Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.2015, Page 31
Vikublað 21.–23. júlí 2015 Menning 23
Í bókmenntalandi er lítið annað rætt þessa dag-
ana en Go Set a
Watchman eftir
hina 89 ára gömlu
Harper Lee, höfund einnar vin-
sælustu skáldsögu 20. aldar To
Kill a Mockingbird. Sagan er
kynnt sem framhald söngfugls-
ins frá 1960 en er í raun enn eldra
uppkast af sömu bók. Útgef-
andinn, Harper/Collins, hefur
verið sakaður um að nýta sér elli
Lee til þess að græða á hand-
ritinu. Gagnrýnendur skiptast í
ólíkar fylkingar varðandi gæði
bókarinnar, en bókin setti þó
nýtt sölumet hjá bóksalanum
Barnes & Nobles og seldist hún í
fleiri eintökum en nokkur önnur
skáldsaga fyrir fullorðna á fyrsta
söludegi.
Á dögunum stöðvaði lögregla í
Adelaide í Ástralíu
sölu á American
Psycho eftir Bret
Easton Ellis. Sam-
kvæmt áströlskum lög-
um er bannað að selja börnum
bókina, sem er alræmd fyrir gróf-
ar ofbeldislýsingar, og þarf hún
að vera í sérstökum lokuðum og
ógegnsæjum umbúðum í bóka-
búðum. Nýjasta útgáfa bókarinn-
ar – í Picador Classic ritröðinni
– kom hins vegar ekki í slíkum
umbúðum og þurfti lögreglan því
að grípa inn í.
Tilnefningar til 67. Emmy-sjónvarps-
verðlaunanna voru
kunngerðar í síð-
ustu viku. Fantasíuþátta-
röðin Game of Thrones frá sjón-
varpsstöðinni HBO er tilnefnd til
flestra verðlauna, eða tuttugu og
fjögurra, meðal annars sem besti
dramatíski sjónvarpsþátturinn.
Aðrir þættir sem eru tilnefndir
sem bestu dramaþættirnir eru
Downton Abbey, Homeland,
House of Cards, Mad Men, Better
Call Saul og Orange is the New
Black. Í flokki gamanþátta eru
Louie, Modern Family, Parks
and Recreation, Silicon Valley,
Transparent, Unbreakable Kimmy
Schmidt og Veep tilnefndir.
loksins á
Íslandi!
Verslun og Viðgerðir
Hjól aspret tur ︱ Dal sHr aun 13 ︱ 220 Hafnarfjörður ︱ s ími: 565 2292 ︱ w w w.Hjol aspret tur. is
Sjálfbært nammiland fyrir skapandi fólk
enn langt frá því að vera fullnýtt. „Í
dag er hún eiginlega bara eins og
vöruskemma, bara járnþak með
engri einangrun. En hugmyndin
er að bæta við textílverkstæði,
myrkraherbergi og góðri vinnuað-
stöðu fyrir listamenn. Planið er að
byggja upp eins fjölbreytta aðstöðu
og hægt er. Við sjáum fyrir okkur
að þegar þetta verði tilbúið eigi að
vera aðstaða eins og gerist best í frá-
bærum listaháskólum. Hugmyndin
er að það sé allt til alls og það eru
svo margir miðlar sem geta unnið
saman. Þetta ætti þá að verða al-
gjört nammiland fyrir skapandi
fólk,“ segir Rósa.
Skapandi einstaklingar alls stað-
ar að úr heiminum eru strax byrj-
aðir að heimsækja frystihúsið til að
vinna. Í hverjum mánuði koma þrír
listamenn, búa í bænum og vinna.
Þetta segir Rósa glæða bæjarfé-
lag þar sem hver nýr einstaklingur
skipti máli nýju lífi.
Hágæða hljóðupptökuver í
íssílói
Eitt metnaðarfyllsta verkefnið sem
nú er unnið að er Stúdíó Síló, há-
gæða hljóðupptökuver sem verður
staðsett í gömlu íssílói á efri hæð
hússins, sem stefnt er á að verði
tilbúið í lok árs. Upptökuverið er
hannað af Bandaríkjamannin-
um John H. Brandt, heimsfrægum
hljómburðar- og hljóðvershönnuði,
sem hefur á 40 ára ferli hannað yfir
200 hljóðver víðs vegar um heim-
inn.
„Una Björk Sigurðardóttir og
Vincent Wood komu hérna fyrir
rúmlega ári til að byggja hljóðver.
Þau ætluðu að smíða allt úr endur-
nýttu timbri og voru að hefjast
handa. Svo ákváðu þau að senda línu
á John. Þau vildu bara fá einhverjar
athugasemdir varðandi hönnunina.
Hann skrifaði þeim til baka: „Ekki
skrúfa eina einustu skrúfu, þetta er
alls ekki nógu gott!“ Að fá hann til
að hanna þetta kostaði hins vegar
einhvern slatta af peningum, en þau
sendu honum kynningarmyndband
um hvað væri í gangi hérna. Hann
gefur aldrei afslátt en sagði: „Ég skal
bara hanna þetta fyrir ykkur ókeyp-
is“,“ segir Rósa, en þetta er dæmi um
hvernig velvilji fólks í garð verkefn-
isins hefur gert það mögulegt.
Hún segir það þó ekki einungis
vera hönnunina sem muni gera
hljóðverið einstakt. „Auk þess að
vera tónlistarmaður er Vinnie raf-
eindaverkfræðingur, og ótrúlega
skapandi sem slíkur. Hann er alltaf
að smíða hljóðfæri og búnað úr
ótrúlegustu hlutum. Þannig að það
verður mikið óvenjulegt í boði. Þá
verður möguleiki á algjörlega ana-
log-upptöku,“ segir Rósa.
Samfélag þar sem fólk hugsar
um hvert annað
Rósa segir bæjarbúa hafa stutt verk-
efnið og þeir séu á sama tíma þakk-
látir. „Þetta rekur sig að langmestu
leyti á velvilja bæði einstaklinga
og fyrirtækja. Flest tæki og tól í að-
stöðunni höfum við til dæmis feng-
ið gefins. Það er afskaplega gaman
að finna að heimurinn er ágætur
stundum,“ segir Rósa.
„Ég held að það væri ekki hægt
að gera þetta nema í samfélagi þar
sem að fólk hugsar um hvert ann-
að. Fólk leggur saman tvo og tvo og
hugsar; „þau eru í alltaf sjálfboða-
vinnu og eiga örugglega enga pen-
inga.“ Fljótlega eftir að við byrjuðum
fóru nokkrir sjómenn að gefa okkur
fisk – og við höfum verið með fulla
frystikistu af fiski síðan. Fólk er að
gefa okkur alls konar hluti og það
er ótrúlega mikill stuðningur. Þegar
við vorum að byrja komu til dæmis
sautján manns frá listaháskóla í
London til að taka þátt í verkefninu
með okkur, þá voru nokkrar konur
hér í bænum sem sáu um að elda
ofan í liðið. Allir taka þátt á einn eða
annan hátt,“ segir Rósa.
„En fólk sér líka hvaða áhrif þetta
hefur. Fólk sér mun frá því áður en
við byrjuðum á þessu. Það er alltaf
líf og fjör hérna, mikið um tónleika
og alls konar skemmtilegar týpur í
bænum,“ segir hún og hlær.
Hún segir að Stöðvarfjörður hafi
verið kjörlendi fyrir sköpunarmið-
stöðina, þar hafi annars vegar verið
öflug menningarstarfsemi í nokkurn
tíma, og hins vegar hafi samvinnu-
hugsjónin verið sterk í samfélaginu
frá upphafi. „Þegar fyrsta frystihús-
ið hérna var byggt lögðu allir í bæn-
um saman í púkk. Svo vantaði skóla
og samkomuhús þá hittust allir og
byggðu hús. Þessi stemning er ákaf-
lega ríkjandi í samfélaginu,“ segir
Rósa.
Slíkur andi er oftar en ekki ríkj-
andi í smærri samfélögum á lands-
byggðinni og hvetur Rósa aðra til að
koma ýta svipuðum verkefnum úr
vör annars staðar, örbylting eins og
sú sem hefur átt sér stað á Stöðvar-
firði geti átt sér stað víðar. „Mér
finnst vera jarðvegur fyrir þetta á Ís-
landi og það er ýmislegt að poppa
upp í verbúðum og frystiklefum hér
og þar um landið. Okkur langaði að
sýna að þetta væri hægt og nú langar
mig mikið að aðstoða með ráðgjöf
þegar einhver er að byrja – það get-
ur sparað manni heilmikla vinnu ef
einhver sem hefur gert þetta áður
getur gefið góð ráð,“ segir Rósa. n
„Þetta var
2.800 fermetra
steypuklumpur og ég og
maðurinn minn ásamt
nokkrum vinum sáum
möguleika í þessu tóma
húsnæði.
„Við þurfum að
læra af sögunni og
ekki bara treysta á einn
stóran atvinnurekanda
heldur byggja samfélagið
á mörgum stoðum.
Heimagerð virkjun
Markmiðið er að minnka
rafmagnskostnað
Sköpunarmiðstöðvar-
innar með heimagerðri
vatnsaflsvirkjun í
húsinu.
Smáiðnaður Markmiðið er að fólk hafi aðstöðu til að
vinna og selja eigin framleiðslu í sköpunarmiðstöðinni,
hvort sem það er hönnun eða matvæli.
Úr listheiminum