Kvennalistinn: málgagn Kvennalistans á Ísafirði - 01.04.1994, Blaðsíða 4
A Kvennalistinn er stjóm-
Æjff málaafl þar sem lýðræði og
” valddreifmg situr í fyrir-
rúmi. Kvennalistinn leggur áherslu
á að konur hafi áhrif þar sem á-
kvarðanir eru teknar og á það ekki
síst við sveitarstjómarmál, sem
snerta okkar nánasta umhverfi.
Framboð til bæjarstjómar á Isa-
firði er ein þeirra leiða sem við
viljum fara til að auka áhrif kvenna
á mótun samfélagsins.
Við teljum það brýna nauðsyn að
konur verði helmingur fulltrúa í
bæjarstjóm ísafjarðar. Það er tíma-
bært að auka þátttöku kvenna í
bæjarmálum á næsta kjörtímabili.
Það mun skila sér í betra og réttlát-
ara stjómkerfi bæjarfélagsins.
Atvinnumál
Kvennalistinn vill að mót-
uð verði framtíðarstefna í atvinnu-
málum á ísafirði. Framtíðarstefna
skapar ramma sem leiðir okkur inn
í 21. öldina og gefur okkar ferskar
forsendur til þess að takast á við sí-
breytilegt efnahagsumhverfi.
Kvennalistinn vill:
- að ísafjarðarkaupstaður verji
a.m.k. 1% af tekjum bæjarins í at-
vinnuþróunarsjóð.
- efla rekstrammhverfi smáfyr-
irtækja og styðja við nýsköpun, til
dæmis með því að efla fullvinnslu
sjávarafurða og framleiðslu úr ó-
hefðbundnum hráefnum.
- að Isafjarðarkaupstaður beiti
sér fyrir því að Samtök sveitarfé-
laga á Vestfjörðum stofni Lána-
tryggingarsjóð sem einkum sinni
þörfum smáfyrirtækja.
- byggðakvóta við fiskveiði-
stjómun.
- auka fjölbreytni á atvinnu-
möguleikum kvenna með auknum
stuðningi við fmmkvæði og fyrir-
tæki kvenna.
- stuðla að aukinni þjónustu við
ferðamenn.
Uppeldis- og
menntamál
Uppeldis- og menntastofnanir
bama, s.s. leikskólar og skólar
miðast margir hverjir enn við sam-
félagið eins og það var. Mikilvægt
er að bömum verði tryggð góð
uppvaxtarskilyrði. Jöfn foreldraá-
byrgð stuðlar að velferð bama og
unglinga. Bætt og aukin þátttaka
samfélagsins er því nauðsynleg til
að búa vel að öllum bömum.
Kvennalistinn vill:
- að mörkuð verði stefna í mál-
efnum leikskóla og uppbyggingu
þeirra
- að öll böm eigi kost á leik-
skólaplássi frá því fæðingarorlofi
foreldra lýkur og að foreldrar geti
valið um breytilegan dvalartíma
bamsins
<9
Skólar
Góð og almenn gmnn-
menntun er nauðsynleg öllum
bömum og unglingum. Heilbrigðir
og ánægðir einstaklingar em lík-
legri til góðra verka. Nauðsynlegt
er því að búa vel að menntastofn-
unum bæjarins. Skólamir á ísafirði
em með íjölmennustu vinnustöð-
um. Fyllsta ástæða er til að huga vel
að aðbúnaði og aðstöðu nemenda.
Kvennalistinn vill:
- að jafnréttisviðhorf ríki í skól-
um, svo að stúlkur og drengir séu
jafn vel búin undir að lifa og starfa
í nútímaþjóðfélag'
- að grunnskólar verði einsetnir,
skóladagurinn samfelldur og að
nemendum verði gefinn kostur á
máltíð í skólanum
- að efla forvamir og fræðslu um
skaðsemi vímuefna
- að hjúkmnarfræðingur starfi
við gmnnskólann
- að listkynning verði tekin upp
sem fastur liður í skólastarfi
- efla beri fræðslu um samskipti
kynjanna, fjölskyldulíf og heimil-
isfræðslu
- að sérstök áhersla verði lögð
á að efla námsgeinar sem lúta að
sjávarútvegi
- stuðla að því að list- og verk-
menntageinar fái aukið gildi
Félags- og
heilbrigðismál
Góður stuðningur við íbúana í
félags- og heilbrigðismálum er
mælistika á mannúð og samábyrgð.
Kvennalistinn vill:
- að fatlaðir njóti sömu þjónustu
og aðrir íbúar bæjarins og að feril-
mál fatlaðra verði stórlega bætt
- að öldruðum verði gert kleift
að dveljast sem lengst á heimilum
sínum, fullnægja þörf aldraðra á
allri þjónustu þ.e. heimilisþjónustu,
heimahjúkmn, dagvistun, endur-
hæfingu, hjúkmnar og sjúkrahús-
vist þegar með þarf og koma á fót
skammtímavistun
- gagngerar endurbætur og upp-
byggingu á gæsluvöllum og leik-
svæðum
- að unnið verði að því að
skólagarðar og athafnasvæði fyrir
böm verði starfrækt á vegum bæj-
arins
Umhverfismál
Brýnt er að auka umhverf-
isvitund. Þekking og skilningur á
náttúmnni getur komið í veg fyrir
að við eyðileggjum umhverfið sem
við lifum í. Slík fræðsla fyrirbyggir
það að við ofnýtum landið og auð-
lindir þess, auk þess sem hún eykur
ánægju fólks af útivist og bætir
umgengni.
Við teljum að atvinnufyrirtæki
eigi að bera ábyrgð á eigin fram-
leiðslu og því sem frá þeim kemur.
Kvennalistinn vill:
- að áhersla verði lögð á að sorp
verði flokkað. Isafjarðarkaupstaður
beiti sér fyrir því með fræðslu og
viðunandi lausnum á flokkun á
heimilissorpi.
- neysluvatns- og frárennslis-
málum bæjarins verði komið í
mannsæmandi horf.
- að tekið verði tillit til um-
hverfissjónarmiða við ákvarðamir
um skipulag og hvers konar fraam-
kvæmdir og rekstur fyrirtækja.
- að leitað verði leiða til að draga
úr mengun af völdum umferðar
Menning
Menning er lífsmagn sem
birtist í ýmsum myndum. Hún á
stóran þátt í að gera samfélagið líf-
vænlegra, ekki síst nú þegar kröfur
fólks til afþreyingar og fjölbreytts
mannlífs hafa aukist. Menning er
líka leið til að skilja og skilgreina
stöðu okkar í samfélaginu og
heiminum og stuðlar þannig að því
að gera okkur hæfari til að takast á
við viðfangsefni dagsins. Líflegt
og frambærilegt menningarlíf
styrkir þar af leiðandi sjálfsmynd
bæjarbúa og gerir þeim kleift að
bera höfuðið hátt hvar sem er.
Kvennalistinn vill:
- auka framlög til menningar-
mála, enda sé fjárfesting í mannlífi
með arðbærustu Ijárfestingum og
styrki byggðina á norðanverðum
Vestfjörðum.
- að bærinn verði menningarfé-
lögum staðarins haukur í homi við
að koma upp aðstöðu og styðji
betur við bakið á núverandi starf-
semi.
- stuðla að því að ísfirðingar,
ungir sem aldnir, njóti jafngreiðs
aðgangs að menningu og listum og
hverju því öðru sem sjálfsagt þykir
í nútímasamfélagi.
- að bæjarstjóm sýni stuðning
sinn við listsköpun í verki með því
að útnefna bæjarlistamann á hverju
ári og veita honum laun í 3—6
mánuði.
Jafnréttis og
launamál
Þrátt fyrir ötula baráttu fyrir
jafnrétti kynjanna hefur allt of lítið
áunnist. Breyta þarf viðhorfum
samfélagsins gagnvart þátttöku
kvenna í atvinnulífmu.
Kvennalistinn vill:
- að hjá ísafjarðarkaupstað verði
fyllsta jafnræðis kynjanna gætt í
stöðuveitingum og launamálum.
- að lægstu dagvinnulaun nægi
fyrir framfærslu.
- að tryggt verði að hagræðing í
fyrirtækjum og stofnunum bæjar-
ins verði ekki á kostnað hinna
tekjulægstu.
Almennt
Kvennalistinn vill að komið verði
á fót safni sem sýni sögu og þróun
fiskvinnslunnar
- Kvennalistinn vill að endur-
reisn útivistarsvæða fsfirðinga í
Tungudal og á Seljalandsdal verði
forgangsverkefni.
Kvennalistinn
Útgefandi:
Kvennalistinn á ísfirði.
Ábyrgðarmaður:
Guðrún Guðmundsdóttir.
Prentvinnsla:
ísprent hf.__________