Norðurslóð - 27.01.1978, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 27.01.1978, Blaðsíða 1
2. árgangur_Föstudagur 27. janúar 1978_1. tölublað „Ef fimmeyring ég fengi“ Svarfdœlsk byggð útundan við fjárlagagerð Rússamir koma! 16. ágúst s.l. veiddi Júlíus Sigurðsson , Hreiðastaða- koti, fisk þann úr Svarfaðar- dalsá er meðfylgjandi mynd er af. Fiskurinn var 46 cm lang- ur og vó 1040 gr. Við nánari Nokkur eftirvænting er í hverju byggðarlagi árlega að sjá hve miklum fjármunum Alþingi ætlar, samkvæmt íjárlögum rík- isins, að verja til framkvæmda á viðkomandi stað. Þegar fjárlög fyrir nýbyrjað ár eru skoðuð, fer vart framhjá nokkrum að svarf- dælsk byggð hefur orðið út- undan að þessu sinni. Ef dregnar eru saman fjárhæðir sem eru til framkvæmda kemur eftirfarandi í Ijós: Dalvík Til heimavistar 7 millj. kr., til undirbúnings skólamannvirkja 300 þús., til skíðalyftu 1.9 millj., til byrjunarframkvæmda við íþróttamannvirki 200 þús., til heilsugæslustöðvar 10 millj., til hafnargerðar 5.7 millj. Svarfaðardalur Til mötuneytis Húsabakka- skóla 1 millj. Samtals kr. 25.1 millj. Upptalning þessi segir ekki alla söguna og skal með örfáum orðum reynt að gera nánari grein fyrir hvers vegna. Skólamann virki Fjármagn það sem ætlað er til heimavistar á Dalvík og til Húsabakkaskóla er aðeins til að mæta þegar útlögðum kostnaði. Hins vegar er fimmta árið í röð smá fjárveiting til byrjunar- framkvæmda við skólabygg- ingu á Dalvík. Áður en framkvæmdir hófust við heimavist var gerður samn- ingur milli sveitarstjórnarinnar á Dalvík og ríkisvaldsins, sem einnig náði til skólabyggingar. Af hálfu heimamanna er sá skilningur á þeim samningi að framkvæmdir hefðu átt að vera samfelldar, en afstaða ríkis- valdsins birtist í því að ekki hef- ur enn tekist að fá fé til raun- verulegra byrjunarfram- kvæmda. Húsnæðisskorturinn er orðinn mjög tilfinnanlegur við skólann og það að lausn hans er ekki í sjónmáli veldur þeim áhyggjum sem við þessa aðstöðu þurfa að búa. íþróttamannvirki Framlag til skíðalyftu er vegna framkvæmda 1977. Til annarra íþróttamannvirkja er aðeins málamyndaframlag. Þó var öllum kunnugt að stefnt er að framkvæmdum sem gera landsmótshald mögulegt árið 1981. f norska blaðinu Nationen sáum við þetta fyrir jólin: Auglýsing frá smákaup- manni í Vinje, sem birtist í byggðablaðinu Vest-Telemark Blað, hefur vakið athygli og ver- ið endurprentuð í sumum stór- blöðum landsins. Auglýsingin er svohljóðandi: „Hafði ekki hugsað mér að auglýsa fyrir jólin. Þýðir lítið þar sem viðskiptavinir eru fáir. En blaðtetrið nauðaði um aug- lýsingu og heimablaðið verður maður að styðja. Hér er verslað með venjulegar dagvörur m.m. Heilsugœslustöð Nær eina fjárveitingin, sem ætluð er til nýrra framkvæmda, er til heilsugæslustöðvarinnar. Talið er að 30-40 millj. séu nú til framkvæmda á þessu ári. Litlar sem engar framkvæmdir voru þar á síðastliðnu ári. Fram- kvæmdadeild Innkaupastofn- unar ríkisins sér um byggingar- framkvæmdir og ákvarðar í raun þann hraða sem hafður er á þeim hverju sinni, innan ramma fjárlaga. Fyrrgreind nefnd hefur um skeið virkað sem bremsa á þessa fram- kvæmd, en hvort hún verður það allt þetta ár skal ekki spáð hér, en ekkert hefur heyrst um útboð á áfanga á þessu ári. Hafnarframkvœmdir Ekkert er áætlað til fram- kvæmda á þessu ári við Dalvík- urhöfn. Það sem er á fjárlögum Hinn 5. jan. sl. var ös við miða- söluna í Dalvíkurbíói. Þetta er þeim mun merkilegra þar sem ekki var neitt bíó. Nýr kór og ungur tenórsöngvari voru að troða upp. Húsið troðfylltist á fyrstu mínútunum þannig' að margir urðu frá að hverfa. Nýstofnaður blandaður kór var að halda sinn fyrsta konsert Heldur lítið og slæmt úrval. Verðið hátt eins og annarstað- ar. Held helst að virðisauka- skatturinn taki fimmta hlutann. Svo er dálítið um platverð - svokallað tilboðsverð." Fyrir þessa óvenjulegu aug- lýsingu er verslun O. T. Skolaas orðin þekkt um allan Noreg og margir hafa litið inn til hans til að versla, sem áður vissu ekki að hann var til. Þetta dæmi sýnir að það get- ur borgað sig «|ð .úúglý«a ír" byggðablaðinu þótt lítið sé og fáum kunnugt. n r- n ^ o l- 0 4 L J er vegna hala frá síðasta ári og til rannsókna. Með svokölluð- um fjögurra ára áætlunum hefur Hafnarmálastofnun gefið fögur fyrirheit um framkvæmd- ir hér á Dalvík. í meðförum sömu stofnunar og fjárveitinga- valdsins hefur niðurskurður á áætluninni ár eftir ár bitnað á Dalvík. Aldrei hefurgengiðjafn langt og í ár, þar sem í upphaf- legum hugmyndum að síðustu áætlun var gert ráð fyrir 90 millj. kr. framkvæmd sem al- gjörlega er frestað í eitt til tvö ár að því að sagt er. Vegamál Samkvæmt gildandi vega- áætlun eru áætlaðar 13 millj. til nýrra vegaframkvæmda í Svarf- aðardal í vegakafla framan við Hreiðarstaði, auk þess sem áætlaðar eru lOmillj. íveginntil Framhald á bls. 5, og tenórinn Kristján Jóhanns- son frá Akureyri skyldi koma fram með sjálfstæða söngskrá. Kristján, sem stundar söngnám á Ítalíu, er sonur hins vel þekkta Jóhanns Konráðssonar. Kórinn var stofnaður í októ- ber sl. og stjórnandi hans er Kári Gestsson skólstjóri Tón- listarskólans á Dalvík. Kári er, sem mörgum er kunnugt, sonur Gests Hjörleifssonar söng- stjóra, sem haft hefur veg og vanda af tónlistarlífi Dalvík- inga um langt skeið, - og konu hans Guðrúnar Kristinsdóttur. Kári kom heim frá námi í Eng- landi 1975 og hefur starfað á Dalvík síðan. í kórnum eru liðlega 30 manns og stefnt er að stækkun hans. Flest er sömgfólkið frá Dalvík en nokkrir Svarfdæl- ingar prýða hann þó. Söngskrá kórsins var blönd- uð, bæðl innlend og erlend lög. Má þar m.a. nefna Vísur Vatns- enda-Róisu, keðjusöng, negra- sálm og danska lagasyrpu. Brauð handa hungruðum heimi Sr. Stefán Snævarr, sem nú er á Sjúkrahúsinu á Akureyri, en er á bataleið, hefur beðið blaðið fyrir kveðjur til sóknarbarna sinna og þakkir fyrir góða þátttöku ísöfnun þjóðkirkjunn- ar Brauð handa hungruðum heimi. Undirtektir voru góðar en það gjafafé, sem sr. Stefán tók á móti, varð meira en hálf milljón krónur. Blaðið sendir sr. Stefáni bestu kveðjur og óskir um skjót- an og góðan bata. - Kórinn kom fyrst fram. Eftir fyrsta lagið var greinilegt að áheyrendur voru vel ánægð- ir, enda sá maður á svip sam- komugesta og heyrði á hvískri þeirra að hér hafði verið komið við þá. Ekki er að orðlengja það að fyrri hluta söngskrárinnar lauk kórinn við gífurlegfagnað- arlæti. Þá kom hinn ungi tenór- söngvari og með honum undir- leikari hans, Kári Gestsson. Söng Kristján fjögur íslensk lög og þegar hann fór léttilega upp á háu tónana fannst manni kald- ur straumur líða niður hrygg- lengjuna. (Reyndar frétti égþað síðar að er Kristján söng dag- inn eftir á sama stað hafi hann beðið um annað píanó, því hitt hafi verið of lágt.) Áhrifin frá rödd þessa unga manns voru ótvíræð og greini- legt var að þarna fór upprenn- andi söngvari. öll framkoma Kristjáns var mjög látlaus og óþvinguð, að því er virtist. rannsókn kom í ljós að hér var á ferð hnúðlax eða bleiklax, ættaður frá Sovét- mönnum. Hafa Rússar gert tilraunir með ræktun þessarar kyrra- hafstegundar og tekist hér á norðurslóðum, og mun þeirra hafa orðið fyrst vart hér við land uppúr 1960. Að öllum líkindum er fiskur þessi kominn hingað alla leið frá Kolaskaga við Hvítahaf- ið. Ekki varð vart neins kon- ar tækja í eða á fiskinum, en vissulega er sá möguleiki fyrir hendi, að með fjarstýr- ingu hafi verið unnt að losa þau frá honum áður en hann veiddist. Snorri Árnason. Meðal laga sem hann söng þarna var t.d. Bikarinn eftir Eyþór Stefánsson. Klöppuðu áheyrendur honum mikið lof í lófa og reyndar undirleikaran- um líka, því hans hlutur var ágætur. - Síðan kom hléið. - Kristján hefur upp raust sína eftir hlé og söng þá aríur úr óperum. Sýndi hann þar enn betur hversu gott efni hann hefur sem söngvari og skilaði sínu með mestu ágætum við áköf hrifningarlæti. Söng hann að lokum Hamraborgina sem aukalag. Þá kom kórinn fram aftur og söng ýmis lög og lauk söngnum á skemmtilegri danskri laga- syrpu sem létt var yfir. Kórinn endurtók nokkur laganna því klapplið hússins var gott. Um söng kórsins að öðru leyti ætla ég ekki að fara mörg- um orðum, enda enginn tónlist- argagnrýnandi. Þó finnst mér furðu sæta hve langt kórinn hefur náð síðan í haust. Tilfinn- ing mín var sú að ágætt jafnvægi væri í söng kórsins og hann söng sig að mínu mati verulega vel saman. Jafnvægi virtist gott milli radda, þó fannst mér ég ekki heyra nægilega í karla- tenórnum. Hins vegar var bass- inn góður. Allur var söngurinn fágaður og hnitmiðaður, að því er mín eyru snerti. Allt þetta finnst mér lofa góðu um framtíð kórsins. Og stjórnandinn, Kári Gests- son, hefur svo sannarlega sýnt að hann er sonur pabba síns. Daginn eftir var svo söng- skemmtunin endurtekin og var hún vel sótt. Það er von mín að þessir söngkraftar sem þarna komu fram megi dafna og halda lengra á brautinni. Reyndar veit ég að svo verður því næstu verkefni kórsins verða 2 alllöng verk, annað eftir Mozart, og kórinn er um þessar mundir að safna til sín söngfólki. Já, - áhuginn og efniviðurinn virðist svo sannarlega vera í „lagi“. Heimir Kristinsson. Óvenjuleg auglýsing Tónlistarviðburður á Dalvík Samhór Dalvíkur og Kristján Jóhannsson Samkór Dalvíkur ásamt stjórnanda, Kára Gestssyni, sem varð að annast undirleik. Ljósmynd R. •1MI11

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.