Norðurslóð - 15.12.1978, Síða 9
Bærinn sólarmeginn við Mjörs, Hamar. Þar búa um 16 þúsundir manna, eða um 13 menn á móti hverjum íbúa á Dalvlk.
Björgúlfur
aðstoðar
Súluna EA
Um kl. 10:30 mánudaginn
16. október sl. tók Björgúlfur
Súluna EA 300 í tog, eftir að
skipstjórinn, Hörður Bjarna-
son hafði beðið um aðstoð.
Málsatvik voru þau að Súlan,
sem var á loðnuveiðum, hafði
ætlað að kasta nótinni, en
fengið snurpuvírinn í skrúfuna
og allt varð fast. Vel gekk að
koma tógi á milli skipanna og
dró Björgúlfur skipið til Bol-
ungarvíkur, þar sem skorið var
úr skrúfunni. Þegar óhappið
átti sér stað voru skipin um 90
sjómílur norður af Horni. Tók
þetta um 12 klst. F.B.
hátt tengdir Norræna félaginu
á Dalvík.)
„Með þátttöku okkar Dalvík
inga í menningarvikunni eign-
uðumst við vini í Vanersborg í
Svíþjóð, því að vísnasöngvar-
inn Frank Johnsson hefur
haldið kunningsskap við Dal-
víkinga. Kom hann hér við síð-
astliðið sumar ásamt fjölskyldu
sinni og söng þá fyrir félaga í
Norræna félaginu.
Hví urðu þessir bceir fyrir
valinu?
Valdimar Bragason benti á
að ekki væri unnt að velja vina-
bæi algjörlega eftir eigin höfði.
Hér væri um að ræða gamlar
rótgrónar vinabæjakeðjur, einn
bær frá hverju landi. „Spurn-
ingin var því,“ sagði hann,
„hvaða keðju Dalvíkingar
vildu tengjast.“
„Það að farið var fram á að
tengjast þessari keðju en ekki
einhverri annarri réðst af því,
að hugmyndin var að velja bæi
er væru sem ólíkastir Dalvík,
þ.e. ekki útgerðarbæi, og einn-
ig réð það miklu um valið að
þessir bæir eru tiltölulega stutt
frá aðalflugstöð svo að ferðalög
þangað ættu ekki að verða fram
úr hófi kostnaðarsöm.“
Valdimar vildi taka það fram
að það var Norræna félagið á
Dalvík sem átti frumkvæðið að
þessu. „Deildin á Dalvíkmælti
með því að tengjast þessari
og bæjarstjórn samþykkti síðan
1975 að fara þess á leit við við-
komandi bæjarstjómir að Dal-
víkurbær fengist að slást í hóp-
inn. Síðan kom Norræna fél-
agið hér þessu erindi á fram-
færi við deildir Norrænu félag-
anna á viðkomandi stöðum og
þær snúa sér svo hver til sinn-
ar bæjarstjórnar.
Það gerist svo seint á síðasta
ári og fyrri hluta þessa árs að
við fáum bréf frá bæjarstjórn-
um þessara bæja og erum boðin
velkomin í hópinn.“
Vinabœjamót ncesta sumar
„Ég hef svo fyrir stuttu,“
segir Sigrún, „fengið bréf frá
Viborg vegna vinabæjamóts
sem þar verður haldið 2.-4.
júní næsta sumar. Þeir treysta
sér til að taka á móti allt að 50
Dalvikingum en ætlast er til að
menn fari á vegum einhverra
félaga eða bæjarins. Einstakl-
ingar verða því að skipulegja
sínar ferðir sjálfir eða í sam-
vinnu við félagssamtök.
Að lokum bað Sigríður um
að skilað yrði þakklæti til allra
beirra er lagt hefðu starfi Nor-
ræna félagsins lið og þannig
stuðlað að aukinni norrænrii
samvinnu
684 AKUREYRINGAR
15. nóvember síðastliðinn unnu hjá Sambands-
verksmiðjunum 684 Akureyringar. Samvinnu-
iðnaðurinn á Akureyri er mikið afl og því er eðli-
legt að taka á með bœjarfélaginu í stöðugri við-
leitni þess til að skapa íbúum sínutn atvinnu-
öryggi og trausta lífsafkomu.
Nú um hríð hefur íslenskur iðnaður átt í tniklum
erfiðleikum. Samvinnuiðnaðurinn hefur ekki farið
varhluta af þeitn.
Það er eðlilegt að íbúar hinnar blótnlegu byggðar
við Eyjafjörð, sem þessi iðnaður hefur sannarlega
átt tnikinn og heillavcenlegan þátt í að skapa, beri
ugg í brjósti um framvinduna og finni betur nú en
máski oft endrancer að samvinnuiðnaðurinn er það
afl sem ekki má bresta.
Standið vörð um samvinnuiðnaðinn.
IÐNAÐARDEILD
SAMBANDSINS
Akureyri Glerárgötu 28 - Pósthólf 606 - Simi: (96) 21900
SAMBAND
ÍSLENZKRA
SAMVINNUFÉLAGA
Mjór er
mikils vísir
I dag er gólfflötur
Sambandsverksmiðjanna
á Gleráreyrum rúmlega
29.000 fermtr.
NORÐURSLÖÐ - 9