Norðurslóð


Norðurslóð - 15.12.1978, Síða 2

Norðurslóð - 15.12.1978, Síða 2
""■""Wi NORÐURSLÓ Útgefendur og ábyrgfiarmenn: Hjortur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal Jóhann Antonsson, Dalvlk Óttarr Proppé. Dalvlk Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson Prentun Prentsmiðja Björns Jónssonar Hvernig verður veturinn? Gömul spá segir að það megi sjá áþvíhvernig stendur á tungli ájólum: Hátíð jóla hygg þá að, hljóðar svo gamáll texti Arsins gróða þýðir það ef þá er tungl í vexti. En ef máni er þá skerður önnur fylgir gáta: Arið nýja oftast verður í harðara máta. _________________ ■ ___ L Brunabótafélag Islands óskar öllum landsmönnum gledilegra jóla. Við kveikjum á kertum og minnumst þess að sólin fer senn að rísa á ný. En minnumst einnig þess að illa getur farið ef ekki er gætt varúðar. Ohöppin eiga sér orsök! Brunabótafélag íslands - Dalvíkurumboðið Ný verslun á Dalvík r- - Saumastofan Ylirflytur ínýtt húsnceðiogopnar þar verslun Fjórir af flmm eigendum hlutafélagsins Ýlis hf. daginn sem nýja verslunin var opnuð: Jóhann Tryggvason, Hjördís Árnadóttir, Aðalbjörg Árnadóttir og Júlíus Snorrason, Seinni hluta júnímánað- ar hóf Ýlir hf. byggingar- framkvæmdir á lóð við Hafnarbraut, sem lengi hef ur staðið ónýtt og er hún númer 14. Laugardaginn 2. des. var tekin í notkun neðri hæð hússins og opnaði fyrirtæk- ið verslun þar. Aðeins eru því liðnir rúmir fímm mánuðir frá því byrjað var og þar til þessi hluti hússins var tek- inn í notkun. Um eins mán- aðar vinna er eftir við efri hæðina en þar mun sauma- stofa fyrirtækisins verða en hún er nú í leiguhúsnæði að Skíðabraut 3 (Tírol). Tré- verk hf. sá um byggingar- framkvæmdir að mestu. Samtals er húsið 900 rúm- metrar á tveimur hæðum, 150 m2 hvor hæð, en leiguhúsnæði það sem áður er getið er um 80 m2. Hér er þvi um mjög mikla stækkun að ræða. Eins og áður segir er verslun á neðri hæð, og verður þar að sögn eigenda fyrst qg fremst á boðstólum framleiðsla fyrir- tækisins, en til uppfyllingar verður annar fatnaður og íþróttavörur. Þó hér við bætist ný verslun er vafamál að samanlagt versl- unarhúsnæði sé nú jafnstórt og það var fyrir 2-3 áratugum hér á Dalvík. Ekki er nokkur vafí að samdráttur hefur orðið miðað við fólksfíölgun á verslunar- svæðinu á undanfarandi ára- tugum. Engin könnun hefur farið fram, en ekki er ósenni- legt að verslunarsvæðið búi við einna minnsta fermetratölu verslunarhúsnæðis á íbúa á öllu landinu. Ýlir byrjaði rekstur sauma- stofu árið 1972 og hefur fram- leitt 600-800 mokkajakka ár- lega. Vegna árstíðabundinnar sölu og lítilla afurðalánafyrir- greiðslu hefur framleiðslan verið mest haust og vetrar- mánuðina og þá er starfsfólk flest um 10 manns. Eigendur sögðu í viðtali við Norðurslóð að hægt verði að þrefalda afköst þegar flutt verður í nýja húsnæðið, en aðrar aðstæður geta þó komið í veg fyrir það. Skipuleg __ könnun er nú í gangi hjá Utflutningsmiðstöð iðnaðarins á markaði erlendis fyrir mokkaskinnsfatnað. Ef já- kvæður árangur verður af því starfi, auðveldar það afkasta- aukningu, því innanlandssala hefur aukist nokkuð. I haust hefur Iðunn á Akur- eyri ekki getað annað eftir- spurn á skinnum, því fram- leiðsla sútunarinnar hefur dreg ist saman vegna manneklu, að því er best er vitað. Aðeins eru notuð skinn í hæsta gæðaflokki í slíka framleiðslu sem þessa og útilokað er með öllu að litlar saumastofur geti verið sjálf- bjarga með sútun. Sútun er mikið fyrirtæki og vandaverk. Þegar bar á góma í spjalli við eigendur Ýlis hvort möguleiki væri að njóta góðs af nálægð- inni við stærsta minkabú landsins varðandi hráefni, kom fram, að minkaskinn eru mjög vandmeðfarin og verkþekking í landinu í þessum efnum varla nóg. Þegar Þorsteinn Aðalsteins- son var inntur eftir því sama sagði hann að sútun minka- skmna færi öll fram erlendis, svo mörg vandamál þyrfti að leysa áður en þetta yrði fram- kvæmanlegt. Hvorugur aðilinn vildi þó útiloka að málið v-erði athugað. Þrátt fyrir að vissar blikur eru á lofti eru eigendur Ýlis bjartsýnir uni framtíð fyrir- tækisinr Með tilkomu þess á sínum tíma var nýrri stoð skotið undir atvinnulíf hér á Dalvík, sem vonandi á eftir að dafna. Norðurslóð árnar þeim Ýlismönnum heilla. Böggver opnað á ný Böggver, samkomuhús ung- linga á Dalvík, hefur nú opnað á ný eftir all langt hlé. Nokkurrar óþolinmæði var far- ið að gæta hjá unglingum og höfðu þeir ritað æskulýðsráði og boðist til að annast rekstur- inn að einhverju eða öllu leyti. En æskulýðsráð vildi ekki hefía starfsemina fyrr en því hefði verið markað starfssvið og gengið hefði verið frá málum við þá, er ráku Böggver í fyrra- vetur. Nú hefur bæjarstjórn sam- þykkt reglugerð fyrir íþrótta- og æskulýðsráð og hefur það ráðið Heiðar Olason sem framkvæmdastjóra í Böggveri. Æskulýðsráð hefur einnig svarað erindi unglinganna um þátttöku í rekstrinum og þeirri skipan komið á, að fíáröflunar- nefnd 9. bekkjar leggur til starfsfólk (í samráði við fram- kvæmdastjórann) og fær í þess stað hluta af aðgangseyri og ágóða af sælgætissölu. Þetta fé rennur svo í ferða- sjóð 9. bekkjar. I haust kvikn- uðu hugmyndir um að bekkur- inn lyki 9 vetra samveru í skóla með ferðalagi, e.t.v. eitthvað lengra en áður hefur verið. Minnst hafði verið á Færeyjar, en áfangastaðir hljóta að mið- ast við fíárhaginn. Því er ljóst að fíáröflunarnefndin hefur ærið verk að vinna. Gjafír til dvalar heimilis aldraðra Dalvík - Kvenfélögin hafa Kvenfélagið Vaka á Dalvík hefur ákveðið að gefa öll gluggatjöld og tilheyrandi búnað í Dvalarheimili aldraðra Dalvík. Friðrikka Óskarsdóttir formaður félagsins tjáði blað- inu, að nú þegar hafí allt efni verið keypt. Munu félagar síðan sjá um allan frágang. Fjár hefur verið aflað með ýmsum hætti, þó mest mecf bösurum. Leiðrétting. Hér með leið- réttist villa sem slæðst hafði inn á lista sem Norðurslóð fékk hjá bæjarstjóra um gjafír sem honum höfðu borist vegna byggingar elliheimilisins. Þar er sagt að Gestur Árskóg hafí afhent ásamt fleirum ágóða af hlutaveltu, en á að vera Gestur Helgason. Eru þeir báðir nafnarnir beðnir velvirðingar á þessum mistökum. tekið á móti stórfé Árlega hefur verið lagt í sérstakan sjóð (elliheimilis- sjóð) og nú er sem sagt farið að ráðstafa fé úr þessum sjóði. Friðrikka sagði, að í þennan sjóð hefðu verið settar pen- ingagjafir frá einstaklingum, sem falið hefðu kvenfélaginu að koma þeim í dvalarheimilis- bygginguna. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hjá 'félaginu hvort þessu gjafafé verður ráðstafað sérstaklega eða hvort það verður með í þeim verkefnum eða gjöfum, sem koma frá félaginu sjálfu. Listi yfir fyrrnefndar gjafír eru hér birtur um leið og þakkir og kveðjur eru sendar til gef- enda. Þess skal getið að margar þessára gjafa bárust fyrir all- mörgum árum síðan: Gjöf til kvenfélaganna Vöku og Tilraunar: Laufey Þorleifsdóttir og Magnús Jónsson.....kr. 100.000 Gjafir til Kvenfélagsins Vöku: Frá Páli Hallgrímssyni......................kr. 100.000 Minningargjöf um Guðrúnu Júlíusdóttur og Halldór Sigfússon frá bömum þeirra.....kr. 100.000 Frá börnum Önnu Sigurðardóttur..............kr. 24.762 Frá Jóhönnu Halldórsdóttur..................kr. 5.000 Frá Albínu Bergsdóttur......................kr. 35.000 Frá dcetrum Önnu Júlíusdóttur...............kr. 25.000 Aheit frá Guðmundi Þórarinssyni.............kr. 10.000 Áheit frá Svanhildi Árnadóttur..............kr. 1.000 Gjöf frá Dagbjörtu Jóhannsdóttur............kr. 1.000 Gjöf frá Hildi Pétursdóttur.................kr. J00 Agóði af tombólu frá Hörpu Kristinsdóttur og Sigríði og Bryndísi Brynjarsdcetrum....kr. 1.600 2 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.