Norðurslóð - 15.12.1978, Page 17
Heimir Kristinsson, skólastjóri:
SUNDSKÁLI SVARFDÆLA
- 50 ára í vor
25. apríl n.k. verða 50 ár
liðin síðan Sundskáli Svarf-
dæla var vígður. Gagnmerk
saga liggur að baki þessa
húss. Verður hún ekki rakin
að sinni nema í örfáum
orðum. Væntanlega gefst þó
tækifæri til að drepa nánar á
hana hér á þessum vettvangi
á næsta ári.
Það muna hafa verið um 1920
að Kristinn Jónsson (Kiddi
sund) fór til að fullnema sig í
sundi í heitu laugunum í Reykja-
vík. Hvetur hann félaga í
Ungmennafélagi Svarfdæla þá
til að kanna heitar laugar í
fjallinu við Tjarnar-Garðshorn
(Laugahlíð).
30. nóv. 1925 er samþykkt á
sameiginlegum fundi UMF
Svarfdæla og UMF Þorsteins
Svörfuðar á Bakka að ráðast í
byggingu sundskálans. Eitthvað
voru menn haltir í þeirri ákvörð-
unartöku en Vilhjálmur bóndi á
Bakka stappaði stálinu í fundar
menn og var þar samþykkt að
reisa skálann. Hann var svo
byggður á árunum 1927-1929 og
vígður það ár, á sumardaginn
fyrsta.
Sundskálinn var sjálfseignar-
stofnun á vegum ungmennafél-
aganna fram til 1966. Síðan er
hann eign skólanna á Dalvík og
Húsabakka að jöfnu.
Hvað erframundan?
I dag stendur þetta hálfrar
aldar gamla hús ennþá með
mikilli reisn og ber þeim er það
reistu fagurt vitni. Ekki bara
þeim fjölmörgu mönnum og
konum, heldur öllu fremur
þeim skörungsskap, atorku og
dugnaði sem til þurfti. En
tímans tönn er bitur og vinnur
sitt verk. Skálinn fylgir ekki
lengur kröfum tímans. Nú þarf
að honum að hyggja með tilliti til
þess.
Svarfdælir, þ.e. Svarfdæling-
ar og Dalvíkingar reistu skálann,
notuðu hann og nota enn, áttu
hann og eiga enn, og þeim ber
því skylda til að fleyta honum í
tímans straumi.
Eigendur, þ.e. sveitarstjórnir
á Dalvík og í Svarfaðardal hafa
samþykkt að varðveita beri
Sundskála Svarfdæla sem mest í
sinni upprunalegu mynd, og það
með að fyrir slíkri varðveislu
verði best séð með því að nota
hann sem baðstað er fylgi kröfum
tímans. Fulltrúar skólanefnda á
Dalvík og í Svarfaðardal, ásamt
skólastjórum skólanna, skipa
Sundskálanefnd sem sér um
rekstur og viðhald skólans.
Nefndin vinnur nú að eftirfar-
andi:
1. Að kanna með hverju móti
Skálinn verði best varðveittur og
notaður sem nútíma baðstaður.
2. Að athuga hvern kostnað
það hefur í för með sér.
3. Að safna heimildum um
sögu Skálans, svo og sundsögu
Svarfdæla.
Þessi þrjú atriði eru öll í gangi
og er þessari grein, ekki hvað
síst, ætlað að ýta við mönnum
hvað varðar síðasta töluliðinn.
Nefndin var svo heppinn að
ungur Svarfdælingur, Helgi
Már Halldórsson frá Jarðbrú
vinnur nú að stúdentsritgerð um
byggingu Sundskálans. Hann er
nemandi í Menntaskólanum á
Akureyri.
I þessu sambandi hefur miklu
af heimildum verið safnað. Nú
vil ég biðja alla þá sem einhverjar
ritaðar heimildir hafa undir
höndum varðandi sundsögu
Svarfdæla, eða vita um þær, að
láta vita af því strax. Geti
einhver bent á fundarbók bygg-
ingarnefndar skálans þá vantar
hana mjög tilfmnanlega. í nefnd
inni voru þessir a.m.k. framan
af: Helgi Símonarson, Stefán
Hallgrímsson, Kristinn Jóns-
son, Jóhann Jónsson og Björn
Jónsson (kenndur við Öldu-
hrygg).
Einnig við ég biðja þá fjöl-
mörgu sem minningar einar hafa
þessu máli tengdar að setja þær á
blað og senda Helga Má eða
Sundskálanefnd Húsabakka-
skóla, 620 Dalvík. Til vara,
látið a.m.k. vita af þeim, þannig
að festa megi þær á band eða
blað. Þetta er afar mikilvægt.
Einkanlega á ég hér við minn-
ingar frá sundpollunum gömlu,
svo og sundnámi og öðru er fram
fór í Skálanum eða við hann
fram um 1950.
Saga sundsins.
Saga sundsins hér um slóðir er
svo merkileg að einskis má látið
ófreistað að safna til hennar
öllum þeim gögnum sem tiltæk
eru. Svarfdælir lögleiddu sund-
kennslu næst fyrstir Islendinga
árið 1936 (þá eitt sveitarfélag). í
Vestmannaeyjum er hún lög-
leidd árið áður. Og Sundskálinn
er fyrsta yfirbyggða sjálfstæða
sundlaugin á landinu, og hún
ber vitni um byggingarmáta
einstæðan á þeim tíma. Þessi
saga mun verða skráð. - Spurn-
ingin er bara - hvenær?
Ég vil eindregið vara við þeirri
hugmynd að endurbætur á
sundskála Svarfdæla tefji veru-
lega byggingu fullkominnar
sundlaugar á Davlík. Því mér er
nær að halda að þær kosti ekki
meira en fáeinar „blikkbeljur“
sem við kaupum í dag. Stað-
reyndin er sú, þrátt fyrir sund-
laug á Dalvík, að hlutfall bað-
gesta á Skálanum enn þann dag í
dag er um eða yfír 90 Dalvík-
ingar af hverjum 100 á sumrin.
Það er eitthvað við það að fara í
„Skálann.“
j Þá vil ég benda á það að blikur
eru á lofti í þá átt að innan
tiltölulega fárra ára verði bæði
skólahverfin og sveitarfélögin á
Dalvik og í Svarfaðardal sam-
einuð. Sýnum liðinni og líðandi
kynslóð þá sjálfsögðu virðingu
að varðveita það besta sem hún
hefur eftir sig skilið.
Vormót 1979
Fram hefur komið sú hug-
mynd að í vor verði 50 ára
afmælisins minnst með „vor-
móti“ við Skálann á þjóðhátíðar
daginn, eins og gert var til fjölda
ára. Þessari ágætu hugmynd er
hér með komið á framfæri við þá
sem hlut eiga að máli.
Á 45 ára afmæli skálans 1974.
Kristinn Jónsson sundkennari ásamt nemendahóp við sundskálann.
Þú sem þetta lest hefur ef til
vill úrslitavald um það, hvort
Skálinn grotnar niður eða verður
sá sómi sýndur sem saga hans á
skilið. Ræddu málið við náung-
ann, ráðamennn o.fl. og sýndu
þannig áhuga þinn. Leggðu
hönd á plóginn. Það gerðu
forfeður þínir.
Sé hægt að segja að hús hafí
verið reist með orðum, þá er það
Sundskáli Svarfdæla. Hann var
reistur með orðunum ÍS-
LANDI ALLT. - Og enn erum
við íslendingar.
Húsabakka, 10. des. 1978,
Heimir Kristinsson.
Sundskálinn í vetrarskrúða.
Reikningsþrautir
1) Hér má sjá ósköp venjulegt margföldunar-
dæmi; fjögurra stafa tala hefur verið margfölduð
með þriggja stafa tölu og er útkoman sex stafa tala.
Til að auka nokkuð erfiði reikningshausanna
hefur verið lagður spilapeningur á hvern tölustaf -
hvítur spilapeningur á sléttar tölur en svartur á
oddatölur. (Núll er að sjálfsögðu talið til sléttra
talna, ef það þá kemur einhvers staðar fyrir.)
Hvaða tölustafir kæmu íljós ef spilapening-
arnir væru fjarlægðir?
Lausnin er aðeins ein og hana má finna án þess að
frekari upplýsingar séu gefnar.
* * *
2) Þrautina hér að ofan mætti kalla ófullkomið
„vofu“-dæmi en fullkomið væri „vofu“-dæmi ef
engar upplýsingar væru gefnar aðrar en hvar
tölustafir eru staðsettir. Hér kemur eitt „vofu'-
dæmi sem er ekki fullkomið því að gefið er að einn
tölustafanna sé 7. (Auðvitað er ekkert sem mælir á
móti því að 7 komi fyrir á fleiri stöðum.)
Og nú er bara að finna um hvaða tölur er að ræða.
X X
X X ) X X X X
x 7
X X
X X
* 0 *
3) Lengi var álitið að ekki væri unnt að setja upp
fullkomið „vofu“-dæmi sem unnt væri að leysa
nema í því væri brot. Svo er þó ekki. Unnt er að fá vit
í eftirfarandi kvaðratrótar-reikning. Eins og áður er
ein og aðeins ein lausn.
X X X X X
/x X X X X X X X X X
X X
X X
X X
X X X X
X X X X
X X X X
X X X X
X X X X X X
X X X X X X
V_______________________________/
NORÐURSLÓÐ - 17