Norðurslóð - 26.10.1979, Side 4

Norðurslóð - 26.10.1979, Side 4
---------------- . ---------------------------------------N Áskriftarreitur v» Herferð Teikning: Stefán Björnsson. LOÐDYRASPJALL Rœtt við Þorstein Aðalsteinsson minkabónda á Böggvisstöðum Nú á haustdögum er að venju mikið skrafað og skeggrætt um afurðir og afkomu bænda. Eru menn þá einkum með hugann við haustafurðir sauðijár eins og eðlilegt er á þessum tíma. En fleira er matur en íeitt ket, eins og þar segir. Á Böggvis- stöðum er stærsta minkabú landsins. Það telst líka til landbúnaðar og það er enginn hokurbúskapur, sem þar er rekinn. Þetta skýrist best með örlitl- um samanburði. Bráðlega fer „sláturtíð" í hönd á Böggvis- stöðum og verður þá lógað um það bil 10.000 minkahvolpum. Talið er að meðalskinnaverð á Lundúnamarkaði í vetur geti orðið i kringum íslenskar kr. 15.000. Þetta þýðir brúttósölu- verðmæti upp á einar 150 milljónir króna. Til samanburðar er svo vísi- tölubú samkvæmt verðlags- grundvelli í september í haust, en þar er gert ráð fyrir heildar tekjum röskl. 15 millj. Sem sagt það er rekið tífalt visitölu- bú á gömlu Böggvisstöðum, sem ekki telst þó lengur til lögbýla. Fréttamaður lagði leið sína upp að minkabúinu á dögun- um. Það var erfitt að komast Tímamót Þann 25. október varð Sigtryggur Jóhannesson í Göngu- staðakoti 70 ára. Þann 8. nóvember verður Sigvaldi Gunnlaugsson í Hofsárkoti 70 ára. Þann 8. október andaðist Stefán Rögnvaldsson í Brúarlandi á Dalvík. Stefán fæddist á Skeggstöðum 4. sept. 1889 og var því liðlega níræður er hann lést. Hann hóf búskap á Skeggstöðum árið 1914 og bjó í 7 ár, en fluttist þá í Fell (sem var býli í landi Hóls á Upsaströnd). Upp úr 1930 byggði hann húsið Brúarland á Dalvík og átti þar heima til æviloka. Á Dalvík stundaði Stefán sjómennsku fram á efri ár. Hann var mikill dúgnaðar og áhugamaður að hverju sem hann gekk og naut almennra vinsælda sinna samferðamanna. Kona hans var Rannveig Jónsdóttir frá Skúfsstöðum í Hjaltadal. Hún lést árið 1964. þangað fyrir vegarspjöllum, sem stafa af hitaveitufram- kvæmdum, og þegar heim var komið blöstu við vinnupallar utan um fóður- og vinnsluhús- ið, því múrhúðun hefur staðið yfir. Forstjóri búsins, Þorsteinn Aðalsteinsson, var þar að starfi. Hann gaf sér þó tíma til að rabba svolítið um reksturinn og svara spurningum fréttamanns. Þegar maður lítur hingað uppeftir frá veginum, sér maður oft fjölda bíla standa hér við húsin. Eru einhverjar fram- kvæmdir í gangi eða er svona margt starfsfólk vinnandi hérna? Jú, við höfum verið að múra fóðurstöðina í sumar, og nú erum við að byrja að múra og innrétta fyrir bætta aðstöðu starfsfólks hér, auk þess sem meiningin er að koma upp skrifstofuaðstöðu í einhverri mynd. Þá erum við búnir að fá hitaveitu að búinu, þannig að nú þarf að koma henni í gagnið sem er ærið verk. Einnig ætlum við ef tími vinnst til að breyta aðstöðu til skínnaverkunar, til aukninnar hagræðingar. Að jafnaði vinna hjá mér 7-10 manns, en eins og er vantar mig starfsfólk. Hvað er bústofninn mikill um þessar mundir. Ertu kannske í stækkunarhugleiðingum? Á búinu eru nú um 3000 eldislæður, og héf ég mikinn áhuga á stækkun þess, en ég tel að heppileg rekstrareining sé 3- 5000 læður. Framkvæmdir bús- ins sl. 3 ár hef ég greitt af rekstri þess. Þá á ég byggingarefni í næsta áfanga búsins, en lána- sjóðir, sem yfir þennan atvinnu- rekstur heyra, hafa ekki sinnt sinu hlutverki sl. ár, þannig að það setur manni stólinn fyrir dyrnar að mörgu leyti. Hvernig gengur svo búskap- urinn. Eru bjartar horfur með rekstur minkabúa á Islandi? Búskapurinn gengur bara nokkuð vel, og gotið i sumar kom þokkalega út, en þó er nokkuð í land með að hlutirnir séu eins og ég teldi æskilegast og erum við hér sífellt að vinna að betri hagræðingu á búinu. Horfurnar eru góðar, mundi ég segja, og áætlað er að skinna- verð haldist stöðugt. Þá höfum við ódýrt og gott hráefni í fóðrið handa dýrunum. Þó er það alveg ljóst, að ekki verður neinn uppgangur í þessari atvinnu- grein ef ráðamenn setja alltaf „kíkinn á blinda augað“ þegar til þeirra er leitað. Hver eru helstu vandamálin, sem þið hafið við að stríða? Eins og í öðrum rekstri höfum við ýmis vandamál og óleyst verkefni við að glíma. Þó má segja að aðalvandamál minkaræktar í heiminum i dag sé vírussjúkdómur sem veldur aleution veiki í mink. Sjúk- dómurinn veldur lélegri frjó- semi sýkta dýra, verri þrifum þeirra og meiri dýradauða en ef um heilbrigðan mink er að ræða. Við tökum blóðsýni tvisvar á vetri, úr öllum dýrum, sem ætluð eru til ásetnings, en þau Framhald á bls. 3. orkusóun ,,01ían“ sem streymir upp úr jörðinni á Hamri, er nú farin að verma hús strjálbýlinganna báðumegin Dalvíkurbæjar. Er ástæða til að samgleðjast því fólki, sem nú hefur hreppt það eftirsótta hnoss, sem hitaveita er. Hinsvegar verður fólkið í dalnum enn um sinn að gera sér að góðu aðra og lakari kosti þ.e. rafmagn en þó fyrst og fremst venjulega olíu frá Svartahafinu til upphitunar húsa sinna. Nú er að undirlagi hrepps- nefndanna í Svarfaðardals- og Árskógshreppi hafin friðsamleg herferð til að koma í veg fyrir óþarfa eyðslu og kostnað í sambandi við olíukyndingu húsa. Á síðastliðnu vori fór Sigursveinn Friðriksson frá Hánefsstöðum á námskeið í Reykjavík, sem haldið var á vegum Iðnaðarráðuneytis til að kenn mönnum að stilla olíu- kynditæki í því skyni að nýta betur orkuna í olíunni. Ofan- nefndir hreppar keyptu í sam- einingu mælitæki, sem Sigur- sveinn notar við starf sitt. Blaðið átti tal við Sigursvein, en hann byrjaði að ferðast milli bæja fyrr í haust og er nú aftur að fara af stað í eftirlitsferð eftir nokkurt uppihald. Hann er nú búinn að heimsækja alla þá, sem nota olíukyndingu, frá Dalvík og fram í Hreiðars- staðakot. Sigursveinn kvað kyndingu yfirleitt alstaðar vera ábóta- vant. Sótmyndun er allt of mikil, en það þýðir að bruni er ófullkominn og þar með nýting olíunnar. Ennfremur sest sótið innan í ketilinn og myndar einangrun, sem að auki rýrir hitunaráhrifin. Tæki þau sem notuð eru í þessu sambandi mæla bæði hitastig í katlinum, súgstyrk og magn koltvísýrings í útblæstr- inum. Mælingar á þessum þátt- um gefa vísbendingu um ástand kerfisins og er oftast hægt að ráða bót á göllunum með stillingu kynditækjanna. Stund- um er það þó reykháfurinn sem gallaður er og þarf þá að taka hann til bæna. Enginn vafi er á því að þessi viðleitni til orkusparnaðar er allrar virðingar verð ekki síst á þessum síðustu og verstu tímum rándýrrar Rússaolíu. MÉR ER SPURN? Norðurslóð leitar svara Til mun vera í eigu Búnaðarfé- lags Svarfdæla gamla Internat- ional dráttarvélin, sem félagið keypti árið 1930 og var fyrsta dráttarvél í svarfdælskri eign. Eftir að hætt var að nota vélina var hún lengi geymd á Bílaverkstæði Dalvíkur, en síð- an var hún tekin þaðan og fiutl fram í sveit. Vélar sem þessi eru nú orðnar eftirsóttir safngripir. Nú spyrjum við: Hvar er vélin niðurkomin nú og hvað hyggst Búnaðarfélag Svarfdæla gera við hana? Jósavin Helgason, formaður Búnaðarfl. Svarfdæla svarar stutt og laggott: Vélin erstaðsett í ölduhrygg. Búnaðarfélag Svarfdæla hyggst varðveita hana sem minjagrip. P.S. Þetta ernúgottsvolangt sem það nær. Þá er bara eftir að vita hvar og hvernig félagið hveest varðveita erÍDÍnn.

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.