Norðurslóð - 21.06.1978, Side 1
NORÐURSLOÐ
SVARFDÆLSK BYGGÐ OG BÆR
2. árgangur Miðvikudagur 21. júní 1978 5. tölublað
Bcejarstjóm á Dalvík:
Nýr meirihluti
Hœtt við Landsmót TJMFÍ
Miklar breytingar urðu i bcejar-
stjórn Dalvikur við kosning-
arnar í mai, af núverandi bœjar-
fulltrúum sátu aðeins tveir í
gömlu bœjarstjórninni.
í kosningunum fékk A-list-
inn 64 atkv. og engan mann
kjörinn, B-listinn 210 atkv. og 3
menn kjörna, D-listinn 163
atkv. og 2 menn kjörna og G-
listinn fékk 202 atkv. og tvo
menn kjörna. / bæjarstjórn
Dalvíkur sitja þvi af B-lista:
Helgi Jónsson, Kristján Ólafs-
son og Kristinn Guðlaugsson,
af D-lista: Trausti Þorsteinsson
og Júlíus Snorrason, af G-lista:
Óttar Proppé og Rafn Arn-
björnsson.
Hin nýja bœjarstjórn hélt
fyrsta fund sinn 10. júní og var
þar kjörinn forseti og bœjar-
ráð. Einnig var þar samþykkt
að fella niður á fjárhagsáætlun
upphœð sem fara átti ígerð nýs
íþróttavallar og tilkynna
UMSE að Dalvíkurbœr sjái sér
ekki fœrt að halda Landsmót
UMFÍ1981.
Eftirfarandi frásögn af fund-
inum er byggð á fundargerð:
Aldursforseti, Kristinn Guð-
laugsson, setti fundinn, bauð
fundarmenn velkomna og ósk-
aði þeim velfarnaðar í starfi.
Allir aðalmenn voru mættir að
undanteknum Júlíusi Snorra-
syni, en í hans stað mætti Júlíus
Kristjánsson.
Helgi Jónsson kvaddi sér
hljóðs og las stutta yfirlýsingu
þess efnis að fulltrúar af B-lista
og G-lista hefðu ákveðið að
hafa samstarf um myndun meiri
hluta bæjarstjórnar, þó þannig
að hvor aðili um sig hefði
óbundnar hendur er varðaði af-
greiðslu á tillögu Óttars Proppé
og Rafns Arnbjörnssonar um
að fella niður framlög til gras-
vallar. Að því búnu var gengið
til dagskrár.
Helgi Jónsson var kjörinn
forseti bæjarstjórnar og tók
hann við fundarstjórn. Óttar
Proppé var kjörinn 1. vara-
forseti og Kristinn Guðlaugs-
son 2. varaforseti.
í bæjarráð voru kjörnir
Trausti Þorsteinsson, Rafn
Arnbjörnsson og Kristinn Guð-
laugsson.
Ráðning bœjarstjóra.
Samþykkt var með 7 sam-
hljóða atkvæðum svohljóðandi
tillaga frá Helga Jónssyni og
Óttari Proppé: „Bæjarstjórn
samþykkir að ráða Valdimar
Bragason sem bæjarstjóra á yfir
standandi kjörtímabili. Bæjar-
ráði er falið að ganga frá ráðn-
ingarsamningi."
Hætt við Landsmót UMFÍ
Næst lá fyrir tillaga frá Óttari
Proppé og Rafni Arnbjörns-
syni um að UMSE yrði tilkynnt
að Dalvíkurbær sæi sér ekki
fært að hafa tilbúin íþrótta-
mannvirki svo að hægt yrði að
halda Landsmót UMFÍ á Dal-
vík 1981. í síðara lið tillögunn-
ar var lagt til að lækka niður-
stöðutölur á eignabreytinga-
reikningi íjárhagsáætlunar um
27 milljónir, en það var sú upp-
hæð sem nota átti í byrjunar-
framkvæmdir við nýjan gras-
völl.
Allmiklar umræður urðu um
tillöguna. Er kom að atkvæða-
greiðslu kom fram beiðni frá
Óttari Proppé, Kristni Guð-
laugssyni og Rafni Arnbjörns-
syni um að viðhaft yrði nafna-
kall. Niðurstöður nafnakalls-
ins urðu þessar:
Rafn Arnbjörnsson sagði já.
Trausti Þorsteinsson kvaðst
sitja hjá og lagði fram eftirfar-
andi bókun: „Við sjálfstæðis-
menn í bæjarstjórn lýsum undr-
un okkar á þeirri tillögu sem hér
liggur frammi. Nú liggur ljóst
fyrir að framsóknarmenn og
Alþýðubandalag mynda með
sér meirihlutasamstarf í bæjar-
stjórn Dalvíkur á komandi kjör
tímabili. Þessi tillaga bendir til
þess að þrátt fyrir tveggja vikna
samningsþóf hafa þessir tveir
flokkar ekki getað komið sér
saman um þetta mikilvæga mál
og ætla sér því að varpa ábyrgð-
inni á minnihluta bæjarstjórn-
ar. Við teljum að þar sem að
opinber meirihluti komi til með
að bera ábyrgð á framkvæmd
þessa máls, sé eðlilegt að þeir
taki sameiginlega afstöðu til
þess og leysi innbyrðis deilu-
mál sín. Þegar fyrir liggur
málefnasamningur milli þess-
ara flokka um það hvernig að
framkvæmdum Dalvíkurbæjar
skuli staðið, munu sjálfstæðis-
menn reiðubúnir til að vinna að
framgangi mála sem eru bæjar-
félaginu til heilla.“
Bókun þessi var undirrituð af
Trausta Þorsteinssyni og Júlíusi
Kristjánssyni.
Forseti úrskurðaði rök þessi
ógild og kvaðst Trausti Þor-
steinsson hlíta þeim úrskurði og
sagði „já“.
Helgi Jónsson sagði „nei“.
Júlíus Kristjánsson kvaðst
sitja hjá og vitnaði til framan-
greindrar bókunar en forseti
taldi hana sem fyrr vera ógild
rök fyrir því að taka ekki af-
stöðu til málsins.
Nú óskaði Kristinn Guð-
laugsson eftir fundarhléi og
veitti forseti hlé í 3 mínútur.
Eftir fundarhlé kvaðst Júlíus
Kristjánsson skjóta úrskurði
forseta til bæjarstjórnar en hún
samþykkti með 5 atkvæðum
gegn 1 að úrskurður forseta
væri gildur. Júlíus kvaðst þá
hlíta úrskurðinum og sagði já
við tillögunni.
Kristinn Guðlaugsson sagði
nei.
Kristján Ólafsson sagði nei.
Óttar Proppé sagði já.
Tillagan var því samþykkt
með 4 atkvæðum gegn 3.
★
í fundarlok þakkaði bæjar-
stjóri það traust sem honum
hefði verið sýnt með einróma
kjöri og kvaðst mundu vinna
heils hugar að málefnum bæjar-
ins.
u m t ( yJk 'U' j ' ' *. j >f’ ■
Æwi
Til kaupenda
Við viljum biðja lesendur Norðurslóðar að gera ekki
ráðfyrir öðru blaði nú á þessu sumri. Sennilega tökum
við okkur frí frá blaðamennsku, en það er staðföst
cetlun okkar að taka aftur upp þráðinn í haust. Svo
menn eiga von á ncesta blaði í september eða svo.
Við sendum öllum lesendum bestu kveðjur og óskir um
gott og gjöfult sumar.
Útgefendur.
Snemma að morgni 17. júní
s.l. lögðu fjórir ungir Dal-
víkingar af stað úr Dalvíkur-
h öfn á lítilli plastskektu með
utanborðsmótor. Þetta voru
þeir Egill Antonsson, Gunn-
ar Jónsson, Símon Hilm-
arsson og Stefán Ægisson og
var ferðinni heitið til Hrís-
eyjar. Ekki hefur spurst til
þeirra síðan.
Enn þá veit enginn með
vissu hvað hefur gerst en
víðtæk leit hefur engan ár-
angur borið og hafa vonir
manna um að piltarnir séu
enn á lífi kulnað.
Dalvíkingar eru harmi
slegnir vegna þessa sorglega
atburðar.
>
órarinn Jónsson
60 ára 3-6 197ö
■t* Ullif g£
í* lOf »
«!•■« Uétt (KIA HKJ qj_, _ . ,
HH C..IU #&« ... 3>fe£r jh„ ,JkkJ S|mH
u Kt.il MJS **»* FrilS Auinir kk nmnn , nv „ „
____ 1/’<a,,, TrX CT JDI MPC CMJ II... UBK 3JJ LOA A-*
** MJ »Q“ ► » KLI prJg llctM *>•»-* Ubl ula.____________
' St**f tch D«u BUI HM" *»B hao
Frumleg afmceliskveðja
Þórarinn Jónsson bóndi á
Bakka varð sextugur þann 3.
júní síðastliðinn. Þann dag var
blíðskaparveður í Svarfaðar-
dal og héldu hestamenn
veglegt mót á Tungunum, og
var mikil för ríðandi manna
um endilanga sveit.
Þetta góða veður notaði
afmælisbarnið á Bakka til að
ganga í fjall og huga að
sauðgróðri, enda er honum
niálið skylt, því maðurinn er
fjallskilastjóri hreppsins og hef-
ur verið það til margra ára.
Ekki tókst honum samt að
flýja afmæli sitt með öllú, þótt
hann færi til fjalla, því nioðri í
byggðinni mundu ýmsir eftir
því og létu hann kenna á því,
þegar hann kom þreyttur heim
að lokinni fjallkönnun.
Þá var honum m.a. afhent
„skjal“ það, sem hér birtist
mynd af og vonandi prentast
vel, svo menn megi lesa, hvað
þar stendur skráð. En þetta
skjal er að því leyti nýstárlegt,
að textinn er ristur í tré og
„undirskriftirnar" brenni-
merktar neðan við.
Að þessari heillakveðju
standa fjárbændur sveitarinn-
ar og á Dalvík eða þeir, sem
brennijárn eiga. Er þetta til
marks um almennar vinsældír
Þórarins bónda og fjallskila-
stjóra á Bakka og þarf ekki fieiri
vitna við.
Blaðið óskar Þórarni til
hamingju með afmælið og árnar
honum allra heilla.