Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2003, Qupperneq 7
RITSTJÓRASPJALL
Valgerður Katrín Jónsdóttir
I
b
Ritstjóraspjall
Að þessu sinni hafa orðið umtalsverðar útlits-
breytingar á Tímariti hjúkrunarfræðinga eins
og lesendur sjá. Sífellt bætast einnig við fastir
pistlar. I þessu tölublaði fáum við fréttir af
starfi hjúkrunarfræðinga í útlöndum en Áslaug
Arnoldsdóttir skrifar um störf sín í Eþíópíu og
við fáum væntanlega fleiri slíka pistla senda á
næstunni.
í þessu tölublaði er einnig kynning á Elsu
B. Friðfinnsdóttur, sem gefur kost á sér í
formannssæti Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, umfjöllun um kjarasamninga og
sagt frá Karitas sem átti 10 ára afmæli í
október og í tilefni þess er rætt við Hrund
Helgadóttur en hún er ein þeirra sem unn-
ið hafa þar frá upphafi. Karitas varð til úr Heimahlynningu
Krabbameinsfélagsins og við ræðum við tvo starfsmenn þar,
þau Helga Benediktsson og Guðrúnu Einarsdóttur um
hjúkrun í heimahúsum.
Þóra Jenný Gunnarsdóttur ritar fjórðu grein sína um sértæka
meðferð í hjúkrun, hér fjallar hún um ilmolíumeðferð. Onn-
ur fræðigrein er eftir Margréti Pálsdóttur og Gísla Vigfússon
og fjallar hún um hitatap í svæfingu og Lovísa Baldursdóttir
skrifar um mistök innan heilbrigðisþjónustunnar. Og ekki má
gleyma veglegum orlofsbæklingi sem er nú sjálfstæður hluti
af blaðinu!
i
*
Það er flestum áfall að greinast með krabba-
mein þó batahorfur séu mun betri nú en fyrir
nokkrum árum. Sumir segja að krabbameins-
fræðslan hafi tekið við að krabbameinshræðsl-
unni og víst er að fólk er mun upplýstara en
áður um hvernig best er að varðveita heilsu
sína. Hitt er svo annað að það reynist mörgum
erfitt að fara eftir þeim ráðleggingum og jafnvel
þó svo fólk reyni að varðveita heilsuna er því
þannig háttað í þessu lífi að við getum ekki
alltaf stjórnað því sem fyrir okkur kemur, það
eina sem við ráðum yfir eru viðbrögð okkar við
þeim atburðum eða áföllum sem á okkur dynja.
Sigþrúður Ingimundardóttir, sem á sæti í rit-
nefnd Tímarits hjúkrunarfræðinga, er ein
þeirra sem hefur greinst með brjóstakrabba,
ekki einu sinni heldur tvisvar, og hún segir
sögu sína af því að takast á við það sem hún
nefnir þroskaverkefni og hvernig það er fyrir
hjúkrunarfræðing að vera kominn hinum meg-
in við borðið eða meðal sjúklinganna. Ymis við-
horf breytast við það og afstaða sjúklingsins
skiptir miklu máli varðandi batahorfur ekki síð-
ur en sú meðferð sem honum stendur til boða.
Tvær konur aðrar, þær Steinunn Friðriksdóttir
og Linda Vilhjálmsdóttir sem eru í forsvari fyr-
ir Styrk og Kraft, stuðningshópa sjúklinga og
aðstandenda þeirra, segja einnig frá baráttu
sinni við þennan vágest og því mikilvæga starfi
sem unnið er á vegum þessara félaga.
Valgerður Katrín Jónsdóttir
valgerdur@hjukrun.is
Timarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 79. árg. 2003 5