Norðurslóð


Norðurslóð - 15.12.1978, Page 10

Norðurslóð - 15.12.1978, Page 10
r Lítill frásögu- þáttur um Fjósu Þegar ég las í Norðurslóð, PASKALAMBIÐ KEMUR AF FJALLI, s.l. vor, datt mér í hug lítill frásögu- þáttur, sem er sannur, en hvergi hefur komið fram opinberlega. Þessi þáttur er einskonar hliðstæða við páskalambsþáttinn þótt ekki gerist hann nákvæm- lega með sama hætti. Telj- ist hann eftirtektarverður ætla ég að honum henti rúm í Norðurslóð, þar sem þátturinn gerist einmitt í Svarfaðardal. Hefst svo frásagan. Margir eru þeir Svarfdæl- ingar enn í dag, sem muna Svarfdælinginn Gamalíel Hjartarson fyrrum bónda, lengst af og síðast í Skeggstöð- um, enda af mörgum kenndur við þann bæ löngu eftir að hann fluttist þaðan. Vorið 1935 brá hann búskap, og fluttist þá frá Skeggstöðum. Var hann eftir það nokkur ár í Svarfaðar- dalnum í húsmennsku, sem kallað var, á nokkrum bæjum áður en hann flutti til Reykja- víkur. Kona hans hét Sólveig Hallgrímsdóttir. Hún lést skömmu fyrir jólin 1936. Þá voru þau hjónin búsett að Völl- um í húsmennsku þar. Þótt þau hjónin væru hætt búskap áttu þau næstu árin nokkrar kindur sér til ánægju. Svo var það haustið 1935, er þau hjónin heimtu kindur sínar af fjalli, að eitt lamba þeirra (gimbur) var svo smá að ekki var talið neitt frálag í henni á blóðvelli. Betra ráð væri því að setja hana á vetur þótt alla vega virtist lítil. framtíð í henni. Hún kynni þó að verða æt næsta haust. Svo fóru leikar með gimbrina þetta haust að hún lenti í fjósi þar sem hún dvaldi allan veturinn, og af því fékk hún nafnið Fjósa. Fjósa fóðraðist eftir atvikum vel um veturinn, enda ein- göngu fóðruð á töðu. Náði hún því nokkrum þroska þótt í minna lagi væri hún um vorið. Þegar hún svo kom af fjalli haustið 1936 hafði hún náð góðum þroska um sumarið. Var þá strax ákveðið að lífvæn- leg væri hún fyrir næsta vetur. Allt gekk eftir áætlun með hana þennan vetur, og um vorið 1937 eignaðist hún hrútlamb. Allt gekk það með ágætum. Henni var sleppt á fjall með öðrum kindum og til rúnings kom hún, en um haustið heimtist hún ekki af fjalli. og dilkur hennar ekki heldur, þótt þrígengin væru fjöll og afrétt- ir. Jafnvel var oftar smalað að minnstakosti heimalönd, þegar tíð hélst góð fram eftir hausti sem og nú gerðist. Oft var og gerð leit í Sveinsstaðaafrétt þótt áliðið væri orðið tímans. Þrátt fyrir allt þetta kom Fjósa ekki fram né heldur lamb hennar. Svona líður tíminn, dagur styttist og styttist, en ekkert fréttist um Fjósu, hvort hún mundi vera lifandi eða dauð, né heldur hvar niður- komin. Nema bráðlega fara draumar að sækja á Gamalíel. Hann dreymir látna konu sína, hún er í draumum hans að gera honum einhverja grein fyrir Fjósu. Hann þykist þess full- viss að bæði ær og lamb munu vera lifandi. Jafnvel heldur ekki útilokað að hann viti hvar þeirra muni að leita. Brátt er komið fram á Jólaföstu, dagur orðinn stuttur, en tíð helst allgóð, og jörð snjólétt. Gamalíel dreymir og dreymir með stuttu millibili. Draumar hans falla nokkuð á einn og sama veg. Sólveig er að gera honum grein fyrir þeim mæðg- inum, en Gamalíel hefst ekki að. Eftir því sem tíminn líður og hann dreymir meir verður Sólveig æ ákveðnari. Þegar nokkuð er komið fram á þorra hefir Gamalíel orð á því að nú þoli hann ekki meira af svo góðu. Hann tekur að hugsa ráð sín í alvöru, og áður en þorra sleppir^ hefir hann áformað þau. A góðviðrisdegi tekur hann sig upp, leggur leið sína að Þverá í Skíðadal, hittir þar Vigfús bónda, og segir honum óefni sín. Er svo ekki að orð- lengja það. Gamalíel gistir þar um nóttina. Með birtu morg- uninn eftir leggja þeir svo báðir upp Gamalíel og Vigfús. Stefna þeir nú inn eftir Skíða- dalnum sem leið liggur í Sveins staðaafrétt. Þar heitir Almenn- ingur í austanverðri afréttinni. Þangað leggja þeir leið sína, örugglega ekki af tómri tilvilj- un. Þar fínna þeir Fjósu og lamb hennar í besta ásigkomu- lagi, og líkur svo hér með ævin- týrinu um Fjósu. Skráð 9. okt. 1978. Sigurjón Kristjánsson frá Brautarhóli. Endurminningin merlar ce í mánasilfri hvað sem var3 yfir hið liðna bregður blce blikandi fjarlcegðar, gleðina jafnar, sefar sorg; svipþyrping scekir þing í sinnis hljóðri borg. Svona yrkir Grímur Thomsen fallega um endurminninguna. Bernskan sækir á menn í fleiri en einum skilningi því meír sem þeir eldast. Minningarnar stíga fram úr hugskotinu og raða sér allt í kring, hljóðar, en áleitnar og virðast segja: „Manstu eftir mér?“ Afí minn, Júlíus Daníels- son, sagði það einu sinni við mig, þá ungan dreng, að hann myndi betur eftir ýmsu frá æskudögum eftir því sem hann eltist, og ég man, að ég undraðist þetta þá. Þessarar bemskuhneigðar manna gætir víða í bókmenntum og nægir þar að nefna sem dæmi tvær af síðustu bókum Halldórs Laxness, I túninu heima og Ungur ég var. Ótal aðrir, minni spámenn, hafa dundað sér við að færa í letur bernskuminn- ingar sínar. Fyrir tveimur árum var sá, er þetta ritar, beðinn að mæla fyrir minni sveitarinnar á Svarfdæl- ingafagnaði í Reykjavík. Valdi ég þá þann kostinn að breyta út af venjunni, sem verið hafði á þeim samkomum og tala heldur um gamla bæinn heima í Syðra- Garðshorni. Þessi pistill birtist svo hér í Norðurslóð að beiðni ritstjórnar blaðsins og hefur hann verið nokkuð styttur. SÚ VERÖLD sem ég lifði í bernsku minni, heima í Svarfað- ardal, voru síðustu ár tímamóta- skeiðs, sem um félagslegt mynst- ur fjölskyldulífs og atvinnuhætti náði allt aftur til landnáms dalsins. Heimurinn, sem ég þá skynj- aði, takmarkaðist af fjallahringn- um þekka með Brennihnjúk í vestri, Stól í suðri, Rimar í austri og Látrafjöll í norðri. Bernskuheimili mitt, torfbær- inn í Syðra-Garðshorni, þar sem við systkinin ólumst öll upp, var hinn síðasti á þeirri jörð af ótal mörgum torfbæjum, sem venju- lega entust ekki nema í tvær eða þrjár kynslóðir. Þessir bæir láku í haustrign- ingum, þeir voru kaldir í norðan Omefni í Eyjafjarðarsýslu Merkilegt menningarframtak Jóhannes Óli Sæmundsson á Akureyri hefur sent blaðinu til kynningar lítið bókarhefti, sem ber ofanskráðan titil. Þetta er fyrsta hefti í safni, sem á að lok- um að ná yfir alla Eyjafjarðar- sýslu. Heftið tekur til Árskógs- strandarhrepps og hefur að geyma um það bil 1000 örnefni raðað niður eftir jörðum í hreppnum. Þarna er mikinn fróðleik að finna og alls ekki þurran af- lestrar, því höfundurinn gæðir textann lífi með því að lýsa stutt- lega landinu, þar sem örnefnið er, en auk þess lætur hann fljóta með smáfrásagnir af atburðum 10 - NORÐURSLÓÐ tengda nafninu og jafnvel ein- staka vísur. Ennfremur eru í heftinu meira en 30 ljómandi vel teknar ljósmyndir, sem auka til muna á gildi þess. í bókarformála klikkir höf- undur út með þessum orðum: „Aðaltilgangur minn með þessari útgáfu er áhugi fyrir varðveislu örnefna og notagildi þeirra. Þau eru gildur þáttur þjóðlegra fræða og mega ekki glatast.“ Jóhannes Óli Sæmundsson á miklar þakkir skilið fyrir þetta framlag til eyfirskrar menning- arsögu. I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I stórhríðum, og það var erfitt að þrífa þá, en mér fannst þó, að þessi bær, sem ég þekkti best, byggi yfir miklum þokka og mér þótti vænt um hann. Bærinn var þrjú langhús, sem stóðu eftir stefnu dalsins, sam- hliða, hvert aftur af öðru, tengd með löngum göngum, eins og venja var. Það var framhús, eld- hús og baðstofa. Torfþak var á bænum. Þessi bær var kjörið svið meðan það ekki tróðst. Uppi á lofti í framhúsinu kenndi margra grasa. Þar voru m.a. geymdar gamlar búrkistur, kornmatur og steinolía til vetrarins. Þegar Guðrún föðursystir mín og Halldór Sigfússon giftu sig, sat afi minn þama í loftsgatinu og skenkti körlunum brennivín í staup í brúðkaupsveislunni. Þá var dansað í gestastofunni, en þetta var löngu fyrir mitt minni. Þegar inn eftir göngunum var haldið, kom eldhúsið á vinstri hönd, en gamla eldhúsið á hægri hönd. Gamla eldhúsið var með torfveggjum og torfgólfi og tvennum hlóðum og víðum strompi yfir hlóðunum. Þama var soðið slátur á haustin og reykt hangiket og skæðaskinn hékk jafnan uppi í rótinni. Það var stundum mikill reykur í þessu eldhúsi, þegar eldur hafði verið tekinn upp og þá súrnaði manni í augunum. Eldurinn var alltaf falinn í hlóðunum á kvöldin og sóttur þangað í elda- vélina á morgnana um leið og kveikt var upp. I gamla eldhús- inu var vatnskrani og hlandfor norður af því og í hana voru koppanir tæmdir á morgnana og hendurnar - vinstri og hægri, þá sat ég uppi á eldhúsbekknum og þá var það vinstri hendin, sem að dyrunum vissi. Þetta var öruggt kennileiti nokkuð langt fram eftir aldri. I bollaparaskápinn átti ég æði oft erindi til að ræna sykri og var það illa séð af mömmu, enda hlaut ég makleg málagjöld í tannpínu. Búrið var sunnan við eldhús- ið. Þar voru olíuföt úr eik með slátri og súrum sviðum og kinda- löppum og skyrsýru. Sýran var drukkin á sumrin við þorsta, það var kallað að drekka blöndu. Það orð hefur nú að nokkru breytt um inntak. I torfveggina í göngunum stungum við krakkarnir öllum bamatönnunum, þegar þær duttu úr okkur og líka málbein- um úr kindakjömmum, því annars varð maður mállaus. Á göngunum voru að minnsta kosti þrjár skellihurðir, þ.e. þær lokuðust sjálfkrafa með sérstök- um útbúnaði, sem var búinn til úr priki og snúnu snæri. Göngin voru koldimm og hölluðust frá bæjardyrum og uppí baðstofu. Oft var ég myrkfælinn í göngun- þrír, litlir, fjögura rúðu gluggar, sem alltaf voru hrímaðir á morgnana í frostum, og þó var norðurstafninn á baðstofunni tveir metrar á þykkt og veggirnir gríðarþykkir. Afi og ammabjuggu í Norður- húsinu, sem var lítið herbergi noður af miðbaðstofunni. Þar sátu þau á rúmum sínum við tó- vinnu. Fyrir ofan rúmið hans afa hékk Drottinn blessi heimilið og innrammað ævifélagaskírteini frá Ræktunarfélagi Norðurlands en fyrir ofan ömmu rúm var innrömmuð mynd af engilbami með hönd undir kinn og í kringum það voru kvöldbænar- vers. Amma kenndi mér að signa mig og svo faðirvorið og margar bænir, bæði morgun- og kvöld- bænir. Hún kenndi mér líka að lesa og notaði til þess band- prjón og nýjatestamentið frá 1850. Oft raulaði hún þessa vísu við okkur á kvöldin: Þey, þey, og haf ei hátt, hér dunar undir, Og er stigið ekki smátt, Um foldar grundir. Júlíus Daníelsson á Syðra Garðshomi: Ég vitja þín æska Minningar úr svarfdcelskum torfbce Jóhannes Óli Sæmundsson. til leikja fyrir böm, en samgang- ur var mikill á milli bæja. Uppi á Suðurskúrnum, sem var sunnan við framhúsið, höfðu systur mínar búið sitt. Mér þótti gaman að sjá Stólinn speglast í suður- glugganum á framhúsinu. Það var eiginlega önnur sveit, sem sást þama í glugganum, því spegilmyndin sýndi dalinn öf- ugan. Ekki var þá amalegt að fara í feluleik eða „Spýtan fallin“ og fela sig í sundum og skotum eða koma í „Yfir“ eða í „Húsbolta“. Oft sat ég uppi á bænum með hundinum og horfði yfir sveitina og byggðina og virti fyrir mér umferðina um brautina, en „braut“ var og er enn, nefndur vegurinn um dalinn. Það var gaman að horfa á vel ríðandi menn þeysa um, eða þá bænd- urna framan að, sem riðu um brautina með einn eða tvo reið- ingshesta í taumi og tognaði þá stundum á þeim handleggnum, sem hélt í tauminn, þegar reiðingshestamir voru treg- gengir. Þessir hestamenn sátu venjulega hoknir á hestunum og höfðu stutt í ístöðunum. Heim að líta var bærinn reisulegur, með ljósu framhúsi. Sunnan við bæjardymar var gestastofan. Hún var ljósgræn á litinn og með rósamáluðu lofti, einkum í homunum. Eg heyrði sagt, að Sölvi Helgason hefði málað rósimar í loftið. Hurðin á henni og borðið, sem var þar, var líka málað með sérkennilegu handbragði, sem þá var tíðkað, þar sem dregið var úr pensli í stuttum bugðum með frá- brugðnum lit við grunnlitinn. Norðan við bæjardyrnar var Norðurhúsið. Þar var hefilbekk- ur og smíðatól. í Norðurhúsinu var afþiljaður klæðaskápur, þar sem sparifotin voru geymd. þar norður af var Norðurskúrinn. Hann var alltaf fullur af taði og sverði á haustin. Bæjardyrnar vom jafnan þaktar nýju torfi á haustin. Það var mjúkt teppi á þangað var öllu skolpi hellt. Á vorin var lögurinn úr forinni færður upp með fötum í snæri og hellt í tunnur, sem stóð í hesta- kerru og forarleginum keyrt út á tún. Það var ljótur fnykur! Eitt sinn datt hross ofan í hland- forina, það var brúnstjörnótt meri, uppáhald okkar krakk- anna. Það þurfti að ná í mann- hjálp bæði suður í Bakkagerði og út í Garðshorn til að ná henni upp úr. Svo var Stjarna öll þvegin á eftir. Nýrra eldhúsið var þiljað og með steingólfi og eldavél. Þar var engin vatnsleiðsla, en vatnið sótt í kranann í gamla eldhúsinu. Vatnsfatan stóð alltaf á palli við eldavélina og ausa í fötunni. Diskarekki var upp á veggnum og bollaparaskápur í einu hom- inu. Fólkið sat á baklausum setu bekk við eldhúsbekkinn þegar það borðaði. Eg man að ég var að læra að þekkja sundur á mér um, nema á jólunum því þá voru göngin upplýst með fjósalugt- inni. Úr göngunum lágu trétröpp- ur upp í baðstofuna. Baðstofan var undir súð með tveim bitum og á annan bitann var skorið ár- talið 1884, en það var bygging- arár hennar. Guðjón á Hreiðars- stöðum smíðaði baðstofuna með afa, en þeir voru bræður. I miðbaðstofunni voru þrjú rúm og eitt borð, sem ekki var hægt að hreyfa, því það var neglt fast við vegginn. Það var alltaf kallað Hvíta borðið, þó það væri ómál- að. Þama var líka kista, sem var kölluð púff. I henni voru geymd sokkaplögg. Gólfið í borðstofunni var alltaf skúrað upp úr sandi á laug- ardögum og ég man það, að Sig- rún Sigtryggs var að segja mér til við að draga til stafs með griffli á spjald, einu sinni þegar hún var að skúra. Á miðbaðstofunni voru Hver er sá hinn mikli mann, sem stígur svo fast á múr? Það er hann gamli Samson, sínum kofa úr. Á sunnudögum las afi ævin- lega í hljóði fyrir sjálfan sig úr Péturspostillu og ég sat stundum hjá honum og fannst skrýtið hvemig varirnar á honum hreyfð ust þegar hann var að lesa. Margir eldri menn komu til að finna afa. Þá þótti okkur krökk- unum gaman að sitja álengdar og hlusta á þá spjalla saman. Oft var rætt um sjóróðra og hákarlatúra. Einn þeirra manna, sem oftast komu var Jón gamli Sælor. Hann var frændi okkar. Jón var hagyrðingur og nokkuð drjúgur með sig og hálfgerður bóhem. Hann hafði verið skúturkarl í Reykjavík fyrir aldamót og taldi sér það til gildis. Hlaut hann af þessu aukanefni sitt. Stundum Júlíus Daníelsson. sagði hann sögur af því þegar hann lenti í slag við þá dönsku og beitti þá hollófa og skalla, sem hann svo nefndi. Það var víst jiú-j í-tsjú þeirra tíma. Reyndar var Jón góðmenni og barngóður mjög. I Norðurhúsinu var kola- ofn, og þar var alltaf hjýtt. I Suðurhúsinu, rúmgóðu her- bergi, sem var nýjast þessata hýbýla, bjuggu mamma og pabbi. Það var með stórum stafn glugga og málað ljósgrátt. Þar var prjónavél, sem mamma og Sigrún á Tjörn áttu saman og var vélin nokkra mánuði á hvorum bæ í senn. Ofn var í Suðurhús- inu, en reykofn frá honum, hinu megin við þilið, í miðbaðstof- unni. I Suðurhúsinu vorum við krakkarnir baðaðir í stórum bala fyrir jólin. Á því tímaskeiði, sem hér um ræðir, voru enn útvarpslaus kvöld, því það var ekkert útvarp komið þá og þetta voru síðustu ár kvöldvökunnar í Svarfaðar- dal. Amma og Soffi, sem lengi var hjá pabba vinnumaður og Siggi frá Hæringsstöðum, sem um þetta leyti var hjá okkur við smíðar, lásu öll framhaldssögur á kvöldin fyrir heimilisfólkið, til að mynda „Upp við fossa,“ „Með báli og brandi“ og „Um- hverfis jörðina á 80 dögum“ og „Grettissögu.“ Lesarinn sat undir 20 línu olíulampa í miðbaðstofunni, en fólkið var eitthvað að iðja á meðan, oftast nær. Ég man eftir pabba vera að raka gæru á hné sér á meðan, með poka bundinn um lærið til að hlífa buxunum við óþrifum. Soffa man ég eftir við að spinna hrosshár í reipi á halasnældu og gamalli kerlingu, sem Bína hét og var gestkom- andi, vera að saxa tóbak handa sér, því hún tók mikið í nefið. Á áliðnu kvöldi, slökkti pabbi eða Soffi á stóra lampanum og allir gengu til náða. Ég var svo heppinn að alast upp við gott nágrenni og glaðan félagsskap bamahópsins í ná- grannabæjunum. Nágranna- kritur var hreint óþekktur, og þó var engin girðing á landamerkj- um. Hjálpsemi og samhyggð var mikil, ef eitthvað bjátaði á. Ef einum lá á, þá voru hinir boðnir og búnir að koma og leggja lið- sinni. Pabbi og Haraldur í Ytra- Garðshorni keyptu sér saman hestasláttuvél árið 1925, og skiptust á um að nota hana í 11 ár í bróðerni. Haraldur var drengur góður. Nokkrir bændur þama í Tjarn arsókninni stofnuðu hlutafelag og keyptu sér vandaða heybindi- vél, handknúna. Ég sá sam- bvkktir þessa félagsskapar fyrir engjum, kom stundum fyrir að það „fór ofan,“ sem kallað var, þ.e. klifberinn opnaðist og bagg- amir féllu til jarðar, án þess að við tækjum eftir. Brást þá ekki, að Þór á Bakka lét vita af því, ef hann varð þess var, jafnvel þótt hann væri að heyja yfir á Bökk- um. Og þá kallaði hann með sinni þrumurödd, sem heyrðist þvert yfir dalinn. Gestur í Bakkagerði var um- boðsmaður Lestrarfélags Svarf- dæla í Tjarnarsókn. Þangað heim í Bakkagerði átti ég margar ferðir til Gests og frænku minnar elskulegrar, Sigrúnar, konu hans, til bókaskipta. Þar var hlýju að mæta og hýrlegu brosi þegar smávaxinn labba- kútur var á ferð með eitthvert kvabb. Þetta tímaskeið, sem ég hef gert hér að umræðuefni og brugð ið upp nokkrum svipmyndum frá, eru árin í kringum 1930. Skömmu eftir það varð mikið umrót á mörgum sviðum þjóð- lífs hér á landi og reyndar um allan heim. Okkar byggðarlag fór auðvitað ekki varhluta af þeim breytingum. margt hefur horfið af gömlum venjum og nýtt hefur komið í staðinn og er það eðlilegur hlutur. En stund- um hugsa ég um það hvað þaðer undarlegt að hafa orðið vitni að Sunnudagur í Syðsta-Garðshorni sumarið 1931. F.h.: Danícl Júlíusson. Júlíus Daníclsson yngri, Jóhann Daníelsson, Júliuss Daníelsson eldri og Biörn lúlíusson. (Ljósm. Kjartan Sæmundsson.) nokkrum árum. Vakti það at- öllum þessum breytingum og þá hygli mína, hve þær voru þaul- hugsaðar og vel samdar. Þegar við vorum að fara heim með heybandið á klakk neðan af um leið lifað síðasta skeið hins gamalgróna, íslenska bændaþjóð félags, sem á rætur sínar að rekja allt til landnámsaldar. Bærinn í Syðsta-Garðshorni um 1930. Svartkrítarteikning, sem greinarhöf. gerði árið 1941 eftlr Ijósm. Páls Sigurðssonar frá Göngustöðum. I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I j i i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I Hugrún: Nóttin helga Himinn er blár og heilög kyrrð á jörð hafið slétt, ó hvílík töfrasýn: Máninn því bindur gulli skreytta gjörð greypt er í flötinn, mynd er fagurt skín. Speglast í lygnu heilög himinstjama. Hvílir nú ró í hjörtum jarðarbama. Friður á jörðu, allt er undurhljótt. A augnabliki er rofin þögul kyrrð, þrungin mcetti er þessi helga nótt. Þýtur í geimnum, birtist konungshirð. Himnesk sveit, með lofsöng laugar geiminn. Lýsir stjama fögur dimman heiminn. í Beylehem varð bjart um þessa nótt, það barst að ofan fregn, ó hvílík stund: Þann englar sungu boðskap, blítt og rótt en boðin fengu hjarðmenn, út á grund. Guði sé lof: nú frelsarinn er fceddur hann fceddist eins og maður, holdi klceddur. Hann feeddist snauður, ímynd auðmýktar, en englasveitir þyrptust kringum rúmið. Jatan þrönga konungshvila var. Hversu birti, flýði nceturhúmið. Stjarnan skcera lýsir allra leiðir, leið til himins mannkyninu greiðir. NORÐURSLÓÐ - 11

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.