Norðurslóð


Norðurslóð - 15.12.1978, Síða 5

Norðurslóð - 15.12.1978, Síða 5
FUGLARNIR OKKAR Það var vor, farfuglarnir voru komnir. Búið var að girða kring um húsið og segja niður nokkur tré. Þrestirnir komu fljótt auga á þetta land og einn fallegur og mikill þrastarkarl lagði það undir sig. Síðan trúlofaðist hann þeirri með breiðustu augnrák- irnar og þau urðu einráð í þessum garði og næsta nágrenni. Þau áttu þetta allt. Norðan við götuna, beint á móti stóð gamalt, opið og yfir- gefíð fjárhús. Þarna var afbragð að vera fyrir máríátlur. Enda flugu þær þarna út og inn. En viti menn. Einn góðviðris- morgun, þetta vor, var komið með stórvirkar vinnuvélar, fjár- húsið mölvað niður og hóllinn sem það stóð á, bókstaflega þurrkaður burt. Hvað áttu nú máríátlurnar að gera? Þær hurfu. En það er af þröstunum að segja, að þeir voru greinilega orðnir hjón, en höfðu nokkra áhyggjur út af festingu fyrir hreiður, því trén voru varla orðin það stór að greinarnar bæru það uppi. Frekast kom til greina þakrennuhornið. Þann stað skoðuðu þau alltaf á kvöldin að loknu dagsverki, sem var í því fólgið fyrir henni, að finna fæðu og borða mikið, svo hún gæti átt egg, en honum að vera á verði og gefa aðvörunarmerki ef hætta nálgaðist. Þeim var gefinn hreið- urkassi, sem festur var upp við þakrennuhornið. Þessi nýja íbúð var skoðuð gaumgæfilega og nú þurfti ekki að kvíða festingunni. En máríuátlurnar úr fjár- húsinu, hvernig fór fyrir þeim? Meðal þeirra var líka hamingju- samt par, sem lánið hafði leikið við þangað til ósköpin dundu yfír. Karlinn hafði að vísu orðið fyrir áfalli áður, það var í fyrra þegar hann missti konuna. Þau höfðu nýlokið hreiðurgerð og voru að veiða flugur á jörðinni. Það tók hana köttur. Hann ásakaði sjálfan sig voðalega, að vera ekki betur á verði, og hélt að hann mundi aldrei fá sér konu afur. En svo skeði svolítið suður á Spáni í vor, þegar hann var að hvíla sig á leiðinni heim frá Afríku. Það voru margar márí- átlur á ströndinni. Ein vakti sér- staklega athygli hans fyrir hvað hún var grönn og hreyfði stélið fallega. Hann gat varla haft af henni augun. Þá datt honum ekki í hug að þau væru bæði frá víkinni heima og ættu eftir að hittast á síldarplaninu þar. Hann var nefnilega uppalinn í kirkju- turninum en hún í fóðurbætis- skemmu kaupfélagsins. Já, þegar fjárhúshóllinn var horfínn lá þessu áður hamingju- sama pari við örvilnun því þegar þau ætluðu heim á staðinn sem þau höfðu valið sér var allt horfið, eitthvert tóm, bara ekkert, og þau forðuðu sér. En svo sótti karlinn í sig kjark, flögraði aftur yfír fjárhússtæðið og lánið var með honum þá. Hann sá hreiðurkassa á húsinu á móti. Þetta ætlaði hann að athuga með kvöldinu, því nú var þrastapabbi þarna útbelgdur og söng eins og hann ætti himin og jörð. Tækifærið gafst, hann settist á þakið en hún tyllti sér á spýtuna við kassaopið og gægðist inn, það var öllu óhætt. Og þarna var hey í botninum, þá var minna að bera en mesti kosturinn var rifan á kassanum, þaðan gat hún séð á sjóinn. Bóndi hennar gaf merki og þau fóru í fjöruna. Um kvöldið komu þrasta- hjónin heim. Búið var að hreinsa Þrastarhreiður á svölunum að Skeiðabraut 15 vorið 1978. garðinn og ruslahrúgur lágu hér og þar, nægilegt byggingarefni. Hann söng og þau voru ham- ingjusöm. Þetta var þeirra jörð. Um næsta hádegi fór máríátlu- pabbi enn á stjá, hann sá ekki þrastaparið og gaf kerlu sinni merki. Hún byrjaði umsvifalaust á hreiðurgerðinni og er langt komin þegar þrastapabbi kemur heim. Þegar hánn sér hvað er á seyði ræðst hann að máríátlu- mömmu, en máríátlupabbi varð fyrri til og varnaði því að hann næði til hennar, síðan settust þeir hvor andspænis öðrum á girðinguna. Máríátlupabbi gerði sig svo stóran og breiðan sem hann gat og tifaði aðeins stélinu en þrastapabbi barði stélinu og hafði hátt og snéri sér ýmist að máríátlupabba eða kerlu sinni, sem sat álengdar og gaf frá sér nokkur reiðihljóð. Þetta dugði ekki. Þrastapabbi varð að ráðast á þennan durg, sem sat þarna útbelgdur og þagði, en hann varð svolítið að átta sig. Satt að segja hélt hann að allir vissu, og að hann væri búinn að láta það nægilega í ljósi, að hann ætti þennan stað. Nú varð hann að láta til skarar skríða, flaug upp á mæninn á húsinu á móti, renndi sér eld- snöggt að máríátlupabba, sem sat á spýtunni við opið. Þeir tókust á, fyrst á spýtunni, svo barst leikurinn niður á jörðina og þar flugust þeir á um stund og voru rétt hættir þegar máríátlu- mamma kom með fullfermi af stráum. Þá gramdist þrasta- panna svo að sjá þessa mjógörn vaða svona uppi, að hann réðst á hana. Og þegar hún missti stráin, sleppti máríátlupabbi sér alveg, réðist á þrastapabba og þeir tókust á bæði í lofti ogniðri, svo fjaðrirnar fuku í allar áttir. En þegar máríátlupabbi reif þrastapabba í augað varð hann að gefast upp. Síðan var reynt að koma á sáttum, þannig að setja upp annan hreiðurkassa á móti, hjá nágrannanum. Þrastamamma sá strax nýja kassann og þegar leið á kvöldið fór hún að safna í hann stráum. Þrastapabbi reyndi að fylgjast með, brá sér inn. Honum líkaði vel útsýnið, hann sá yfir landið. Hann flaug með henni þegar hún þurfti lengra til, þótt hann væri með strengi og annað augað klístrað af blóði. Hreiðrið var tilbúið um morguninn. Þá fór þrastapabbi að hvíla sig, en hún að draga upp maðka, hann hafði auga með henni fram á kvöldið, þá sofnaði nann og svaf alla nóttina. Um morguninn þegar hann vaknaði sá hann hvergi þrasta- mömmu, gægðist í hreiðrið og sá eitt egg. Hann varð forviða og glaður en þó gramur við sjálfan sig að láta varpið fara fram hjá sér. Hann gægðist inn í hitt hreiðrið því þar var enginn heima, þar voru tvö egg. Reiðin blossaði upp í honum snöggv- ast og datt honum í hug að sparka þessu sundur og fór inn. Nei þetta var svo lítið og auvirði- legt. Nú kom kella hans heim og stakk sér inn í þeirra hreiður þá fór hann upp á snúrustaur og söng aðeins. Hann horfði á hreiðuropið og beið. Honum fannst biðin löng, vængirnir kipptust til og stélið tifaði. Hún kom út og hann flaug með henni eitthvað frá. Eftir svolitla stund komu þau aftur og hann fór upp á hús og söng af öllum kröftum. Nú var hann orðinn hress og gat dregið upp ánamaðka með kellu sinni. Það skipti ekki miklu máli fyrir þau hjónin, fannst honum nú, þótt máríátluparið byggi þarna í ná- grenninu. Þau yrðu að minnsta kosti ekki með afskiptasemi og tækju heldur ekki frá þeim fæðu, því ánamaðka réðu þau ekki við, því síður að þau kynnu að nýta sér ber. Flugurnar gátu þau átt fyrir þeim, því svoleiðis óþverra byðu þau ekki sínum börnum. Þegar máríátlupabbi sá að enginn var á vakt settist hann á loftnetið. Hann ætlaði að líta eftir svæðinu núna eins og í nótt þegar þrastapabbi svaf. Annars var enginn betri vörður en þrasta pabbi, hann sá svo langt til og hann notaði svo greinileg hættu- merki, þess vegna var svo gott að búa í nágrenni við hann. Sjálfur var hann ekki fyrir að vera með hávaða, en hann gat vel sungið, lítið síður en þrastapabbi, ef honum sýndist svo. Þá var fuglastríðinu í garðin- um lokið. Framundan er kyrrlát bið. Þetta er saga um fuglana sem fljúga óra leið til þess að njóta birtunnar og þeirra lífsmögu- leika, sem skapast fyrir þá á vorin þegar snjórinn fer og sólin vermir raka jörðina hér á norðurslóð. A ðalbjörg Jóhannsdóttir. Gömul þula um bæjarröð í Svarfaðardal Sauðakot stendur allra yst, Melar og Tungufellið feitt, er Sauðanes svo líka fyrst, þar fer ég í dalinn Skíða greitt Sauðaneskot og Karlsá með, hjá Dæli. Márstaði tvenna tel, kemur svo Hóll og Miðkotið. tíðum á Þverá gengur vel. Efstakot, Hátún, Brimnes brot, Á Kóngsstaði, Hverhól og Krosshól ég kemst, -bakki Lækjar og Upsa-slot. og kotið Sveinsstaði allra fremst. A Böggvisstöðum er oftast ös, Holár- og Gljúfurárkotin klén, Árgerði, Hrafnsstaðir, Holtin tvö, klárunum er þar opnuð ben. Ingvarir, Tjörn og Tjarnarkot, Á Klængshóli og Hnjúki eru kostabú, tel ég Gullbringu lítið slot, en Klængshólsgerði ég nefni nú. Tjarnargarðshorn og Jarðbrú, já, Sæla og Hjaltastaðir hátt ég held Brekkukot standi þar hjá. hreykja sér nóg, þó gangi bágt. Brekka og Grund eru af skriðum skemmd, Syðra- og Ytra- svo er Hvarf, skulu svo Garðshornin tvö hér nefnd. síst þar að neinu finna þarf. Bakki, Steindyr og Þverá þá, Skriðu- og Hofsár- kostaKot þar næst skal Hreiðarsstaði tjá, ég kalla, en Skeggjastaði lítið slot. Hreiðarsstaðakot og Urðir enn Hofsá og Hof er ljúflingsland, annexíu þar nefna menn. - Ljótur karlinn þar setti í stand. Þorleifsstaðir og þar næst Hóll, Þar næst kemur hún gamla Gröf, þar er réttnefndur arnarstóll. get ég að Brautarhóll standi á nöf. Auðnir og Klaufabrekknakot Veitingastaður er Vallnaból' og Klaufabrekkur sín hafa not. Vænir Uppsalir standa á hól. Göngustaðakot greini ég beint Hánefsstaðir sín hafa not og Göngustöðum ei verður leynt, og híbýlistetrið Garðakot, Sandá og Þorsteinsstaði þá, Ólduhryggur og Sakka svo. þar næst skal Atlastaði tjá. Sé ég út þaðan Hamra tvo, Kotið er talið bændum blítt, Skáldalæk, Hrísa og hér næst Háls. en brögnum á Skeiði þykir grýtt. Hef ég svo talið, runnur stáls, Hæringsstaðir og Búrfell, best Vallnahrepps-bæi alla ört, björg er þar fyrir kú og hest. er til skemmtunar þetta gjört. NORÐURSLÓÐ - 5

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.