Norðurslóð - 21.11.1979, Blaðsíða 3
Árný og Frímann
Líf og list í Sunnuhlíð á Dalvik
í húsinu númer 11 við Bjarkar-
braut búa þau Árný Þorleifs-
dóttir og Frímann Sigurðsson.
Þetta vita flestir Dalvíkingar,
því þau hjónin eru kunnir
borgarar og engir nýgræðingar
á staðnum, því hann hefur búið
þar í 60 ár og hún í 50. Aftur á
móti vita það kannske ekki allir,
að hús þetta heitir réttu nafni
Sunnuhlíð, en það byggðu þau
hjóninárið 1947-8 ogvarþað þá
í útjaðri þorpsins. Nú 30 árum
Eiðum og þar var ég í tvo vetur
þ.e. 1922-24. Á Eiðum kynntist
ég ungum Dalvíking, Frímanni
nokkrum Sigurðssyni, sem var í
skólanum fyrri veturinn minn
þar. Hann var áfram á Eiðum
sumarið 1922 sem vinnumaður
hjá skólastjóranum sr. Ásmundi
Guðmundssyni (síðar biskup),
sem rak búskap á jörðinni.“
Þarna urðu sem sagt hin
örlagaríku fyrstu kynni, en þau
Árný og Frímann voru samt
Árný og Frímann og lamparnir fögru.
síðar, lætur nærri að það sé í
miðju kaupstaðarins, svo ör er
vöxtur byggðarinnar.
Það hefur fréttst, að þessir
kunnu og virtu borgarar hyggi á
brottflutning héðan með vor-
inu. M.a. af þeim sökum
labbaði blaðamaður sér heim til
þeirra einn dag í fyrstu snjóum,
fékk hlýlegar móttökur og leyfi
til að setja niður á blað
brotabrot af sögu þeirra og sýsli
í fortíð og nútíð.
Frímann er Svarfdælingur í
húð og hár, yngsta barn þeirra
Kóngsstaðahjóna Sigurðar
Jónssonar og Margrétar Péturs-
dóttur, fæddur árið 1902. Ekki
verður hér greint frá uppvaxtar-
árum hans í Skíðadalnum, þess
aðeins getið að barnaskóla sótti
hann að Þverá og var kennarinn
Tryggvi Kristinsson, sem jafn-
framt var kennari á Dalvík, en
hafði útibú í Skíðadal.
Fyrsta heimanför hans var
farin í Ytra-Hvarf, þar sem
hann var vinnumaður hjá
Tryggva bónda 1917-18 þ.e.a.s.
frostaveturinn mikla og lengur.
Til Dalvíkur flutti svo fjöl-
skyldan 1920 og settist fyrst að
„upp á lofti í Sogni“ þ.e.a.s.
húsi því, sem síðar varð versl-
unarhús Kaupfélagsins og allir
eldri menn muna eftir. Þröngt
mun þar hafa verið á þingi, því
þau Klængshólshjón Stefanía
og Óskar, sem líka fluttu til
Dalvíkur þetta ár, fengu sömu-
leiðis inni þarna á Sognsloftinu.
Þetta þröngbýli varaði þó
ekki lengi, því strax 1921 byggði
Sigurður og fjölskyldan sér
eigið hús Tungu, sem enn
stendur norðan við Lágina.
En hvar og hvernig kom Árný
inn í söguna?
„Ég_ er nú Skagfirðingur,“
segir Árný, „fædd árið 1901 og
uppalin á Sólheimum í Sæmund
arhlíð. Rösklega tvítug ákvað
ég að fara að sjá mig um í
heiminum og afla mér mennt-
unar. Sérstaklega hafði ég löng-
un til að læra handavinnu og
aðrar „kvenlegar dyggðir,“ eins
og þá var siður. Það varð ofan
á, að ég færi á alþýðuskólann á
ekkert að flýta sér í það heilaga,
þvi það var ekki fyrr en 1931 að
þetta gamla Eiðasamband leiddi
til brúðkaups og hjónabands,
sem síðan hefur enst og vel
dugað. „Svo við vorum svo sem
engir unglingar, þegar við hóf-
um búskapinn“ með orðum
Frímanns.
Hvað varstu að sýsla, Frímann,
árin eftir Eiðadvölina?
Það var nú ýmislegt, en þetta
voru heldur mögur ár og ekki
margir möguleikar til athafna
hér í plássinu. Ég fór að reyna
mig við smáútgerð. Við Guð-
laugur bróðir minn keyptum í
sameiningu lítinn mótorbát
1926. Hann nefndist Agða. Við
gerðum hann út í tvö sumur. Þá
urðum við fyrir því óhappi að
bátinn sleit upp hérna á legunni
í suðvestan roki. Hann rak yfirí
Hrísey og brotnaði i spón. Það
lakasta var að fyrir tilviljun var
hann ekki í tryggingu þegar
þetta gerðist. Það var ekki fyrr
en seinna að föst regla komst á
þessi tryggingamál. Svo þarna
stóð maður uppi tómhentur,
algjörlega eignalaus. Samt var
maður ekki alveg að baki
dottinn og skömmu síðar kom-
umst við Helgi bróðir minn yfir
annan bát, Þórólf, og gerðum
hann út um skeið. En annars
varð útgerðarsaga mín hvorki
löng né merkileg, svo best er að
orðlengja ekki frekar um hana.
Aðrir hlutir voru mér hugstæð-
ari en sjómennska.“
Þú hefur einkum verið bendlað-
ur við smíðar og verslunarstörf?
„Já ég var ekki gamall þegar
ég gerði mér grein fyrir því að ég
var náttúraður fyrir smíðar. Ég
átti ekki langt að sækja það, því
að faðir minn var handlaginn í
besta lagi og fékkst mikið við
smíðar. Fræg var hagldasmíði
hans, sem hann stundaði mikið.
Bændur sendu honum hálffulla
poka með hrútshornum sem
hann svo smíðaði hagldirnar úr.
Hann var líka eftirsóttur vegg-
hleðslumaður og vann mikið
með Ólafi barnakennara að
þeim störfum.
Hjá pabba lærði eg að
meðhöndla smíðatólin. Á fyrstu
Dalvíkurárum mínum fékkst ég
mikið við smíðavinnu. Á vet-
urna var nú sáralítið að gera hér
og þá var nógur tími til að
dunda sér við þessháttar störf.
Sérstaklega var ég gefinn fyrir
að smíða húsgögn og þess-
háttar. En aldrei var ég við nám
í iðninni og hafði því engin
réttindi.
Svo gerðist það, að sett voru
lög, sem gerðu „gerfismiðum“
eins og mér kleift að ganga
undir próf og fá þannig fag-
réttindi. Á Akureyri sat próf-
nefnd, sem dæmdi um hæfni
manna. Ég valdi mér húsgagna-
smíði sem sérfag, smíðaði skáp
einn mikinn og vandaðan og
fékk hann viðurkenndan sem
fullgilt sveinsstykki. Sveinsbréf-
ið mitt er dagsett 8. maí 1948,
sjáðu, hér er það. Þeir fengu sín
sveinsbréf samtímis Jón Björns-
son frá Göngustaðakoti og
Sveinn í Efstakoti. Eftir 4 ár
fékk ég svo meistararéttindi eins
og venja er.
Annars var ég farinn að vinna
hjá kaupfélaginu hérna miklu
■fyrr. Ég byrjaði smíðavinnu við
frystihúsið 1939. Það var þá
sem verið var að fara af stað
með hraðfrystinguna. Fastur
starfsmaður var ég hjá KEA
1941 og fljótlega tók ég við
byggingavörunni hjá félaginu.
Við það starfaði ég óslitið til
1972. Þá varð ég sjötugur og lét
af störfum samkvæmt regl-
unni.“
Þetta er starfssaga Frímanns
Sigurðssonar í sem allra fæstum
orðum sögð. Samt er raun-
verulega allt ósagt, sem mestu
máli skiptir, einkalífi, hugðar-
efni, tómstundastörfin o.s.frv.
Það gerir maður sér best ljóst
þegar komið er inn á heimili
þeirra hjóna. Húsið Bjarkar-
braut 11, Sunnuhlíð, er eigin-
lega dálítið listasafn þó ekki
standi það yfir dyrunum. Þar er
að finna fjölmörg og fjölbreyti-
leg verk tveggja listamanna
þ.e.a.s. húsráðendanna á bæn-
um.
Útsaumur, málun, útskurður
steinskreyting o.fl.
Þarna er margt að skoða,
þegar inn er komið. Og flest eru
það handaverk hjónanna. Hús-
göngin eru verk húsbóndans
svo og ýmisir útskornir munir,
askar, skálar o.m.fl. Áveggjum
hanga útsaumaðar myndir
eftir húsfreyjuna og á
gólfum stór og vönduð ullar-
teppi, sem hjónin hafa unnið í
sameiningu. Þá eru ótalin
skrautsteinaker Árnýjar, en þau
eru mörrg og margvísleg og hin-
ir fegurstu gripir.
Nýjasta uppátækið eru lampa
skermar mjög svo nýstárlegir.
Þeir verða þannig til að Frí-
mann sagar (í sérstakri sög)
næfurþunnar flögur úr ýmsum
tegundum skrautsteina, jaspis,
ópal, ónyx og fleiri bergkrist-
alla. Flögurnar tekur Árný og
límir á plötur úr plastgleri í
ýmiskonar munstur, blóm og
fíðrildi eða abstrakt mynd-
ir. Síðan smíðar Frímann
lampaskerma úr plötunum.
Þegar ljósið skín í gegn
hin dásamlegu litaform steins-
ins, sem engan skyldi gruna,
sem aðeins sér hann á ytra borð-
inu. Fótlampi, smíðaður af
Frímanni, búinn þessháttar
skermi er sannkallaður dýrgrip-
ur, sem á sér fáa líka.
Það er gaman að koma í kjall-
arann. Þar er smíðaverkstæði
húsbóndans og kennir þar
margra grasa. í öðru herbergi er
steinasafn húsfreyjunnar. Þarer
hráefnið, sem listaverkin eru
unnin úr.
Hvaðan koma allir þessir
steinar?
„Þeir eru nú héðan og þaðan,
segir Árný. Margir þeirra eru
teknir austurfrá, í Berufirði og
víðar. Aðra höfum við fundið á
Vestfjörðum. Við erum haldin
ólæknandi ferðaþrá hjónakorn-
in. Áður fyrr var ég mikið gefin
fyrir hesta eins og sannur Skag-
firðingur, en svo fékk ég sjúk-
dóm, sem gerði mér ómögulegt
að stunda þá íþrótt. Svo fengum
við okkur bíl og þá fórum við að
fara í langar sumarferðir. Við
höldum mikið upp á Barða-
ströndina. Þangað fórum við
t.d. nú í sumar. Þar er sums-
staðar gott til fanga með skraut-
steina.“
„Svo ókum við auðvitað
suður, segir Frímann, að hitta
drengina. Þegar þangað var
komið sagði ég að það væri ekki
hægt að snúa við bifreið í
þrengslunum í Reykjavík, svo
við ókum bara áfram austur um
líkindum hefur verið Árný
Þorleifsdóttir.
Og nú eruð þið senn á förum
héðan?
„Við tókum þá ákvörðun
fyrir nokkru að flytja suður á
meðan við enn erum manneskj-
ur til að halda heimili og sjá um
okkur sjálf. Drengirnir okkar,
Haukur og Bjarni, eru báðir
fjölskyldumenn og búsettirfyrir
sunnan og þeir vilja endilega að
við flytjum okkur nær þeim og
barnabörnunum. Með þeirra
aðstoð erum við að byggja
okkur íbúð suður á Álftanesi í
landi Skógtjarnar. Bjarni býr
þar skammt frá, svo það verður
auðveldara fyrir dæturnar hans
þrjár að heimsækja afa og
ömmu heldur en nú er. Þau vilja
að nýja húsið verði skírt Sunnu-
hlíð, því strákarnir hafa alltaf
haldið svo mikið upp á það nafn
þó að fáir kannist við það á
húsinu okkar hérna, sem við
erum reyndar búin að selja.
Nýja húsið verður ekki stórt en
það verður samt séð fyrir því að
nóg pláss verði fyrir góða
smíðastofu fyrir húsbóndann
og vinnustofu fyrir húsmóður-
ina.“
Hvernig leggst það í ykkur að
flytja frá Dalvík?
„Það þýðir ekkert að vera
með einhverja eftirsjá. Við erum
búin að taka þessa ákvörðun að
vel athuguðu máli og við ætlum
ekkert að láta okkur leiðast þótt
við komum í nýtt umhverfi. Við
verðum nærri okkar fólki og
það skiptir nú miklu máli. Svo
ætlum við auðvitað að halda
áfram af fullum krafti með
dútlið okkar, sem þú hefur séð.
Nú svo eigum við bílinn og
höldum vonandi áfram að
ferðast um landið okkar. Ennþá
Nokkrir af smíðisgripum Frímanns.
sveitir og fórum svoleiðis hring-
veginn heim.“
Fyrir undirrituðum rifjaðist
upp atvik frá því fyrir nokkrum
árum. Hann áttileiðfyrirSkaga
einn góðan veðurdag á síð-
sumri. Nálægt Ketubjörgum
var stoppað til að skoða náttúr-
una. Fáförult var, enginn bíll
hafði sést alla leiðina frá
Sauðárkrók. Þá skaust allt í
einu lítill A-bíll framhjá. Og viti
menn, við stýrið sat reyndar
títtnefndur Dalvíkingur, Frí-
mann Sigurðsson, og við hlið
hans sat kona, sem að öllum
höfum við ekki séð það allt.
Ætli við lítum nú ekki við hérna
á gamla staðnum þegar við
förum hring veginn næstu árin.“
Öllu lengra varð samtalið
ekki, blaðamaður þakkaðifyrir
sig og fór til muna fróðari um líf
og list þessara ágætu hjóna í
Sunnuhlíð. Að lokumskal þeim
í nafni lesenda blaðsins þakkað
framlag þeirra til mannlífs og
menningar í þessu byggðarlagi í
meir en hálfa öld.
Norðurslóð árnar þeim allra
heilla um ókomin ár í nýjum
heimkynnum. HEÞ
f
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa
PÁLS SIGURÐSSONAR
málara.
Hallfriöur Sigurjónsdóttir,
Kolbrún Pálsdóttir, Jón Finnson
og barnabörn.
NORÐURSLÓÐ - 3