Norðurslóð


Norðurslóð - 15.12.1978, Síða 14

Norðurslóð - 15.12.1978, Síða 14
 Bll jpililHlM Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923-19156 Pétur Gunnarsson Eg UM MIG FRÁMÉRTIL MÍN skáldsögunnl Ég um mig frá mér til mín halda persónur og leikendur úr Punktinum áfram ferðalagi sínu gegnum lífið, og nýir farþegar slást í hópinn. I miöju atburðarásarinnar stendur Andri, barmafullur af komplexum kynþroskaskeiðsins — búinn að slíta barnsskónum án þess að passa í fulloröins- skóna — eiginlega veit hann ekki í hvorn fótinn hann á að stíga. Þetta er sjálfstætt framhald af hinni frægu metsölubók Péturs, Punktur punktur komma strik, sem kom út í þremur út- gáfum á tæpum þremur mánuðum. Eignist nýju bókina áður en það verður um seinan. ÍG UM MlG FRÁ MÉRTIL MÍN PÉTUR GUNNARSSON Ólafur Gunnarsson MILLJÓN PRÓSENT MENN Engilbert Ármannsson er stórkaupmaður, peningafursti og milljón prósent maður með dollaramerki í augunum og uppá- tektasamur ýkjumaður. Kjartan er and- stæða hans og á milli þeirra stendur Ernir, sonur Kjartans. Hann langar til að veróa milljón prósent, en hann langar líka til að veróa skáld. Milljón prósent menn er þroskasaga Ernis, en lýsir jafnframt heimi peningamannsins á gráglettinn hátt og af óbeislaðrl gamansemi. Pórarinn Eldjárn VcMceu VUUNUUUb „Disneyrímur eru stórviðburður, þær eru spegill gerður úr orðum ...“ Ó.M.J. / Visir „Ég man ekki eftir bók sem ég hef haft eins'gaman af að lesa upphátt...“ A.l. / Dagblaðið „Samtíminn með róttækri félagslegri út- tekt á fjölmiölum er viðfangsefni skálds- ins, hið nýja vín sem hellt er á gamla belgi rímnakveðskapar... Þórarinn Eldjárn er gamansamur í besta lagi... Disneyrímur eru ortar af ærnum hagleik .. Á.B. / Þjóóviljinn Sálumessa 77 SK AII >S \C.A l*( )KSII INN IHUISIN \NTONSSON Þorsteinn Antonsson Sálumessa Þau áttu allt til alls — einbýlishús og nýjan bíl. Maður hennar rak eigið fyrir- tæki sem gekk vel og þau áttu tvö mann- vænleg börn. Hvernig getur konu í þessari aóstöðu dottiö ( hug að fyrirfara sér? Er kannski hægt að krefjast einhvers meira af lífinu? Ung kona deyr um nótt í húsi í Reykjavík. Lögreglan er kvödd á vettvang. Var þetta slys? Ohappatilviljun? Morð? Daginn eftir er handtekinn maður og hnepptur í gæslu- varðhald. — En er hann sá seki? Ská/dad i skörðin Ási í Bæ segir frá aflaklóm og andansmönnum Af sinni alku'nnu frásagnargleði og góð- látlegu kímni bregður Ási upp hverri svip- myndinni annarri fróðlegri og skemmti- legri af göldróttum forfeðrum, vinum, kunningjum, furðufuglum, skáldum og skipstjórum: Stefán Hörður Grímsson, Steinn Steinarr, Sigurbjörn Sveinsson, Baldvin Björnsson, Oddgeir Kristjánsson, Árni úr Eyjum, Binni í Gröf, o.fl. o.fl. að ógleymdum öllum yndislegu konunum sem koma við sögu í þessari bráð- skemmtilegu og fróðlegu bók. Árni Elfar hefur myndskreytt bókina af sannri virðingu fyrir efni hennar og anda. Thor Vilhjálmsson KJARVAL Þessi bók er ævintýri líkust, saga eins mesta og einkennilegasta listamanns, sem uppi hefur verið hér á landi, í með- ferð höfundar, sem skrifar svipmestan og hugmyndaríkastan stíl sinnar kynslóðar. Thor rekur sögu Kjarvals, lýsir háttum hans og list á afar persónulegan hátt, gerir hvert smáatriði lifandi og sögulegt, þó að stíllinn sé yfirleitt hraðari en oft endranær í verkum hans. Að miklu leyti er bókin sprottin af nánum kynnum þessara manna, löngum samtölum þeirra og ferða- lögum saman. Bókina prýða margar af hinum listrænu Ijósmyndum, sem Jón Kaldal tók af Kjarval. BroddiJóhannesson Of/liíur Fjölbreytt safn persónulegra hugleiðinga og frásagna. í öguðu, listrænu ritformi lýkur höfundur upp hug sínum fyrir les- anda, iðulega með því að hnita saman veigamikil sjónarmið og dýrmæta reynslu eða minnileg atvik. Náin tengsl við náttúru landsins og líf þjóðarinnar, m.a. starfshætti hennar, birtast hér með af- brigðum vel. Öll er bókin mikilsvert fram- lag til íslenskrar ritmenntar af skyldum toga. Broddi Jóhannesson Qfil/ti/r '<^n^nCA-. Iðunn 14 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.