Norðurslóð - 30.03.1979, Síða 1
FjaUaskáli á Tröllaskaga
í haust er leið var minnst á það
hér í blaðinu, að farið væri að
ræða um þá hugmynd að koma
upp fjallaskála, áningarstað fyr-
ir göngumenn á svonefndri
Hólamannaleið, sem liggur
milli byggða frá Hörgárdal til
Hjaltadals.
Þessi hugmynd er nú smátt og
smátt að taka á sig ákveðnara
form og gæti hugsanlega komist
í framkvæmd strax á þessu ári,
ef nægur áhugi og vilji er fyrir
hendi hér um slóðir.
Slík smáhýsi, sem hérertalað
um, eru timburhús, mjög ein-
föld að gerð, 3,5 x 5 metrar að
stærð með 6 tveggja manna
svefnkojum. Þau eru fest niður
á stóra grjótfyllta plast-vírnets-
kassa á mjög einfaldan en
traustan hátt.
Slík hús eru nú komin á
nokkrar gönguleiðir hérlendis
og a.m.k. tvö bíða fullbúin í
Reykjavík og verða svo selflutt
á sína framtíðarstaði næsta
sumar, annað að Goðahnjúk-
um austarlega í Vatnajökli, hitt
upp á Langjökul.
Ymsir aðilar, auk okkar
heimamanna, hafa áhuga á, að
slíkt sæluhús verði reist hér á
háfjöllunum ofan við Skíðadal
þ.e. á Hólamannaleið. Það eru
Ferðamálaráð, Náttúruvernd-
arráð, Ferðafélag íslands og
Jöklafélgið. Frá þessum aðil-
um, einum eða fleirum má
vænta fjárstuðnings a.m.k. til
efniskaupa í húsið svo og
„tæknilegrar aðstoðar“ við
smíðina og við að koma hús-
pörtunum á ákvörðunarstað,
líklega hangandi neðan í þyrlu.
En það gerist ekkert í málinu
nema einhver aðili hér heima
taki það upp á arma sína og
leggi því það liðsinni, sem til
þarf. I því fælist það helst að
leggja fram vinnu, t.d. nú í vetur
eða vor, við að smíða húspart-
ana og síðan, í sumar eða haust,
að fara upp á fjöllin og reisa
húsið. Áður þarf að vísu að vera
búið að velja staðinn, en það
verður væntanlega gert í skíða-
ferð um páskaleytið, ef tíðarfar
leyfir.
Eins og fram kemur í viðtali
við Gunnar Jónsson bílstjóra
hér í blaðinu, þá hefur stjórn
Ferðafélags Svarfdæla hug á að
kalla til fundar í því skyni að
endurvekja félagið til starfs og,
ef fram koma nýir kraftar og
áhugi er fyrir hendi, að taka
ákvörðun um að ganga í þetta
skálamál. Gert er ráð fyrir að
aðkomumenn að sunnan komi
á þann fund, a.m.k. fram-
kvæmdastjóri Nátturverndar-
ráðs og líkl. einhver frá Ferða-
félagi fslands, e.t.v. enn aðrir.
Þessi fundur á að geta verið
áhugaverður í besta lagi, hvað
sem líður því sérstaka máli, sem
hér hefur verið gert að umtals-
efni.
Undirritaður vill eindregið
hvetja fólk, ekki síst ungt fólk á
Dalvík og í Svarfaðardal, til að
fjölmenna á þennan væntanlega
fund, sem líklega verður boðað
til i vikunni fyrir páska, og sjá
til, hvort þetta er ekki einmitt
félagsskapur og verkefni, sem
eftirsóknarvert er að taka þátt í.
Að lokum ætla ég að leyfa
mér að birta bréf frá Heimi
Hannessyni framkvæmdastjóra
Freðamálaráðs , sem barst rétt
fyrir síðustu jól:
Hjörtur E. Þórarinsson.
Kæri Hjörtur.
Ég las mér til ánægju og fróð-
leiks grein þína í Norðurslóð
um Hólamannaleið . Hér er
áreiðanlega hreyft merku máli,
sem ég vildi gjarnan fá að fylgj-
ast með. Fram að þessu hafa
kynni mín af þessari stórbrotriu
leið einkum verið úr lofti þannig
að þau eru býsna takmörkuð!
Það hefur verið stefna nýs
Ferðamálaráðs að auka sam-
starf við áhugamannafélög um
ferðamál, náttúruvernd og
Framhald á bls. 3.
Leikarar og tæknimenn við Saumastofuna. Aftari röð f.v.: Kristjana Arn-
grímsdóttir, Dagný Kjartansdóttir, Lárus Gunnlaugsson, Svanhildur
Arnadóttir, Herborg Harðardóttir og Kristín Þorgilsdóttir. Fremri röð:
Friðrik Halldórsson, Ingólfur Jónsson, Guðný Bjarnadóttir, Kristján
Hjartarson, GUÐRÚN ALFREÐSDÓTTIR leikstjóri, Rúnar Lund, Sig-
ríður Hafstað og Helgi Þorsteinsson.
Leikfélag Dalvíkur sýnir
SAUMASTOFUNA
eftir Ragnar Kjartansson
Undanfarnar vikur hefur L.D.
verið að æfa leikritið Sauma-
stofan eftir Kjartan Ragnars-
son. Þetta verk skrifaði hann
sumarið 1975 „með umræðu
kvennaársins í huga“ eins og
segir í leikskránni. Og ennfrem-
ur, „hann semur gjarnan sjálfur
tónlist við verk sín, m.a. söng-
vana vinsælu í Saumastofunni.“
Sigga, gömul kona úr sveit .
Magga, verkstjóri á staðnum
Asa, kona að byggja........
Gunna,
fyrrverandi drykkjusjúklingur
Didda,
einstæð kona með 2 börn ..
Lilla, 18 ára stelpa og ólétt .
Siggi, forstjóri og eigandi
saumastofunnar ............
Kalli, klæðskerinn á staðnum
Himmi, sendill á staðnum,
trúlofaður Lillu ..........
Það var Leikfélag Reykjavík-
ur, sem sýndi þetta verk í Iðnó,
en fór síðan með það í leikferð
víða um land. Aðrir hafa ekki
tekið Saumastofuna til með-
ferðar fyrr en nú, að L.D. ríður
á vaðið.
Leikendur í Saumastofunni
eru 9 þ.e. 6 konur og 3 karlar, og
er hlutverkum svo skipað:
SIGRÍÐUR HAFSTAÐ
GUÐNÝ BJARNADÓTTIR
HERBORG HARÐARDÓTTIR
SVANHIÉDUR ÁRNADÓTTIR
DAGNÝ KJARTANSDÓTTIR
KRISTJANA ARNGRÍMSD.
RÚNAR LUND
HELGI ÞORSTEINSSON
KRISTJÁN HJARTARSON
Hafís á Dalvík 20. mars ’79
Landsins forni fjandi hafísinn hefur minnt okkur á sig nú að
undanförnu. Nokkrum sinnum hefur hann rekið hingað inn,
og upp á fjörur, en Iónað síðan út eftir því sem straumur
liggur og vindur blæs.
I gær var hann t.d. hér um allt, en í morgun var hann svo
horfinn út í hafsauga.
Mesta vandamálið
Einn ísaveturinn á síðasta áratug voru eins og nú miklar frétt-
ir í blöðum um ísagang hér á Dalvík, enda lágu þájakahrann-
ir í fjörum langt fram á vor.
Þá birtist í Morgunblaðinu vísa þessi tileinkuð sveitar-
stjóranum á Dalvík:
Kalt er fyrir norðan og sérhver fjörður frýs,
menn furðu lostnir horfa á klakastálið.
En hvernig fá þeir viskí í allan þennan ís?
Er það ekki helsta vandamálið?
Blaðamaður átti símtal við
leikstjórann Guðrúnu Alfreðs-
dóttur. Hún lét vel af undirbún-
ingi og æfingum leiksins. Sagði
að fólkið væri gott og áhuga-
samt og leikhúsið ágætt. Lakast
sagði hún það vera, að húsið
þarf að nota til annarra hluta
heldur en leikæfinganna. Bíó er
tvisvar eða þrisvar í viku og þá
verður leikflokkurinn að halda
sig í fjarlægð og taka burt af
senunni allt sitt dót.
En nú er æfingum senn lokið
og þá hefst alvaran. Frumsýn-
ing er nú ákveðin á föstudags-
kvöld 30 mars og síðan áfram
eins og lesa má í auglýsingu hér í
blaðinu.
Norðurslóð óskar leikfélagi
og leikurum heilla og hvetur
fólk til að sækja vel sýn-
ingarnar, því góð aðsókn er
jafnan mest uppörvun og best
verkalaun.
LJOÐAGETRAUN NORÐURSLOÐAR
Verðlaun fyrir réttar lausnir
Nú má þetta ljóðumunnandi
heiðursfólk eiga von á bókinni
Heim til þín ísland eftir Tómas
Eins og skýrt var frá í janúar-
blaðinu bárust 4 alréttar lausnir
við ljóðagetraun jólablaðs
Norðurslóðar. Lofað vartvenn-
um verðlaunum.
» Nú hefur verið dregið um
verðlaunin og komu upp nöfn
þeirra Sigrúnar Dagbjartsdótt-
ur í Seldal í Norðfirði og Frið-
jóns Kristinssonar póstaf-
greiðslumanns á Dalvík.
Fóstbræðrasjóður
Stcekkaði um helming á síðasta ári
Tíu ár eru nú liðin síðan Snorri
Sigfússon fyrrverandi námstjóri
stofnaði styrktarsjóð þann, sem
ber ofanritað nafn.
Við andlát Snorra á síðast-
liðnu ári var þeim, sem vildu
minnast hans með peningagjöf-
um, bent á þennan sjóð, sem
geymdur er í Sparisjóði Svarf-
dæla.
Það kom í ljós, að Snorri
hafði átt sér marga vini og vel-
unnara vítt um land. Strax eftir
jarðarförina fóru sparisjóðnum
að berast ávísanir til Fóst-
Guðmundsson með fyrstu póst-
ferð.
Blaðið sendir þeim kveðjur
og hamingjuóskir.
Banaslys á Dalvík
bræðrasjóðs og hélt svo áfram
langt fram eftir árinu. Sending-
arnar urðu að lokum á annað
hundrað talsins og námu í heild
rétt um kr. 700.000 - sjöhundr-
uð þúsund krónur.
Við þetta tvöfaldaðist sjóður-
inn og eru nú eignir hans, pen-
ingar og verðbréf, meira en hálf
önnur milljón krónur.
Á öðrum stað í þessu blaði
auglýsir sjóðstjórnin, sem er
skólanefnd Húsabakkaskóla,
eftir umsóknum um námsstyrki
úr sjóðnum.
Aðfaranótt 22. mars sl. skeði sá
hörmulegi atburður að 18 ára
Dalvíkingur, Jóhannes Helgi
Þóroddson, féll í höfnina og
drukknaði.
Jóhannes var sonur Þórdísar
Sigurjónsdóttur, sem nú býr á
Brimnesi.
Blaðið vottar henni og öðrum
vandamönnum Jóhannesar
heitins hluttekningu.