Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2004, Blaðsíða 55
FRÁ RITNEFND
Ritsjórnarstefna og starfsáætlun
Ritstjórnarstefna og starfsáætlun ritnefndar
Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefið út fimm sinn-
um á ári.
Tímaritið er málgagn félagsmanna i Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga og í því er reynt að endurspegla ólík-
arskoðanirog viðhorf til hjúkrunar. Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga leggur metnað sinn í að allir félagsmenn
þess finni þar efni sér til gagns, fróðleiks og ánægju.
Tímaritið er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar um-
fjöllunar um hjúkrun. í faglega hluta tímaritsins eru
birtar margvíslegar greinar sem fjalla um öll svið hjúkr-
unar. Greinar flokkast í tvennt, annars vegar fræðigrein-
ar og hins vegar fræðslugreinar. Fræðigreinar eru rann-
sóknagreinar, yfirlitsgreinar og greinar sem á ýtarlegan
hátt fjalla um þróun þekkingar í hjúkrun, hvort heldur
sem er hjúkrunarstarfið, hjúkrunarstjórnun, hjúkrunar-
kennslu, hjúkrunarrannsóknir eða stefnumótun í hjúkr-
unar- og heilbrigðisþjónustunni. Lögð er áhersla á beit-
ingu margvíslegra rannsóknaraðferða, fjölbreytileika í
fræðilegri nálgun viðfangsefna og vönduð vinnubrögð.
Hægt er að óska eftir að fræðigreinar verði ritrýndar.
þróun hjúkrunar. Í blaðinu er einnig aö finna viötöl við fólk um hjúkr-
un og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga.
í félagslega hluta tímaritsins eða fréttahlutanum er greint frá kjaramál-
um og því sem er að gerast hjá félaginu. Þar er einnig að finna fréttir
frá svæðanefndum félagsins. Einnig er greint frá því helsta sem er á
döfinni hjá fagdeildum félagsins.
Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur tímaritsins sé í sam-
ræmi við ritstjórnarstefnu þess. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metnaö
í aö tímaritið sé vandað að því er varðar efni, málfar og útlit. Áhersla
er lögð á að fræðigreinar standist vísindalegar kröfur.
Formaður félagsins ber ábyrgð á félagslegu efni þess öðru en aösend-
um greinum. Höfundar aösendra greina bera ábyrgö á efni þeirra. Skoð-
anir, sem í þeim birtast, þurfa ekki að samrýmast stefnu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
Leiðbeiningar til höfunda tímaritsgreina
Tímaritsgreinar eru sendartil Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suð-
urlandsbraut 22,108 Reykjavík. Ef höfundar eru tveir eöa fleiri þarf einn
þeirra að vera ábyrgur fyrir samskiptum við tímaritið og nafn hans þarf
að koma fram í bréfi sem sent er með handritinu.
Viö umfjöllun greina, sem óskað hefur verið eftir að
veröi ritrýndar, fylgir ritnefnd reglum sem fram koma í
Handbók sálfræöiritsins eftir Einar Guðmundsson og
Júlíus K. Björnsson og gefið var út af Sálfræðingafélagi
íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarleg-
ar leiöbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit aö fræöi-
legum tímaritsgreinum. í handbókinni er einnig að finna
upplýsingar um vinnulag við umfjöllun á handriti sem
óskað hefur verið eftir að sé ritrýnt og fylgir ritnefnd
þeim leiöbeiningum. Höfundar þurfa að fylgja þessum
reglum í hvivetna en eru hvattir til að ráöfæra sig við
ritnefnd ef þörf er á að víkja frá settum reglum.
í örfáum atriðum víkur ritnefnd frá leiðbeiningum
Handbókar sálfræðiritsins. Þau eru: Höfundar fá ekki
sérprentaðar tímaritsgreinar sínar en fá aukaeintök af
viðeigandi tímariti. Til að auðvelda flokkun efnis skulu
fylgja með greinum þrjú lykilorö. í handbókinni er meg-
ináhersla á megindlegar rannsóknir, einkum tilraunir.
Tímarit hjúkrunarfræðinga bindur sig hins vegar ekki viö
megindlegar rannsóknir og er fengur að greinum þar
sem margvíslegri aöferðafræði er beitt.
Frágangur handrits
Viö ritun greina þurfa höfundar að styðjast við Handbók sálfræöiritsins
eftir Einar Guðmundsson og Júlíus K. Björnsson sem gefin var út af Sál-
fræðingafélagi íslands í Reykjavík árið 1995. í handbókinni eru ýtarleg-
ar leiðbeiningar um hvernig skrifa eigi handrit að fræðilegum tímarits-
greinum.
Á forsiðu handritsins þarf að koma fram heiti tímaritsgreinarinnar;
nafn/nöfn höfundar/höfunda; vinnustaður/vinnustaöir höfunda(r);
heimilisfang og símanúmer þess höfundar sem er ábyrgur fyrir sam-
skiptum við tímaritið. Útdráttur, sem er á annarri blaðsíðu, á að vera
100-150 orö.
Lengd tímaritsgreinar skal vera 3000-5000 orð. Handritið í heild sinni
ásamt texta, myndum, töflum o.s.frv. skal vera með tvöföldu línubili. Öll
handrit skulu send inn í þremur eintökum sem ekki eru meö nafni
höfunda(r). Handrit skulu ekki hafa birst annars staðar þegar óskað er
eftir því að þau séu ritrýnd.
Útgáfuferli
Fræðslugreinar fjalla hins vegar um margvísleg við-
fangsefni hjúkrunar og byggjast aö einhverju leyti á
fræöilegum heimildum ásamt athugunum eða reynslu
höfunda. Þar skiptir miklu frumleiki í umfjöllun og efn-
istökum, menningarlegur margbreytileiki í hjúkrun og
Þegar handrit berst til ritstjóra er haft samband viö þann höfund sem
er ábyrgur fyrir samskiptum við ritstjóra og honum tilkynnt skriflega aö
greinin hafi borist. Þegar óskað er eftir birtingu greinar lesa fulltrúar í
ritnefnd handritið og ákveða hvort það verður sent til umsagnar. Stuðst
er við þau viðmið sem fram koma í Handbók sálfræðiritsins við mat á
tímaritsgreinum.
Tímarit hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 80. árg. 2004