Norðurslóð - 27.01.1978, Qupperneq 4
BÖGGVER
Dalvískir unglingar hxifa komið
sér upp tómstundaheimili
Flestir Dalvíkingar hafa ugg-
laust orðið varir við að búið er
að setja á fót æskulýðsheimili á
Dalvík. Það er til húsa í Sogni
og kalla unglingarnir þaðBögg-
ver. Böggvers-nafnið, sem ekki
er laust við að bergmála nafn
Jfúnavers og fleiri frægra dans-
staða, er án efa dregið af
Böggvis- eða Böggversstöðum
en um þá segir reyndar í Jarða-
bók þeirra Arna og Páls: „kall-
ast almennilega Beggustaðir“.
En það er ekki nafnið sem er
það merkilegasta við Böggver,
heldur hitt að allur undirbún-
ingur og rekstur er í höndum
unglinganna sjálfra og þá fyrst
og fremst Úlfars Gunnarssonar.
Aðstandendur Norðurslóð-
ar, kannski má kalla þá Norður-
slæðinga, litu við í Böggveri
síðastliðið þriðjudagskvöíd, en
þá leiðbeindi Kristján Jónsson
unglingum við bridge-nám og
var þröngt setinn bekkurinn.
Úlfar upplýsti að eigandi
hússins væri Haraldur sf. en
Dalvíkurbær hefur tekið húsið
á leigu næstu fimm árin. Það
voru unglingar sem áttu frum-
kvæðið að því að bærinn tæki
húsið á leigu í þessu skyni. Gíf-
urlega mikil vinna hefur verið
innt af hendi við að innrétta
hæðina og hefur hún að lang
mestu leyti verið unnin af sjálf-
boðaliðum undir stjórn Úlfars.
Hann gerði reyndar meira í því
sambandi en að stjórna verk-
inu; innréttingarnar eru unnar
samkvæmt hugmyndum hans.
Nær allir milliveggir hafa ver-
ið rifnir, sett upp borð í
tilheyrandi básum og komið
fyrir snyrtiherbergjum, eldhúsi
og afgreiðsluborði. Oft hefur
verið notast við ódýrt efni:
blaðamaður studdi olnboga á
Bridge-fólkið leit varlá upp, svo niðursokkið var það við spilamennskuna.
Hótel
Bændahöllinni, Reykjavík
- Sími 2-99-00
sendir bœndum og búaliði kueðjur á nýbyrj-
uðu ári og minnir á hin sérstöku kjör, sem
bœndur njóta hjá hótelinu.
Bœndur, takið vetrarfrí.
Heimsækið höfuðstaðinn og gistið undir
eigin þaki.
Úlfar Gunnarsson, tækniskólanemi og framkvæmdastjóri, setur plötu á
fóninn. Ljósmynd R. Sk. F.
rennislétta borðplötu úr brasil-
ískri furu og átti bágt með að
trúa að efnið í hana væri fengið
úr síldarkössum.
Og ekki má gleyma músik-
inni. í Böggveri eru hin full-
komnustu hljómflutningstæki
(græjur) og var stór hluti þeirra
greiddur með fé sem náðist
saman í almennri söfnun.
Úlfar bað um að komið væri
á framfæri þökkum til bæjar-
stjórnar og allra þeirra sem
hjálpað hafa til við að gera
drauminn um Böggver að veru-
leika.
Hvað er um að vera?
Eins og áður segir var fjöldi
unglinga við Bridge-nám þetta
kvöld og að spilamennskunni
lokinni var von á tónlistar-
klúbbnum.
Á föstudögum og laugardög-
um er haft opið hús, síðari hluta
dagsins, frá kl. 4 til 7, en að
kvöldi þessara daga hefur eitt
og annað verið á dagskrá;
diskótek, náttfataball og félags-
vist.
Ýmislegt annað er í deigl-
unni, t.d. skákklúbbur, og í
sumar er ákveðið að mun meira
verði þar um að vera.
Hvað með áfengið?
Er mikill drykkjuskapur í
Böggveri? Hafa dalvískir ungl-
ingar nú loksins fundið stað þar
sem þeir geta drukkið í friði?
Úlfar sagði að fyrstu tvær
helgarnar hefðu verið ansi blaut
ar. En þá hélt hann fund með
krökkunum og gerði þeim grein
fyrir því að starfsemin myndi
leggjast niður ef svo héldi
áfram, í Böggveri mætti enginn
vera drukkinn.
Þessi fundur virðist hafa haft
tilætluð áhrif. Þó fylgir böggull
skammrifi: aðsóicnin hefur
minnkað, mætti stundum vera
mun meiri. Því miður virðast
mjög margir unglingar taka
fyllerí í bílum og partíum fram
yfir skemmtun í Böggveri.
Hitt er svo annað mál að
drukknir unglingar eru oft að
snópa kringum Böggver, hugs-
anlega til að ná sambandi við þá
sem þar eru að skemmta sér.
Eða er sú bið sprottin af eilífri
von hins drukkna, voninni um
að nú hljóti þó bráðum að verða
gaman?
Ljóðagetraun
Þátttaka varð ekki mjög mikil í
getrauninni, líklega hefur hún
verið fullþung. Að lokum bár-
ust þó 12 úrlausnir og voru 5
alréttar.
Rétt svör (og höfundar ljóð-
anna í sviga) eru sem hér segir:
I. Ofurlitla fötu (?). 2. Jökum.
(Páll Ól.). 3. Gleði þín og sorg.
(Steinn Steinar). 4. Happ þeim
hlýtur. (Jónas H.). 5. Vök á
dýpi. (Einar Ben.). 6. Tindá-
stól. (Matth. Jocn.). 7. Fjall-
hnjúkaraðirnar. (Þorst. Erl.).
8. Hulinn verndarkraftur. (Jón-
as H.). 9. Sólogvor. (Davíð St.)
10. Menningin. (Hannes Hafst.)
II. Lítinn smaladreng. (St.
Th.). 12. Hálfdán. (Jón Helg.).
13. Stafa og lesa á blað. (Hallgr.
Pét.). 14. Loki bundinn. (Jónas
H.). 15. Allt. (P. Ól.). 16. Ég.
(Tómas Guðm.). 17. Gjafir
þínar, sól og vor. (St. frá Hvíta-
dal). 18. Baldursbrá. (Guðm.
Böðv.). 19. Hverfanda hveli.
(Hávamál). 20. Utan gátta (?).
Allt rétt höfðu: Jónína Krist-
jánsdóttir, Klængshóli, Jóna og
sr. Stefán, Dalvík, heimilisfólk-
ið í Seldal í Norðfjarðarhreppi,
Ásdís Björnsdóttir, < .ögmund-
arstöðum, Skagafirði, og Rann-
veig Stefánsdóttir, Huldulandi
1, Reykjavík.
Dregið var um tvenn verð-
laun og hlaut Jónína ljóðasafn-
ið Til móður minnar og pró-
fastshjónin hlutu Lilju Eysteins
Ásgrimssonar.
19 rétt svör höfðu Gísli Jóns-
son, Ak., (frá Hofi) og Kristín
Gestsdóttir, Dalvík.
18 rétt svör höfðu: Baldvina
Þorsteinsdóttir, ögðum, og
Dagbjört Ásgrímsdóttir, Lamb-
haga. Aðrir höfðu aðeins færri
rétt svör. (Þess skal getið að
með úrlausn Dagbjartar fylgdi
5000 kr. seðill til blaðsins.
Blaðið þakkar henni og öllum
hinum fyrir þátttökuna.)
Sparisjóðsfundur
Aðalfundur Sparisjóðs Svarfdæla 1978 verður
haldinn í Víkurröst, Dalvík, laugardaginn 28. jan.
Fundurinn hefst kl. 2 e.h.
STJÓRNIN.
Kýr og kálfar
Vil kaupa góða vetrarbæra kú og
nokkra nautkálfa af holdanautakyni.
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn.
4 -NORÐÚRSLÓÐ