Norðurslóð - 15.12.1978, Page 14
Bll jpililHlM
Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923-19156
Pétur Gunnarsson
Eg UM MIG FRÁMÉRTIL MÍN
skáldsögunnl Ég um mig frá mér til mín halda persónur og
leikendur úr Punktinum áfram ferðalagi sínu gegnum lífið, og
nýir farþegar slást í hópinn. I miöju atburðarásarinnar stendur
Andri, barmafullur af komplexum kynþroskaskeiðsins —
búinn að slíta barnsskónum án þess að passa í fulloröins-
skóna — eiginlega veit hann ekki í hvorn fótinn hann á að
stíga.
Þetta er sjálfstætt framhald af hinni frægu metsölubók
Péturs, Punktur punktur komma strik, sem kom út í þremur út-
gáfum á tæpum þremur mánuðum. Eignist nýju bókina áður
en það verður um seinan.
ÍG UM MlG FRÁ MÉRTIL MÍN
PÉTUR GUNNARSSON
Ólafur Gunnarsson
MILLJÓN
PRÓSENT
MENN
Engilbert Ármannsson er stórkaupmaður,
peningafursti og milljón prósent maður
með dollaramerki í augunum og uppá-
tektasamur ýkjumaður. Kjartan er and-
stæða hans og á milli þeirra stendur
Ernir, sonur Kjartans. Hann langar til að
veróa milljón prósent, en hann langar líka
til að veróa skáld. Milljón prósent menn er
þroskasaga Ernis, en lýsir jafnframt heimi
peningamannsins á gráglettinn hátt og af
óbeislaðrl gamansemi.
Pórarinn Eldjárn
VcMceu
VUUNUUUb
„Disneyrímur eru stórviðburður, þær eru
spegill gerður úr orðum ...“
Ó.M.J. / Visir
„Ég man ekki eftir bók sem ég hef haft
eins'gaman af að lesa upphátt...“
A.l. / Dagblaðið
„Samtíminn með róttækri félagslegri út-
tekt á fjölmiölum er viðfangsefni skálds-
ins, hið nýja vín sem hellt er á gamla belgi
rímnakveðskapar... Þórarinn Eldjárn er
gamansamur í besta lagi... Disneyrímur
eru ortar af ærnum hagleik ..
Á.B. / Þjóóviljinn
Sálumessa 77
SK AII >S \C.A l*( )KSII INN
IHUISIN \NTONSSON
Þorsteinn Antonsson
Sálumessa
Þau áttu allt til alls — einbýlishús og
nýjan bíl. Maður hennar rak eigið fyrir-
tæki sem gekk vel og þau áttu tvö mann-
vænleg börn. Hvernig getur konu í þessari
aóstöðu dottiö ( hug að fyrirfara sér? Er
kannski hægt að krefjast einhvers meira
af lífinu?
Ung kona deyr um nótt í húsi í Reykjavík.
Lögreglan er kvödd á vettvang. Var þetta
slys? Ohappatilviljun? Morð? Daginn eftir
er handtekinn maður og hnepptur í gæslu-
varðhald. — En er hann sá seki?
Ská/dad i skörðin
Ási í Bæ segir frá aflaklóm og
andansmönnum
Af sinni alku'nnu frásagnargleði og góð-
látlegu kímni bregður Ási upp hverri svip-
myndinni annarri fróðlegri og skemmti-
legri af göldróttum forfeðrum, vinum,
kunningjum, furðufuglum, skáldum og
skipstjórum: Stefán Hörður Grímsson,
Steinn Steinarr, Sigurbjörn Sveinsson,
Baldvin Björnsson, Oddgeir Kristjánsson,
Árni úr Eyjum, Binni í Gröf, o.fl. o.fl. að
ógleymdum öllum yndislegu konunum
sem koma við sögu í þessari bráð-
skemmtilegu og fróðlegu bók.
Árni Elfar hefur myndskreytt bókina af
sannri virðingu fyrir efni hennar og anda.
Thor Vilhjálmsson
KJARVAL
Þessi bók er ævintýri líkust, saga eins
mesta og einkennilegasta listamanns,
sem uppi hefur verið hér á landi, í með-
ferð höfundar, sem skrifar svipmestan og
hugmyndaríkastan stíl sinnar kynslóðar.
Thor rekur sögu Kjarvals, lýsir háttum
hans og list á afar persónulegan hátt,
gerir hvert smáatriði lifandi og sögulegt,
þó að stíllinn sé yfirleitt hraðari en oft
endranær í verkum hans. Að miklu leyti er
bókin sprottin af nánum kynnum þessara
manna, löngum samtölum þeirra og ferða-
lögum saman.
Bókina prýða margar af hinum listrænu
Ijósmyndum, sem Jón Kaldal tók af
Kjarval.
BroddiJóhannesson
Of/liíur
Fjölbreytt safn persónulegra hugleiðinga
og frásagna. í öguðu, listrænu ritformi
lýkur höfundur upp hug sínum fyrir les-
anda, iðulega með því að hnita saman
veigamikil sjónarmið og dýrmæta reynslu
eða minnileg atvik. Náin tengsl við
náttúru landsins og líf þjóðarinnar, m.a.
starfshætti hennar, birtast hér með af-
brigðum vel. Öll er bókin mikilsvert fram-
lag til íslenskrar ritmenntar af skyldum
toga.
Broddi Jóhannesson
Qfil/ti/r
'<^n^nCA-.
Iðunn
14 - NORÐURSLÓÐ