Norðurslóð - 27.01.1978, Blaðsíða 6

Norðurslóð - 27.01.1978, Blaðsíða 6
NORÐURSLÓÐ SVARFDÆLSK BYGGÐ OG BÆR Heimsókn í Ú.K.E.A. á Dalvík Rœtt við Kristján Ólafsson útibússtjóra Útibú Kaupfélags Eyfirðinga á Dalvík var formlega stofnað árið 1920 þótt nokkur starf- semi, slátrun og vörusala, á vegum félagsins hefíst nokkru fyrr. ►ar sem félagið er langum- svifamesti atvinnurekanái á Dalvík þótti Norðurslóð eðli- legt á nýbyrjuðu ári að líta inn bjá fyrrrtækinu, hafa tal af útibússtjóranum til að fræð- asr um ástand mála og framtíðarhorfur. Kristján Ólafsson kaup- félagsstjóri, eins og hann er oftast titlaður, er Eyfirðing- ur að ætt og uppruna. Ungur hóf hann störf hjá K.E.A. á Akureyri en hingað til Dalvíkur fluttist hann 1969 og starfaði fyrst sem búðastjóri en útibússtjóri hefur hann verið síðan 1972, þegar Baldvin Jóhannsson lét af störfum. Kristján samsvarar heldur illa þeirri mynd, sem sumir menn hafa verið að reyna að búa til í seinni tíð, af hinum fyrirferðamikla og ráðríka kaupfélagsstjóra, sem öll ráð hefur í hendi sér og allir í „plássinu“ skjálfa fyrir. Hann er maður alþýðlegur í orðs- ins bestu merkingu, hress í Kristján Ólafsson, útibússtjóri KEA á Dalvík. Ljósmynd R. Sk. F. Tímamót Hjónavígslur í Dalvíkurkirkju um jól og áramót: Sigurborg Sigurlaug Magnúsdóttir (Dalsmynni) og Svan- björn Jón Garðarsson. Heimili á Sauðárkróki. Guðrún Helga Magnúsdóttir (Dalsmynni) og Kristinn Við- arsson. Heimili á Dalvík. Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir og Viðar Kristmundsson. Heimili á Alureyri. Hjörtína Guðmundsdóttir og Albert Gunnlaugsson, sjómað- ur. Heimili á Dalvík. Skírnir í Vallaprestakalli um jól og áramót: Sigrún. For. María Jónsdóttir og Árni Steingrímsson, Ing- vörum. Emilía Ásta. For. Valgerður Gunnarsdóttir, Dalvík, og örlygur H. Jónsson. Dagur. For. Guðrún Bjarnadóttir og Óskar Pálmason, Dal- vík. Ólafur Helgi. For. Guðríður Ólafsdóttir og Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson, Dalvík. Ólafur Ingi. For. Guðlaug V. Konráðsdóttir og Steinar Steinsgrímsson, Dalvík. Heiðdís. For. Friðrika Jónmundsdóttir og Þorsteinn Bene- diktsson, Hrafnsstöðum. Karllngi. For. Halla Karlsdóttirog Atli Friðbjörnsson, Hóli. Helgi. For. Unnur Hjálmarsdóttir og Jóhann Ólafsson, Ytra-Hvarfi. Friðrika Björg. For. Valgerður Friðriksdóttir og Anton Baldvinsson, Dalvík. Merkisafmæli í janúar: Anna Arngrímsdóttir, Dalvík, varð 80 ára 20. janúar. Lilja Rögnvaldsdóttir frá Hóli varð 60 ára 20. janúar. Sigfús Þorleifsson, Dalvík, verður 80 ára 29. janúar. Andlát: Gunnlaugur Þorsteinsson, fyrrv. bóndi á Hamri, dó á nýársd. Baldvin Loftsson, Dalvík, dó 11. janúar. máli og vill hvers manns vanda leysa eftir því sem í hans valdi stendur. Kristján tekur sendimanni blaðsins ljúfmannlega og kveðst reiðubúinn til að veita upplýsingar eins og hann framast geti. Verslunin? Verslunin fer fram í samtals 7 deildum þ.e.a.s. þessum 4 deildum hér í aðalverslunar- húsinu og að auki í kjör- búðinni í Skíðabraut, í fóður- vöruversluninni, sem nú ertil húsa í beinaverksmiðjunni og loks er svo salan í Bifvéla- verkstæðinu. Við alla þessa verslun vinna 25 manns. Þar fyrir utan er svo skrifstofu- fólkið 7 talsins. Núna þessa dagana er verið að breyta til í bókhaldinu og setja það í tölvuvinnslu. Færslurnar eru settar inn á spjöld (discettur) hér og síðan fer úrvinnslan fram í tölvu félagsins á Akureyri. Ekki er vitað um afkomu verslunarinnar en söluaukn- ing hefur orðið um 40%, sem er líkt og á Akureyri og þó líklega heldur lakara. Verslunaraðstaðan ? Hún er vafalaust ekki nógu góð. Búðunum hérna var breytt 1969 þegar matvöru- deild var breytt í kjörbúð og vefnaðarvörudeild og bygg- ingarvöru- og búsáhaldadeild komið fyrir á núverandi stöðum. Síðan hefur fólki hér fjölgað um 25% eða meira. Því er ekki að neita að nú er orðið þröngt á þingi, einkum í matvöru- og vefn- aðardeildum. Þaðsjáallir. Og sportvörum og búsáhöldum o.m.fl. hefur verið komið fyrir uppi á 3. hæð og það er auðvitað ekki ákjósanlegt. Samt er þetta ekki það, sem mest kallar á úrbætur nú að okkar dómi. Heldur er það nýtt, rúmgott hús fyrir geymslu og verslun með gróf- vöru. Þá er átt við alla fyrir- ferðarmeiri byggingarvöru, timbur, járn, sement os.frv. Ennfremur salt og síðast en ekki síst fóðurvöru bæði sekkjaða og líka lausa ef vel Miðpunktur viðskiptalífsins á Dalvík, verslunar- og skrifstofuhús KEA ætti að vera. Þetta er nú einna efst á óskalista okkar þessa stundina og við vonum að unnt verði að koma upp slíku húsi á þessu ári. En ákveðið er það ekki. Fiskvinnslan? Heildarmagn af flski, sem fiskvinnslustöðin tók á móti á árinu 1977 var 5780 tonn. Að langmestu leyti var þetta afli tveggja togara útgerðarfélags- ins. Björgvin lagði upp 2750 tonn en Björgólfur, sem kom í gagnið í apríl, lagði upp 2100 tonn. Afgangurinn, 930 tonn, var bátafiskur eða aðkeyptur fiskur. Þetta aflamagn skipt- ist þannig hlutfallslega milli vinnslugreina: Frysting 56%, saltfiskur og skreið 38% og afgangurinn, 6%, aðallega neyslufiskur. Framleiðslan úr þessu hráefni var sem hér segir: 55 þús. kassar frysturfiskur, 783 tonn saltfiskur, 66 tonn skreið og úr úrganginum var unnið í beinaverksmiðjunni 520 tonn mjöl og 160 föt lýsi. (Eitthvað af beinum innan af Strönd). Við fiskvinnsluna vinna alls um 120 manns, langmestfólk, sem er í fullu starfi, því vinna hefur verið svo til samfelld síðan togararnir urðu tveir. Frystihússtjóri er Árni Óskarsson, sem allir þekkja hér, en framleiðslustjóri í frystihúsi erungurfisktæknir, Aðalsteinn Gottskálksson, ættaður úr Reykjavík. Er þá húsnœðisþörf fisk- vinnslunnar þar með fullnœgt? Nei, ekki er nú svo að skilja. En fyrst og nauðsynlegast er að gera Aðalsteinshúsinu svo til góða að úr því fáist fyllstu not. Þá væri komið að því að stækka sjálft frystihúsið til austurs um nokkur hólf. Það er nóg pláss til þess. Þá mundi fiskmóttaka væntanlega vera á jarðhæðinni svo og flökun- inn, en á efri hæð snyrting, pökkun, frysting os.frv. Að öllu þessu gerðu má telja að aðstaða þessa fisk- iðjuvers væri orðin góð og það gæti ráðið við miklu meira hráefnismagn en nú er, ef svo vill verkast. Er nokkuð að segja um reksturinn á liðnu ári? Niðurstaðan liggur alls ekki fyrir ennþá. Hinsvegar er hægt að segja að sjálfur reksturinn gekk ágætlega á árinu, hráefnismagnið var miklu meira en áður og engin óhöpp skeðu, sem teljandi séu. Maður leyfir sér því að vona að útkoman verði réttu meginn við strikið þó að kostnaður allur hafi auðvit- að stórhækkað og fiskvinnsla sé víða rekin með tapi. Það er vitaskuld afarþýðingarmikið að reksturinn komi út jákvæð ur m.a^ af Jdví að alltaf þarf að vera að fjárfesta bæði í bygg- ingum og tækjum. í fyrra g fengum við t.d. nýuppgerða, | og sama sem nýja, flatnings- vél fyrir saltfiskinn og nú vantar nauðsynlega nýtt frysti tæki, sem kostar einar 6-8 milljónir. Hvað um þá hugmynd að slá saman fiskvinnslu og útgerð í eina rekstrarheild? Kristján Ólafsson sagði að auðvitað kæmi slíkt til greina, enda sé málum þannig fyrir komið sumstaðar eins og á Akureyri, Húsavík og víðar. Á hinn bóginn lýsti hann því sem sinni skoðun að hér á Dalvík sé reynslan sú að hvor- tveggja gangi vel og áfalla-; laust við núverandi skipan Framhald á bls. 2. Fjörutíu vísubotnar bárust Það er nú komið í ljós, sem sumir reyndar þóttust vita fyrir, að ekki er skortur á skáldum og hagyrðingum í byggðum Svarf- dæla. Einir 40 vísubotnar bár- ust við fyrripartinn, sem birtist í desemberblaðinu. Annað mál er það hvort þar er um mikið af stórbrotnum skáldskap að ræða. Og kannske gaf fyrri- parturinn heldur ekki ástæðu til stórra tilþrifa. Þessir 12 sendu inn botna, einn eða fleiri, allt upp í 6 stk.: Árni Lárusson, Árni M. Rögn- valdsson Ak., Birna Friðriks- dóttir, Gunnlaugur Gíslason, Haraldur Zóphóníasson, Jó- hann Sigurðsson Ak., Jóavin Helgason, Óskar Karlsson Hrís um, Sverrir Gunnlaugsson Mel- um, S. S. Dalvík, Unnur Sig- urðardóttir og Þorsteinn Krist- insson. Hér koma nokkursýnishorn: Fyrripartur: Nú er svalt um norðurslóð nætur stjörnubjartar. Botnar: En við Kröflu geysar glóð um galdrarúnir svartar. - Á. L. Ljósabelta geysar glóð gulli máninn skartar - Á.M.R. Þekki ég ekki þennan óð? Þetta er smíði Hjartar. - B. F. Norðurljósa fagurt flóð fjölda litum skartar. - G. G. Einhver mun þá yrkja ljóð til Óttars, Bróa ogHjartar. S.G. Verma andann Víkurfljóð veikt þá holdið kvartar. - J. S. Vistleg sveit í vetrarglóð vinalega skartar. - J. H. Mánaskin um fold og flóð fegurð djúpri skartar. - H. Z. Kuldahrímið krafsar stóð kalinn gróður nartar. - Ó. K. En hlýnar þegar hækkar sól og hnjúkaröðull skartar. - U. S. Ei þó kafnar andans glóð enn í skáldskap Hjartar. - Þ. K. Norðurslóð þakkar höfund- um góðar undirtektir. Svo kemur hér nýr vísubotn sendur af Haraldi Zóph. Vaxi lengi á vorri storð vegur Norðurslóðar. Og botni nú hver, sem kann.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.