Norðurslóð


Norðurslóð - 15.12.1978, Qupperneq 8

Norðurslóð - 15.12.1978, Qupperneq 8
Fyrir skömmu bárust þær fregnir að Dalvík væri orðin viðurkenndur hlekk- ur í keðju norrænna vina- bæja. Aðrir bæir í þessari keðju eru Borgá í Finnlandi Hamar í Noregi, Lundur í Svíþjóð og Viborg í Dan- mörku. í tilefni þess að Dalvík hefur loks eignast vinabæi á Norðurlöndum átti Norðurslóð stutt spjall við Sigríði Rögnvaldsdóttur, formann Norræna félags- ins á Dalvík og Valdimar Bragason bæjarstjóra. Sigríður vildi leggja á það áherslu að slík tengsl vinabæja þyrftu ekki og ættu ekki að vera einskorðuð við kjöma fulltrúa og embættismenn viðkomandi bæjarfélaga og upplýsinga- streymi milli þeirra. „Sam- vinna ýmissa félagasamtaka, t.d. leikhópa eða kóra, við sam- svarandi samtök í vinabæjun- um getur orðið mjög gagnleg og hlýtur að leiða til kunnings- skapar og vináttu milli einstakl inga. Einnig virðist upplagt að koma á tengslum milli skól- anna í þessum bæjum, nem- endum og kennurum til gagns og gamans.“ „Ég hef,“ sagði Sigríður, „fengið bréf frá Viborg og er í því beðin að hafa samband við ýmis félagasamtök hér og benda þeim á og hvetja þau til að hafa samband við sams konar samtök.“ Sigríður ræddi um ýmsa möguleika á samskiptum ein- staklinga og fjölskyldna í vina- bæjunum. Hún benti t.d. á að gaman yrði að vinna að því að koma á skiptidvöl fyrir ung- linga á heimilum í vinabæjum, þannig að unglingur héðan dveldist um tíma hjá fjöl- skyldu í einhverjum vinabæn- um en unglingur þaðan dveldi svo hér. Norrcena félagið Eins og áður er komið fram er Sigríður formaður Dalvíkur deildar Norræna félagins. „Deildin var stofnuð í septem- ber 1975 og í því eru nú tæp- lega hundrað manns.“ Við spurðum í hverju starf- semi félagsins hefði verið fólg- in. Sigríður benti á að eitt af verkefnum félagsins hefði ver- Hamar varð snemma biskupsetur og á miðöldum var þar reist dómkirkja, sem nú er rústir einar. Kirkjan var byggð úr tilhöggnu grjóti og rómversku bogarnir standa enn stoltir og afmarka kirkjuskipið. '11 ..................... ......................................... Bókaútgáfan ÖGUR úudnmdur Irínmn þonnig e,r ég liljirdu lilu (hid Þannig mr ég - viljiröu vita þaö Minningaþættir eftir Guð- mund Frímann. Bráð- skemmtileg frásögn af æsku hans í Langadal og af fjölda fólks í Húnaþingi á fyrstu árum þessarar aldar. býður yður þessar bækur ÓIúIui Jónsson Stripi í Purudís Stripl í Paradís Sögur eftir Ólaf Jónsson. Þessar smellnu sögur hafa legið í handraða hans sum- ar lengi, en eru hér komnar og biðja hreint að lesa sig. ið að koma á vinabæjatengslum við Norðurlöndin en starfið hefði þó ekki verið bundið við það eitt. Vorið 1976 stóð félag- ið fyrir tónleikahaldi á Dalvík í samvinnu við Tónlistarfélagið og hafa tæplega fleiri flytjend- ur komið fram hér á tónleikum áður. Sigríður Ella Magnús- dóttir söng ljóðalög, Sinfóníu- hljómsveit Reykjavíkur lék og kór Söngskólans söng undir I stjóm Garðars Cortes. Félagið hefur haldið kynn- ingarkvöld, eitt um Finnland og annað um Noreg. Þar hafa verið haldnir fyrirlestrar og sýndar myndir til kynningar á landi og þjóð. Félagið tók einnig þátt í nor- rænu menningarvikunni sem nokkur bæjarfélög á Norður- landi, þ.á.m. Dalvík, efndu til sumarið 1977. (Vegna blaða- skrifa um þessa menningarviku ’vill Norðurslóð taka það fram að þeir framkvæmdaþættir menningarvikunnar, sem gagn 1 elsta hluta Lundar eru hlykkjóttar, þröngar götur, bindingshús og gamaldags verslanir. Þarna má sjá rakaraskál, svipaðri þeirri sem Don Quijote notaði fyrir hjálm. Myndin er tekin á götu sem kennd er við kirkju heilags Péturs. ---- . Hvaða bœir eru þetta? Norðurslóð treystist ekki til að gefa hér tæmandi lýsingu á þessum bæjum en vill geta hér nokkurra atriða sem ef til vill gætu orðið kveikja þess að les- endur settust niður með bækur og kort og öfluðu sér frekara fróðleiks. Hamar. Hamar er við vatnið Mjörs (Mjösa, Mjösen) í blómlegum byggðum Heiðmarkar. Á miðöldum var Hamar biskupsetur og verslunarbær. Nú er Hamar blómlegur iðnaðar- (trjávörur), verslunar- og skóla- bær. Lundur. Lundur er skammt frá Málmhaugum (Malmö) og er þekktastur fyrir háskólann. Talið er að Lundur hafi verið grundvallaður á dögum Knúts ríka en veldi hans stóð beggjavegna Norðursjávar. Fljótlega varð Lundur trúarlegur, menningarlegur og viðskipta- legur miðpunktur í Skandinavíu. Island tilheyrði erkibiskupsdæminu-Lundi frá 1104, þar til sett var sérstakt norskt erkibiskupsdæmi (Niðarós) 1152-53. Viborg. Viborg er á Jótlandi skammt sunnan við Limafjörð. Hér er um að ræða gamalgróinn verslunarstað og embættismannabæ. Fyrrum var nafn bæjarins gjarnan íslenskað Vébjörg en ekki vitum við hvort björgin eru þar ginnhelgari en annars staðar. Borgá. Norðurslóð hlýtur að viðurkenna að um Borgá veit hún minna en ekki neitt, nema hvað bærinn er á suðurströnd Finnlands og nefnist á fmnskri tungu Porvoo. Sænskumælandi fólk er tiltölulega stór hluti íbúanna og þar er gefíð út stærsta sænsk- finnska dagblaðið, Borgábladet. V___________________________________________J Vinábceir á Norðurlöndum Dalvík er orðin þátttakandi í gamalgróinni vinabæjakeðju 8 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.