Norðurslóð


Norðurslóð - 15.12.1978, Side 7

Norðurslóð - 15.12.1978, Side 7
Er fyrsta_allsherjarmanntal var tekið á íslandi, 1703, töldust landsmenn 50358. Þá voru íbúar Eyjafjarðarsýslu 3029, karlar 1308 og konur 1721. Hreppar í sýslunni voru þá tíu, en skipting ekki hin sama og síðar varð. Til dæmis náði þá Svarfaðardalshreppur ekki að- eins yfír Svarfaðardal og Upsa- strönd, heldur og Arskógs- strönd, Þorvaldsdal og Hrísey, en 17 íbúar voru þá í eyjunni. íbúar Svarfaðardalshrepps 1703 voru alls 657, karlar 276 og konur 381. Vera má, að ein- hverjir hreppsbúar hafí verið að heiman, er manntalið var tekið, og hefur þess ekki verið leitað hér, enda skeikar það Mannanöfn í Svarfaðar- dalshreppi 1703 Mörg algeng nÖfn 1978 bar þá enginn, en nokkur hljómmikil nöfn hafa horfið Kolbeinn 1 Magnús 5 Markús 2 Nikulás 6 Oddi 1 Oddur 5 Ólafur5 Páll 5 Pétur 2 Rögnvaldur 1 Semingur 1 Sigmundur 1 Sigurður 16 Símon 2 Skeggi 1 Skúli 1 Steingrímur 1 Steinn 1 Steinólfur 1 Sumarliði 1 Sveinn 6 Sæmundur 2 Tómas 5 Vigfús 2 Þorbjörn 2 Þorgeir 3 Þorgrímur 1 Þorkell 5 Þorlákur 1 Þorleifur 6 Þorsteinn 10 Þorvaldur 2 Þórarinn 3 Þórður 5 Konur Agnes 2 Anna 3 Arnbjörg 2 * Arndís 2 Arnfríður 1 Ásdís 2 Ásta 1 Ástríður 3 Barbara 2 Björg 11 Bóthildur 2 Broteva 1 Elín 5 Engilráð 2 Filippía 1 Guðlaug 5 Guðný 4 Guðríður 4 Guðrún 84 Gunnhildur 8 Gunnvör 3 Gyða 1 Halla 2 Halldóra 7 Hallfríður 5 Hallótta 2 Helga 18 Herdís 2 Hildur 2 Iðunn 1 Ingibjörg 17 Ingigerður 1 Ingileif 1 Ingiríður 6 Ingunn 1 Ingveldur 6 Jórunn 3 Kolfinna 2 Kristín 5 Kristrún 1 Línanna 1 Magnhildur 1 Margrét 10 Matthildur 1 Oddný 3 Ólöf 9 Ragnheiður 3 Ragnhildur 3 Rannveig 4 Salný 1 Salvör 2 Sesselja 3 Sigríður 25 Snjófríður 1 Solveig 10 Sólvör 1 Steinunn 4 Steinvör 2 Una 3 Unnvör 1 Valgerður 5 Vigdís 8 Þorbjörg 2 Þorgerður 7 Þóra 12 Þórarna 3 Þórdís 2 Þórey 1 Þórunn 9 Þuríður 13 Karlar Andrés 1 Arngrímur 3 Árni 3 Ásgrímur 1 Ásmundur 2 Benedikt 1 Bessi 2 Bjarni3 Björn 5 Brandur 1 Böðvar 1 Egill 2 Einar 5 Erlendur 3 Eyjólfur 1 Eyvindur 1 Filippus 1 Finnbogi 1 Finnur 3 Fúsi 1 Gísli 4 Grettir 1 Grímur 2 Guðmundur 16 Gunnar 1 Gunnlaugur 1 Gunnsteinn 1 Halldór 5 Hallgrímur 1 Hallur 2 Hákon 1 Hálfdán 1 Helgi 1 Henrik 1 Hjálmar 1 Ingimundur 6 Ingjaldur 1 Ivar 1 Jón 76 Gísli Jónsson. naumast mjög miklu. Ómagar á hreppnum eru taldir 102, eða 15,5%, þar af 25 karlar og rúm- ur helmingur þeirra innan 16 ára, en 77 konur, tæplega þriðj- ungur þeirra innan 16 ára. Þessi voru nöfn íbúa Svarf- aðardalshrepps 1703: Kveðja Lovísa Sveinborg Gísladóttir F. 18. janúar 1913 - D. 29. nóvember 1978. Hér vit skiljumsk ok hittask munum á fegins-degi fíra, dróttinn minn gefí dauðum ró en hinum líkn es lifa. - Sólarljóð. Síðastliðinn laugardag var jarð- sungin frá Dalvíkurkirkju Svein- borg Gísladóttir, eða Svenna, eins og við vinir hennar og kunn- ingjar nefndum hana gjarnan. Hún var fædd í Kjarnholtum í Biskupstungum þann 18. jan. 1913, næst yngst barna Guðrún- ar Sveinsdóttur og Gísla Guð- mundssonar, er þar bjuggu rausnarbúi. Svenna ólst upp í foreldrahúsum í faðmi stórrar fjölskyldu, en þá þegar kynntist hún mótlæti lífsins, er reyndi á hennar sterku skaphöfn. Föður sinn missti hún 13 ára gömul og 5 systkina hennar létust á ungum aldri. Átján ára hleypti Svenna heimdraganum og hélt í Hvítár- bakkaskóla, þar sem hún stund- aði nám í eitt ár. 1933 og ’34 dvaldi hún um skeið á Hofsá í Svarfaðardal, með systur sinni og mági, er skömmu áður höfðu hafíð þar búskap. Kynntist hún þá verðandi eiginmanni sínum, Friðsteini Bergssyni. Alfarin fluttist hún norður 1935, er þau Friðsteinn stofnuðu heimili á Dalvík. Á Dalvík áttu þau heima síðan til æviloka beggja. Tóku þau ríkan þátt í uppbyggingu hins verðandi bæjarfélags með iðni handa sinna og fegrun mannlífsins með hlýju sinni og glaðværð. Bæði voru þau hjónin félags- lynd í besta lagi og lögðu félags- starfsemi heimabyggðar sinnar mikið lið, einkum á vettvangi verkalýðshreyfingar og leik- listar. Þeim hjónum varð ekki barna auðið, en þau ólu upp tvö fósturbörn: Önnu Stellu Marinósdóttur og Rúnar Þor- leifsson. Mörgum samferða- manninum voru þau stoð og skjól, því að hjálpfýsi þeirra og greiðvikni var mikil. Þau voru jafnan gefendur og veitendur, og þau voru glaðir gjafarar. Ekkert brast á samheldni þeirra í þeim efnum fremur en öðrum. Friðsteinn lést 1975 eftir erfíða sjúkdómsþraut. Eftir það dvaldi Svenna lengst af hjá fóstursyni sínum, Rúnari og tengdadótturinni, Hafdísi Haf- liðadóttur. Börn fósturbarna hennar, sem eru fjögur, voru Svennu miklir gleðigjafar, enda tengsl hennar við þau náin og innileg. Síðustu þrjú árin átti Svenna við vanheilsu að stríða, en dauða hennar bar að nokkuð skyndi- lega þann 29. nóv. s.l. Svenna var fyrir margra hluta sakir merkileg kona. Viljasterk var hún og einbeitt og hvikaði hvergi frá því, sem hún taldi rétt vera. Jafnframt hafði hún til að bera óvenjulegt umburðarlyndi og hlýju og ríka samúð með öllu lífí. Engan þekkti ég, sem átti meira af þolinmæði, né var lausari við hleypidóma. Eigin- girni held ég að hún hafi ekki þekkt af eigin raun. Glettni og glaðværð brást henni ekki fram að dánardægri. Sjúkdóm sinn og annað mótlæti lífsins bar hún með fágætu jafnaðargeði, og aldrei vissi ég hana æðrast eða kvarta um eigin hag. Eg sem átti því láni að fagna, að kynnast Svennu náið og verða aðnjótandi þess, sem hún hafði öðrum að miðla, vil, er leiðir skiljast, þakka henni með þess- um fáu og fátæklegu orðum. Um Svennu og þau hjónin bæði þarf raunar ekki önnur orð að hafa en þessi: Þau voru gott fólk. Ástríður Karlsdóttir. Einkum er athyglisvert hversu nöfnin Guðrún og Jón eru yfirgnæfandi algeng.Rúm- lega 4. hver karlmaður heitír Jón, og ekki skortir mikið á hið sama hlutfall um Guðrúnar nafn. Er þetta að vísu ekkert sérstakt fyrir Svarfaðardals- hrepp, því að þessu líkt var um land allt. Þá var og er ekki fágætt, að systkin væru samnefnd þessum nöfnum. Á Hofsá voru 1703 Guðrúnar tvær Þorleifsdætur alsystur, á Steindyrum Jónar tveir Hjálmarssynir albræður, á Hrafnsstöðum Guðrúnar tvær Sigurðardætur alsystur, á Syðstabæ í Hrísey Guðrúnar þrjár Þorkelsdætur alsystur og Guðrúnar tvær á Yztabæ Guðmundardætur, sömuleiðis alsystur, enda hét móðir þeirra og Guðrún. Hétu því 6 af 17 íbúum Hríseyjar Guðrúnar að nafni. Hinum fátíðu nöfnum Sem- ingur, Snjófríður og Broteva, hétu systkin á Sauðanesi, börn Sigurðar Einarssonar. Reynd- ar átti hann einnig Árna og Guðrúnu. Ekki skal ábyrgst að villur geti ekki hafa slæðst inn í þetta, því þær sitja um mann í allri og því þær sitja um mann í allri þvílíkri skýrslugerð. Gísli Jónsson tók saman. Áður birt í jóla- blaði íslendings 1965. Ljóðagetrafin NORÐ VttSL OÐAR Hér kemur ein lítil ljóðagetraun í sama dúr og sú, sem við höfðum hér í blaðinu fyrir síðustu jól og féll þá í góðan jarðveg hjá lesendum. Hér er sýnishorn af spurningu og réttu svari við henni: Hvað fór afi minn að scekja suðrá bcei? Svar: Sykur og brauð. 1. Af hverju var höndin kreppt og bogin? 2. Hver gerði hér stuttan stans? 3. Hvar gistir pósturinn? 4. Hvað hefur tófan á kló? 5. Hvað ilmar af gullnu glasi? 6. Hvenær er engin þörf að kvarta? 7. Hver tók við bagga af klakk? 8. Hverjum gat ég ei otað úr stað? 9. Hvar una lömbin sér? 10. Hvað skín mér í hjarta í hvert sinn er ég græt? 11. Hvað berst og þýtur yfir höfði? 12. Upp á hvað hreif andinn mig? 13. Hver býr í höll af rafi? 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. Hvað rís úr gráðinu þegar gegnir sem verst? Hvað er huggun harmi gegn? Hver er nú nár á Tjörn? Hvað skilur bakka og egg? Hverjir munu líta uppá jólunum? Hver er samgróinn öllu því besta hjá mér? Hvers vegna skrifa ég þér með blýant? Hverjum er tamast að tala sem minnst um það allt? 22. Hvar er nóg um hýreyg og heill- andi sprund? 23. Hvað á ég gamla Bakkusi að þakka? 24. Hver er öndvegi íslenskra dala? 25. Hvenær er best að hætta hverjum leik? Rétt svör verða birt í janúarblaðinu. Bókaverðlaun verða veitt þeim hlut- skörpustu. NORÐURSLÓÐ - 7

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.