Fréttablaðið - 10.02.2017, Page 2
Biðin á enda
Miklar annir voru við Silfru í gær því óvenjumargir voru mættir til að kafa í gjánni eftir óveðrið í fyrradag. Spenntur ferðamaður frá Singapúr
sagðist vera búinn að bíða eftir þessu augnabliki í heilt ár og að upplifunin yrði örugglega hápunkturinn á Íslandsheimsókninni. Fréttablaðið/GVa
Veður
Suðlæg átt, víða 3-8 m/s og úrkomu-
lítið, en suðvestan 8-18 seinnipartinn,
hvassast norðvestan til á landinu. Dálítil
slydda og síðar rigning um landið vestan-
vert, en þurrt og bjart veður norðaustan-
og austanlands. sjá síðu 18
Sólarferðir frá kr.
48.950
m/afslætti
Allt að
25.000 kr.
afsláttur á mann
í febrúar
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Valdar
brottfarir
Sumardagar
dýr Hjartagangráð var komið fyrir
í hundinum Öskubusku í vikunni
og er það í fyrsta sinn sem slíkt er
gert hér á landi. Rúna Þórisdóttir er
eigandi Busku, eins og hún er jafnan
kölluð, en eiginmaður hennar er
Hjörtur Oddsson hjartalæknir. „Það
var að líða reglulega yfir hundinn
og hún hefði dáið hefðum við ekki
framkvæmt þessa aðgerð,“ segir
Hjörtur en skömmu eftir áramót
fór að bera á þessum kvilla.
Stórt teymi kom að aðgerðinni og
unnu læknarnir aðgerðina í sjálf-
boðavinnu. Alls tók þetta um þrjár
klukkustundir en aðgerðin sjálf
rúman klukkutíma.
„Aðgerðin virðist hafa gengið vel.
Busku líður vel en hún er að sjálf-
sögðu aum eins og við var að búast.
Hún hefur farið út í göngutúr og er
öll að braggast,“ segir hann og bætir
við að svona aðgerðir séu sjaldan
gerðar í Evrópu þótt hann viti til að
þetta hafi verið gert í Svíþjóð. Svona
aðgerðir eru algengari í Bandaríkj-
unum.
Buska var með það sem kallað er
hægtaktur á hjartanu en þá virkar
leiðslukerfið ekki sem skyldi. Á
fagmáli kallast svona „þriðju gráðu
block“ og lýsti sér þannig að hjart-
slátturinn var orðinn alltof hægur.
Þetta er vel þekkt vandamál í
manneskjum og þá er oftast settur
gangráður í viðkomandi en þetta
er í fyrsta sinn sem svona aðgerð er
gerð á ferfætlingi.
Buska er rúmlega þriggja ára
íslenskur hundur.
Fyrir utan Hjört voru þeir Felix
Valsson, svæfinga- og gjörgæslu-
læknir, og hjartaskurðlæknirinn
Gunnar Mýrdal viðstaddir aðgerð-
ina auk dýralæknanna Jakobínu
Sig valda dóttur, Hönnu Arn órs-
dóttur og Agnesar Helgu Mart in.
Byrjað var á því að svæfa Busku og
hún síðan rökuð. Næst var stungið
á stóra hálsæð, vír settur niður í
hjartað og gangráðurinn festur á
kambinn. Hjörtur stóð straum af
kostnaðinum og gerðu hinir lækn-
arnir aðgerðina í frítíma sínum.
„Með aðgerðinni björguðum við
hundinum,“ segir Hjörtur.
benediktboas@365.is
Fyrsti gangráðurinn
græddur í ferfætling
Tíkin Öskubuska gekkst undir aðgerð í vikunni þar sem hjartagangráður var
græddur í hana. Aðgerðin tókst vel og fór Öskubuska í göngutúr í gær, svolítið
aum en hress og kát. Þetta var í fyrsta sinn sem svona aðgerð er gerð hér á landi.
buska með eiganda sínum, rúnu, eftir
aðgerðina.
Hjörtur búinn að gera allt klárt á skurðarborðinu þar sem Öskubuska lá. Sjálf að-
gerðin tók rúman klukkutíma og komu fjölmargir að henni. Myndir/Felix ValSSon
Hún hefði dáið
hefðum við ekki
framkvæmt þessa aðgerð.
Hjörtur Oddsson hjartalæknir
efnahagsmál Bjarni Benediktsson
forsætisráðherra hefur skipað sér-
fræðingahóp um stofnun stöðug-
leikasjóðs. Hópinn skipa þau Ingi-
mundur Friðriksson hagfræðingur,
Kristín Haraldsdóttir lögfræðingur
og Erlendur Magnússon fjárfestir.
Kveðið er á um stofnun slíks sjóðs
í stjórnarsáttmálanum. Þar segir að
sjóðurinn eigi að halda utan um arð
af orkuauðlindum í eigu ríkissjóðs,
tryggja komandi kynslóðum hlut-
deild í ávinningi af sameiginlegum
auðlindum og geta verið sveiflujafn-
andi fyrir efnahagslífið.
Gert er ráð fyrir að stöðugleika-
sjóður verði fjármagnaður með fjár-
hagslegum arði ríkisins af orkuauð-
lindum. Þá telur forsætisráðherra
að meta þurfi hvort til sjóðsins yrðu
lagðar aðrar fjárhagslegar eignir, svo
sem fjármunir sem varðveittir eru
í gjaldeyrisvaraforða Seðlabanka
Íslands. – jhh
Nýr sjóður
fyrir arð af
auðlindum
bjarni benediktsson á Viðskiptaþingi.
Fréttablaðið/VilHelM
lÖgreglumál Börn gengu fram á
lík á lóð við Heiðarveg á Selfossi í
gær. Talið er að það sé af erlendum
manni sem var búsettur á Selfossi.
Ekki er vitað hve lengi líkið hafði
legið á lóðinni en talið er að það
séu að minnsta kosti nokkrir dagar.
Litlar líkur eru taldar á því að
eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.
Dánarorsök er óþekkt en mun liggja
fyrir að lokinni krufningu.
Lögreglumenn frá lögreglunni
á Suðurlandi, tæknideild lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu og
sérfræðingar kennslanefndar ríkis-
lögreglustjóra voru kallaðir á vett-
vang vegna málsins. Vinnu þeirra
lauk síðdegis í gær.
Það voru börn sem gengu fram á
líkið á lóðinni en hún hefur staðið
húslaus í nokkurn tíma. Börnunum
var boðin áfallahjálp vegna málsins.
– jóe
Líkfundur
á Selfossi
Meta á hvort leggja eigi
til sjóðsins aðrar fjárhags-
legar eignir, svo sem fjármuni
sem varðveittir eru í gjald-
eyrisvaraforða Seðlabanka
Íslands.
1 0 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f Ö s T u d a g u r2 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
1
0
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
5
-3
1
E
C
1
C
3
5
-3
0
B
0
1
C
3
5
-2
F
7
4
1
C
3
5
-2
E
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
9
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K