Norðurslóð - 30.03.1979, Page 2
Hjortur E. Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal
Jóhann Antonsson, Dalvlk
Óttarr Proppé, Dalvlk
Ljósmyndari: Rögnvaldur Sk. Friðbjörnsson
Prentun Prentsmiðja Björns Júnssonar
Námsstyrkur
Fóstbræðrasjóður, stofnaður af Snorra Sigfússyni,
auglýsir eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum á þessu
ári.
Rétt til námsstyrks hafa fyrrverandi nemendur Húsa-
bakkaskóla í Svarfaðardal, sem stunda eða hyggjast
stunda nám í búnaðar-kennslu eða samvinnufræð-
um.
Umsóknum sé komið til formanns skólanefndar Svarf-
aðardalshrepps fyrir 1. september þ.á.
SJÓÐSSTJÓRNIN.
Leikfélag Dalvíkur
auglýsir:
Frumsýning á leikritinu SAUMASTOFAN eftir Kjartan
Ragnarsson, verður í Samkomuhúsinu á Dalvíkföstu-
dagskvöldið 30. mars kl. 9.
2. sýning verður sunnudaginn 1. apríl kl. 4 e.h.
3. sýning þriðjudaginn 3. apríl kl. 9 e.h.
4. sýning föstudaginn 6. apríl kl. 9 e.h.
Miðapantanir í síma 6 13 84 sýningardagana milli kl.
2 og 5 e.h.
LEIKFÉLAGIÐ.
Auglýsing
Af marg gefnu tilefni vil ég minna á fastan símavið-
talstíma minn kl. 9-10 á morgnana virka daga og kl.
11-12 helga daga. Eru bændur hvattir til að hringja á
þessum tíma, verði því við komið. Það sparar bæði fé
og fyrirhöfn.
Ármann Gunnarsson,
héraðsdýralæknir.
Orgel til sölu
Af sérstökum ástæðum er til sölu nýlegt, sex-radda
Köhler orgel.
Upplýsingar gefur formaður sóknarnefndar Tjarnar-
kirkju, Sigríður Hafstað, Tjörn.
Lausar stöður
Tvær stöður á skrifstofu bæjarins eru lausar til um-
sóknar.
Upplýsingar veita bæjarritari og undirritaður.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl n.k.
Bæjarstjóri.
Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig
á 65 ára afmæli mínu.
sr. STEFÁN SNÆVARR.
Að afloknum deildarfundi
KEA á Dalvík sl. mánudag
Fundur í Dalvíkurdeild var
haldinn sl. mánudagskvöld.
Fundarsókn var ekki mikil ef
miðað erviðfjöldafélagsmanna
eðaum 10%þeirra. Áfundinum
komu fram upplýsingar frá úti-
bússtjóra um rekstur útibúsins,
sem gefa visbendingu um
hvernig til hefur tekist á síðast-
liðnu ári. Eins og alltaf hefur
komið á daginn voru ekki veitt-
ar tæmandi upplýsingar um
gang mála og því borið við að
ekki sé heimilt að birta niður-
stöðutölur um rekstursafkomu
fyrir aðalfund.
Undirrituðum hefur aldrei
verið ljóst á bak við hvaða grein
í samþykktum Kaupfélags Ey-
firðinga forráðamenn félagsins
skjóta sér þegar þeir fullyrða að
ekki megi fara nánar út í reikn-
inga útibúsins en gert er á
fundum þessum.
Umræður á fundinum voru
all nokkrar bæði um samvinnu-
hreyfinguna almennt og starf-
semi hennar hér á Dalvík. Án
þess að gert sé lítið úr hæfni
starfsmanna útibúsins til að
vera í forsvari fyrir framkvæmd
samvinnustarfs, þótti mér
undarlegt, að enginn þeirra,
sem gegna æðstu trúnaðarstöð-
um hjá Kaupfélagi Eyfirðinga,
var þar. í annan tíma er svo
brýnt fyrir okkur hér á Dalvík
hversu mikilsvert það er að vera
þátttakandi í hinni stóru félags-
heild sem Kaupfélag Eyfirðinga
er.
Ég ætla mér ekki að setjast í
dómarasæti um það hvernig til
hefur tekist um rekstur útibús-
ins á síðast liðnu ári, enda er
það spurning hverja möguleika
félagsheildin býður upp á að líta
á samvinnustarf hér á Dalvík út
af fyrir sig. Þó útibúið hér sé
stór atvinnurekandi á ýmsum
sviðum snertir verslunarrekstur
þess þó meir íbúa svæðisins, en
önnur starfsemi.
Þrátt fyrir að verslun hefur
aukist mjög verulega á síðustu
áratugum hefur verslunarhús-
næði frekar minnkað að fer-
metratölu en hitt. Eðlilegt er því
að draga þá ályktun að versl-
unarþjónusta hafi minnkað.
Verslum við nú hlutfallslega
meira utan heimabyggðar en
við gerðum áður? Erum við að
þjóna kröfunni um að líta á
Kaupfélag Eyfirðinga sem stóra
heild, sem hefur sína miðstöð á
Akureyri?
Ég hef sett nokkur spurning-
amerki hér að framan, sem ég
iviðurkenni að eru óþörf. I
| spurningunum felst viss fullyrð-
ing og sakargift, sem ég vil
kenna misheppnuðu innkaups-
kerfi útibúsins ogófullnægjandi
húsakosti.
Deildarstjórn hér á Dalvík,
sem kosin er af félagsmönnum,
gegnir að því leiti sérstöðu
miðað við aðrar slíkar að leitað
er álits hennar um rekstur
útibúsins, og samkvæmt upp-
lýsingum sem gefnar vorú á
fundinum hafa ábendingar
hennar verið ráðgefandi í
mörgum tilfellum. Því er mikil-
vægt að raddir frá félagsmönn-
um komi inn á fundi deildar-
stjórnar og þá sérstaklega radd-
ir þeirra, sem sækja þjónustu til
verslunarinnar.
Það er e.t.v. kaldhæðni tíðar-
andans, sem gerir það að verk-
um að gleðilegasta við um-
ræddan fund var að húsmóðir
var nú í fyrsta sinn kosin ídeild-
arstjórn. En tíðarandinn er sá
að konur sjá um innkaup til
heimilis mun meira en karl-
menn. Kosning Brynju Gretars-
dóttur í deildarstjórn er von-
andi vísbending um meiri hlut-
deild hins almenna neytanda í
Undirritaður vill mega gera
lítilsháttar athugasemdir við
ofanritaða grein J. A.
Það er réttmætt að gagnrýna
fjarveru forsvarsmanna kaup-
félagsins frá fundinum. Hún var
að vísu ekki af ásettu ráði gerð,
heldur fyrir sérstaka, brýna þörf
kaupfélagsstjóra og formanns
stjórnar til að vera á sama tíma
á öðrum fundum annarstaðar -
vel að merkja vegna málefna
samvinnuhreyfingarinnar.
Eigi að síður er þetta óheppi-
legt mjög og má ekki endurtaka
sig, enda þótt nærvera forsvars-
manna útibúsins eigi að tryggja
það að unnt sé að spyrja og
ræða um alla hugsanlega hluti,
sem því við koma sérstaklega.
Ekki verður á það fallist, að
verslunarþjónusta hafi minnk-
að. Á sumum sviðum hefur hún
batnað á síðustu árum og um-
setning hefur aukist ár frá ári. Á
hinn bóginn verður því alls ekki
mótmælt að verslúnaraðstaðan
er hvergi nærri ákjósanleg og
svarar ekki kröfum tímans.
Umræða um nýtt húsnæði fyrir
verslunina er því tímabær, enda
er hún þegar hafin meðal starfs-
manna útibúsins og deildar-
stjórna og án efa einnig meðal
almennings í bæ og byggð. það
er því leyfilegt að vænta þess að
innan fárra ára verði komin upp
nýtískuleg verslunaraðstaða hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga á Dalvík.
Annað mál er það, að verslun
„utan heimabyggðar“ mun ekki
starfi og rekstri útibúsins og þá
sérstaklega uppbyggingu versl-
unarinnar.
Þegar minnst er á kosningu
innan samvinnuhreyfingarinn-
ar er það ekki að ástæðulausu
að maður hugleiðir hverja þær
snerta. Stundum virðist sem
innan samvinnuhreyfingarinn-
ar sé einhver félagsskapur sem
gæti heitið „eigendafélag sam-
vinnuhreyfingarinnar". Ég er
ekki frá því að þjóðfélagið hafi
eitt sinn leyft slíkt „eignar-
hald“ og e.t.v. gert það nauð-
synlegt, en mér er það meira en
til efs að slík eignarhalds hug-
sjón, sprottin af flokkspólitískri
þörf, eigi nú rétt á sér.
Kosning Brynju nú er undan-
tekning frá þessari reglu
tekning frá þessari reglu.
Kannski gerir þessi undantekn-
ing ekkert annað en sanna regl-
una.
Jóhann Antonsson.
stöðvast þar fyrir, þvert á móti
er alveg viðbúið að hún aukist í
réttu hlutfalli við bættar sam-
göngur við Akureyri og mun
betur „heppnað innkaupskerfi"
varla stöðva þá þróun.
Hugleiðingar J. A. um „eig-
endafélag samvinnuhreyfingar-
innar“ eru nokkuð myrkar og
óljósar. Þó þykist ég vita hvað
hann er að fara og get ekki sagt,
að ég sé honum mjög ósam-
mála. Ég hef oft haldið þvífram
sjálfur að nauðsynlegt og rétt sé
að breikkahinnfélags-ogstjórn
málalega grunn samvinnuhreyf-
ingarinnar.
Það vill nú svo til að einmitt
morguninn eftir deildarfund
K.E.A. á Dalvík sat ég suður í
Reykjavík á fundi manna úr
samvinnuhreyfingunni með
nokkrum forvígismönnum
launþegasamtakanna, bæði frá
A.S.Í. og B.S.R.B.
Fundurinn var liður í mark-
vissu starfi, sem miðar að því að
auka og bæta samstarf þessara
eðlisskyldu fjöldasamtaka
þ.á.m. í stjórnum kaupfélaga.
Það er ákveðin von þeirra,
sem þessa fundi sitja, að þeir
leiði brátt til umtalsverðra og
góðra tíðinda á þessum vett-
vangi.
Hjörtur E. Þórarinsson.
Auðvitað var það
ekki plastdúkur
í frásögn af íkviknun í Valla-
kirkju í síðasta tölublaði reynd-
ist vera um grófan misskilning
að ræða, sem sjálfsagt er að
leiðrétta. Sagt var, að undir
olíuofninum hefði verið plast-
dúkur sem eldur komst í. Þetta
var ekki rétt, því undir ofninum
var stór blikkplata og undir
henni asbestplata. Olían hafði
hinsvegar runnið út af plötunni
og eldur komist í hana og lesið
sig áfram út í nælonteppið, sem
á kirkjugólfinu var.
En sem sagt, eldurinn kulnaði
af sjálfu sér, þó að spjöll yrðu
mikil af völdum sóts. Það er
huggun harmi gegn, að náðst
hefur viðunandi samkomulag
við viðkomandi tryggingarfélag
um tjónbætur, svo fjárhagslega
sleppur söfnuðurinn þolanlega
frá þessari uppákomu.
Biðst undirritaður frétta-
maður velvirðingar á missögn
þessari.
Frá dvalarheimili aldraðra
Dalvík
Þeir sem hug hafa á að fá vist á heimilinu þegar rekst-
ur þess hefst eru beðnir að skila umsóknum fyrir 7.
apríl n.k.
Vegna þess hve langt er um liðið frá því margir létu
skrá sig er þess óskað að einnig þeir, sem áður hafa
verið skráðir, endurnýi umsóknir sínar fyrir áður-
nefndan tíma.
Nánari upplýsingar veita formaður stjórnar dvalar-
heimilisins Óskar Jónsson og Valdimar Bragason
bæjarstjóri.
Stjórn dvalarheimilis aldraðra á Dalvík.
Svar í stuttu máli
H.E.Þ.