Norðurslóð - 26.10.1979, Page 3

Norðurslóð - 26.10.1979, Page 3
Blessuð rjúpan hvíta Framhald af forsíðu farið er að skjóta í jólamatinn. Það gera líka flestir sem betur fer, en undantekningarnar eru samt býsna margar. Alkunna er það, að rjúpum þykir gott að dvelja í skóglendi bæði til fæðuöflunar (trjábrum) og í verndarskyni gegn fálka. Nokkrir skógarlundir eru hér í sveit, sumir við alfaraveg. Þangað safnast oft rjúpur og finnst þær víst sérstaklega óhultar þar. Dæmi eru þess að gráðugir veiðimenn hafa laum- ast inn í þessa reyti og skotið rjúpur. Um þetta eru skjalfest dæmi að því er varðar bæði Hánefsstaðareytinn og Gróðr- arrevtinn á Holtsmóunum. Þetta og þvílíkt háttarlag hefur alltaf Jjótt heldur löður- mannlegt á Islandi a.m.k. síðan Jónas kvað um „gæðakonuna" sem sneri úr hálsliðnum rjúp- una, sem kastaði sér í kjöltu hennar forðum daga í dalnum. H.E.Þ. Skriðjökultunga Gljúfurárjökuls í Skíðadal. Þar hafa breskir stúdentar unnið að mælingum mörg undanfarin ár. Ljósmynd: C. Caseldine. Kökubasarnefnd Slysavarnafélags Dalvíkur. Víst eru þær margar gómsætar .... kökurnar. Bréf til blaðsins LOÐDÝRASPJALL Heiðruðu ritstjórar: Á síðastliðnum vetri sendi ég Norðurslóð nokkra vísnabotna og fyrriparta í tilefni óska blaðsins til kaupenda um fram- lag efnis á vettvangi bundins máls. Þar sem blaðið spyr: „Liggur ekki einhverjum les- endum eitthvað á hjarta?“ datt mér undirritaðri í hug eftirfar- andi: Blaðinu sendi ég örfá orð og ætlast tii náð ég finni. Hef ég hvorki séð haus nésporð af hugans framleiðslu minni. f Noregi er refarækt í miklum uppgangi. Hafa risið upp refa- bú, stærri og smærri, hundruð- um samán. Til eru þeir refa- ræktarmenn, sem hafa mikinn hug á kynbótum og hafa sumir ræktað upp ný litarafbrigði. En sú braut er ekki alltaf dans á rósum. Hér er dæmi. Maður heitir Sigmund Kyl- land og hefur gamalt og gott refabú. Eftir langt kynbótastarf hefur honum heppnast að fram- leiða sérstaklega fallegt og eftirsóknarvert afbrigði af blá ref. Hann skírði það upp á ensku Blue Star, þ.e. blástjarna. Nú í haust varð Sigmundur bóndi fvrir þeirri fáheyrðu Refsingu þykist ég enga þurfa að meðtaka, þar sem ég borga minn brúsa með kurt og pí. Kær kveðja til Norðurslóðar frá Filippíu Kristjánsdóttur. Hörmulegt er til þess að vita þegar tilskrif frá áhugasömum lesendum týnast eða lenda í glatkistunni, hvar sem sökin liggur. Það er ekkert um annað að gera en biðjast afsökunar. hrellingu að einhverjir ókval- ráðir kollegar í faginu, innlendir eða útlendir, læddust inn í refabúið að næturþeli og laum- uðust á brott með 5 kynbóta- hvolpa af Blástjörnukyninu. Út af þessu er uppi fótur og fit um Noreg allan og vakti málið álíka mikla athygli almennings og tók pláss í blöðum eins og sveitastjórnakosningarnar, sem fram fóru um sama leyti. Sigmundur bóndi hefur heitið verðlaunum, ca. 2 milljónum króna, hverjum þeim, sem upplýst geti þjófnaðinn. Sannar þetta hið fornkveðna, að fleiri eru refir en refirnir. sem sýna aukið gammaglóbul- inmagn í blóðinu er lógað, þar sem það er merki um veikina. Fundin hefur verið upp ný aðferð við að greina veikina og hafa verið keypt rannsóknar- tæki að Keldum í þessu skyni. Gefur þessi nýja aðferð von um að hægt sé að komast fyrir vírusinn eftir nokkur ár. Vírus- inn er eingöngu bundinn við mink, og eru öll önnur dýr jafnvel loðdýr ónæm fyrir hon- um. Nú eru þeir að fara af stað með ein 4 refabú fyrir handan ijörð. Eru nokkrar hugmyndir í gangi um refarækt hér t.d. í sambandi við þá fóðurgerðar- aðstöðu, sem hér er fyrir hendi? Fyrr í sumar var ákveðið að heimila innflutning á bláref til landsins, og var sú ákvörðun tekin af Steingrími Hermanns- syni þáverandi landbúnaðar- ráðherra, í samráði við 4ra manna nefnd sem hann skipaði. öll forsaga málsins og fram- gangur var slíkur að keyrði um þverbak í klíkuskap og vitleysu. Gæti ég fyllt heila síðu í blaðinu af gagnrýni á viðkomandi ráðuneyti, en þar sem mesta loftið er farið úr mér varðandi þetta, kýs ég að segja sem minnst. Á Svalbarðsströnd verður veitt 100 milljónum af opinberu fé í þetta, en er ég sótti um leyfi til innflutnings á bláref með það fyrir augum að fjár- magna hlutina sjálfur, var mér synjað. Benti ég ráðuneytinu á ófuilkomna aðstöðu fyrir hand- an, auk annars, sem mér þótti rétt að kæmi fram. Útkoman úr því varð sú að heitið var nieira Qármagni til þeirra til bættrar aðstöðu. Ég tel að refarækt eigi fullan rétt á sér hér á landi, ekki síst í tengslum við minkabú. Þó má segja að nú sé ekki besti tíminn til að hefja refarækt, þar sem skinnaverð er i hámarki. Hafa refabændur reiknað með lækkuðu skinnaverði nú í nokk- urn tíma og án efa er stutt í það. Mikil framleiðsluaukning hefur átt sér stað síðustu ár og má geta þess að t.d. i Finnlandi hafa verið stofnuð 600 refabú í sumar. Þá eru lífdýr einnig á uppsprengdu verði nú, en tekjur búsins fara ekki að koma að fullu inn fyrr en eftir 2 ár. Þrátt fyrir óánægju mina með valda- hrokann í Reykjavík, langaði mig til að segja það að ég óska þeim fyrir handan alls hins besta í framtíðinni og vona .að sjálfsögðu að þetta gangi vel. Hér kemur samviskuspum- ing. Vitið þið til að þið hafið misst út einhver dýr? Ég býst við, að þú hafir ekki reiknað með fullyrtu svari við þessari spurningu, enda er erfitt að sverja slíkt af sér. Nú mesta hættan á að minkur sleppi laus er þegar unnið er að einhverjum framkvæmdum við búið, en minni við daglegan rekstur þess. Ef grunur leikur á að minkur Sú nýbreytni hefur verið tekin upp hjá véladeild verkstæðisins, að fengið hefur verið efni og búnaður til sérhæfðra viðgerða frá fyrirtækinu CASTOLIN. Fyrirtæki þetta, sem starfar í mörgum löndum, framleiðir viðgerðasuðuefni í mismunandi formi t.d. rafsuðuvír, logsuðu- vír og málmduft. Castolin hefur með umfangsmiklum rannsókn um tekist að framleiða efni, sem notað er til að gera við slitna eða skemmda vélarhluta og marg- falda líftíma þeirra. ístækni h/f í Reykjavík hefur gerst umboðsaðili fyrir Castolin á íslandi. Markmiðið er að byggja upp þjónustukeðju um alla helstu byggðakjarna í land- inu og er Bílaverkstæði Dalvík- ur einn hlekkurinn í þeirri keðju. Með þessum tækjabún- aði er hægt að framkvæma Framhald af baksíðu. hafi sloppið úr minkabúi, ber samkvæmt lögum, eiganda þess að tilkynna það til veiðistjóra. Ef um algert gáleysi er að ræða hjá viðkomandi, eða tilkynning vanrækt, má sekta eiganda búsins um 2000-20000,- krónur. Og að lokum. Er gaman að fást við þennan atvinnurekstur? Já, tvímælalaust. Það er sífellt hægt að bæta stærð, gæði og lit skinnana og ná aukinni frjósemi og betri hagræðingu, og meðan svo er, er þetta spennandi og skemmtilegt starf. Norðurslóð þakkar Þorsteini góð og greið svör. ýmsar viðgerðir svo sem spraut- un á öxlum, sem skemmst hafa undan legum eða pakkdósum og uppbygging tannhjóla ef tennur hafa brotnað eða aflag- ast. Ennfremur viðgerðir á vélablokkum, aðsogsgreinum, fjaðrablöðum ofl. ofl. Það er von forráðamanna verkstæðisins að þessi nýja tækni eigi eftir að spara við- skiptavinum til sjávar og sveita mikla peninga í varahlutum og stytta viðgerðatíma, sem oft er ekki minni sparnaður. Þá skal þess getið að fram- undan eru frekari kaup á tækjum og búnaði, sem miða að bættri þjónustu verkstæðisins á fleiri sviðum. Jafnframt er far- ið að huga að byggingu yfir véladeild fyrirtækisins. Ofanskráðar upplýsingar fékk blaðiðhjá verkstæðisstjóra Anton Angantýssyni. NORÐURSLÓÐ - 3 Norskur refsháttur Nýjung í þjónustu Bílaverkstæðis Dalvíkur Kastið ekhi slitnum öxli eða brotnu hjóli

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.