Norðurslóð - 21.06.1978, Blaðsíða 3
AUGLÝSING
Frá Fiskiræktarfélagi
Svarfdæla
Svarfaðardalsá var opnuð til veiði þann 10. júní
s.l. Stangarverð fyrir utanfélagsmenn er kr.
2.500 fyrir heilan veiðidag en kr. 1.500 fyrir
hálfan dag.
Fjölskylduveiðileyfi fyrir hjón og börn yngri en
15 ára) verða í reynsluskyni seld í síðustu viku
júní og gilda þau sem hér segir:
Fyrir 1. veiðisvæði: 1., 8., 17. og 29. júlí og 7. ág.
Fyrir 2. veiðisvæði: 12. og 22. júlí og 2. og 10. ág.
Fyrir 3. veiðisvæði: 22. og 26. júlí, 5. ágúst og
2. sept.
Fyrir 4. veiðisvæði: 30. júlí og 15. ágúst.
Fyrir 5. veiðisvæði: 8. ágúst.
Verð þeirra er kr. 5.000 fyrir daginn.
Sala allra veiðileyfa fer fram hjá formanni
félagsins á Völlum, þar sem allar frekari
upplýsingar verða veittar.
Stjórnin.
Frá kjörstjórn
Svarfaðardalshrepps
Kosningarnarsunnudaginn 25. júnífaraframað
Húsabakka (syðri byggingu). Kjörfundur hefst
kl. 11:00.
Kosningar eru þrennar, þ.e. til Alþingis, til
sveitarstjórnar (hlutbundin) og til sýslunefndar
(óbundin).
Fólk er beðið að kjósa tímanlega.
NÝ MÖRK.
1. Sneitt aftan hægra, stýft, vaglskorið aftan
vinstra.
Óskar Sæberg Gunnarsson, Dæli.
2. Hangfjöður framan hægra, alheilt vinstra.
Friðrika Eygló Gunnarsdóttir, Dæli.
Auglýsing um
utankjörfundar-
atkvæðagreiðslu
Á Akureyri, Dalvík og öllum hreppum Eyjafjarð-
arsýslu er hafin utankjörfundaratkvæðagreiðsla
vegna alþingiskosninga, er fram eiga að fara 25.
júní 1978. Kosið er hjá hreppstjórum, skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107, Akureyri, og
Hafnarbraut 10, Dalvík.
Skrifstofa embættisins á Akureyri verður opin
auk venjulegs skrifstofutíma kl. 17.00til kl. 19.00
og frá kl. 20.00 til kl. 22.00 alla virka daga, en á
laugardögum og helgidögum kl. 14.00 til kl.
18.00.
Skrifstofa embættisins á Dalvík verðuropin, auk
venjulegs skrifstofutíma, kl. 16.00-18.00.
Akureyri, 12. júní 1978.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík
sýslumaður Eyjafjarðarsýslu.
Svarfaðardalsá -
góð bleikjuá
Á öðrum stað í blaðinu er
auglýsing um sölu veiðileyfa í
Svarfaðardalsá.
En er einhverja veiði þar að
hafa, mun einhver spyrja. Svar
við þeirri spurningu er að fá af
eftirfarandi upplýsingum um
veiðina 1977 fengnum hjá for-
manni Veiðifélags Svarfdæla,
Snorra Árnasyni á Völlum:
Það ár voru seldir 449
stangardagar alls. Út fylltum
veiðiskýrslum var skilað fyrir
270 stengur. Á þeim var fjöldi
veiddra fiska 931 stykki, sem
skiptust þannig eftir tegundum:
845 bleikjur, 77 urriðar og 9
laxar.
Með hlutfallslega jafnmikilli
veiði á alla stangardaga mun
heildarveiði hafa verið rösklega
1400 fiskar.
Veiðisvæði í ánni verða nú í
sumar 5 í stað 4 sem verið hafa.
1. svæði frá ós að Helgafellshyl,
2. þaðan að Hofsbrú, 3. þaðan
að ármótum við Skíðadalsá, 4.
Skíðadalsá fram að merki við
steinboga og 5. svæði er Svarf-
aðardalsá frá ármótum fram að
Skallá.
Að lokum skal þess getið að
nú er áformað að breyta fiski-
ræktarfélaginu í veiðifélag
samkvæmt lögum um lax og
silungsleyfi frá 1970.
Auglýsing um lista
Við kosningu þá til hreppsnefndar, er fram á að fara sunnudaginn 25. n.k.
eru eftirtaldir 2 listar í kjöri í Svarfaðardalshreppi:
H-LISTI borinn fram af Framsókn-
arfélagi Svarfaðardals og óháðum
kjósendum.
Listinn er svo skipaður:
Hjalti Haraldsson Ytra-Garöshorni.
Jónas Þorleifsson Koti.
Jóhann Ólafsson Ytra-Hvarfi.
Símon Helgason Þverá.
Friðbjörn Jóhannsson Hlíð.
Jón Þórarinsson Hæringsstöðum.
Fjóla Guðmundsdóttir Húsabakka.
Margrét Kristinsdóttir Skeiði.
Júlíus Friðriksson Gröf.
Klemenz Vilhjálmsson Brekku.
Kjörstjórn Svarfaðardalshrepps.
I-LISTI borinn fram af 15 kjósend-
um.
Listinn er svo skipaður:
Halldór Jónsson Jarðbrú.
Þórarinn Jónsson Bakka.
Hilmar Gunnarsson Dæli.
Sigríður Hafstað Tjörn.
Olga Steingrímsdóttir Sökku.
Árni Steingrímsson Ingvörum.
Gísli Þorleifsson Hofsá.
Jóhann Sigurbjörnsson Atlastöðum
Svana Halldórsdóttir Melum.
Sigurður Ólafsson Syðra-Holti.
Dalvíkingar - Nærsveitamenn
Ferðafólk
Sport & búsáhaldadeild
3. hæð
Höfum mikið úrval af vörum fyrir:
Veiðimanninn og í útileguna
Einnig mikið úrval af:
Sjónvörpum & hljómtækjum
Hljómplötum
& gjafavörum
Leikföngum
Ú. K. E. Dalvík
ðími 61200
NORÐURSLÓÐ - 3