Norðurslóð - 21.06.1978, Qupperneq 2
TVrí"^T3> ZTIT TT>
•i'I VJ’XVIL/ vJ JCwi
Útgefendur og ábyrgðarmenn:
Hjortur E. Þórarinsson, Tjörn. Svarfaðardal
Jóhann Antonsson, Dalvlk
Óttarr Proppé. Dalvlk
Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson
Prentun: Prentsmiðja Björns Jónssonar
Gamlir vinnufélagar. F.v. Sveinn, Jón og Anton.
BRÉF TIL BLAÐSENS
Kæra Norðurslóð!
Mig langar til að skrifa nokkr
ar línur um fjallið sem rís hér
rétt f\ rir ofan bæinn okkar, hið
svokallaða Böggvisstaðafjall.
Það hefur veitt mörgum ánægju
stundir á góðviðris- og sólskins-
dögum, á ég þar aðallega við
gönguferðir um fjallið og svo
hlessaða hóla- og lautartúrana
sem við öll könnumst við og
höfum mörg notað okkur í frí-
stundum; farið með fjölskyld-
unni og þá oftast haft með nesti
sem krakkarnir geta helst ekki
án verið.
Og margar eru berjaferðirn-
ar sem farnar hafa verið í fjallið
og fram á dalinn, þeir eru
ómældir pottarnir af berjum
sem runnið hafa í maga okkar
i falvíkinga.
í þetta sinn tala ég ekki um
skíðaferðir í fjallið, þær til-
hevra öðrum tíma. Það sem
vakir fyrir mér nú er verndun
fjallsins gegn veginum sem lagð-
ur hefur verið uppeftir því og
allt fram á dal. Úr eldhúsglugg-
anum mínum sé ég á sumrin
hvernig bílarnir þeysast dag
eftir dag upp rykugan fjallveg-
inn alveg upp á brún. Moldar-
og rykmökkinn leggur svo suð-
ur ailt fjall og er alveg ótrúlegt
hvað hann getur stundurh orðið
stór og breiðst yfir stórt svæði.
Mér hefur dottið í hug hvort
ekki mætti takmarka umferð
þarna á sumrum og leyfa aðeins
keyrslu upp að gilinu þeim
sem nauðsynlega þurfa að
fara þarna upp. Menn ættu að
geta gengið eins og áður var
Góð gjöf
Á síðasta fundi Lionsklúbbs
Dalvíkur á þessu starfsári, seint
í maímánuði, var klúbbnum
afhentur til varðveislu fallegur
og merkilegur gripur. Það er
skápur, smíðaður um miðja
síöustu öld af Þorsteini smið
Þorsteinssyni á Upsum. Skáp-
urinn er um hálfur annar metri á
hæð í tvennu lagi, fótstykki og
skúffu, og skáphluti með hólfi
ofan á. Hann er málaður
smekklegum litum og á hurð-
inni eru útskornir ,,pílárar“ sem
sagðir eru úr gamalli Valla-
kirkju.
Þessi fallegi gripur er gefinn
af Stefaníu Jónsdóttur, ekkju
Bald\ ins heitins Jóhannssonar,
og á að fara í byggðasafn það,
sem Lionskiúbburinn er að
safna til og emhverntímann
2 - NORÐURSLÓÐ
gert, það væri bara hressandi
fyrir þá. Fjallið er orðið loðið af
ryki og mold þegar kemur fram
á sumarið og er það mikil
skemmd á fögru umhverfi.
En það er annar staður í ná-
grenni bæjarins sem mér þykir
einnig afar gaman að koma á,
það eru sandhólarnir og fjaran
hérna austur um. Ef sandurinn
væri hreinsaður vel, væri þessi
staður á góðviðrisdögum á við
bestu baðströnd.
Þarna er mjög fallegt og það
er hressandi að labba eða
hlaupa um fjöruna í hafgolunni.
Einnig er mjög gaman að vaða
þarna í sjónum með litla krakka
þegar heitt er í veðri og láta
sólina þurrka sig í heitum sand-
inum á eftir. Ég tel þennan stað
einn af þeim bestu sem við eig-
um hér um slóðir. En menn
þurfa að opna augun fyrir dá-
semdum náttúrunnar og því
sem hún getur gefið okkur. Það
þarf að hreinsa þarna til ogfjar-
lægja drasl. Ég sé að þetta hef-
ur verið nefnt í síðasta blaði og
vil ég taka undir með bæjar-
stjóra, að fólk gæti þess fram-
vegis að skemma ekki fagra
náttúrustaði rétt við bæjardyrn-
ar hjá því.
Mér finnst að fleiri ættu að
skrifa í blaðið um málefni sem
varða Dalvík. Ég vil sérstak-
lega hvetja konurnar til að láta
álit sitt í ljós um það sem betur
mætti fara, ef eitthvað er.
Gerum þetta eina blað okkar
vel virkt. Látið álit ykkar í ljós.
Með bestu kveðjum,
Sigrún J. Eyrbekk.
kemst vonandi á legg og verður
til sýnis almenningi.
MÉR ER
SPURN?
Norðurslóð
leitar svara
Á hverju vori og sumri hefur
verið mikill ágangur af hross-
um og fé í bænum, sérstaklega í
sumum hverfum. Nú vil ég
spyrja: Hver ber ábyrgðina á
þessu og hver er réttur garð-
eigenda? Eigum við að þola
bótalaust sundursparkaðar lóð-
ir og uppétinn gróður ár eftir ár?
Þorbjörg A Ifreðsdóttir,
Böggvisbraut 9.
Hér virðist fyrst og fremst
vera um löggfræðilegt atriði að
ræða. Útgefendur Norðurslóð-
ar geta ekki gefið óyggjandi
svör í þessum efnum en vilja
gjarnan fá að heyra frá lög-
spekingum. Aftur á móti ætti
birting þessarar fyrirspurnar að
vera viðkomandi aðilum þörf
áminning. Það er ekki vansa-
laust að búpeningur rási um
bæinn og geri að engu tilraunir
bæjarbúa til að fegra umhverfi
sitt.
Heit kosn-
ing í
Svarfað-
ardals-
hreppi
Eins og sjá má af auglýsingu
frá kjörstjórn Svarfaðardals-
hrepps á öðrum stað hér í
blaðinu fer fram listakosning til
hreppsnefndar þar í sveit sunnu
daginn 25. þ.m. og eru tveir
listar í kjöri. Listabókstafir eru
H og I rétt eins og i kosningunni
fyrir 4 árum síðan og eru
fylkingarnar í stórum dráttum
þær sömu og þá voru.
Það vekur þó helst athygli, að
H-listinn er nú borinn fram af
Framsóknarfélagi Svarfaðar-
dals og óháðum kjósendum.
Mun þetta í fyrsta skipti sem
pólitískt félag stendur opinber-
lega að framboði til sveitar-
stjórnar í hreppnum og er það
raunar næsta óvenjulegt í sveita
hrepp, hvar sem er.
Sennilega mun það vefjast
fyrir ýmsum að skilja, hvernig
slíkt framboð á að geta eflt
gengi Framsóknarflokksins og
stefnumál hans og það því
fremur sem hinn listinn, I-list-
inn, ber líka sterkan framsókn-
arkeim og eru enda tveir efstu
menn hans flokksbundnirfram-
sóknarmenn.
Hvað sem því líður er víst, að
allnokkur hiti er í mönnum og
hart leikið. Og eins og segir í
gömlu stefi: „það dansar marg-
ur nauðugur, en dansar þó.“
Núverandi hreppsnefnd í
Svarfaðardalshreppi skipa þess
ir: Halldór Jónsson oddviti,
Hilmar Gunnarsson, Hjalti Har
aldsson, Sigurður Ólafsson og
Þórarinn Jónsson.
Þá verður einnig kosið til
sýslunefndar í hreppnum. Verð-
u sú kosning óhlutbundin, en
þar með er ekki sagt, aðekki
verði tekist á um hana eins og
annað.
Núverandi sýslunefndarmað-
ur er Hjörtur E. Þórarinsson og
varamaður hans er Þórarinn
Jónsson.
Úr reikningum Svarf-
aðardalshrepps 1977
í síðasta tölublaði Norður-
slóðar birtist viðtal við bæjar-
stjórann á Dalvík um fyrirhug-
aðar framkvæmdir bæjarfélags-
ins á árinu með tilliti til
fjárhagsáætlunar, sem þá var í
fæðingu.
Ætlunin var að birta til
mótvægis nokkrar upplýsingar
úr reikningum Svarfaðardals-
hrepps, en vegna plássleysis
varð það að bíða þessa blaðs.
Nú hafa reikningar hreppsins
yfir 4 síðustu ár verið fjölritaðir
og sendir inn á hvert heimili, svo
minni ástæða er en ella til
að birta mikið úr þeim hér. Þó
skal þeim til fróðleiks, sem ekki
fá heildarreikninginn í hendur,
birtur hér samandreginn rekstr-
arreikningur ársins 1977 svo og
gjöld á eignabreytingarreikn-
ingi.
Á þetta að gefa mönnum
nokkra hugmynd um veltu
sveitarsjóðs, og hvað orðið
hefur um tekjur hans.
Rekstrarreikningur Svarfaðardalshrepps 1977.
GJÖLD: kr.
1. Stjórn sveitarfélagsins ....................... 2.323.674
2. Framlag til Sjúkrasaml. Eyjafjarðars........... 1.997.276
3. Fræðslumál .................................... 4.441.784
4. Heilbrigðismál - tannlækningar................... 219.592
5. Félags- og menningarmál ....................... 1.525.445
6. Vegamál ....................................... 1.096.672
7. Sýslusjóðs-og sýsluvegasjóðsgjald ............. 1.863.479
8. Landbúnaður ..................................... 729.424
9. Vaxtagjöld ...................................... 122.258
10. Rekstrarkostnaður fasteigna...................... 374.080
11. Önnur útgjöld ................................... 192.753
14.786.437
Mismunur tekna og gjalda 8.475.821
Samtals 23.262.258
TEKJUR: kr.
1 • Útsvör ...................................... 12.026.149
2. Aðstöðugjöld .................................. 2.369.800
3. Fasteignaskattar .............................. 1.174.018
4. Jöfnunarsjóðsframlag .......................... 6.482.891
5. Tekjur af fasteignum ............................ 516.735
6. Vaxtatekjur . ................................... 642.665
7. Aðrar tekjur ..................................... 50.000
Samtals kr. 23.262.258
1. Gjöld á eignabreytingareikningi: kr.
Fjárfesting í Dvalarh. aldraðra á Dalvík ......... 3.000.000
Fjárfesting í Heilsugæslustöð á Dalvík ............. 250.000
Fjárfesting í Húsabakkask. vegna framkv........ 1.200.213
2. Afborganir langtímalána:
Lánasjóður sveitarfélaga ............................ 46.620
Landakaupasjóður .................................... 21.700
Bjargráðasjóður (v/endurlána)....................... 360.000
3. Önnur útgjöld:
Framlag til bókasafns Svarfdæla..................... 258.000
4. Hækkun á hreinu veltufé:
Hreint veltufé 01.01. 1977 kr. 4.820.886
Hreint veltufé 31.12. 1977 - 8.541.076
- 3.720.190
8.856.723
Þess skal getið, að í gjaldaáætlun fyrir 1977 var lagt á fyrir fram-
lagi í „Félagsheimilissjóð“, kr. 1 milljón. Þessi jjárupphæð kemur
ekki sérstaklega fram á eignabreytingareikningi, heldur felst hún í
liðnum „hækkun á hreinu veltufé“.
---------------------------------------\
Frá Yfirkjörstjórn
Norðurlandskjördæmis eystra
Aðsetur Yfirkjörstjórnar Norðurlandskjördæmis
eystra á kjördegi verður í Oddeyrarskólanum á Akur-
eyri, sími 22954, og þar verða atkvæði talin, þegar
þau hafa borist frá hinum 45 kjördeildum í kjör-
dæminu.
Undirkjörstjórnir eru beðnar að hafa samband við
Yfirkjörstjórn á kjördegi um sendingu kjörkassa.
YFIRKJÖRSTJÓRN
NORÐURLANDSKJÖRDÆMIS EYSTRA
Ragnar Steinbergsson,
Jóhann Sigurjónsson, Guöm. Þór Benediktsson,
Jóhannes Jósefsson, Haukur Logason.
v______________________________________________y
Öllum þeim, sem á sextugsafmæli minu 3. júni
síðastliðinn heiðruðu mig með gjöfum og heilla-
skeytum, þakka ég innilega og bið guð að launa.
Þórarinn Jónsson, Bakka. J