Pilsaþytur: Kvennalistans á Norðurlandi eystra - 01.02.1991, Side 3
Viltu geta lifað af dagvinnulaunum?
Eitt helsta stefnumál Kvennalistans er að bæta
launakjör fólksins í landinu, jafnt karla sem kvenna.
Öllum er Ijóst að of stór hópur býr við dagvinnulaun
sem hvergi duga til framfærslu og því tíðkast yfir-
vinna, aukavinna og ,,svört“ vinna í þeim mæli að
mannskemmandi er. Ofan á þetta bætist svo að laun
kvenna eru almennt mun lægri en laun karla fyrir
sömu störf. Það er slíkt óréttlæti að furðu gegnir
að ekki skuli löngu vera búið að grípa til róttækra
aðgerða til að leiðrétta þann mun. Þessu hvoru
tveggja vill Kvennalistinn breyta með hjálp kjósenda.
Dagvinnulaun sem duga
Vorið 1990 voru lægstu laun hjá ASÍ og banka-
mönnum, fyrir fulla dagvinnu, rétt rúmar 39.000
krónur. Hver hugsandi manneskja hlýtur að sjá að
af slíkum launum framfleytir enginn sjálfum sér,
hvað þá fjölskyldu. Þessu verður að breyta ef við
viljum ekki festa fátækt í sessi á íslandi aftur, fyrir-
bæri sem við höfum stært okkur af að vera búin
að útrýma.
Lágmarkslaunin
Kvennalistinn hefur lengi barist fyrir lögbindingu
lágmarkslauna sem taki mið af framfærslu. Þetta
hefur öðrum stjórnmálaöflum þótt hin mesta firra.
Vorið 1987 hafnaði Kvennalistinn stjórnarþátttöku
vegna þess að ekki var gengið að þeirri kröfu að
lágmarkslaun yrðu 40.000 kr. Samsvarandi upphæð
vorið 1990 var 73.000 kr. Finnst þér, lesandi góður,
þetta slík upphæð, miðað við þær tekjur sem við
vitum að ýmsir hópar hafa, að hún sé líkleg til að
gera þjóðarbúið gjaldþrota? Það finnst okkur í
Kvennalistanum ekki og við erum sannfærðar um
að þetta er framkvæmanlegt, ekki síst eftir reynsluna
af ,,þjóðarsáttinni“. Ef sambærileg samstaða næðist
um lögbindingu lágmarkslauna væri engin hætta á
að hækkunin flyttist upp launastigann, en það ef,sú
grýla sem helst er reynt að hræða okkur með. Því
munum við ótrauðar halda áfram að krefjast lág-
markslauna sem miðast við framfærslukostnað.
Launajafnrétti
Árið 1967 tóku gildi lög um jöfn laun karla og
kvenna. Síðan - og þó sérstaklega á síðari árum
- hefur tilvist þessara laga verið notuð gegn konum
í launabaráttu. Þegar konur krefjast sömu laun og
karlar fyrir jafngild störf er gjarnan sagt: Þetta er
nú úrelt krafa, það er löngu búið að binda jafnréttið
í lögum. En hvernig lítur málið út í raun og veru?
Hlutur kvenna í hagvextinum
Kannanir sýna að landsframleiðsla á hverja vinn-
andi manneskju jókst nær ekkert á árunum 1973-83.
Hvaðan kom þá hagvöxtur síðustu áratuga? Frá
konum. Atvinnuþátttaka giftra kvenna jókst á árun-
um 1960-89 úr 20 í 84%. Konur brugðust við kalli
vinnumarkaðarins eftir vinnufúsum höndum og þeg-
ar sérhæft starfsfólk vantaði fóru konur í nám -
menntunin átti líka að hækka launin þeirra, auka
jafnréttið.
Launamunurinn er staðreynd
• Þrátt fyrir aukna menntun og mikiivægi vinnufram-
lags kvenna fyrir þjóðarbúið eru laun kvenna lægri
en laun karla í öllum stéttum, hvort sem miðað er
við föst laun eða heildarlaun. Laun kvenna i fullu
starfi voru um 60% af launum karla árið 1986 og
munurinn hafði aukist frá 1981. Lítum á nokkrar tölur
um meðaldagvinnulaun vorið 1990:
karlar kr. konur kr. mismunur kr.
Verkafólk 62.000 58.000 4.000
Afgreiðslufólk 74.000 55.000 19.000
Skrifstofufólk 102.000 72.000 30.000
Eins og þarna sést er munurinn minnstur milli
verkakvenna og -karla, en þá eru launln líka orðin
svo lág að þau eru engum bjóðandi. Menntunin
skilar konum ekki tilætluðum árangri, launamunurinn
eykst með aukinni menntun. Læknar og Ijósmæður
eiga að baki jafnlangt grunnnám, 6 ár í háskóla. Öll
vitum við hvor hópurinn hefur hærri laun.
Þetta er óviðunandi ástand, þessu verðum við
að breyta.
Konur geta haft áhrif
Konur eru í meirihluta í mörgum stórum verkalýðs-
félögum og geta komist til áhrifa ef þær standa
saman. Konur geta líka haft áhrif á fjölda kvenna
á Alþingi með atkvæðum sínum. Síðast, en ekki síst,
geta og eiga konur að vinna saman að kjaramálum
og nota allar leiðir sem þeim eru færar til að knýja
fram leiðréttingar.
Kvennalistinn - valkostur fyrir þig
Kvennalistinn vill beita sér fyrir bættum kjörum
launafólks. Til þess að hafa sem mest áhrif verða
fulltrúar hans að vera á Alþingi og þangað komast
þeir með stuðningi kjósenda. Ef þú, lesandi minn,
vilt að allt launafólk á íslandi fái dagvinnulaun sem
duga og vilt útrýma launamisrétti kynjanna skaltu
greiða Kvennalistanum atkvæði þitt á kjördag. Með
aðstoð þinni getum við gert líf okkar allra dálítið
betra.
Elín Stephensen.
BYGGINGAVORUR
LÓNSBAKKA
GRUNNURINN
AÐ GÓÐU VERKI
B? Teppi
V Dúkar
M Parkett
tt Flísar
K Loft- og veggklæðningar
tt Hreinlætistæki
IÉ Málningarvörur
tt Verkfæri
HÍ Boltar og skrúfur
tt Innréttingar
tt Skrifstofuhúsgögn
tt Eldhúsborð og stólar
Timbur
tt Plötur - margar gerðir
Steypustál
tt Einangrunarefni
. . . og ótal margt fleira
Lónsbakki - Þægileg verslun fyrir þa sem vilja breyta, eru aö byggja -
eða eru bara forvitnir! - Næg bílastæöi - Heitt á könnunni! -
Opið frá mánudegi til föstudags frá kl. 08 til 18.
96-30321 & 96-30326 • Fax 96-27813
601 Akureyri
H! íl íí Trm
3