Kvennalistinn: málgagn Kvennalistans á Ísafirði - 01.04.1994, Síða 3
ýmislegt, og mér finnst að við
þyrftum að hafa stefnu sem
byggir á framtíðarsýn,- hvernig
viljum við hafa ísafjörð?
Atvinnu- og fjölskyldumál
Stærstu málin núna eru at-
vinnumál og fjölskyldumál, og
þau eru auðvitað tengd því ef
maður hefur ekki vinnu er hagur
fjölskyldunnar í rúst.
Bærinn þarf að móta lang-
tímastefnu í atvinnumálum og sú
hugmynd hefur komið upp að
verja a.m.k. einu prósenti af
tekjum bæjarins til atvinnuupp-
byggingar, nýsköpunar eða full-
vinnslu afurða. Það gæti nú bara
orðið ansi góður pakki, jafnvel
upp undir fimm milljónir.
Það þarf að efla rekstrarum-
hverfi smáfyrirtækja. A tímum
samdráttar minnka fiskiðnaðar-
fyrirtæki við sig og þannig skap-
ast efnahagslegt tómarúm sem
þarf að fylla. Bærinn gæti t.d.
beitt sér fyrir því að Fjórðungs-
sambandið stofnaði lánatrygg-
ingasjóð sem þjónaði smáfyrir-
tækjum.
í atvinnusköpun þarf að hafa
aðgang að fjármagni eða fjár-
hagslegum bakhjarli sem bærinn
gæti átt ítök í. Það þarf að efla
þekkingu í fyrirtækjunum og
ráðgjöf þarf að vera fyrir hendi.
Sú ráðgjöf sem við höfum núna
bæði í ferðamálum og atvinnu-
átaki kvenna er bara tímabundin,
og staða atvinnuráðgjafa er í ó-
vissu sem stendur. Það þarf að
tryggja að staða atvinnuráðgjafa
verði til frambúðar og að þörfum
kvenna og smáfyrirtækja verði
sinnt.
Miklir möguleikar í ferða-
þjónustu
Það eru miklir möguleikar í
ferðaþjónustu sem þarf að byggja
upp, ég sé það nú best eftir að ég
fór út í þetta leiðsögumannsnám
í vetur. Ferðamenn á Vestfjörð-
um eru aðallega fjölskyldufólk
sem gefur sér góðan tíma, það
stoppar hér að meðaltali 5-7
daga.
Þegar Snæfjallahreppur sam-
einast fsafirði fær ísafjarðar-
kaupstaður yfirumsjón með
Hornstrandafriðlandinu eins og
það leggur sig og því fylgir heil-
mikið verkefni að skipuleggja
ferðamannastrauminn um landið
til að hlífa því. Þetta þarf að gera
í samráði við landeigendur. Hins
vegar sé ég ekki ástæðu til að
leggja ofuráherslu á Homstrand-
imar sem ferðamannaparadís,
héma em svo ótalmörg svæði ó-
nýtt og óskoðuð. Líttu bara á
Inndjúpið, þar em ótrúlega fal-
3
legir staðir og fallegar göngu-
leiðir, en það þarf að merkja þær
og búa til aðstöðu fyrir ferða-
menn.
En hvað segir þú mér um
skólamálin?
Já, þar kemurðu náttúrlega að
því sem ég hef mestan áhuga á.
Ef við byrjum á Grunnskólanum,
þá þarf að hlúa betur að honum.
Hann er of stór eining, hann er
með stærri grunnskólum á land-
inu. Þess vegna þarf t.d. að
skipuleggja vel að ekki séu of
margir í fnmínútum í einu og það
þarf meiri gæslu og miklu meiri
áherslu á að fólk sé úti með
bömunum, þau séu ekki bara ein
úti á skólalóð.
En þessir hlutir kosta peninga
og ég er hrædd við að það þrengi
frekar að grunnskólunum heldur
en hitt þegar þeir færast yfir á á-
byrgð sveitarfélaganna. Mér
sýnist að þau mál hafi ekkert
verið hugsuð til enda, - hvað á að
verða um sérkennsluna, sálfræð-
inginn eða Fræðsluskrifstofuna,
það er svo mörgu sem ekki hefur
verið svarað.
Einsetinn skóli er lengi búinn
að vera á dagskrá og er að-
kallandi, en það er líka fleira sem
þarf að huga að fyrir böm. Hér
þyrftu að vera skólagarðar og at-
hafnasvæði fyrir krakka jafnvel
einhvers konar athvarf og vinnu-
aðstaða fyrir þau innanhúss.
Ef við tölum svo um Fram-
haldsskólann þá verður mér
stundum hugsað til þess að árið
1965 komu hér norskir menn og
gerðu fimm ára áætlun um
byggðaþróun. Þar var sérstakur
kafli um framhaldsnám en þetta
var áður en Menntaskólinn var
stofnaður. Þeir töldu að hann ætti
að snúast um sjávarútveg, og þá
var gert ráð fyrir að fólk úr at-
vinnulífinu gæti sótt þangað end-
urmenntun.
Það væri auðvitað skemmtilegt
að geta unnið eitthvað út frá
þessu. Við Jónína Emils emm
núna að vinna að því að koma á
fót eins árs matartæknibraut.
Nemendur sem tækju þennan
eina vetur hér myndu þá útskrif-
ast með svokallað sjókokkapróf.
Þeir gætu síðan haldið áfram
annað hvort hér ef þróað yrði
framhaldsnám í matvælaiðnaði,
s.s. fullvinnslu á fiskinum, eða þá
í Hótel og veitingaskólanum.
Auðvitað þarf að efia verk- og
listgreinar, bæði í gmnnskóla og
á framhaldsskólastiginu, það er
nú bara óplægður akur. Ég bind
miklar vonir við nýstofnaðan
listaskóla. Nú stendur til að
byggja verkmenntahús fyrir
málmiðngreinarnar, svo á að
flytja gmnndeild rafiðna í kjall-
arann á heimavistinni, en við
þyrftum einnig húsnæði fyrir
gmnndeild tréiðna. Og svo vantar
héma eitthvert stelpunám. Það
eina sem er í boði sem stutt hag-
nýtt nám er sjúkraliðabrautin.
En passar óskalistinn við
budduna?
Það er nú akkúrat það sem
maður er að horfast í augu við, að
það er ekkert svigrúm eins og
bærinn er rekinn núna. Samt
borgum við hátt útsvar. Tekjurn-
ar munu tæpast aukast á næstunni
og þá er ekkert hægt annað en að
fara að spara. Ég held að við
verðum að byrja á toppnum og
skoða stjómsýsluna, ekki alltaf
að byrja neðst, en auðvitað er
víða hægt að spara.
En svo er líka að hafa auga
fyrir því sem er ekki mjög dýrt.
Við getum tekið umhverfismálin
sem dæmi. Það þarf að efla
fræðslu og auka t.d. flokkun
sorps, minnka sorpið og fara að
líta á það sem hráefni. Þetta
kostar ekki svo mikið en yrði
engu að sfður til mikilla bóta.
Reyndar er búið að gera ótrúlega
mikið í umhverfismálum á und-
anfömum ámm, ég ætla ekki að
gagnrýna það, en við þurfum að
læra að bera ábyrgð á eigin
framleiðslu og neyslu. Vatns-
málin fara nú að komast í lag, en
næst verðum við að koma frá-
rennslinu út úr Pollinum.
Mér finnst mikilvægt að starf
bæjarins sé opið og virkt, að fólk
viti t.d. hvert það á að leita. Það
er ábyggilega þörf fyrir upplýs-
ingafulltrúa sem myndi sinna
bæði þeim sem þurfa að leita til
bæjaryfirvalda og einnig sjá um
að kynna bæjarbúum hvaðeina
sem væri á döfinni, segjum sem
dæmi átak í að flokka sorp.
Við emm ekki með töfra-
lausnir um að koma öllu í verk
sem við óskum okkur, en við
teljum að það þurfi að breyta um
áherslur og þess vegna vil ég sjá
fleiri konur þar sem ákvarðanir
eru teknar, helst að það komist á
jafnræði í nefndum og ráðum
bæjarins. Til þess þyrfti konum
að fjölga um helming. Það er
nauðsynlegt að sjónarmið
kvenna séu metin til jafns við
sjónarmið karla.
Fyrstu öldungadeildarnemendurnir sem luku námi frá Menntaskólanum á ísafirði.
pMjjg fflfc i
■ hC
KOSNINGASKRIFSTOFAN í KAUPFÉLAGSHÚSINU
ANNARRI HÆÐ - Sími 5230 og 5231
Almennir fundir á fimmtudögum kl. 20:30