Morgunblaðið - 14.12.2016, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.12.2016, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016 KÖRFUBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Emelía Ósk er gríðarlega metn- aðarfull og góður íþróttamaður,“ sagði Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur, toppliðs Dom- inos-deildarinnar, spurður um Emelíu Ósk Gunnarsdóttur, 18 ára framherja Keflavíkurliðsins sem vakið hefur mikla athygli á keppnistímabilinu. Emelía Ósk átti framúrskarandi leik þegar Keflavík vann Njarðvík, 79:59, í Dominos-deildinni um síðustu helgi. Hún skoraði 14 stig, tók 13 frá- köst og átti þrjár stoðsendingar. Þetta er síður en svo í fyrsta skipti sem sem hún leikur svo vel í leikjum Keflavík- urliðsins. „Emelía Ósk er frábær varn- armaður auk þess að vera eldsnögg fram leikvöllinn, meðal annars eftir góð varnarstopp, er hún fljót fram í hraðaupphlaup. Hún er frábær liðs- maður og sannkallaður drauma- leikmaður að vinna með,“ sagði þjálf- arinn en Sverrir Þór tók við Keflavíkurliðinu um síðustu áramót eftir að nokkurt umrót hafði verið inn- an hópsins mánuðina á undan. Emelía Ósk er næststigahæsti Ís- lendingurinn í deildinni með 14,1 stig að jafnaði í hverjum leik. Hún tekur að meðaltali 6,4 fráköst í leik sem undir- strikar styrk hennar sem varn- armanns eins og Sverrir bendir á. Emelía Ósk hefur slegið í gegn í vetur en Sverrir Þór segir hana einnig hafa vakið talsverða athygli á síðasta keppnistímabili. „Hún lék mjög mikið með Keflavík- urliðinu eftir að við Gunnar Stef- ánsson tókum við þjálfun liðsins um áramótin. Við nýttum krafta hennar mjög mikið og undir lok tímabilsins í fyrra var hún orðin mjög mikilvæg lið- inu. Þess vegna var það alveg borð- leggjandi að Emelía yrði einn af okkar aðalleikmönnum á þessum vetri.“ Kát, hress og lætur verkin tala „Emelía Ósk er kát og hress og læt- ur verkin tala inni á leikvellinum. Hún er ekki nema átján ára, engu að síður orðin góður leikmaður en á helling inni og er jafnt og þétt til dæmis að verða betri sóknarmaður. Ég er viss um að með sama áframhaldi líða ekki mörg á þangað til hún verður lykilleikmaður íslenska landsliðinu,“ sagði Sverrir Þór. Emelía Ósk lék sína fyrstu lands- leiki fyrir skömmu gegn Slóvakíu og Portúgal. „Ég held að allir geti verið sammála um að þá fékk Emelía Ósk verðskuldað tækifæri með landslið- inu.“ Emelía Ósk kemur upp úr unglinga- flokkum Keflavíkur og nýtur þess að sögn Sverris Þórs að hafa lengi notið leiðsagnar Jóns Guðmundssonar. „Ég þekki vel til Jóns þar sem hann þjálf- aði mig m.a. þegar ég var yngri. Hann hefur alltaf lagt mikla áherslu á að leikmenn leggi sig ungir fram við varnarleikinn. Emelía hefur tekið þeirri leiðsögn því henni þykir mjög gaman að leika vörn, sem er mjög góð- ur kostur,“ sagði Sverrir Þór. „Emelía Ósk er metnaðarfull í sinni íþróttaiðkun og er á hárréttri leið sem stendur og verður betri með hverjum mánuðinum sem líður.“ Keflavíkurliðið er í efsta sæti Dom- inos-deildarinnar. Sverrir Þór segir lið sitt vera á góðu róli. „Deildin er jöfn og skemmtileg og hver leikur er al- vöruleikur þar sem hvergi má slaka á. Það er mikill kostur,“ segir Sverrir Þór sem þekkir vel til í kvennakörf- unni og þjálfaði m.a. kvennalið Kefla- víkur einnig fyrir um áratug eða svo. „Á þeim tíma voru tvö til þrjú lið í deildinni sem víst var að við myndum vinna með 20 til 30 stiga mun. Nú er það ekki raunin þar sem deildin er mikið jafnari og fyrir vikið skemmti- legri. Sú staðreynd skilar sér í betri leikmönnum og skemmtilegri keppni fyrir alla,“ sagði Sverrir Þór Sverr- isson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur. Lykilmaður landsliðsins á næstu árum Morgunblaðið/Eggert Landsliðið Emelía Ósk Gunnarsdóttir er þegar farin að láta að sér kveða í landsliðsbúningnum og hér er hún í sigurleiknum gegn Portúgal á dögunum.  Emelía er 18 ára lykilmaður í toppliði Keflavíkur  Gríðarlega metnaðarfull Chelsea gæti unnið sinn tíunda sigur í röð í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu í kvöld þegar liðið mætir botnliði deildarinnar, Sunderland, á útivelli. Chelsea hefur einu sinni áður náð að vinna tíu leiki í röð á einni leiktíð í úrvalsdeild- inni, en það var tímabilið 2005-2006 þegar liðið varð Eng- landsmeistari. Liðið vann hins vegar 11 leiki í röð árið 2009, en þá á tveimur leiktíðum. Liverpool freistar þess að komast á beinu brautina með sigri gegn Middlesbrough á Riverside-vellinum, en þar hefur liðið reyndar ekki unnið í síðustu sjö heimsóknum. Sú síðasta var snemma árs 2009. „Við höfum átt tvo leiki í röð sem við áttum að vinna en gerðum það ekki, og okkar mistök kostuðu okkur fimm stig. Við þurfum að halda áfram og taka það jákvæða með okkur en skilja hitt eftir,“ sagði Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, en liðið gerði 2:2-jafntefli við West Ham á sunnudag, eftir 4:3-tap gegn Bournemouth. sindris@mbl.is Jafnar Chelsea félagsmet? Jürgen Klopp Bob Bradley, knattspyrnustjóri Swansea, segist vongóður um að halda Gylfa Þór Sigurðssyni áfram hjá félaginu og að hann muni ekki fara neitt þegar opnað verður fyrir fé- lagaskipti í janúar. Gylfi og félagar mæta WBA í kvöld. Gylfi hefur verið besti maður Swansea á tímabilinu og er markahæstur með sex mörk, en hann framlengdi samning sinn við félagið í ágúst. Liðinu hefur hins vegar gengið afleitlega og ljóst að önnur félög horfa til íslenska landsliðsmannsins. „Við erum vongóð um að hann muni vera áfram. Gylfi hefur verið frábær fyrir okkur og ég er viss um að mörg fé- lög taka eftir því. En við horfum til þess að hann er mikil- vægur þáttur í okkar framþróun,“ sagði Bradley við BBC. Everton hefur meðal annars verið orðað við Gylfa og sagt tilbúið að greiða 25 milljónir punda fyrir þjónustu hans. Á þessu ári hefur Gylfi komið við sögu í 47% marka Swansea, hefur skorað 14 mörk og lagt upp önnur sjö. Vongóður um að halda Gylfa Gylfi Þór Sigurðsson England Bournemouth – Leicester........................ 1:0 Everton – Arsenal .................................... 2:1 Staðan: Chelsea 15 12 1 2 33:11 37 Arsenal 16 10 4 2 37:17 34 Liverpool 15 9 4 2 37:20 31 Manch. City 15 9 3 3 32:19 30 Tottenham 15 7 6 2 24:11 27 Manch. Utd 15 6 6 3 20:16 24 Everton 16 6 5 5 21:20 23 Bournemouth 16 6 3 7 22:25 21 Watford 15 6 3 6 21:26 21 WBA 15 5 5 5 20:18 20 Southampton 15 5 5 5 14:15 20 Stoke 15 5 4 6 17:22 19 Burnley 15 5 2 8 15:25 17 Leicester 16 4 4 8 21:27 16 Cr. Palace 15 4 3 8 27:29 15 Middlesbrough 15 3 6 6 13:16 15 West Ham 15 3 4 8 17:31 13 Swansea 15 3 3 9 19:31 12 Hull City 15 3 3 9 14:32 12 Sunderland 15 3 2 10 14:27 11 B-deild: Cardiff – Wolves ...................................... 2:1  Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Cardiff.  Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Wolves á 76. mínútu. Bristol City – Brentford ......................... 0:1  Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn í vörn Bristol City. Fulham – Rotherham.............................. 2:1  Ragnar Sigurðsson var á varamanna- bekk Fulham allan leikinn. Birmingham – Ipswich ............................ 2:1 Blackburn – Brighton .............................. 2:3 Burton – Huddersfield............................. 0:1 Leeds – Reading....................................... 2:0 Norwich – Aston Villa .............................. 1:0 Sheffield Wed. – Barnsley ....................... 2:0 Staðan: Brighton 21 13 6 2 33:13 45 Newcastle 20 14 1 5 41:16 43 Reading 21 11 4 6 27:27 37 Huddersfield 21 11 3 7 24:25 36 Leeds 21 11 2 8 25:22 35 Sheffield Wed. 21 10 4 7 25:23 34 Birmingham 21 9 7 5 26:27 34 Norwich 21 10 3 8 36:32 33 Fulham 21 8 8 5 36:26 32 Derby 20 9 5 6 20:13 32 Barnsley 21 8 4 9 34:32 28 Preston 20 8 4 8 27:25 28 Aston Villa 21 6 10 5 22:21 28 Brentford 21 8 4 9 27:27 28 Bristol City 21 8 3 10 27:25 27 Nottingham F. 20 7 4 9 34:36 25 Ipswich 21 6 7 8 19:22 25 QPR 20 6 5 9 20:29 23 Cardiff 21 6 5 10 21:32 23 Wolves 21 5 7 9 26:30 22 Burton 21 5 7 9 22:28 22 Blackburn 21 5 5 11 25:34 20 Wigan 20 4 6 10 16:22 18 Rotherham 21 2 4 15 21:47 10 Bikarkeppnin, 2. umferð: Fleetwood – Shrewsbury ....................... 3:2  Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik- inn fyrir Fleetwood.  Fleetwood mætir Bristol City í næstu umferð. KNATTSPYRNA Þýskaland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Leipzig – Hannover-Burgdorf........... 28:24  Rúnar Kárason skoraði 3 mörk fyrir Burgdorf.  Leipzig varð fyrsta lið til að tryggja sér sæti í undanúrslitunum, Final-Four. Austur-Evrópudeildin Tatran Presov – Veszprém ................ 18:26  Aron Pálmarsson var ekki með Veszp- rém vegna meiðsla.  Efstu lið: Vardar 36, Zagreb 28, Meshkov Brest 26, Veszprém 26, Celje Lasko 21. HANDBOLTI NBA-deildin Indiana – Charlotte ............................ 110:94 Toronto – Milwaukee ....................... 122:100 Miami – Washington ........................ 112:101 Houston – Brooklyn ......................... 122:118 Dallas – Denver .................................. 112:92 LA Clippers – Portland ................... 121:120 Sacramento – LA Lakers .................. 116:92 KÖRFUBOLTI KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: TM-höllin: Keflavík b – Fjölnir ........... 20.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla: Valshöllin: Valur U – Stjarnan U........ 19.30 DHL-höllin: KR – Þróttur................... 20.15 Í KVÖLD! Í sænsku útgáfunni af hinu kunna bandaríska golftímariti Golf Digest er settur saman listi yfir 100 bestu golf- velli á Norðurlöndum. Fimm íslenskir golfvellir ná inn á listann og Hvaleyr- arvöllur hjá Keili í Hafnarfirði nær alla leið í 15. sæti. Um þetta er fjallað í tímariti Golfsambands Íslands, Golf á Íslandi. Hvaleyrarvöllur er í 15. sæti yfir bestu golfvellina á Norðurlöndunum samkvæmt þessari úttekt og tveir ís- lenskir vellir eru á topp 40 listanum. Aðrir íslenskir vellir sem komast á listann eru Vestmannaeyjavöllur (34.), Brautarholtsvöllur (40.), Korpan (60.) og Grafarholtsvöllur (93.) Vitnað er í umsögn um Hvaleyrina í Golf á Íslandi og þar segir: „Ég var orðlaus þegar ég leit yfir völlinn á fyrsta teig – ég var samt efins um að þetta væri raunveruleikinn. Ég beið eftir grínholunni en hún kom bara aldrei – þetta er toppvöllur,“ segir í umsögn Golf Digest um Hvaleyr- arvöllinn. Umtalsverðar breytingar Rætt er við Ólaf Þór Ágústsson, framkvæmdastjóra Keilis, í Golf á Ís- landi vegna þessa, en hann er jafn- framt formaður samtaka evrópskra vallarstjóra. Þar boðar Ólafur breyt- ingar á Hvaleyrarvelli sem hann segir umtalsverðar. „Það er frábært að fá svona umsögn og styrkir okkur í því að gera enn bet- ur í framtíðinni. Á næstu árum verða gerðar umtalsverðar breytingar á Hvaleyrarvelli og við eigum því enn mikið inni. Svona umsögn er hvetjandi fyrir okkur í Keili og ekki síst Hafn- arfjarðarbæ að eiga golfvöll sem vek- ur athygli hjá erlendum kylfingum,“ segir Ólafur. Besti völlurinn í Svíþjóð Í úttekt Golf Digest fá sænskir golf- vellir tvö efstu sætin. Bro Hof Slott GC, The Stadium Course er besti golfvöllur á Norðurlöndum sam- kvæmt þessu og í öðru sæti er Fal- sterbro GK. Völlur í Danmörku fær þriðja sætið en það er The Scandinavian GC, Old Course. Besti völlur í Finnlandi sam- kvæmt þessu er Kytäjä Golf, South East Course og er hann í fjórða sæti. Efsti völlurinn á listanum í Noregi er í sjötta sæti en það er Miklagard Golf. Völlurinn á fleiri listum Hafnfirðingar hafa áður fengið klapp á bakið fyrir golfvöllinn á Hval- eyrinni. Í byrjun árs árið 2012 var Hvaleyrarvöllur á lista yfir 100 bestu velli í Evrópu hjá netmiðlinum Top100 golfcourses . „Með þessu er verið að gefa íslensku golfi vissan gæðastimpil,“ sagði Ólafur Þór þá í samtali við Morgunblaðið. kris@mbl.is Hvaleyrarvöllur fær góða dóma  Hvaleyrin 15. besti völlur á Norðurlöndunum samkvæmt Golf Digest í Svíþjóð  Vestmannaeyjar og Brautarholtið á topp 50  Báðir GR-vellirnir á listanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.