (utan opnunartíma) Láttu þér líða vel meccaspa.is Opnunartími Virka daga frá kl. 7.00 - 20.00 Laugardaga frá kl. 9.00 - 18.00 Sunnudaga frá kl. 10.00 - 14.00 Tökum vel á móti hópum af öllum stærðum, einnig utan hefðbundins opnunartíma. Dekur í boði. Komdu til oKKar ...Eða leigðu lyftu og gErðu við bílinn sjálf/ur auðbrEkku 25 (DalbrEkku mEgin) - s. 445-5562 Við gerum Við bílinn faglegar Viðgerðir Algeng mistök í þvottahúsinu E f þú vilt að fötin þín haldi sér vel er mikilvægt að þvo þau á rétt- an hátt. Það er ekki nóg að fara eftir þvottaleiðbeiningunum á fötunum sjálfum held- ur er ýmislegt fleira sem gott er að hafa í huga. Hér eru nokkur dæmi um grundvallarmistök sem eru mjög algeng í þvottahúsinu og stytta endingartíma fata. Að nudda bletti Það getur einfaldlega gert illt verra að reyna að nudda bletti úr efni af miklum krafti. Best er að vera mjúkhentur og reyna að fjarlægja blettinn eins fljótt og auðið er. Notaðu alltaf hvítt efni til að nudda með svo litur berist ekki á milli. Þá er gott að hafa í huga að ekki þola öll efni svona nudd og liturinn þar sem bletturinn var getur dofnað. Of mikið þvottaefni Full þvottavél af löðrandi sápulegi getur orðið til þess að óhreinindi festast á erfiðum stöðum, eins og undir skyrtukrögum og þess háttar. Þetta getur valdið því að bakteríur hlaðist upp á þessum stöðum með tilheyrandi ólykt og blettum. Próf- aðu þig áfram með magn þvottaefn- is. Byrjaðu á því að minnka skammt- inn um helming og ef það dugar ekki til að ná úr verstu blettunum, auktu þá magnið örlítið. Að gleyma rennilásum Það getur skipt miklu máli að renna alltaf upp rennilásum á flíkum áður en þær eru þvegnar. Opinn lás getur nefnilega bæði farið illa með flíkina sem hann er á og aðrar flíkur í sömu vél. Sérstaklega þær sem eru úr við- kvæmara efni. Hnepptar skyrtur Af því að það er betra að renna upp rennilásum gæti maður haldið að það sama ætti við um tölur á skyrt- um – að hneppa þeim fyrir þvott. En það er mikill misskilningur. Ef skyrturnar eru hnepptar í þvotti eykur það bæði álagið á tölunum og hnappagötunum. Tölurnar eru lík- legri til að losna af og hnappagötin víkka út. Vanstillt þvottavél Ef fæturnir undir þvottavélinni eru ekki rétt stilltir getur það valdið óþarfa álagi á tækið. Fyrir utan álag- ið á gólfið og hávaðamengunina. Ef þú nærð ekki að stilla fæturna þannig að þeir séu jafnir er gott að setja lítinn viðarkubb undir fótinn sem veldur vandræðum. Að þrífa ekki þurrkarann Það er ekki nóg að hreinsa bara sí- una í þurrkaranum eftir hverja notkun, heldur þarf reglulega að losa barkann frá og þrífa þar fyrir innan með bursta. Á barkalausum þurrkurum er sía framan á, hjá af- fallsvatnstankinum, sem gott er að þrífa reglulega. Góð vísbending um að þurrkarinn sé orðinn óhreinn er að hann er mun lengur að þurrka en venjulega. En óhreinn þurrkari get- ur einnig skapað eldhættu. n Auðvelt að láta flíkurnar endast lengur n Ekki nóg að lesa þvottaleiðbeiningarnar Ekki nudda bletti Það getur farið mjög illa með flík að nudda blett úr henni af miklu afli. Vandasamt Það getur verið vandasamt verk að setja í þvottavél með góðum árangri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.